Vikublaðið - 18.08.1995, Page 6
T
Umræðan
VIKUBLAÐIÐ 18. AGUST 1995
Ráðliús Reykjavíkur, innkeyrsla í kjallara frá Tjamaiy;ötu
Vesturgata 7, innkeyrsla frá Vesturgötu um Mjóstræti.
Lesið grein
mína aftur
og betur!
18. águst
afimæli
Reykjavíkurborgar
Velkomin
í miðborgina!
jótið lífsins
notið húsin
• Vegna hátíðarhalda á afmælisdegi Reykjavíkur föstudaginn 18. ágúst, verður lokað
fyrir bílaumferð um Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og neðsta lduta Skólavörðustígs
frákl. 13:00- 18:00.
• Fjölbreytt skemmtidagskrá mun setja svip sinn á miðborgina og ennfremur verða
útimarkaðir ef veður leyfir. Kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að njóta lífsins í lifandi borg.
• Á meðan þið röltið um miðborgina er tilvalið að geyma bflinn í einhverju af hinum
sex glæsilegu bílahúsum borgarinnar. Þar þarf aldrei að hafa áhyggjur af því
að tíminn renni út, þú borgar aðeins fyrir notaðan tíma.
■ Uppbfið mannlíf og menningu í miðborginni og kynnið ykkur kosú bflahúsanna í leiðinni.
|W BILASTÆÐASJOÐUR
Bílastœöi fyrir alla
Agætu félagar af Suðurlandi.
Mér hefur alltaf fundist skemmti-
legt að fá bréf fram undir þetta en
opna bréfið frá ykkur í Vikublaðinu
síðasta olb mér vonbrigðum. Það olli
mér vonbrigðum vegna þess að þar er
verið að herma upp á mig hlutd sem
eiga ekld við rök að styðjast. Ef þið á-
gæm félagar takið það til ykkar sem
ég segi um utanflokksmenn þá bend-
ir það til þess að þið hafið ekld lesið
grein mína á réttan hátt og með
nægjanlegri athygb. Auðvitað eiga
drengskapur og prúðmennska að
ráða í okkar samskiptum. í grein
minni ræðst ég ekki á Margréti en tel
hana hins vegar eiga betra skilið en
þau trilskrif í ýmsum blöðum undan-
farið þar sem utanflokksmenn sem
ekki hafa kosningarétt í þessum for-
mannskosningum koma við sögu.
Um sameiningu og stefnu
Eitt sinn var Alþýðubandalagið
talið róttækur stjómmálaflokkur en
undanfarin ár hefur verið reynt að út-
þynna steftiu flokksins þannig að fáir
vita hvað flokkurinn vill eða hefúr
upp á að bjóða. Það er til dæmis ekk-
ert auðvelt að átta sig á því sem kallað
er „útflutningsleiðin“. Á síðasta
landsfundi kallaði ég þetta uppaleið-
ina og ég tel að þar fari lítrið fyrir jafn-
aðarstefnunni.
Þetta hefur auðvitað verið gert til
þess að auðvelda samruna við miðju-
flokka, en svoleiðis sameiningu er ég
ekki sammála. Eg (og vonandi þið) er
til dæmis ekki sammála mörgu því
sem Alþýðuflokkurinn stóð að í síð-
ustu ríkisstjóm.
Leiðin til að sameina vinstrimenn
er ekld sú sem margir af okkar fýrr-
verandi félögum (sem nú virðast vera
í stuðningsmannaliði Margrétar)
hafa valið, þ.e. að sundra fýrst og fara
npm JP mm
Cy ffjlllllll
m jr m jr mL
fjarsjodur
á heimilinu?
A mörgum heimilum má finna ,Jalinn fjársjóð“;
útgjaldaliði sem má lœkka.
Þetta veitir svigrúm til að lœkka skuldir, byrja .
reglulegan sparnað og vera á grœnni grein í
Búnaðarbankanum.
gnew
MEÐ SPARIASKRIFT
® BÚNAÐARBANKINN
-Traustur banki
heimilislínaN
- Einfaldar fjármálin
Einar
Gunnarsson
skrifar
síðan fram á viðræður um samein-
ingu, og ef að líkum lætur á þeirra
forsendum. Allir sem eklri em sam-
mála þeim em á móti þeim og að
þeirra mati ólýðræðislega þenkjandi.
Það er að minnsta kosti mín reynsla
af samskiptum við þá. Vonandi hef ég
rangt fýrir mér. Eg er á því að leiðin
til ffamfara sé einmitt sameining
vinstri manna en þá er víst betra, til
að árangur náist, að víðsýni ráði í
framvarðasveitinni og að ný hreyfing
vinstri manna vilji gera róttækar
breytingar á íslensku þjóðfélagi til
heilla fýrir alþýðuna. Sem sagt; stofh-
um róttækan jafhaðarmannaflokk
sem hefur það að leiðarljósi að skoða
heiminn af sjónarhóli jöfhuðar, af-
náms á arðráni manns á manni og
með hagsmuni launamanna í fyrir-
rúmi. Sá flokkur þarf ekki endilega að
heita Alþýðubandalagið en getur það
engu að síður. Hugsum ekld frekar
um eitthvert miðjumoð sem engixm
skilur.
Stuðningur við Steingrím J.
Eins og þið hafið réttilega lesið út
úr mínum skrifúm, þó ég hafi bein-
línis ekki sagt það, þá styð ég Stein-
grím J. Sigfússon í formannskosning-
unum og treysti honum betur til þess
að leiða flokldnn okkar í bæði sam-
einingarviðræðum og væntanlegum
ríkisstjómarviðræðum. Ég hef nefni-
lega kynnst honum betur vegna þess
að hann hefúr látið til sín heyra varð-
andi flesta málaflokka sem skipta
okkur máli, bæði innan Alþingis og
einnig hefúr hann verið ötull við að
kynna sín sjónarmið bæði hér á síð-
um Vikublaðsins svo og í öðrum fjöl-
miðlum en því miður hef ég ekld oft
séð blaðagreinar eftir Margréti eða
heyrt í henni í sölum Alþingis. Með
þessum orðum er ég ekld að kasta
rýrð á Margréti og ég treysti henni á-
gætlega sem þingmanni og félaga.
Eg segi það enn og aftur, að ég
vona að þessar formannskosningar
verði drengilegar, en ég óttast að ef
þeir aðilar sem vilja nú skipta sér af
þeim og standa utan við okkar flokk
og hafa eyðilagt áður fýrir, fái að ráða
þá fari lítið fýrir drengskapnum.
Að síðustu ágætu félagar. Lesið
aftur grein mína og gáið að hvort
ekki finnist annað innihald en þið
rákust á sfðast.
Formaður Félags blikksmiða
og félagi í ABR