Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 1
GYLLTUR hringur fannst í upp-
greftri gamla kirkjugrunnsins í
Reykholti á fimmtudaginn en talið
er að hann sé jafnvel frá síðari hluta
miðalda. Rannsókn grunnsins hefur
staðið yfir frá árinu 2002.
Hringurinn fannst í gólfi kirkj-
unnar en þannig má leiða líkur að
því að eigandi hringsins hafi glatað
honum í kirkjunni og hringurinn
síðan fallið milli fjala. Missir hrings-
ins hefur eflaust verið mikið áfall
fyrir eiganda hans enda er hann af-
ar veglegur. Dr. Guðrún Svein-
bjarnardóttir fornleifafræðingur
stýrir verkefninu, en hún segist
aldrei hafa fundið jafn fínan grip áð-
ur. „Það er ekki hægt að segja til
um það að svo stöddu hvort hring-
urinn er gullhringur eða silfur-
hringur með gullhúð. Hann er hins
vegar í laginu eins og hringur sem
fannst í tóft á Rangárvöllum fyrir
löngu síðan og er nú á Þjóðminja-
safninu. Sá hringur er talinn vera
frá fyrri hluta miðalda en þessi
hringur gæti jafnvel verið frá síðari
hluta miðalda“ segir Guðrún en
hringurinn sem nú fannst er aðeins
stærri en sá sem fannst á Rang-
árvöllum og að auki er hann
skreyttur með flúri. „Það er róm-
anskt blaðskraut sem erfitt er að
tímasetja en það kemur fyrst fram á
Íslandi um 1200 og var notað lengi.“
Kirkjan í Reykholti var flutt árið
1886 en síðasta kirkjan sem stóð á
rannsóknargrunninum var byggð
árið 1835. Sú kirkja var rannsökuð
sumarið 2003 en kirkjan sem hring-
urinn fannst í er sú þriðja sem er til
rannsóknar og að öllum líkindum
frá 17. öld. „Þrátt fyrir það gæti
hringurinn hæglega verið eldri
enda er ljóst að leifar af mörgum
stigum kirkjunnar eru á þessum
sama grunni. Þannig hefur orðið
vart við nokkrar grafir í grunn-
inum og í grafarstæðunum má sjá
merki um gólflög og hleðslur frá
fyrri skeiðum kirkjunnar,“ segir
Guðrún en unnið hefur verið að
uppgreftrinum síðan í lok maí og
áætlað er að halda verkinu áfram
út júnímánuð. „Við klárum þetta
ekki í sumar og verðum að koma
aftur en það er mikið af grjóti í
grunninum og verkið sækist því
seint.“
Gyllti hringurinn er ekki eini
munurinn sem fundist hefur í upp-
greftrinum en að sögn Guðrúnar
hafa fjölmargir gripir fundist í gólf-
inu. „Í fyrra fannst þar töluvert mik-
ið af gripum líkt og bókarspennsl,
kertapípur, perlur og hnappamót.
Ýmislegt hefur því glatast ofan í
gólfið og ég geri ráð fyrir því að við
eigum eftir að finna fleiri muni.“
Fornleifagröfturinn í gömlum kirkjugrunni í Reykholti
Finna forláta gylltan hring
STOFNAÐ 1913 156. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Kvennahlaup ÍSÍ
11. júní um land allt
F
A
B
R
I
K
A
N
M
Æ
TUM
ALLAR!
Allar upplýsingar
á sjova.is
Með hang-
andi hendi
Raggi Bjarna með nýja plötu
seinna í mánuðinum | Menning 58
Lesbók | Hávaðinn í beinagrindinni Samfélagssáttmáli
Íslendinga Börn | Keðjusagan Myndasögur Íþróttir |
Hamfarir Ginobili Liverpool fær að verja titilinn
FEÐGININ Steinunn Jónsdóttir og Jón Helgi
Guðmundsson í BYKO komu í veg fyrir það í
byrjun þessarar viku, að nýtt eignarhaldsfélag í
eigu Karls Wernerssonar, stjórnarmanns í Ís-
landsbanka, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
stjórnarformanns Baugs Group, og Hannesar
Smárasonar, stjórnarformanns FL Group, næði
að kaupa ráðandi hlut í Íslandsbanka, samtals
um 33,76% hlut í bankanum. Þetta hefur Morg-
unblaðið eftir áreiðanlegum heimildum.
Það sem gerði útslagið um að Steinunn Jóns-
dóttir ákvað að selja Burðarási sinn hlut, var
megn óánægja hennar með þróun mála innan
Íslandsbanka í liðinni viku. Karl Wernersson,
sem ásamt systkinum sínum er annar stærsti
hluthafinn í Íslandsbanka, með 12,52% hlut,
boðaði, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, Steinunni til fundar við sig í síðustu viku,
ásamt þeim Einari Sveinssyni, formanni stjórn-
ar Íslandsbanka, og Jóni Snorrasyni, stjórnar-
manni í Íslandsbanka.
Þar mun hann hafa reifað viðskiptaáform sín
sem voru í þessa veru: Hann greindi þeim frá
því að hann, í félagi við Hannes Smárason,
stjórnarformann FL Group (fyrrverandi eigin-
mann Steinunnar), og Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóra Baugs Group, væri að undirbúa stofn-
un eignarhaldsfélags. Eignarhaldsfélag þeirra
hygðist síðan kaupa öll bréf Straums í Íslands-
banka, 21,24%, og einnig bréf Wernerssystkina,
12,52%, auk þess sem félagið mundi kaupa
Sjóvá-Almennar. Hann og systkin hans hygðust
eiga 51% í eignarhaldsfélaginu og þeir Hannes
og Jón Ásgeir myndu skipta með sér 49% í fé-
laginu, sem yrði með ráðandi hlut í Íslands-
banka.
Steinunni var nóg boðið og sömuleiðis Jóni
Helga, föður hennar, þegar hann fékk fregnir af
fundinum. Jón Helgi leitaði eftir staðfestingu á
því að þetta væru áform Karls Wernerssonar og
félaga og fékk hana.
Það var undir þessum kringumstæðum sem
feðginin tóku þá ákvörðun að selja Burðarási
hlut Steinunnar á genginu 13,6, samtals fyrir
7.340 milljónir króna. Áður hafði Jón Helgi selt
helming síns hlutar, eða 1,78% á genginu 13,3 til
forstjóra Íslandsbanka, formanns bankastjórn-
ar Íslandsbanka, Einars Sveinssonar, og nokk-
urra framkvæmdastjóra bankans.
Baráttan um yfirráð í Íslandsbanka breytti um svip í síðustu viku
BYKO-feðgin komu í veg
fyrir nýjan ráðandi hlut
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
Steinunn/10
SAMKOMULAG hefur náðst milli Evrópu-
sambandsins og Kína um takmarkanir á
innflutningi kínverskra vefjarvara, þ.e.
fatnaðar og ofinna efna, til ESB fram til
ársins 2008. Peter Mandelson, sem fer með
viðskiptamál í framkvæmdastjórn ESB,
sagði samkomulagið sanngjarnt gagnvart
Kínverjum „en jafnframt fá vefjariðnaðar-
fyrirtæki í Evrópu og þróunarlöndum bráð-
nauðsynlegt ráðrúm til að laga sig að
breyttum aðstæðum“. Sum fátæk þróunar-
ríki, þ. á m. Bangladesh, eiga nú í vök að
verjast í samkeppni við Kínverja á vestræn-
um vefjarvörumörkuðum.
Allar hömlur á brott 2008
„Ég tel að þetta boði gott fyrir samskipti
okkar í framtíðinni,“ sagði Mandelson í
gær. Bo Xilai, viðskiptaráðherra Kína og
Mandelson tókst að leysa deiluna í gær á tíu
stunda löngum fundi í Shanghai. Ef hann
hefði orðið árangurslaus er sennilegt að
Evrópusambandið hefði sett einhliða inn-
flutningskvóta á kínverskar vefjarvörur í
dag. Útflutningur Kínverja á sumum teg-
undum fatnaðar til Evrópu hefur margfald-
ast frá áramótum en þá féll úr gildi alþjóð-
legur samningur sem takmarkaði
útflutning á vefjarvörum. Talsmenn grein-
arinnar í ESB-löndum segja að ódýr, kín-
versk vara ógni um 2,5 milljónum starfa og
hefur útflutningur Portúgala á stutt-
ermabolum þegar minnkað um 50%.
Samkvæmt samningi sem gerður var
þegar Kína fékk aðild að Heimsviðskipta-
stofnuninni, WTO, má takmarka innflutn-
ing kínverskra vefnaðarvara til loka ársins
2008 en þá falla allar hömlur niður.
Reuters
Mandelson fékk kínverskan stuttermabol
að gjöf þegar samkomulagið var í höfn.
Takmarka
innflutning
frá Kína
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Evrópskur vefjariðn-
aður fær aðlögunartíma
Morgunblaðið/ÞorkellDr. Guðrún Sveinbjarnardóttir
kveðst aldrei hafa fundið jafnfínan
grip áður, sem eins og sjá má er
mjög veglegur. Á stærri myndinni
sjást Stefán Ólafsson og Inga Hlín
Valdimarsdóttir, nemar í forn-
leifafræði, vinna í grunninum.
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag