Vikublaðið


Vikublaðið - 18.11.1994, Síða 5

Vikublaðið - 18.11.1994, Síða 5
VTKUBLAÐIÐ 18. NOVEMBER 1994 Stpúktúpspilling, ppívatspilling og pegnskapup Fáeinum klukkutímum áður en Guðmundur Ámi Stefánsson boðaði til blaðamannafundar á föstu- dag til að segja af sér var Alþýðublaðinu dreift til áskrifenda með grein eftir Jón Baldvin Hannibals- son formann Alþýðuflokksins. Ritsmíðin er tilraun formannsins til að útskýra ömurlega stöðu Alþýðu- flokksins fimm mánuðum fyrir þingkosningar. Grein Jóns Baldvins er tvískipt. í fyrri hluta hennar rekur hann einfaldaða sögu íslenskra stjómmála sem hann kennir við samtryggingu, helmingaskipti Framsóknar og Ihalds, sérhagsmunapot og fyr- irgreiðslu. Hann hefur áður notað hugtakið strúktúrspilling um þetta kerfi og segir Al- þýðuflokkinn stand^ fyrir utan það. I seinni hluta greinarinnar kennir formaðurinn fjöl- miðlum um að hafa stimplað Alþýðuflokkinn spilltasta flokk landsins. Af orðum hans að dæma virðist að vanþekking, fordómar og fals íjölmiðlamanna hafi með sérstaklega illþyrmis- legum hætti bitnað á Alþýðuflokknum. Guð- mundur Ami Stefánsson varaformaður flokks- ins og fyrrverandi félagsmálaráðherra hafði uppi sömu rök þegar hann sagði af sér ráð- herradómi eftir hádegi á föstudag. Hvomgur reyndi að útskýra hvers vegna Alþýðuflokkur- inn verður umfram aðra fyrir barðinu á vond- um fjölmiðlum. Málflumingur forystumann- anna er ekki trúverðugur en þegar þannig er komið fyrir elsta flokki landsins að ráðherrar ýmist hætta í honum eða segja af sér embætt- um við lítinn orðstír og kjósendur yfirgefa hann í hrönnum er ástæða til að velta fyrir sér hvað raunverulega hrjáir Alþýðuflokkinn. Það sem Jón Baldvin kállar strúktúrspillingu er arfleifð samfélagskerfis sem myndaðist þeg- ar fámenn þjóð fékk sjálfsforræði án þess að vera almennilega í stakk búin til að takast á við verkefnið. Kerfið fór Iangt með það að tryggja helsm hagsmunaöflum samfélagsins aðgang að þeirri uppsprettu valda og fjármagns sem var að finna í stjómarráðinu. Fyrir utan sam- keppnina um atkvæðafylgið, sem ædast er til að stjómmálaflokkar stundi, vom pólitískar deilur af tvennum toga. Annarsvegar innbyrðis erjur innanflokka milli einstaklinga sem keppm um forystu og hinsvegar milli stærri og smærri hópa sem reyndu að tryggja aðstöðu sína í op- inþera kerfinu. Innanflokksátök snemst iðu- lega meira um persónulegan memað en mál- efni og átm meira skylt með héraðsríg sveita- höfðingja en nútíma stjórnmálabaráttu. Hags- munahópar klæddu kröfur sínar þeim rökum sem hverju sinni þóttu líkleg til árangurs. Þeir flokkar sem vom hvað þaulsetnastir í ríkisstjórn, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis- flokkur, vom að hluta til með talsmenn sömu hópanna innan sinna vébanda; bændur, út- gerðarmenn og embættismenn. Fulltrúar laun- þega hreiðmðu um sig í Alþýðuflokknum sem klofhaði nokkmm sinnum þegar ungir flokks- menn gengu róttækri hugmyndaffæði á hönd. Kommúnistaflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og loks Alþýðubandalagið vora allir skipaðir fyrram alþýðuflokksmönnum. Hugmynda- fræði skipti hvað mestu máli fyrir róttæka sósí- alista, en þó ekki meira en svo að strax árið 1944 gengu þeir til stjómarsamstarfs með höf- uðandstæðingi sínum, Sjálfstæðisflokknum. Stjórnmálakerfið náði utanum mikilvægustu svið þjóðfélagsins; atvinnu- og efnahagslíf, menntakerfi og menningu. Gagnvart einstak- lingum kom það ffarn sem skömmtunarkerfi og til að hafa aðgang að gæðum þess varð mað- ur að tilheyra stjórnmálaflokki. Oll opinber umræða á Islandi laut forsjá flokkakerfisins. Dagblöð vom ýmist í eigu flokkanna eða fylgdu þeim skilyrðislaust að málum vegna annarra tengsla og stjómmálaflokkamir höfðu ítök í yfirstjórn Ríkisútvarpsins í hlutfalli við þingstyrk. Fjölhyggjuþjóðfélag Þetta er kerfið sem Jón Baldvin kallar strúkt- úrspillt. Hann gleymir affur á móti að geta at- riða sem skipta sköpum í umræðunni og fara langt með að skýra hörmtmgamar sem dunið hafa á Alþýðuflokknum síðustu misserin. Kerf- ið varð til þegar vanþróað samfélag þurfti að axla ábyrgð sem það reis tæplega undir. Það þýðir að upphaflega var einkenni kerfisins van- geta ffemur en .spilling. Það er einfaldlega söguleg staðreynd að á fyrri hluta aldarinnar vom ekki til þær forsendur sem nauðsynlegar em borgaralegu fjölhyggjuþjóðfélagi. Því er í meira Iagi hæpið hjá Jóni Baldvin að stilla þeim Olafi Thors, Jónasi Jónssyni og forstöðu- mönnum samvinnufyrirtækja upp við vegg og saka þá um spillingu árið 1937 fyrir það að á- stunda þá pólitík sem var bein afleiðing af ffumstæðu stjórnmálakerfi. Spilling opinbera kerfisins á Islandi felst í því að aðlaga sig ekki að þróun fjölhyggjuþjóðfé- lags og þar her Jón Baldvin sinn hluta ábyrgð- arinnar, eins og vikið verður að. Kerfið er fjarri því að vera gjörspillt. Það dugði til síns brúks á sínum tíma og er ekki ónýtara en svo að hægt er að endurbæta það. En það er ekki hægt að bíða ffam í það óendanlega. Á síðustu ámm hefur myndast misgengi milli stjómmálakerf- isins og lýðræðislegra hugmynda sem sífellt stærri hluti þjóðarinnar aðhyllist. Þetta mis- gengi hefur valdið skjálftum í kerfinu. Tilurð og sigur Reykjavíkurlistans í borgarstjómar- kosningum í vor er einn slíkur skjálffi og af- sögn Guðmundar Árna Stefánssonar er annar. Misgengi Það sem felldi Guðmund Árna var að hann starfaði í anda gömlu stjómmálanna á sama tíma og fjölmiðlar leitast við að túlka sjónar- mið fjölhyggjusamfélags sein gerir meðal ann- ars skýran greinarmun á persónulegum hags- munum og opinberam hagsmunum. Um miðjan september skrifaði Helgi Jóhann Hauksson grein í Morgunblaðið Guðmundi Árna til stuðnings. Helgi beinir spjómm sínum að blaðamönnum sem hann segir ekki skilja að „rótgróin ættar- og félagatengsl“ liggi eins og „margofið net um allan bæinn. Guðmundur Arni er af stórri og virtri ætt í Hafharfirði og trúlega þeirri áhrifamesm í seinni tíma sögu bæjarins,“ skrifar Helgi og telur að Guðmund- ur Árni gæti ekki „afgreitt nokkuft mál í Hafn- arfirði án þess að þar kæmu við sögu sam- flokksmenn, ættingjar, kunningjar, vinir og í- þróttafélagar." Osköpin dundu yfir þegar Guðmundur Árni flutti með sér yfir í höfuðborgina stjómunarstíl sem gefist hafði ágætlega í Hafiiarfirði í sjö ár. Honum fannst ekkert athugavert við það að gera vel við Bjöm Onundarson, föður æsku- vinar síns, og Iét hann fá stórar upphæðir úr ríkissjóði þegar Björn missti opinbert embætti vegna skattsvika. Guðinundi Ama þótti einnig sjálfsagt að búa til verkefni handa frænda sfn- um, Hrafnkeli Ásgeirssyni, og greiða honum i Jón Baldvin Hannibalsson hefur kappkostaö að koma vel út á mœlistiku kerjisins sem hann þykist þó standa utanvið. Samtímis hefur hann gœtt þess að eiga í handraðan- um klisjur handa þeim sem trúa því að stjórnmál séu eitthvað meira en valdastólar og hrossakaup. Fyrir fimm árum mœlti Jón Baldvin fagurt um sameiningu vinstrimanna en núna er lausnarorðið Evrópa. 350 þúsund krónur fyrir 3,5 vélritaðar síður af lögfræðiáliti. Á blaðamannafundinum á föstudag réttlætti Guðmundur Árni gerðir sínar með þeim orð- um að hann vildi „huga að hverjum einstak- lingi, þörfum hans og vonum.“ Stjórnmála- maður sem starfar eftir þessari forskrift mun alltaf hygla vinum sínum og vandamönnum á kosmað annarra einfaldlega vegna þess að hann þekkir þarfir og vonir þeirra betur en ó- kunnugra og vandalausra. Einstaklingur í fjöl- hyggjuþjóðfélagi á ekki að þurfa að eiga vini eða ættingja í stjómarráðinu til að þarfir hans og vonir fái hljómgmnn. 1 alvöraríkjum túlka stjómmálamenn þarfir og vonir þegnanna allra. Löng saga gerð smtt: Fjölmiðlar og almenn- ingsálitið snemst gegn ráðherranum og hann missti embættið. Það er svo í takt við annað í þessari sögu að ættarlaukurinn hélt sneyptur heim í fjörð og strengdi þess heit að safna liði til að ná aftur til sín hásætinu. Tvískinnungur Jón Baldvin ræddi ekki Guðmundarmál í Al- þýðublaðinu á fösmdag og hefur ekki látið í ljós efasemdir um stjórnarhætti fyrmm bæjar- stjóra Hafharfjarðar. Ekki heldur ræddi hann í föstudagsgreininni þau tækifæri sem hann hef- ur haft til að gera grundvallarbreytingar á kerf- inu sem hann skilgreinir sem spillt. Formaður Alþýðuflokksins hafði eftir síð- ustu kosningar tækifæri til að mynda vinstri stjórn með Framsóknarflokknum og Alþýðu- bandalagi. Það hefði verið rökrétt framhald af ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Það hefði verið rökrétt framhald af hugsjónum sem Jón Baldvin þóttist þafa um stóran jafnaðar- inannaflokk. Það hefði verið rökrétt framhald af þeirri stefnu sem Jón Baldvin þóttist hafa uin endurbæmr á stjómmálakerfinu. En það var ekki rökrétt framhald á stjórnmálaferli manns sem metur árangur sinn á kvarða kerfisins. Helmingaskiptastjóm með Sjálfstæðisflokkn- um var stórsigur fyrir litla Alþýðuflokkinn og setti fonnann hans á stall með þeim forysm- mönnu flokksins sem tryggt hafa flokknum hvað lengsta stjórnarsem. Jón Baldvin hefur haldið Alþýðuflokknum í ríkisstjóm í sjö ár og það var þessi langa stjóm- arseta sem Friðrik Sophusson fjámiálaráðherra benti á þegar hann hrósaði stjórnmálahæfileik- um formanns Alþýðuflokksins í útvarpsþættin- um Þriðji maðurinn á Rás 2 um helgina. Kerf- ið mælir árangur stjómmálamanna eftir því hversu lengi þeim helst á stjórnartaumunum, allt annað er aukaatriði. Jón Baldvin hefúr kappkostað að koma vel út á þessari mælistiku. Samtímis hefur hann gætt þess að eiga í hand- raðanum klisjur handa þeim sem trúa því að stjómmál séu eitthvað meira en valdastólar og hrossakaup. Fyrir fimm árum mælti Jón Bald- vin fagurt um sameiningu vinstrimanna en núna er lausnarorðið Evrópa. Fólk, og sérstaklega ungt fólk, er farið að átta sig á gangverkinu og líst illa á. I sama tölu- blaði Alþýðublaðsins og ritsmíð formannsins birtist er grein eftir ungan alþýðuflokksmann ogvaraborgarfulltrúa Reykjavíkurlistans, Ingv- ar Sverrisson. „Hatur og heimska tröllríður forystuklíku smáflokkanna,“ er fyrirsögnin sem Ingvar velur pistlinum enda er honum heitt í hamsi. Hann segir ungt fólk vilja sjá stóran og breiðan jafhaðarmannaflokk. „En hvað er það sem stendur í veginum?,“ spyr Ingvar. ,Jú, enn sem fyrr era það smákóngar í forystu flokkanna sem vegna einhverra fortíð- ardrauga og eiginhagsmunagæslu standa í vegi fyrir því að hinn stóri draumur fólksins verði að vemleika. Hjá þessum forystumönnum ræður [ferðinni] persónuleg valdabarátta, hat- ur og heimska [...] Almenn ffamtíðarsýn hefur vikið fyrir stundarhagsmvmum,“ skrifar Ingvar. Leikreglur Eitt athyglisverðasta stjómmálarit síðustu ára er Making Democracy Work: Civic Tra- ditions in Modem Italy eftir Robert Putnam. Bókin er affakstur tveggja áratuga athugana á sveitarstjómum á Italíu sem fengu fyrir aldar- fjórðungi aukin völd. Málefhi sem sveitastjóm- ir sinna núna em meðal annars heilsugæsla og sjúkrahús, landbúnaður, húsnæðismál og efna- hagsþróun. Pumam reynir að svara þeirri spumingu hvers vegna sumar sveitarstjómir skila góðu verki til ánægðs almennings á með- an aðrar sveitarstjórnir em spilltar og klúðra hverju málinu á fætur öðm öllum til armæðu. I smttu máli er ekki hægt að skýra ólíka ffammistöðu sveitarstjóma með hefðbundnum hætti. Stjórnmálaflokkar geta allir verið ofur- seldir spillingu, mennmnarstig hefur lítið að segja og efhahagsstaða skýrir ekki muninn á heilbrigðu stjómarfari og spilltu. Það sem ræður mesm, samkvæmt Putnam; er þegnskapur þeirra sem samfélagið byggja. Þegnskapur verður til þegar sátt næst um leik- reglur, þegar opinbert vald er takmarkað og réttindi einstaklingsins vel skilgreind, þegar sjálfsagt er að persónulegur memaður stjóm- málainanna víki fyrir almannaheill. Þegnskapur verður ekki til í kerfi hagsmuna- stjórmála og lukkuriddarapólitík verður heldur ekki til að auka þegnskap. Það er ekki hægt að búa til þegnskap en affur á móti er hægt að leggja sig fram um að skilyrðin séu fyrir hendi. Það er ekki óhugsandi að einhver hluti ís- lensku þjóðarinnar hafi á síðasta áramg trúað því að Alþýðuflokkurinn væri það pólitíska afl sem myndi hnika okkur ffá gamla úrelta kerf- inu og skapa skilyrði fyrir nýrri stjómmála- hugsun. Sé "það raunin gæm hörmungar Al- þýðuflokksins legið í því að vonsvikin þjóð sé að refsa litlum flokki fyrir að standa ekki undir miklum væntingum. Páll Vilhjálmsson

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.