Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Blaðsíða 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 12. febrúar 2005 ! Aha, The Sunday Times, sagði dökkleiti blaðasalinn í kaupfélaginu á George IV Bridge í Edinborg um daginn, þegar ég rogaðist að af- greiðsluborðinu með mikinn bunka; sunnudagsútgáfu The Times með öllum fylgiblöðum dagsins, sérritum og fríum geisladiski. It’s all rubbish, sagði hann og glotti. Já, samsinnti ég og gramsaði eftir klinki, þetta verður allt sorp um leið og það hefur verið lesið. Nei, ég meina fyrr, sagði hann þá og hló, þetta eru blaðaukar sem eng- inn þarf á að halda, ferðasögur, bisness, auglýsingar … Þetta er drasl, sóun á plássi, lýsti hann yfir og ítrekaði, waste of space! Hann hélt áfram: Við höfum ekkert við þetta að gera – við þurfum bara að lesa fjórar síður. Fyrirlestur mannsins var kon- ungleg skemmtun. Ég ákvað að kaupa blöðin mín alltaf hjá honum. Getur það annars verið? Að við gef- um út og kaupum allt, allt of stór blöð sem eru ekki annað en sóun á rúm- metrum, yfirfall upplýsinga, ónauðsyn- legt mas og daður við tilgangsleysi? Er það hugsanlegt? II. Á þriðjudegi leitaði ég skjóls fyrir rigningu og slagviðri í National Gall- ery of Scotland. Innan stokks var mjög hátíðlegt, teppalögð gólf og rauðir veggir með meistaraverkum málverka- sögunnar í gylltum römmum. Ég gleymdi mér strax, á meðan bráði af veðurguðunum, en þegar regnið hóf að lemja glerþakið með tvöföldu afli ákvað ég að hraða mér. Við aðaldyrnar var gamall safnvörður á vappi. Hann hélt hurðinni opinni og sagði: Þú ættir að hlaupa núna, áður en allt verður vit- laust – þetta er nú meira veðrið. Já, svaraði ég, og búið að vera alla vikuna. Segðu, jánkaði hann, svona er veð- urfarið að breytast. Og verst er að vita að þetta er okkur sjálfum að kenna! Svo sendi hann mig út í hvassviðrið. Getur það verið, hugsaði ég, að losun gróðurhúsalofttegunda, eða hvað það nú heitir, sé farin að hafa svona áþreif- anleg áhrif á veðrakerfi heimsins? Sá gamli í köflóttu buxunum var a.m.k. með sínar hugmyndir um global warm- ing á hreinu. Hugtakið var enda mikið rætt í skoskum fjölmiðlum í janúar sökum óvenjukröftugs vatnsveðurs og flóða. Og fólk tók það augljóslega inn á sig. Getur verið að við lifum á þeim tímum að sektarkennd muni hér eftir skyggja á gleði okkar yfir björtu, hlýju, blautu, dramatísku eða fallegu veðri? III. Þegar ég lenti á Glasgow-flugvelli þurfti ég að taka strætó niður á lest- arstöð að nafni Queen Street. Ég steig inn í strætisvagninn og sagði bílstjór- anum hvert ferðinni væri heitið. Hann seldi mér miða. Þá greip mig skyndipanik og ég spurði hvernig í ósköpunum ég gæti eiginlega vitað hvenær ég ætti að fara út. Ég sá engin leiðakort á veggjunum og þaðan af síð- ur tölvuskjá eins og í þýskum S- lestum, bjóst samt við að einhvers kon- ar bjöllukerfi væri í vagninum og fannst nauðsynlegt að setja mig inn í málið hið snarasta. Bílstjórinn brosti vingjarnlega og svaraði svo eins og ekkert væri einfaldara: I’ll give you a shout! Getur þetta verið? Að við, sem borg- arbúar og ferðalangar, séum orðin svo vön og háð tæknilegum lausnum að við séum hætt að gera ráð fyrir mannlegri nálægð, samskiptum og almennri greiðasemi, á leiðum okkar? Getur ver- ið að sumir kimar hversdagsins hafi hreinlega verið tæknivæddir að óþörfu, sem ekki gerir annað en auka fjar- lægðina milli fólks? Hér er ekki ein- asta átt við ferðir með strætó heldur margt fleira og hugsi nú hver fyrir sig. Af vagnstjóranum er það að segja að hann kallaði „Queen Street Station!“ í tæka tíð og þakkaði mér af einlægni fyrir samfylgdina. Mér varð bjánalega orða vant. Riddarar götunnar Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is Ránið á milljónamæringnum FabianBengtsson hefur verið aðal-umfjöllunarefni sænskra fjölmiðlaundanfarnar vikur. Bengtsson er erfingi fjölskyldufyrirtækisins Siba sem verslar með raftæki en honum var rænt að því er talið er 17. jan- úar en fannst aftur illa til reika 3. febrúar á bekk í Slottsskogen í miðborg Gautaborgar. Málið er ekki upplýst þegar þetta er skrifað en þó er búið að handtaka mann í Austurríki sem talinn er tengjast því. Sænsk lögregla hefur verið þögul allan tímann og uppskorið pirring hjá blaða- mönnum fyrir vikið. Greinar uppfullar af spurningum til lögreglunnar hafa birst í blöðunum en engin svör. Fyrr en nú í vik- unni þegar tveir yfirmenn hjá lögreglunni í Gautaborg skrifuðu grein í Gautaborg- arpóstinn undir yfirskriftinni: „Þess vegna höfum við ekki sagt sannleikann um mann- ránið.“ Þar kom annars vegar fram að öll leyndin hafi verið nauðsynleg og þjónað rannsóknarhagsmunum. Hins vegar má a.m.k. lesa á milli línanna að leyndin hafi einnig þjónað ákveðnum tilgangi, þ.e.a.s. þeim að blekkja mannræningjana. Lög- reglan notaði því fjölmiðlana. Myndband með foreldrum Bengtssons þar sem þau biðja mannræningjana að láta soninn lausan var sýnt bæði í sænska rík- issjónvarpinu og TV4 stuttu eftir að honum var rænt og allt þar til umrædd grein birt- ist var talið að lögreglan vissi ekkert um það fyrr en eftir að það hafði verið sýnt. Í grein lögreglumannanna Krister Jacobsson og Klas Friberg í GP 8. febrúar kemur hins vegar fram að lögreglan vissi allan tímann af myndbandinu. Í greininni kemur fram að lögreglan hafði ríka ástæðu til að ætla að mannræningj- arnir myndu fylgjast vel með fjölmiðlum. Og á þeim tímapunkti sem myndbandið birtist, þ.e. 22. janúar hafi það verið mik- ilvægt fyrir öryggi Fabian Bengtssons að gjörningsmennirnir fengju það á tilfinn- inguna að það væri gjá á milli fjölskyld- unnar og lögreglunnar. Mannræningjarnir höfðu jú krafist þess að lögreglunni væri ekki blandað í málið. Þannig er því lýst hvernig fjölmiðlarnir lögðu óafvitandi lagt sitt af mörkum til rannsóknarinnar. Það er ástæða til að leiða hugann að því hversu stutt er á milli þess að upplýsa les- endur/áhorfendur/áheyrendur eða að vera handbendi einhvers, eins og oft er talað um að fjölmiðlar geti verið. Það er reyndar kannski betra að fjölmiðlar séu notaðir í þágu réttvísinnar en í þágu stjórnmála- eða viðskiptaafla eins og stundum tíðkast. Mannræningjunum sjálfum tókst hins vegar ekki að færa sér fjölmiðla í nyt þegar þeir skrifuðu síðdegisblaðinu GT bréf og skip- uðu svo fyrir að það ætti að birtast strax. Bréfið var hins vegar afhent lögreglunni sem ekki getur kvartað yfir því að fjöl- miðlar séu ekki samstarfsfúsir. Bréfið var þó vissulega birt eftir að Bengtsson fannst. Enn sér ekki fyrir endann á leyndinni því ákveðið hefur verið að gefa alls ekki upp nafn mannsins sem handtekinn hefur verið og vísað til aðstandenda hans í því sam- bandi. Jafnramt er vísað til rannsókn- arinnar á morðinu á Önnu Lindh utanrík- isráðherra á sínum tíma en Siba-málið hefur nánast vakið jafnmikla athygli fjöl- miðla. Einnig er verið að verja rannsóknina því glæpaklíkur og -samtök geta e.t.v. nýtt sér slíkar upplýsingar ef þær eru opinberar og búið sig betur undir hugsanlegt áhlaup lögreglu. Lögreglan leiðrétti ekki heldur rangfærslur fjölmiðlanna á meðan Bengts- son var enn í haldi mannræningjanna og segist ekki hafa viljað staðfesta annað óbeint með því. Það er augljóst að sænskt fjölmiðlafólk er ergilegt. Það kemur ekki nema broti af upplýsingunum til fjölmiðlaneytenda og fréttirnar verða efnisminni fyrir vikið. Og nú er ekkert hægt að segja um manninn sem var handtekinn annað en að hann er talinn tengjast glæpasamtökum og hefur hlotið dóma. Hann hefur hlotið nafnleynd samkvæmt dómsúrskurði, sem reyndar hef- ur verið áfrýjað. Sannleikur og blekking Fjölmiðlar Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is ’Það er ástæða til að leiða hugann að því hversu stutter á milli þess að upplýsa lesendur/áhorfendur/áheyr- endur eða að vera handbendi einhvers, eins og oft er tal- að um að fjölmiðlar geti verið. ‘ I Það góða við strúktúralismann er að hannfellir sjálfsagða hluti í kerfi. Það góða við póststrúktúralismann er að hann rífur niður öll kerfi um sjálfsagða hluti. Það góða við það sem kemur eftir póst- strúktúralismann hlýtur þá að vera að það býr til nýja heimsmynd sem verður ekki sjálfsögð, eins og sú sem við höfum nú glatað, heldur eitthvað miklu, miklu betra. II Veruleikinn er þarna, segir Páll Skúla-son í viðtali í Lesbók í dag. Þetta eru góð orð og raunar huggunarrík fyrir fólk sem hélt um tíma að veruleikinn væri jafnvel horfinn fyrir fullt og allt sem haldgott við- mið; hann væri einungis til í mistraustum orðum og hugmyndum. Nei, veruleikinn er þarna og hann er miklu, miklu stórkostlegri en við getum nokkru sinni ímyndað okkur, hann er stærri en öll okkar orð, hann er merkilegri en allar okkar hugmyndir, að mati Páls. III Hugsanlega er veruleikinn hið nýja við-mið sem hljómar samt eins og einhver brandari vegna þess að ef veruleikinn er þarna þá hefur hann alltaf verið þarna og allt það sem við segjum og hugsum er og hefur alltaf verið viðbrögð við honum. En kannski verður veruleikinn ekki hið nýja viðmið heldur sú af- staða að hann sé tvímælalaust þarna og við skyldum hætta að ímynda okkur eitthvað ann- að, að hann sé horfinn, að það sé ekkert til að tala um nema það sem býr innan í sjálfum okk- ur og það sem við segjum um það sem býr inn- an í sjálfum okkur – sú afstaða að við segjum loksins skilið við Hegel og þá díalektísku draumsýn hans að við munum að endingu finna hinn algera anda og snúum okkur frekar að því sem við höfum fyrir framan nefið á okk- ur, hinn alltumvefjandi, áþreifanlega og ótrú- lega augljósa veruleika. IV Það vill reyndar svo til að þessa af-stöðubreytingu, þetta nýja viðmið, hafði franski póststrúktúralistinn Michel Foucault spáð um í frægustu bók sinni Les mots et les choses eða Orðin og hlutirnir sem kom út um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Í lok þeirrar bókar gekk Foucault þvert á kenningu Hegels og hélt því fram að maðurinn sem ríkjandi viðmið og algildur útgangspunktur í fræðum og vísindum væri um það bil að deyja drottni sínum, að þurrkast út smátt og smátt eins og andlit dregið í fjörusand, og við tæki hinn algeri efnislegi veruleiki. V Foucault gekk að vísu skrefinu lengra enPáll sem vill ekki segja skilið við manninn, útiloka hann. Páll vill að við tölum um veru- leikann eins og hann sé þarna, og hann vill að við tölum um hann eins og við sjáum hann en ekki eins og við upplifum hann. Það verður hins vegar að segjast eins og er að ríkjandi hugarfar gagnvart náttúrunni hér á landi, sem Páll er að andmæla í bók sinni um Öskju og viðtalið fjallar um, minnir óþægilega mikið á það ástand sem Foucault lýsti sem algerri efnishyggju. Neðanmáls VIÐ ERUM það upplýst samfélag að hér tekst að halda úti athyglisverðu menningar- lífi og virkri umræðu um hitt og þetta sem allir geta tekið þátt í ef áhugi er fyrir hendi. Allt okkar menningarbrölt á sér samt einhvers konar undirtexta sem skýrist af persónulegu samhengi eða af þeirri stemmningu sem ríkir það andartakið. Undirtext- inn er þá þýðing. Sú þýðing sem eitt og annað brölt hefur fyrir okkur sem ein- staklinga eða hóp. En almennt séð vill fólk náttúrulega bara láta hafa ofan af fyrir sér. Svo var haldið pervertakvöld á galeiðunni um helgina. Ég fór ekki. Var samt næst- um því búin að senda lútherskt lesendabréf til Morgunblaðsins en eitthvað stöðvaði mig. Þegar á hólminn er komið, hefur maður eitthvað að segja um samfélagsástand þar sem öllu fæst hampað? Allt á sér sinn tíma, sitt ár hafsins, sína viku símenntunar, sinn dag bókarinnar. Eiga perversjónirnar ekki rétt á einni kvöldstund? Rétt í krafti sérstöðu sinnar og afþreyingarmöguleika, skemmtanagildis. Á plaggötunum stendur PERVERTAKVÖLD, með x punkta letri og slær þankaganginn utanundir – sem er víst ætlunin. Það er samt ekki blætið sem er verið að auglýsa, almenn afbrigðilegheit heldur kvöldstundin og partýið. Ekki beint andóf gegn klámvæðingu. Bara kóun. Undirtextinn er því fólginn í því að það er allt í lagi að nota perversjónir í auglýs- ingaskyni og það er víst ekkert nýtt. Annar undirtexti angraði mig í bókabúðinni. Yfirleitt gleðst ég yfir mögulegum kjarakaupum á hvaða vettvangi sem er en krakkarnir eru núna að selja hina stórgóðu Þögn Vigdísar Grímsdóttur á 690 krónur. Svona gerðarlegt ritverk, fjöldi síðna, ánægjuleg lesning, krefjandi saga sem ég las í einhverju desemberflóðanna. Ég hef alltaf verið sökker fyrir handverki og þurfti að minna mig á af hverju ég má ekki kaupa fleiri bækur í þessum mánuði. Núna kostar Þögnin 690 krónur til marks um það hversu marklaus verðlagningin á bókmenntunum er. Ætti tíminn að gjaldfella af- urðir eins og bækur? Markaðsvæðing menningarinnar er undirtexti útsölunnar. Bók- in er vara sem á heima á jólunum. Nú liggur hún plastlaus og varnarlaus á afgreiðslu- borðunum og reynir að tæla fólk til þess að lesa meira í febrúar. Blóðugt að vera rithöfundurinn ekki satt? Kristrún Heiða Hauksdóttir Kistan www.kistan.is Undirtextar menningarinnar Morgunblaðið/Kristján Íslenskur veruleiki. Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.