Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Qupperneq 4
4 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005
M
aður á varla til orð
yfir þann aragrúa
tímarita sem fylla
hillur bókabúðanna.
Hver fáklædd kon-
an rekur aðra og
þær keppast við að
láta taka eftir sér
og brosa breiðar en fyrirsagnirnar sem svífa
yfir höfðum þeirra. Stundum er fátt annað að
gera en að loka augunum, rétta hendurnar út,
og vona að maður grípi tímarit sem innihaldi
eitthvað sem sé þess virði að lesa. Það virðist
ekki skipta öllu máli um hvað tímaritið snýst –
allar forsíðurnar eru eins.
Eftir þennan hollinskolla-leik gæti verið að
þú stæðir við kassann með
eintak af tímaritinu T3 í
höndunum. Forsíðan á því
fellur vel að formúlunni:
þar er undantekningarlaust fáklædd, glæsileg
kona, tvíræðir orðaleikir, og ósjaldan má sjá
skipanir frá ritstjórninni: „30 hlutir sem þú
verður að eiga!“ En þér gæti brugðið í brún
þegar þú opnar tímaritið að lokum. Þar er
engin umfjöllun um konuna fögru sem seldi
þér blaðið, heldur snýst tímaritið einvörðungu
um hið nýjasta úr heimi tækja og tóla. Blaðið
gefur sig út fyrir að vera „the world’s best
gadget magazine“, en enska orðið „gadget“ er
illþýðanlegt á íslensku. Það merkir hvers
kyns hugvitsamlegt tæki og er varla hægt að
skýra nánar, en það er oft einkenni á „gadget-
um“ að þau hafa engan eða takmarkaðan hag-
nýtan tilgang.
Í þessari grein er ætlun mín að kynna tíma-
ritið T3 og þá hugmyndafræði sem birtist í
uppsetningu þess, myndum og texta. Ekkert
er tilviljunum háð eða merkingarlaust, því sá
sem skoðar blaðið les alltaf einhverja merk-
ingu í það, hvort sem hún er meðvituð af hálfu
ritstjórnar eða ekki. Líklegt má þó telja að
ritstjórnin elti þá hugmyndastrauma sem eru
ríkjandi í þjóðfélaginu á hverjum tíma og
reyni á einhvern hátt að gera þeim skil. Tíma-
rit hljóta að endurspegla samtíma sinn að ein-
hverju leyti, þó að það sé einnig algengt ein-
kenni á tímaritum að þau skapi sinn eigin
heim til umfjöllunar. T3 dansar línudans milli
„raunveruleikans“ og „ofurveruleika“ fjöl-
miðla og auglýsinga, og þessi tvíhyggja blaðs-
ins verður höfð til hliðsjónar við greiningu
þess.
Tækni morgundagsins – í dag
T3 merkir „tomorrow’s technology today“ eða
„tækni morgundagsins í dag“.
Blaðið snýst um að kynna fyrir lesendum
sínum nýjustu tækni og vísindi. Áherslan er
þó nokkuð önnur heldur en í samnefndum
sjónvarpsþætti. Öll raftæki sem hafa glæsi-
lega hönnun, öll tæki sem kosta óeðlilega mik-
ið, öll tól sem eru skrítin eða skemmtileg á
einhvern hátt, eiga erindi í T3, miklu frekar
en tæki sem munu koma til með að bylta um-
búnaði fólks í þriðja heiminum eða slíkt.
Uppbygging blaðsins er alltaf sú sama en
því er skipt í fjóra meginhluta. Fyrsti hlutinn
heitir „T-file“ og spannar u.þ.b. fyrstu 40 síð-
ur blaðsins. Þar eru fréttaskot úr herbúðum
hátæknifyrirtækja á borð við Sony, Nokia og
Apple. Stórar ljósmyndir af tækjunum prýða
síðurnar og með fylgir stuttur myndatexti. Á
fyrstu síðunum má sjá eitt og eitt tól sem er
kynnt með heilsíðumyndum og stuttum
myndatexta. Fjöldi tækja er síðan aukinn á
hverri síðu og þau jafnan birt í flokkum
(myndavélar, símar, fjarstýrðir bílar o.s.frv.).
Annar hlutinn samanstendur af les-
endabréfum, lengri og ítarlegri greinum og
föstum þætti sem kallast „installation“ eða
innsetning. Lesendabréfin eru ýmist viðbrögð
við greinum sem birst hafa eða reynslusögur
lesenda af notkun einhvers tiltekins tækis,
kvartanir undan lélegri þjónustu eða slíkt.
Lengri greinarnar geta fjallað um ýmislegt;
þar eru framkvæmdar óvenjulegar hörku-
prófanir á tækjum, gerð grein fyrir víðtækum
áhrifum nýrrar tækni, t.d. vélmenna, á heim-
ilinu; fjallað um áhrif höfundarréttarlaga á
niðurhal tónlistar, nýliðnu og komandi ári eru
gerð skil í tækniheiminum o.s.frv. Oft fara
blaðamennirnir á stúfana og athuga hversu
langt tæknin getur fleygt þeim í ákveðnum
verkefnum, t.d. reynir einn að semja popp-
slagara og koma í útvarpsspilun, annar reynir
að vinna spurningakeppni, og enn annar reyn-
ir að ná sem bestum myndum af kvikmynda-
stjörnum á frumsýningu.
Innsetningin er einn skemmtilegasti hluti
blaðsins en þar fer blaðamaður í heimsókn til
einhvers sem er virkilega vel tækjum búinn.
Þar má oft sjá íbúðir sem maður hefði ekki
getað ímyndað sér að væru til nema í skáld-
sögu eftir William Gibson.
Þriðji hluti blaðsins er svo gagnrýni á til-
teknar vörur og tilheyrandi stjörnugjöf. Gefn-
ar eru stjörnur fyrir „performance“ og
„value“ og saman mynda þær stjörnugjafir
„T3 total“-einkunnina. „Performance“, eða
frammistaða, segir til um hversu vel eða illa
tækið sinnir því hlutverki sem því er ætlað.
Hátæknileg hát
Heimur tímaritanna er gríðarlega margbrot-
inn. Gefin eru út tímarit um nánast alla skap-
aða hluti. Eitt þeirra nefnist T3 og fjallar um
nýjustu tækni og vísindi. Áherslan er þó
nokkuð önnur heldur en í samnefndum sjón-
varpsþætti. Öll raftæki sem hafa glæsilega
hönnun, öll tæki sem kosta óeðlilega mikið,
öll tól sem eru skrítin eða skemmtileg á ein-
hvern hátt, eiga erindi í T3, miklu frekar en
tæki sem munu koma til með að bylta umbún-
aði fólks í þriðja heiminum eða slíkt.
Eftir Atla Bollason
atb1@hi.is
„This smart phone slut will go with anyone“ Tólin
eru sýnd ein og sér – óháð notagildi.
„Next year’s hottest gadgets.“ Hvort er átt við tólið eða konuna?