Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 39
UMRÆÐAN
h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun LOKAÐ
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
-20%
Leðurhornsófi (282x150)
Verð : 205.000.-
Tilboðsverð:
28.000.-
Eikarsófaborð:
164.000.-
Flottir hornsófar og sófasett
15-30% afsláttur
-15%
Cozy hornsófi (315x285)
m/ óhreinindavörðu áklæði, fáanlegur í 3 litum
Verð : 229.000.-
Tilboðsverð:
194.650.-
-30%-30%
Leðursófasett (fáanlegt í 3 litum)
3+1+1
Verð : 242.000.-
Tilboðsverð:
169.400.-
3+2
Verð : 228.000.-
Tilboðsverð:
159.600.-
-20%
Leðursófasett 3+1+1
Verð : 248.000.-
Tilboðsverð:
198.400.--20%
Leðurhægindastóll
Verð : 47.500.-
Tilboðsverð:
38.000.-
DÓMUR Hæstaréttar 9. júní
2005 í máli mínu gegn Alcoa og ís-
lenska ríkinu sem gagnaðilar
áfrýjuðu eftir héraðsdóm í janúar
sl. er afar mikilvægur fyrir um-
hverfisvernd hérlendis. Á það bæði
við um þann beina ávinning sem
felst í dómnum, þ.e. að Alcoa verð-
ur að fara í nýtt mat á umhverfis-
áhrifum lögum samkvæmt, og þær
lögskýringar sem fram komu á
báðum dómsstigum. Af mála-
rekstrinum geta allir þeir lært
sem bera umhverfisvernd fyrir
brjósti og þeir sem fara vilja að
settum leikreglum. Einnig löggjaf-
inn hlýtur að þurfa að draga sínar
ályktanir af niðurstöðunni. Styrkja
ber almannaréttinn og endurmeta
úrelt lagaákvæði.
Lagagrunnur brostinn fyrir
framkvæmdum Alcoa
Gilt mat á umhverfisáhrifum er
fortakslaus forsenda fyrir stór-
iðjuframkvæmdum og leyfisveit-
ingum sem þær varðar. Alcoa hef-
ur ekki slíkt lögboðið mat í
höndum eftir dóm Hæstaréttar og
þeim sem veitt hafa leyfi fyrir
framkvæmdunum ber að afturkalla
þau og bíða þess að skorið verði úr
um alla réttaróvissu. Alcoa hlýtur
við undirbúning að umhverfismati
að endurmeta hönnunarforsendur
verksmiðju sinnar að því er um-
hverfisáhrif varðar í ljósi dóms
Hæstaréttar. Þar er skýrt dregið
fram að fyrirtækið ætlaði sér ekki
að beita bestu fáanlegri tækni í
mengunarvörnum, eins og ljóst er
m. a. af samanburði við áður ráð-
gert álver Norsk Hydro. Var þó
langt frá því að sú framkvæmd
stæðist eðlilegar kröfur jafnt um
mengunarvarnir og félagslega
þætti. Því verður ekki trúað að Al-
coa haldi nú áfram framkvæmdum
sínum í skjóli lögbrota íslenskra
stjórnvalda.
Viðbrögð umhverfisráðherra
áhyggjuefni
Ummæli og viðbrögð umhverf-
isráðherra við dómsorði Hæsta-
réttar eru áhyggjuefni. Ráð-
herrann virðist ekki ætla að taka
dómsorðið og lögfylgjur þess al-
varlega, segir „algjört formsatriði“
hafa ráðið niðurstöðu dómsins og
framkvæmdir geti haldið áfram
eins og ekkert hafi í skorist. Þetta
er ótrúleg óskammfeilni og ber
ekki vott um virðingu fyrir lögum
og rétti, hvað þá þeim málaflokki
sem ráðherrann hefur tekið að sér
að stýra. Stjórnvöld hafa þegar
brotið settar leikreglur að mati
Hæstaréttar og ættu ekki að
ganga lengra á þeirri braut. Alcoa
fékk ranga leiðsögn af hálfu sömu
stjórnvalda veturinn 2002-2003 og
fyrirtækið hlýtur nú að hafa var-
ann á. Alcoa er nú í sömu sporum
og haustið 2002 hvað réttarstöðu
framkvæmda á Reyðarfirði varðar.
Lögboðið mat á umhverfisáhrifum
liggur ekki fyrir og öll leyfi sem
Alcoa hefur í höndum eru því
markleysa.
Óðagotið hefnir sín
Allur aðdragandi stóriðjufram-
kvæmdanna á Austurlandi ber vott
um óðagot og skammsýni. Stað-
setning risaálvers á Reyðarfirði
var röng af umhverfislegum og fé-
lagslegum ástæðum, svo ekki sé
talað um náttúruspjöllin af Kára-
hnjúkavirkjun. Stjórnmálamenn
sem ábyrgð bera á ákvörðunum í
þessu ferli allt frá árinu 1997 að
telja hafa ekki vandað sig eða unn-
ið heimavinnuna. Gengið hefur
verið út frá því sem
gefnu að til að laða að
fjárfesta þurfi menn
að halda skilyrðum til
verndar umhverfi og
íbúum á viðkomandi
svæði í lágmarki.
Embættismenn og op-
inberar stofnanir hafa
verið sett undir óhóf-
legan þrýsting til að
ná fram þessum
skammsýnu mark-
miðum. Lögum á um-
hverfissviði hefur ver-
ið breytt síðustu árin
til að þrengja að
möguleikum almenn-
ings til aðhalds og
verndar umhverfi
sínu og í þágu kom-
andi kynslóða. Ráð-
herrar umhverfismála
á þessu skeiði hafa
ekki reynst starfi
sínu vaxnir. Afleiðing-
arnar af þessari úr-
eltu og háskalegu
stefnu eru nú smám
saman að koma í ljós.
Dómur Hæstaréttar er aðvörun
sem framkvæmda- og löggjaf-
arvald í landinu ætti að taka alvar-
lega.
Sigur fyrir umhverfisvernd
Hjörleifur Guttormsson
fjallar um niðurstöðu Hæsta-
réttar í máli hans gegn Alcoa
og íslenska ríkinu
’Afleiðingarnar af þess-ari úreltu og háskalegu
stefnu eru nú smám
saman að koma í ljós.‘
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er fv. alþingismaður
og ráðherra.
FASTEIGNIR
mbl.is
Fáðu
fréttirnar
sendar í
símann þinn