Vikublaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 10
10
VIKUBLAÐIÐ 9. DESEMBER 1994
að er dasað þinglið sem nú situr
að störfum við Austurvöll. Það
er hálfgert gervilöggjafarþing í
gangi, stutt þinghald á kosninga-
vetri. Menn eru með hugann við
undirbúning kosningabaráttunnar,
það eru og hafa verið prófkjör í
gangi. Ekki síst eru menn hálf lam-
aðir vegna þeirrar ógnunar sem
stafar af Þjóðvaka, hinnar nýju hreyf-
ingar sem Jóhanna Sigurðardóttir
hefur smíðað í kringum sig.
Jólahlé þingsins nálgast en stjórn-
arflokkamir eru með allt niðmm sig
sem lítur að fjárlögum næsta árs.
Samt er það svo að það er eins og
enginn nenni að pæla í þessu fjár-
lagafrumvarpi og bandormi þess.
Menn líta á þetta sem fyrirfram
dauðadæmd plögg, sem lítt verður
að marka. Komandi fjárlög verða
marklaus á kosningaári og fær ekki á
sig mynd fyrr en fjármálaráðherra
nýrrar ríkisstjórnar hefur lagt ffarn
fjáraukalagaffumvarp. Friðrik Soph-
usson veit ekkert hvaða forsendur
hann hefur til að miða við. Það em
nefnilega ekld bara kosningar
ffamundan, heldur einnig yfirgrips-
miklar samningalotur við launafólk.
Inni í Stjómarráðinu er eins og
ráðamenn heyri og skynji ekld neyð-
arkall alþýðunnar. Það er ekki bara
að þeir hafi tekið saman við atvinnu-
rekendur um að halda niðri og lækka
kaupmátt launa og velta þyngstu
skattabyrðunum af fyrirtækjunum
yfir á fólkið, heldur hafa ráðamenn-
imir lagt blessun sína ítrekað á okur-
vaxtastefnu fésýslubatteríisins. Þetta
batterí fékk frelsið mikla um miðjan
síðasta áramg og notaði það til að
skófla út vafasömum lánum án þess
að gæta að tryggingum. Þetta batterí
er síðan búið að afskrifa töp upp á 45
milljarða króna. Ríkisstjórnin er
búin að laga stöðu batterísins með
nokkmm milljörðum og restina
borgar alþýðan og smáfyrirtækin
með himinhrópandi vöxtum og ört
vaxandi þjónusmgjöldum.
En fjármálaráðherra vill ekki
skattleggja hina efnameiri sérstak-
lega. Vilí ekki vera vondur við vini
sína og kunningja. Það kemur ekki
til greina að leggja áffam sérstakan
skatt á þá sem em svo óheppnir að
hafa meira en margur í laun. Hvað
þá að fara að leggja skatt á verð-
bréfagróðann.
Gjalþrot og nauðungamppboð
hrannast upp hjá alþýðunni. Hún
ræður ekki við okurvextina og hörðu
lögffæðiinnheimmna (þetta er
gósentíð lögffæðinganna). Skuldir
heimilanna em 270 milljarðar króna.
Það er nálægt fjórum milljónum á
vísitölufjölskylduna. Fólk hefur
margt hvert neyðst til að fara til
bankastjóranna til að slá lán til að
borga lögffæðingunum og kaupa
mat ofan í fjölskylduna fyrir afgang-
inn.
Bankastjóramir, með öll útlána-
töpin á bakinu, krefja alþýðuna um
tryggingar, góð veð eða pottþétta á-
byrgðarmenn. Bankastjórarnir með
700 þúsund til milljón á mánuði.
Með fínu mubblumar og málverkin í
kringum sig. Bankastjórarnir á
jeppadrossíunum. Með laxveiðidell-
una sem em með hugann við næsm
utanlandsferð. Bankastjóramir sem
sitja í nokkram stjómum og ráðum
og fá hálf mánaðarlaun bankagjald-
kera fyrir hverja þeirra - fyrir að sitja
fund kannski einu sinni í mánuði.
í dagsins önn
TOveraja og ég
s
Eg skipti um vinnu núna í nóvem-
ber. Ekki þó af því að mér væri
sagt upp eða mér leiddist á mínum
gamla vinnustað eða fengi betur
borgað annars staðar eða neitt slíkt.
Satt best að segja held ég út í algera
óvissu með þessari uppsögn. Nokk-
urra mánaða verkeffii og síðan alger
óvissa.
Frá þeim sjónarhóli séð var þetta
að sjálfsögðu tóm endaleysa. En til
em þeir hlutir sem vega þyngra en
atvinnuöryggi og trygg ffamfærsla
fjölskyldunnar. Það vom útvarps-
stöðvarnar sem hrökm mig til þess-
ara örlagaríku ákvörðunar.
Tvisvar hef ég gengið í gegnum þá
eldraun að starfa í desember á vinnu-
stað þar sem annað hvort Bylgjan
eða Rás 2 vom sífellt í gangi. Eg
treysti mér ekki í slíkt einu sinni enn.
Allt ffekar en þau ósköp. Eg hef séð
meiri bóga en ég er brotna undan því
álagi að hlusta á þau jólalög, jólasög-
ur, jólauppskriftir, jólabra'ndara og
jólakynlíf sem tröllríður öllu á þess-
um útvarpsstöðvum frá lokum nóv-
ember.
Það er ekkert spilað sem ekki hef-
ur í sér þessa viðbjóðslegu bjöllu-
hljóma sem eiga að tákna jól og snjó
og jólahreindýr. Og allar þátta-
stjórnendur umla í sífellu um jólin
og gjafimar og matinn og guð. Það
kostulegasta er þó þegar þetta lið
ætlar að leggjast á djúpmið og fer að
tala um mikilvægi þess að gleyma sér
nú ekki í stressinu heldur eiga rólega
stund með fjölskyldunni. Fjölskyld-
an eigi að sameinast um að föndra
einhverjar jólagjafir ffekar en kaupa
allt dýmm dómum. Konan geti
prjónað noklcur sokkapör og bömin
fléttað nettar körfúr meðan húsfað-
irinn les úr kristilegum hugvekjum
og elsta barnið leikur undir á lútu.
Eg er ekki einu sinni að búa þetta
til. Það er í alvöra stungið upp á
þessu og varla hefur síðasta orði
hugvekjunnar verið sleppt þegar
dembist yfir auglýsingaflóð og síðan
kemur einhver bráðskemmtilegur
leynigestur með nýjar bráðskemmti-
legar kökuuppskriftir eða nýja að-
ferð við að útbúa jólarjúpurnar svo
þær verði nú ömgglega óætar. Og
svo kemur sálfræðingurinn og býður
upp á meðferð eftir sjoldcið sem það
inniber að fá ekki það sem maður
óskaði sér heldur of litla ullarsokka
og tágakörfur sem ekki gera annað
gagn en safna ryki þar til inaður get-
ur laumast til að henda draslinu. Og
loks kemur Jóna Ingibjörg og minn-
ir menn á að nota smokkinn og í til-
efni jólanna er nú hægt að fá slíka
með greniilmi og steikarbragði. Lítil
spiladós fylgir og leikur „White
Christmas."
Sápukúla
springur!
Síðustu sýningar
Mikil aðsókn hefur verið að „Sápu“ Auðar Haralds
sem fmmsýnd var á opnunarkvöldi Kaffileikhúss-
ins þann 7. október s.l. Upphaflega var ráðgert að sýn-
ingum lyki í nóvember en þar sem nær alltaf er húsfyllir
verða tvær aukasýningar, í kvöld 9. desember og laugar-
daginn 17. desember.
Lítill aukaleikari sem mætt hefur á allar sýningar á
Sápunni í maga móður sinnar vill fara að komast í heim-
inn og treystir sér ekki lengur til að hanga kjurr. I stað
hans og móður hans, Erlu Ruthar Harðardóttur, verður
hann leystur af hólmi af stóram fiðurkodda á maga Eddu
Björgvinsdóttur. Blessuð óléttan er nefnilega ómissandi
þáttur í sýningunni. Það má geta þess að fyrir nákvæm-
lega 17 ámm, þann 9. desember 1977, stóð Edda Björg-
vinsdóttir á sviði Nemendaleikhússins ásamt ófæddum
syni sínum. Gerði hann móður sinni kleift að ljúka ffum-
sýningunni en í frammíkallinu var þolinmæði hans á
þrotum og litlu munaði að hann dytti á sviðið og hneigði
sig með móður sinni og bekkjarfélögum hennar. Miða-
pantanir em í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum.
Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum
„Þá mun enginn skuggi vera til“
Ahrifamildll leikþáttur um sifja-
spell og afleiðingar þess efirir
Björgu Gísladóttur og Kolbrúnu
Emu Pétursdóttir. Ekki við hæfi
bama!
Leikþátturinn „Og þá mun enginn
skuggi vera til“ hefur verið sýndur
víða um land síðustu vikurnar á
vinnustöðum og hjá félagasamtök-
um.
Leikþátturinn er einleikur og fjall-
ar um konu sem gerir upp fortíð sína
við óvenjulegar aðstæður, rifjar upp
atburði úr æsku og lýsir áhrifum
þeirrar reynslu sem hún varð fyrir.
Áhorfendum gefst tækifæri til að
auka skilning sinn á þessu viðkvæma
málefhi, en sifjaspell er eitt best
varðveitta leyndarmál í samfélagi
okkar og svartur blettur á siðmennt-
uðu þjóðfélagi. Nauðsynlegt er að
auka umræðuna um sifjaspell og af-
leiðingar þess, því fræðsla og upplýst
umræða er grundvöllur þess að forða
megi bömum og unglingum frá lífs-
reynslu sem getur valdið þeim óbæt-
anlegu tjóni. Möguleiki er á umræð-
um eftir sýningu. Rétt er að geta þess
að sýningin er ekki við hæfi barna.
Aukasýning á verkinu verður í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum
fimmtudaginn 15. desember n.k.
Sýningin hefst kl. 21:00 en húsið
opnar kl. 19:00 og er boðið upp á
kvöldverð fyrir og eftir sýningu.
Það er annar höfundur verksins,
Kolbrún Ema Pétursdóttir, sem fer
með einleikshlutverkið, en leikstjóri
er Hlín Agnarsdóttir.
ERRÓ sýningin framlengd
Þann 5. nóvember s.l. var opnuð
að Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á
verkum ERROS undir yfirskriftinni
GJOFIN. Vegna gífurlegrar að-
sóknar verður sýningin framlengd til
16. desember n.k.
Sýningin gefur óvenju fullkomna
yfirsýn yfir listsköpun listamannsins,
bæði hvað varðar sögulega þróun og
listræn gæði.
Alls hafa nú tuttugu þúsund
manns séð sýninguna, þar af um
fimmþúsund skólabarna, félaga,
vinnuhópa og hópa eldri borgara
sem hafa fengið safhaleiðsögn um
sýninguna. Mikil sala hefur einnig
verið á nýútgefinni bók um Erró,
póstkortum og árituðum plakötum.
Blúsbræðingur frá J.J. Soul Band
Uit er komln geisladiskur og Eðvarð Lámsson, Vilhjálmur Guð- leikarinn Stefán S. Stefánsson og ví-
snælda með hljómsveit- jónsson og Ari Einarsson, saxófón- brafónleikarinn Reynir Sigurðsson.
inni J.J. Soul Band. Disk-
urinn ber nafhið „Himgry For
News“.
Höfúndar laga og texta era Ingvi
Þór Kormáksson og J.J. Soul, sem er
söngvari hljómsveitarinnar og leikur
einnig á ásláttarhljóðfæri. J. J. Soul
er breskur að ætt og uppmna og
starfaði f Bretlandi og víðar sem
hljómlistarinaður. Hann hefúr verið
búsettur * hér á landi um nokkurt
skeið.
Tónlistin á disknum er fjölbreytt
en blúsinn er oftast nálægur. Auk
fyrmefndra em í hljómsveitinni
Stefán Ingólfsson bassaleikari og
Trausti Ingólfsson trommuleikari.
Aðrir hljóðfæraleikarar sem fram
koma á geisladisk J.J. Soul Band em
gítarleikararnir Þórður Arnason,