Vikublaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 6
6
VIKUBLAÐIÐ 6. MAI 1994
Framkvæmdastjóri tæknideildar Borgarspítalans:
Ásakaður um misnotkun
og yfirgang
Sigurður Angantýsson, fram-
kvæmdastjóri viðhalds- og
tæknideildar Borgarspítalans,
hefur ítrekað verið kærður til borgar-
yfirvalda og forstjóra spítalans og bor-
inn þungum sökum um grófa mis-
notkun á aðstöðu sinni. Þá er mikill
kurr ríkjandi meðal margra starfs-
manna spítalans vegna stjórnunarað-
ferða Sigurðar sem þykja vægast sagt
einræðislegar. Jóhannes Pálmason
forstjóri Borgarspítalans kannast við
kurrinn, en segir ásakanir um meinta
misnotkun vera tíu ára gamalt mál.
Nokkrir iðnaðarmenn og fyrrum
starfsmenn spítalans eru reiðubúnir
að staðfesta það með vitnisburði sín-
uin að Sigurður hafi notað starfsmenn
spítalans og efni í eigu spítalans vegna
vinnu í eigin þágu. Er þar meðal ann-
ars tínd til vinna um árabil vegna ein-
býlishúss, sólhýsis og sumarhúss Sig-
urðar í Grímsnesi, vinna og efni upp á
milljónir króna í tímans rás. Fimm
fyrrum iðnaðarmenn við spítalann
hafa staðfest umkvartanir sínar við
blaðamann Vikublaðsins og segja að
tilraunir þeirra til að kæra málið og fá
breytingar hafi reynst árangurslausar.
Stjórnendur spítalans haldi yfir Sig-
urði hlífiskildi. Sigurður hafi uin leið í
mörg ár tíðkað einstrengingslegar
stjórnunaraðferðir og jafnvel lagt
menn í einelti og rekið eftir eigin
höfði. Viðtöl Vikublaðsins við ýmsa
starfsmenn spítalans staðfesm að óá-
nægja er ríkjandi með stjórnunarstíl
Sigurðar.
Iðnaðarinennirnir segja að þeir hafi
sjálfir unnið óinælda vinnu fyrir Sig-
urð á kostnað spítalans, þeir hafi í
raun verið til þess knúnir. Mjög langt
er síðan fyrst var kvartað yfir Sigurði
en það var í borgarstjóratíð Geirs
Hallgrímssonar heitins. Vikublaðinu
er kunnugt um að síðustu árin hafi
verið leitað til Davíðs Oddssonar og
Jóhannesar Pálmasonar forstjóra spít-
alans og síðast í byrjun apríl var leitað
til Jóns G. Tómassonar borgarritara.
Alltaf hefur kæmefnið verið hið sama:
Kærendur saka Sigurð um margra ára
Sigurður Angantýsson:
Vísa þessu til föðurhúsanna
„Ég vísa þessum ásökunum öll-
um til föðurhúsanna," segir Sig-
urður Angantýsson framkvæmda-
stjóri viðhalds- og tæknideildar
Borgarspítalans um þær ásakanir
sem fram koma í meðfylgjandi
firétt.
- Þú vilt ekkert frekar segja um
réttmæti þessara ásakana um mis-
notkun?
„Ég hef engu við þetta að bæta,
nema að það hljóta að vera kosning-
ar í nánd.“
- Þú átt við þá staðreynd að þú ert
sjálfstæðismaður?
„Ég var einu sinni viðloðandi
Sjálfstæðisflokkinn, já, var á lista
hans fyrír inörgum árum.“
- Hvemig getur þetta verið kosn-
ingamál ef þú ert svona lítið tengdur
inn í Sjálfstæðisflokkinn?
„Sjálfsagt ættu þínir heimildar-
menn að finna sér feitari bita, það er
rétt.“
- Þú ert líka sagður vera með mik-
inn yfirgang gagnvart starfsfólki?
„Ég hef ekki þau völd og hef
aldrei haft að ég geti verið með yfir-
gang.“
- Ert þú ekki yfinnaður viðhalds-
og tæknideildar spítalans?
,JÚ, að hluta.“
- Og þú neitar staðfastlega öllum
ásökunum urn misnotkun?
„Ég vísa þeim alveg hreint til föð-
urhúsanna."
Utboð
F.h. Borgarverkfræðingsins í Reykjavík, er óskað eftir tilboðum
í 150.000 birkiplöntur fil afhendingar á næsta ári.
Útboðslýsing verður afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 17. maí 1994, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Kjörskrá
til borgarstjómarkosninga, er fram eiga aö fara 28. maí
n.k., liggur frammi almenningi til sýnis á Manntalsskrif-
stofu Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2, 2. hæð, á al-
mennum skrifstofutíma frá og með 4. maí til kjördags.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist skrifstofu
borgarstjóra eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi þann 14.
maí n.k.
Menn eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á
kjörskránni.
Reykjavík, 29. apríl 1994.
Borgarstjórinn í Reykjavík
HH—1 I }. . I f jí S * # TTrr-rrr: s » | j'[[| H* WIW® OTt|||P#r«
mir'immrmmrinT Hc s«i Ílililílifl- Hp| SB SS iiKii!iiiiif< Wimm iss 53 ■ i líi 33 ]jj 3Í 55 »|jj 13 35 » jjj 5T 5<3 "]j 33 wmmm' --^111 ' 'W ,.j
Borgarspítalinn: Kurr í starfsfólki vegna stjórnunaraðferða og ásakanir á
hendur framkvæmdastjóra tæknideildar um áralanga misnotkun á fjár-
munum, efni og vinnukrafti spítalans í eigin þágu.
misnotkun á fjármunum, efni og
vinnukrafti Borgarspítalans. Þeir telja
reyndar að fleiri yfirmenn spítalans
hafi gerst sekir um það sama, en í
minna mæli. Enginn árangur hefúr
verið af þessum kærum iðnaðarmann-
anna, en þeir hafa allir verið flæmdir
úr starfi. Á sama tíma hafi ffam-
kvæmdastjórinn ráðið ættingja sína í
lausar stöður við tæknideildina.
Iðnaðarmennirnir segja Jóhannes
Pálmason forstjóra Borgarspítalans ít-
rekað hafa lofað að gera eitthvað í
málinu, en ekkert hafi gerst. Málið
hefur aldrei komið til umfjöllunar í
stjórn spítalans, hvorki nú í for-
mennskutíð Arna Sigfússonar né á
síðasta kjörtímabili í formennskutíð
Páls Gíslasonar.
Jóhannes svarar því til að þessi aðili
hafi verið ásakaður um misnotkun í
starfi fyrir tíu árum. „Málið var kann-
að ítarlega með viðtölum og bók-
haldsgögn skoðuð. Niðurstaðan var
sú að ekki þótti ástæða til að aðhafast
frekar í málinu," segir Jóhannes og
segist ekki vita urn neinar ásakanir um
misnotkun aðilans eftir þennan tíma.
Þó kannaðist hann við gagnrýni á
stjórnunaraðferðir Sigurðar. „Ég ætla
ekki að setjast í dómarasæti. Það er
enginn fullkominn í sínum stjómun-
araðferðum. En þetta er allt annar
handleggur," segir Jóhannes.
Gjöf til þjóðarinnar á Þingvöllum:
Davíð stöðvar
nýja stjórnarskrá
Sjálfstæðismenn vilja ekld sam-
þykkja nýjar tillögur stjórnar-
skrárnefndar um nýja stjórnarskrá
sem hátíðargjöf til þjóðarinnar á
Þingvöllum á hálfrar aldrar afmæli
lýðveldisins. Sjálfstæðisflokkurinn
með Davíð Oddsson í broddi fylk-
ingar hafa sagt við því þvert nei að
samþykkja stjórnarskrá þar sem kveð-
ið yrði á um mannréttindi og atvinnu-
réttindi. Lendingin verður að líkind-
um sú að samþykkja á Þingvöllum
fjárffamlag til einhvers „góðs málefh-
is“.
Stjórnarskrárnefnd skilaði sínum
tillögum fyrir um mánuði síðan, en
forystumenn Sjálfstæðisflokksins hef-
ur ekki viljað ræða tillögurnar efnis-
lega. Þó liggur fyrir að það sem stend-
ur mest í þeim er að samþykkja
stjórnarskrá þar sem fram kæmi að
binda ætti í lög ákvæði um rétt manna
til vinnu og orlofs og að allir skuli eiga
rétt á aðstoð vegna sjúkleika, örorku,
elli, atvinnuleysis eða af öðrum ástæð-
um sem lög kveða á um. 1
Á móti hafa sjálfstæðismenn verið
tilbúnir til að samþykkja tillögu um
fjárffamlag til „góðs málefnis“ og í því
sambandi hafa komið til umræðu
framlög til haffannsóknarmála, mál-
ræktarstarfs, skógræktar eða tíl sögu-
kennslu.
„Það er erfitt að henda reiður á það
af hvcrju sjálfstæðismenn eru svona
viðkvæmir fyrir samþykkt nýrrar
stjórnarskrár,“ segir Ragnar Arnalds
um málið. „Þeir ncfna helst að einstök
ákvæði séu þess eðlis að þau gefi fólki
óraunhæfar vonir, en þeir hafa aldrei
viljað ræða málið með formlegum
hættí. Nú reikna ég með að þetta endi
í samkomulagi um fjárframlag til ein-
hvers málefnis. Ég hef orðið var við
milda óánægju meðal þingmanna með
þessa stöðu, en það eru fyrst og ffemst
ráðherrar ríkisstjórnarinnar sem siglt
hafa þessu máli í strand, undir forystu
Davíðs Oddssonar," segir Ragnar.
Stein-
grímur J.
les Dönum
Evrópu-
pistilinn
Ráðherrar og fyrrverandi
ráðherrar Norðurlanda
hittast á ráðstefnu í Kaup-
mannahöfin á mánudag til að
ræða um Norðurlönd og Evr-
ópusambandið. Steingrímur J.
Sigfússon, fyrrverandi land-
búnaðar- og samgönguráð-
herra, er fúlltrúi Islands á ráð-
stefnunni.
Það er dönsk stofúun sem
skipuleggur ráðstefnuna, Evr-
ópustefúuráðið (Rádet for Euro-
pæisk Politik), en stofnunin varð
til í kjölfar þess að Danir höfn-
uðu Maastrict-samkomulaginu í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hlutverk Evrópustefnuráðsins
er að vera vettvangur umræðu
og ráðgjafar um Norðurlönd og
Evrópusambandið. Stofnunin
starfar í skjóli danska utanrík-
isráðuneytísins.
Auk Steingríms halda erindi á
furidinum þau Ulf Dinkelspiel,
sænski evrópuráðherrann, Elisa-
beth Rehn, varnarmálaráðherra
Finnlands, Tove Strand Ger-
hardsen, fyrrverandi ráðherra í
norsku ríkisstjórninni og Mari-
anne Jelved, efnahagsmálaráð-
herra Danmerkur.
Þá mun danski utanríkisráð-
herranp, Nils Helveg Petersen,
taka þátt í ráðstefnunni.
Danir leggja áherslu á að
fyrirlesararnir komi hvorttvegg-
ja úr herbúðum stuðningsmanna
og andstæðinga Evrópusam-
bandsins.
„Það er erfitt að henda reiður á það af
hverju sjálfstæðismenn eru svona
viðkvæmir fyrir samþykkt nýrrar
stjórnarskrár,“ segir Ragnar Arnalds.
Enginn einkaaðili
hefði selt SR-mjöl
á 725 milljónir kr.
Sjávarútvegsráðherra var
harðlega gagnrýndur á þingi
fyrir að hafa selt SR-mjöl hf.
á gjafverði og notað til þess vafa-
samar aðferðir.
- Við áttum öflugt fyrirtæki sem
búið var að reka í 63 ár án þess að
ríkið setti peninga í fyrirtækið.
Sjávarútvegsráðherra ákveður að
selja fyrirtækið og byrjar á því að
setja rúrnar 400 milljónir króna í
það áður en hann selur SR-mjöl til
einkaaðila. Ég fullyrði að engum
einkaaðila hefði dottíð í hug að selja
SR-mjöl, hvað þá fyrir 725 millj-
ónir, segir Jóhann Arsælsson þing-
maður.
Jóhann bendir á að síðustu ár hafi
mikið fé verið lagt í að byggja upp
SR-mjöl. Meðal annars hefur verk-
smiðjan á Seyðisfirði verið endur-
nýjuð og ffamleiðir nú hágæðamjöl
sem selst á góðu verði.
Hann gagnrýndi einnig aðferðina
sem beitt var við söluna. Mjög
skammur frestur var veittur þeim
aðilum sem áhuga höfðu á að kaupa
SR-mjöl og meðal annars var Ak-
ureyrarbæ neitað um aukinn frest.
I skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur ffarn það mat að SR-mjöl
hafi verið selt á of lágu verði og
einnig er fundið að aðferðuin við
sölun'a.