Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Page 17
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005 | 17
Flestir ættu að þekkja þá skemmtilegu til-finningu að koma í stórar tónlistarversl-anir erlendis og láta greipar sópa umhillurnar sem eru uppfullar af stórkost-
legri tónlist á dásamlega lágu verði – miðað við það
sem við eigum að venjast hér á landi. Maður kaupir
nokkra diska með gömlum góðum vinum sem mað-
ur veit að klikka aldrei, og
veðjar svo á nokkra nýja tón-
listarmenn, í þeirri von að
þar leynist nýir góðir vinir.
Þannig eignaðist ég eina
af mínum allra bestu vinkonum, djasssöngkonuna
og -píanistann Shirley Horn, sem ég hef átt ótelj-
andi ánægjustundir með.
Þegar ég rakst á hana í einni vinaleitinni vissi ég
að ég ætti að þekkja hana. Til að bæta úr því keypti
ég disk úr Verve Ultimate-röðinni, Ultimate Shir-
ley Horn. Það er nokkurs konar „best of“-röð þar
sem djassleikarar samtímans taka fyrir einn af
gömlu djassrisunum, velja lögin á diskinn og skrifa
stuttar hugleiðingar sínar um hann. „Það er
ómögulegt að flokka Shirley Horn … hún er sexý
án þess að reyna það. Ég elskaði hana um leið og
ég heyrði í henni í fyrsta skipti,“ segir Diana Krall
sem einmitt valdi svo vel lögin á þennan disk, en
hún er undir miklum áhrifum frá þessu átrún-
aðargoði sínu.
Shirley lét einhvern tímann hafa eftir sér að
hana langaði að fólk sæi sig sem góða söngkonu
sem syngi góð lög á smekkvísan hátt. Þar hitti
Shirley naglann á höfuðið, því henni gæti ekki ver-
ið betur lýst, sérstaklega ekki ef maður bætir við
áreynslulausum kynþokkanum sem Diana benti á.
Öll hennar tónlist var sérlega smekkleg og hrífandi
einlæg. Henni tókst að
sameina lag og texta á svo
hárfínan máta á sínu sér-
lega hæga tempói, hvísl-
andi textann sem hún túlk-
aði til hins ýtrasta. Og þessi
píanisti sem varð „óvart“
söngkona varð svo góð að
sjálfur Miles Davis, sem yf-
irleitt þótti nú lítið til söng-
kvenna koma, bað hana ár-
ið 1960 að hita upp fyrir sig
á tónleikum í djass-
klúbbnum heimsfræga, Vil-
lage Vanguard í New York.
Það var upphafið að
frægð Shirleyjar sem var
víst ekki mikið fyrir sviðsljósið. Ekki meira en svo
að hún hvarf af sjónarsviðinu allan áttunda áratug-
inn og fyrri hluta þess níunda til að ala upp dóttur
sína. Árið 1987 gerði hún samning við Verve og
varð á sextugsaldri vinsælli en nokkurn tímann.
Shirley var fyrst og fremst þekkt fyrir löt-
urhægt og agað tempó sitt, en var samt enginn eft-
irbátur annarra djassara þegar kom að sveiflunni.
Þótt það séu ballöðurnar hennar sem komi út á
mér tárum og gæsahúð, þá eru á Ultimate-
diskunum nokkur frábær sveiflulög. Þau gera það
að verkum að alveg sama hversu marga diska ég
kaupi með þessari vinkonu minni, þá slær enginn
þessum út. Þar „swingar“ hún snilldarlega lög
einsog „Hard-Hearted Hannah“, „The Vamp of
Savannah“, „Get Out of Town“ eftir Cole Porter og
klassíkina „Hit the Road Jack“. Allt lög með mjög
harðskeyttum texta, sem henni tekst að koma til
skila á sérlega óvæginn en
jafnframt kynþokkafullan
máta. Og auðvitað smekk-
legan sem endranær.
Þótt þessi töffuðu sving-
lög séu mjög skemmtileg, þá
finnst mér að Diana hefði
mátt velja ballöðurnar bet-
ur. Í stað fínni melódía, sem
sumar eru næsta yfirnátt-
úrulega fallegar, velur hún
ballöðurnar eftir kynþokka,
líkt og sveiflulögin. Eitt af
þeim er lag Georges Gersh-
wins „Do It Again“ sem
Marilyn Monroe söng eft-
irminnilega, en þegar kem-
ur að túlkun skákar Shirley henni í kynþokkanum
og þá er nú mikið sagt. Á þessum diski hefði ég
m.a. viljað sjá lagið „I Got Lost In His Arms“ sem
er eitt af uppáhaldslögunum mínum með Shirley.
Hún sannar í því að hún er meistari þagnarinnar
þegar hún lætur mann bíða í svo mikilli eftirvænt-
ingu eftir næstu setningu, að hjartað sleppir úr
slagi. Einnig lagið „This Hotel“ af disknum I Re-
member Miles, sem Shirley hlaut Grammy-
verðlaunin fyrir sem besti djasssöngvarinn. Shir-
ley hlaut á ferlinum ótal tónlistarverðlaun, þ.á m.
sjö Grammy-verðlaun.
Shirley Horn lést fyrir rúmri viku í heimaborg
sinni Washington. Hún var 71 árs að aldri og hafði
átt við veikindi að stríða í nokkur ár. Margir vilja
halda því fram að þar sé farin sú seinasta af stóru
djassdívunum.
En Shirley fer aldrei langt frá mér.
Hjartað sleppir úr slagi
Poppklassík
Eftir Hildi Loftsdóttur
hil2@hi.is
Í
slendingar eru miklir þungarokkarar í
sér og fáum rokksveitum hefur verið
jafn vel tekið og þýsku nöglunum í
Rammstein. Þessi eldfima rokksveit
fyllti Laugardalshöllina tvisvar í júní-
mánuði árið 2001. Áhorfendur voru vel
með á nótunum á þessari myndrænu skemmtun,
sprengingar og eldglæringar juku við skemmt-
unina.
Vel við hæfi er að fyrsta smáskífa af nýrri plötu
austur-þýsku sveitarinnar er „Benzin“, fyrsta lag
plötunnar Rosenrot, sem kom út
í gær. Rosenrot merkir rósrauð-
ur en þó er allt útlit nýju plöt-
unnar blátt og ískalt.
Þetta er fimmta hljóðversplata sveitarinnar en
áður hafa komið út plötunar Herzeleid (1995),
Sehnsucht (1997), Mutter (2001) og Reise, Reise
(2004). Eins og sést hafa yfirleitt liðið einhver ár
milli platna hjá sveitinni nema í þessu tilfelli.
Skýringin er sú að stór hluti laganna á Rosenrot
var tekinn upp í hljóðveri á Malaga á Spáni meðan
á upptökum stóð fyrir Reise, Reise. Hljómsveitin
var í stuði og var komin með meira efni en ein
plata leyfði. Meðlimir vildu þó alls ekki gefa út
tvöfalda plötu og ákváðu að geyma einhver lög,
sem reyndar sum voru ókláruð.
Mariachi-metal
Rammstein-menn ítreka að lögin sem fóru ekki á
Reise, Reise séu eitthvað lélegri og að Rosenrot
sé ekki B-hliðaplata eða bónusplata. Lögin sem
um ræðir eru „Spring“, „Mann Gegen Mann“,
„Zerstören“, „Hilf Mir“, „Feuer & Wasser“ auk
„Benzin“.
Einhverjir gætu farið flatt á því að bíða með lög
með þessum hætti en Rammstein er samkvæm
sjálfri sér. Nýja platan hljómar ekta Rammstein,
þýskukennarar geta haldið áfram að gleðjast því
sveitin syngur enn á þýsku, reyndar með einni
undantekningu. „Te Quiero Puta“ er á spænsku
og er lýst í texta frá útgáfufyrirtækinu sem
„fyrsta mariachi-metal-laginu sem til sé fyrir utan
ímyndaðan glymskratta Quentins Tarantinos“.
Sænski upptökustjórinn Jacob Hellner vinnur
með Rammstein á plötunni ásamt Stefan Glaum-
an sem hljóðblandar. Afgangurinn af lögunum var
tekinn upp í Berlín en sveitin er ekki vön að vinna
svo nálægt heimahögunum. Þrátt fyrir ískalt yf-
irborð sveitarinnar hefur hún yfirleitt tekið upp
plötur á sólríkum stöðum á borð við Möltu, Frakk-
land og Spán. Þannig komust félagarnir í burtu
frá hversdagsleikanum og öðrum skyldum.
Ekkert leyndarmál er að við gerð Mutter kom
meðlimum Rammstein illa saman. Þeir voru fastir
í ákveðnu fari og spennan byggðist upp. Á Reise,
Reise voru vinnubrögðin afslappaðari og fleiri
nýjar hugmyndir fengu hljómgrunn. Á nýju plöt-
unni er haldið áfram með þessar hugmyndir, bæði
með aðgengilegri lögum og þeim þyngri eins og
„Zerstören“ og „Mann Gegen Mann“.
Sungið um samkynhneigða
Hugmyndin að síðarnefnda laginu hefur lengi ver-
ið í vinnslu hjá sveitinni. Rammstein ræddi þetta
umdeilda lag við sænska blaðið Close-Up. Í viðtal-
inu er orðið „schwule“ eða hommi notað mikið og
spyr söngvarinn Till Lindemann blaðamanninn
hvort honum þyki lagið fjandsamlegt samkyn-
hneigðum. Auðvelt er að draga þá ályktun en Lin-
demann á svar við þessu:
„Það er auðvelt að skilja lagið þannig, en þetta
er bara lag. Það fjallar um samkynhneigða menn
og að þeir séu að hluta til heppnir. Þeir þurfa ekki
að sýna sig fyrir stelpum og færa þeim fáránlegar
gjafir eða bjóða þeim út að borða. Þeir bara horfa
hver á annan og ákveða að fara heim saman. Þeir
eru í skrýtinni stöðu en það er mjög auðvelt fyrir
þá að sofa hjá. Ég skrifa um þetta á ljóðrænni
hátt. Ef orðið [schwule] heyrist úr samhengi er
það ögrandi en ef þú virkilega hlustar á þetta alls
ekki að vera niðurlægjandi,“ sagði Lindemann í
viðtalinu og verður hver að dæma fyrir sig.
Gestasöngkona kemur við sögu á plötunni í lag-
inu „Stirb Nicht Vor Mir“ en þá hefur upp raust
sína söngkona Texas, Sharleen Spiteri. Sýnir lag-
ið að hluta til hlýlegri hlið á Rammstein.
Rammstein á ábyggilega eftir að vera meira
áberandi á árinu. Sveitin er tilnefnd í flokknum
„Besta þýska hljómsveitin“ og „Besta mynd-
bandið“ fyrir „Keine Lust“ á Tónlistarverð-
launahátíð MTV í Evrópu, sem fram fer hinn 3.
nóvember í Lissabon í Portúgal.
Fyrir þýskukennara
og þungarokkara
Fyrir helgi kom út ný plata með þýsku sveitinni
Rammstein. Þetta er fimmta hljóðversskífa eld-
kláru rokkaranna og ber hún nafnið Rosenrot.
Eftir Ingu Rún
Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Þeir eru mikið fyrir eld en þó ískaldir: Þýska rokksveitin Rammstein.
New York-rapparinn DMX á yfirhöfði sér sextíu daga fangels-
isvist eftir að hann gerðist sekur um
að rjúfa skilorð
sem hann var
dæmdur í eftir
umferðar-
óhapp á John
F. Kennedy-
flugvelli í júní á
síðasta ári.
Hinn þrjátíu
og fjögurra ára
rappari, sem í
raun heitir
Earl Simmons,
var ásamt vitorðsmanni sakaður um
að hafa reynt að stela bíl á bílastæði
flugvallarins þegar lögreglan skarst
í leikinn á milli rapparans og eig-
anda bílsins. Engan sak-
aði í átökunum og engin
vopn fundust. Sam-
kvæmt vitnum reyndi DMX að telja
eiganda bílsins trú um að hann væri
alríkislögreglumaður.
Í desember á síðasta ári játaði
rapparinn á sig vítavert gáleysi, var
sektaður og skipað að láta af hendi
Ford Expedition-bíl sinn. Síðan þá
hefur hann gerst sekur um tvö um-
ferðalagabrot; hraðakstur og árekst-
ur við ómerktan lögreglubíl. Í bæði
skiptin var ökuskírteini hans ógilt.
Söngkonan Janet Jackson sendifrá sér tilkynningu á miðviku-
daginn þar sem hún segir að ekkert
sé til í þeim orðrómi að hún eigi
átján ára laun-
dóttur. Nokkr-
um dögum áð-
ur hafði fyrrum
mágur hennar,
Young DeB-
arge, sagt í út-
sendingu hip
hop-út-
varpsstöðvar í
New York að
Janet Jackson
hefði eignast
barn með bróður hans, James DeB-
arge. Stúlkan héti Renee og hefði al-
ist upp hjá eldri systur Janet, Reb-
bie.
Það sem ekki hefur komið fram
áður er að Young DeBarge þessi er
einmitt um þessar mundir að aug-
lýsa væntanlega plötu sína.
Peningavitið verður seint tekið afþeim félögum í Rolling Stones.
Undanfarið hafa þeir selt lög af nýj-
ustu plötu sinni til notkunar á við-
burðum á borð við ruðningsleiki í
sjónvarpi og sápuóperur og nú síðast
fóru þeir í samstarf við Starbucks-
kaffihúsakeðjuna og Virgin-
plötufyrirtækið. Samstarfið gengur
út á að selja, á völdum sölustöðum,
fágætar upptökur af lögum sveit-
arinnar. Platan sem kemur út í
næsta mánuði mun heita Rarities
1971–2003 og innihalda sextán lög
sem hafa að vísu verið gefin út áður
en eru illfáanleg. Má þar nefna tón-
leikaútgáfur af „Tumbling Dice“ og
„Beast of Burden“, dansútgáfur af
„Miss You“ og „Harlem Shuffle“ og
útgáfu sveitarinnar af Chuck Berry-
laginu „Let It Rock“.
Með þessu eru Rolling Stones að
fylgja í kjölfar listamanna á borð við
Bob Dylan, Alanis Morissette, She-
ryl Crow og Antigone sem öll hafa
gert svipaða samninga við Starbucks
en kaffihúsakeðjan státar af rúm-
lega 33 milljónum gesta í viku
hverri. Á síðasta ári seldi keðjan um
700 þúsund eintök af svanasöng Ray
Charles, Genius Loves Company, og
Rolling Stones, sem hafa einungis
selt um 300 þúsund eintök af A Big-
ger Bang á ellefu vikum, vonast svo
sannarlega til að Starbucks geti að-
eins ýtt við sölunni.
Erlend
tónlist
DMX
Rolling Stones
Janet Jackson