Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Blaðsíða 8
K
enning Darwins um uppruna
tegundanna var sett fram
sem líffræðikenning til að út-
skýra tilurð og eiginleika
dýra og jurta. Hún er und-
irstaða nútímalíffræði. En
kenningin hefur ekki aðeins haft áhrif innan
líffræðinnar heldur líka innan sálfræði, mann-
fræði, félagsfræði og fleiri vísinda sem fjalla
um mannlífið. Sjálfur ritaði
Darwin um mannfræði í bók sinni
um Ætterni mannsins (The
Descent of Man) sem út kom árið
1871. Þar tekur hann af öll tvímæli um að
mennirnir eru hluti af því lífríki sem hann
fjallaði um í Uppruna tegundanna og það sem
þar segir um eðlishvatir dýra og hvernig þær
hafa þróast fyrir náttúruval á líka við um lyk-
ilþætti í sálarlífi manna. Raunar víkur Darwin
að þýðingu kenningar sinnar fyrir mannvís-
indin á síðustu blaðsíðunum í Uppruna teg-
undanna þar sem hann segir:
Ég held að ný og margfalt mikilvægari rannsókn-
arsvið verði til í náinni framtíð. Sálfræðin verður
byggð á nýjum grunni, þar sem litið verður svo á
að andlegir eiginleikar og hæfni myndist hægt og
sígandi. Og nýju ljósi verður brugðið á sögu og
uppruna mannsins. (Bls. 659)
Eins og nefnt var í fyrri pistli tengdist þró-
unarkenning Darwins ýmsum öðrum hug-
myndum um sögulega framvindu sem á kreiki
voru á seinni helmingi nítjándu aldar. Orðið
darwinismi var notað um alls konar þróun-
arkenningar, ekki bara þá skoðun að nátt-
úruval hefði mótað lífríkið. Margir reyndu að
nota darwinisma í þessum víða skilningi til að
rökstyðja misgæfulegar stjórnmálaskoðanir.
Til dæmis var reynt að réttlæta nýlendu-
stefnu Evrópumanna á þeim forsendum að
hvíti maðurinn sé „þróaðri“ en t.d. Afríkubúar
og það sé í þágu framfara að „þróaðri“ verur
ryðji þeim „vanþróaðri“ úr vegi.
Tilraunir nítjándu aldar manna til að nota
líffræðilegar þróunarkenningar til að rök-
styðja stjórnmálaskoðanir eða hugmyndir um
mannlífið og mannlegt samfélag eru stundum
kallaðar einu nafni félagslegur darwinismi.
Hugmyndir af þessu tagi hafa hlotið heldur
slæm eftirmæli og gjarna verið tengdar við
kynþáttafordóma, hernaðarhyggju, andstöðu
gegn velferðarþjónustu og fátækrahjálp og
tilraunir til að réttlæta ofbeldi og óréttlæti
með þeim rökum að það sé afleiðing nátt-
úrulögmála sem ekki tjói að vinna gegn.
Vissulega álitu sumir talsmenn félagslegs
darwinisma að stríð stuðlaði að þróun mann-
kynsins með því að öflugar og sterkar þjóðir
útrýmdu þeim aumu og vesælu og sumir
þeirra álitu líka að stétt manna og þjóðfélags-
staða tengdist atgervi sem gengi að erfðum:
Fátækt, sjúkdómar og slæm félagsleg staða
væru til marks um lítið atgervi og ef aðstoð
við þá sem standa höllum fæti yrði svo mikil
að þeim yrði gert auðveldara að auka kyn sitt
mundi stofninum hnigna því afkvæmi undir-
málsmanna yrðu að jafnaði undirmálsmenn.
Best væri því að haga samfélagsskipaninni
þannig að lélegasta fólkið hefði sem minnsta
möguleika á að fjölga sér. Í nafni svona hug-
mynda var talsvert gert af því að gelda
þroskaheft fólk langt fram eftir tuttugustu
öld. Darwin orðaði sjálfur hugmyndir í þessa
veru í bók sinni Ætterni mannsins þar sem
hann segir (í 5. kafla þar sem fjallað er um
áhrif náttúruvals á siðmenntaðar þjóðir) að í
siðmenntuðu samfélagi eignist aumustu ein-
staklingarnir börn og enginn sem hafi kynnt
sér ræktun húsdýra vefengi að þetta hafi
slæm áhrif á mannkynið.
Á síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrri
hluta þeirrar tuttugustu áttu fasismi og
kommúnismi vaxandi fylgi að fagna meðal
evrópskra menntamanna. Þetta var tími
harðra átaka og mikilla öfga í stjórnmálum
álfunnar og talsmenn alls konar stjórn-
málakenninga reyndu að nota vísindalega
þekkingu til að rökstyðja sinn málstað. Þetta
á jafnt við um frjálshyggjumenn á borð við
Herbert Spencer (1820–1903) í Bretlandi;
jafnaðarmenn eins og August Bebel (1840–
1913) í Þýskalandi; og upphafsmenn fasisma
og kynþáttahyggju eins og Frakkann Gustave
Le Bon (1841–1931). Líffræðilegur skilningur
á mannlífinu og hugmyndir um þróun voru
einnig notaðar af konum sem mæltu fyrir
jöfnum rétti karla og kvenna eins Clémence-
Auguste Royer (1830–1902) í Frakklandi og af
körlum eins og Friedrich Nietzsche (1844–
1900) sem andmælti jafnrétti á þeim for-
sendum að það veikti mannkynið og ýtti undir
hnignun þess.
Félagslegur darwinismi er ekki nein ein
stjórnmálaskoðun heldur fjölbreytilegar til-
raunir til að skilja menningu, trúarbrögð,
stjórnmál, samfélagsþróun og sálarlíf manna
á þeim forsendum að maðurinn sé háður lög-
málum líffræðilegrar þróunar rétt eins og
aðrar dýrategundir. Þótt félagslegur darwin-
ismi sé þekktastur fyrir heldur harðneskjuleg
viðhorf sem haldið var fram í nafni hans er
hann einfaldlega of fjölbreytilegur til að hægt
sé að alhæfa mikið um áhrif hans á stjórnmál
og stjórnmálahugsun. Um þetta segir Mike
Hawkins í bók sinni Social Darwinism in
European and American Thought 1860–1945:
„Af því einu að einhver aðhyllist félagslegan
darwinisma er ómögulegt að álykta neitt um
viðhorf hans eða hennar til hernaðar, kapítal-
isma, kynþátta, heimsvaldastefnu eða fé-
lagslegrar stöðu kvenna, enda rúmar þessi
sýn á heiminn andstæðar skoðanir um öll
þessi efni og mörg önnur.“ (Cambridge Uni-
versity Press 1997, bls. 35)
Þess er áður getið að sumir notuðu þróun-
arkenningar til að réttlæta hernaðarhyggju.
Þetta á til dæmis við um Le Bon sem áleit að
stríð milli þjóða og kynþátta væru forsenda
þróunar og framfara. Aðrir höfnuðu þessu. Til
dæmis var frjálshyggjumaðurinn Herbert
Spencer friðarsinni og hélt því fram að stríð
stuðluðu að hnignun mannfólksins því hraust-
ustu strákarnir færu á vígvöllinn og féllu án
þess að eignast börn, en vesalingarnir yrðu
eftir heima hjá kvenfólkinu. Spencer er lík-
lega frægasti talsmaður félagslegs darwin-
isma á nítjándu öld og í hugum margra er
stefnan nátengd nafni hans og orðalaginu
„survival of the fittest“ sem hann er höfundur
að. Spencer var þó ekki neinn darwinisti í nú-
tímaskilningi því hann mótaði hugmyndir sín-
ar að mestu leyti áður en Uppruni tegund-
anna kom út og fylgdi þróunarkenningu
Lamarcks. Eftir að hann las bók Darwins
áleit hann, eins og Darwin sjálfur, að bæði
náttúruval (eiginlegur darwinismi) og erfðir
áunninna eiginleika (lamarckismi) hefðu hlut-
verki að gegna. Áherslan var þó fremur á þró-
unarkenningu í anda Lamarcks, enda taldi
Spencer að samkeppni mundi bæta mann-
kynið þar sem hún fengi menn til að leggja sig
fram og sú aukna hæfni sem af því leiddi
gengi í arf.
Meðal annars vegna þess hvernig fé-
lagslegur darwinismi tengist stjórnmála-
stefnum sem enn vekja sterk tilfinninga-
viðbrögð er afar umdeilt að hve miklu leyti
líffræðilegar kenningar um þróun mannsins
eiga réttmætt erindi inn á svið félagsvísinda.
Á síðustu áratugum hefur félagslíffræði
(sociobiology) þó verið í nokkurri sókn sem
segja má að hafi byrjað árið 1975 með útkomu
bókarinnar Sociobiology: The New Syntehsis
eftir Edward O. Wilson. Kenningar Wilsons
hafa sætt harðri gagnrýni af hálfu annarra fé-
lagsvísindamanna. Segja má að talsverður
hluti af andmælum þeirra sé af svipuðu tagi
og andófið gegn félagslegum darwinisma
nítjándu aldar þar sem Wilson er bæði fundið
það til foráttu að hann einfaldi flókinn veru-
leika meira en góðu hófi gegnir og að hann
geri margt af því slæma í mannlífinu, eins og
ofbeldishneigð karla og ótryggð þeirra í ást-
armálum, að náttúrulögmáli.
Að baki síðarnefndu andmælunum býr ef til
vill sú hugsun að hvaðeina sem á sér nátt-
úrulegar orsakir sé óhjákvæmilegt og því von-
laust að vinna gegn því. Þetta er vitaskuld
misskilningur. Þótt náttúrulegar orsakir séu
fyrir ýmsu sem aflaga fer er ekki þar með
sagt að það sé óhjákvæmilegt. Það eru til
dæmis líffræðilegar skýringar á því að menn
sem eru rauðhærðir og ljósir á húð sólbrenna
fremur en þeir sem hafa dökkt litarhaft og
svart hár. Af þessu leiðir vitaskuld ekki að
rauðhausar séu dæmdir til að sólbrenna held-
ur að ef þeir eru í mjög björtu sólskini ættu
þeir annaðhvort að klæða sig eða nota öfluga
sólvörn. Á sama hátt ættu náttúrufræðilegar
skýringar á því að karlar eiga það til að beita
konur ofbeldi ekki að leiða til þess að menn
sætti sig við ofbeldið eða telji ekkert við því
að gera. Rökrétt viðbrögð væru fremur að
finna leiðir til að vinna gegn ofbeldishneigð-
inni og ala stráka upp í að riddaramennska sé
karlmannleg og það sé skammarlegt að níðast
á konum.
Á síðustu árum hefur sýn fræðimanna á
darwinisma í stjórnmálahugsun nítjándu ald-
ar breyst. Menn gera sér nú ljóst að þótt hug-
myndir um líffræðilega þróun hafi sums stað-
ar verið vatn á myllu vafasamra afla er ekki
þar með sagt að það hafi að jafnaði haft slæm-
ar afleiðingar þegar kenning Darwins hefur
verið notuð til að varpa ljósi á mannlífið. Hitt
er sönnu nær að alls konar stjórnmálafylk-
ingar reyndu að nýta nýjustu vísindi málstað
sínum til framdráttar. Líffræðilegur skiln-
ingur á mannlífinu var til dæmis bæði notaður
til að færa rök með hernaðarhyggju (Le Bon)
og á móti henni (Spencer), með kvenrétt-
indum (Royer) og á móti þeim (Nietzsche).
Jafnframt því sem saga félagslegs darwin-
isma á nítjándu öld hefur verið tekin til end-
urskoðunar á allra síðustu árum hafa líf-
fræðileg sjónarmið unnið á innan félags-
vísinda, einkum sálarfræði. Nú er næstum ein
og hálf öld síðan hið mikla rit Darwins um
Uppruna tegundanna kom fyrir almennings
sjónir. Samt held ég að áhrif hugmyndarinnar
um að maðurinn sé hluti af lífríki sem hefur
mótast fyrir náttúruval séu engan veginn öll
komin fram. Svo róttæk breyting á hug-
myndum manna um sjálfa sig og lífið á
jörðinni tekur nokkrar kynslóðir. Byltingu
Darwins er ekki lokið. Hún stendur enn yfir
og enginn veit hvaða afleiðingar hún mun hafa
innan sálfræði, félagsfræði og annarra mann-
vísinda.
Félagslegur darwinismi
Tilraunir nítjándu aldar manna til að nota líf-
fræðilegar þróunarkenningar til að rök-
styðja stjórnmálaskoðanir eða hugmyndir
um mannlífið og mannlegt samfélag eru
stundum kallaðar einu nafni félagslegur
darwinismi. Hér er haldið áfram að fjalla um
áhrif bókar Darwins um Uppruna tegund-
anna.
Eftir Atla
Harðarson
atli@fva.is
Reuters
Hraustu strákarnir „Til dæmis var frjálshyggjumaðurinn Herbert Spencer friðarsinni og hélt því fram
að stríð stuðluðu að hnignun mannfólksins því hraustustu strákarnir færu á vígvöllinn og féllu án
þess að eignast börn, en vesalingarnir yrðu eftir heima hjá kvenfólkinu.“
Höfundur er heimspekingur.
Uppruni tegundanna
#3
Bróðir minn tók ekki annað í mál en að vernda mig. Hann keypti handa
systur sinni kjól, sokkabuxur og kápu. Handa sjálfum sér hníf. Þú er litla
systir mín. Ef einhver nauðgar þér mun ég opna líkama nauðgarans og
hræra í kviðnum með þessum hér. Ég hlakka til. Ég hlakka til. Vonandi
að einhver nauðgi þér, litla systir. Ó, nei, ég er grínast. En ef það gerist,
ef það gerist, litla systir, þá á bróðir þinn hníf. Sæirðu mig í anda myrða
saklausa persónu. Nei, bróðir, þú er hjartahreinn og ég elska þig. Hann
kyssti mig á ennið. Ég kyssti hans. Við fórum út að ganga. Í fyrsta sinn í
fallega kjólnum og nýju kápunni. Bróðir minn í gallabuxunum og leður-
jakkanum með hnífinn í vasanum. Okkur leið vel. Við vorum sjálfsörugg
einsog ríka fólkið. Dimmblár himinninn leit útfyrir að vera regnhlíf sem
verndaði okkur fyrir hinu illa sem er handan mannlegs máttar. Loftið
snerti hár mitt og andlit sem aldrei fyrr og ég hreinlega elskaði lyktina af
nóttinni, bensíninu, framandi ilmvötnum og rakspírum, pönnusteikingum
og fjölbreyttri eldamennsku, saltaðri hafgolunni. Hvar erum við, spurði
ég bróa en mér virtist sem við hefðum ratað inní lukkunnar heim frels-
isins fyrir eintóma tilviljun. Hann hvíslaði í eyra mitt: Ég er bróðir þinn
sem mun alltaf vernda þig, litla systir. Ég er ekki svikari. Ég er bróðir
þinn. Takk bróðir. Og ég er með hníf í vasanum. Takk bróðir. Lyktin af
orðunum hans var sú sama og af tvítugum strák sem reykir tíu vindlinga
á dag, drekkur þrjá, fjóra bjóra og notar piparmyntutyggjó. Sú lykt. Sú
sama. Við héldum áfram göngu vorri. Tunglið í fótspor vor. Síðhærðar
konur rannsakandi mig. Rannsakandi hann með rannsóknarlögreglu-
legum augum. Hórumangararnir líka rannsakandi okkur. Hvort við vær-
um raunveruleg eða gestir úr öðrum heimi, annarri plánetu, en ég hefði
verið meira en til í að koma til borgarinnar frá annarri plánetu í félagi við
bróður minn. Við tvö. Við gengum inná hótel og bókuðum herbergi. Núm-
er hvað man ég ekki. Settumst þögul á hjónarúmið og störðum á vaskinn
á meðan bróðir minn lagði handlegginn utan um axlir mér. Ég er með
hníf í vasanum, sagði hann áður en hann snerti mig með kossi.
Kristín Ómarsdóttir
Einu sinni saga
Höfundur er rithöfundur.
8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005