Morgunblaðið - 11.06.2005, Side 10
10 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að sem mun hafa
gert útslagið með
að Steinunn Jóns-
dóttir ákvað að
selja Burðarási
sinn hlut, var
megn óánægja
hennar með þróun
mála innan Íslandsbanka í liðinni viku.
Karl Wernersson, annar stærsti hlut-
hafinn í Íslandsbanka, ásamt systk-
inum sínum, boðaði samkvæmt mínum
heimildum, Steinunni til fundar við sig
í síðustu viku, ásamt þeim Einari
Sveinssyni, formanni stjórnar Íslands-
banka, og Jóni Snorrasyni, stjórn-
armanni í Íslandsbanka.
Þar mun hann hafa reifað við-
skiptaáform sín sem voru eitthvað í
þessa veru: Hann greindi þeim frá því
að hann, í félagi við Hannes Smárason,
stjórnarformann FL Group (fyrrver-
andi eiginmann Steinunnar) og Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóra Baugs
Group, væri að undirbúa stofnun eign-
arhaldsfélags. Eignarhaldsfélag þeirra
myndi síðan kaupa öll bréf Straums í
Íslandsbanka og einnig bréf Werners-
systkina, auk þess sem félagið kæmi til
með að kaupa Sjóvá-Almennar. Hann
og systkin hans hygðust eiga 51% í
eignarhaldsfélaginu og þeir Hannes og
Jón Ásgeir myndu skipta með sér 49%
í félaginu, sem yrði með ráðandi hlut í
Íslandsbanka.
Feðginunum nóg boðið
Steinunni var nóg boðið og sömu-
leiðis Jóni Helga, föður hennar, þegar
hann fékk fregnir af fundinum, og leit-
aði eftir staðfestingu Karls Werners-
sonar á áformunum, hverja hann fékk.
Það var undir þessum kring-
umstæðum sem feðginin tóku þá
ákvörðun að selja Burðarási hlut
Steinunnar á genginu 13,6, samtals
fyrir 7.340 milljónir króna.
Burðarás er, eftir kaupin á hlut
Steinunnar, þriðji stærsti hluthafinn í
Íslandsbanka, með 7,46% hlut, næstur
á eftir Straumi Fjárfestingarbanka,
sem á 21,24% og félögum í eigu Karls
Wernerssonar og systkina, sem sam-
tals eiga 12,5% hlut í bankanum.
Samkvæmt þeirri könnun sem ég
hef gert á því hvernig menn munu
verja atkvæðum sínum þegar og ef til
hluthafafundar kemur, virðist sem
Burðarás, Straumur og ákveðnir hlut-
hafar í Íslandsbanka í samstarfi við
þessa tvo stóru hluthafa, standi betur í
baráttunni um ráðandi hlut í Íslands-
banka. Þó er það ekki óyggjandi, því
hér á eftir fer sundurgreining á því
hvernig flestir hinna 20 stærstu hlut-
hafa í Íslandsbanka munu verja at-
kvæðum sínum, komi til stjórnarkjörs
á hluthafafundi.
Tuttugu stærstu eiga 64,5%
Tuttugu stærstu hluthafarnir eiga
um 64,5% hlut í Íslandsbanka, þannig
að það geta verið atkvæði litlu hluthaf-
anna í Íslandsbanka, sem ráða úrslit-
um um það hvort núverandi meirihluti
bankastjórnar heldur velli, eða nýr
meirihluti nær völdum.
Búist er við því að boðað verði til
hluthafafundar í Íslandsbanka ein-
hvern tíma á næstunni, en að lágmarki
þarf tveggja vikna boðunarfrest fyrir
slíkan fund. Þar er jafnvel búist við að
nýr ráðandi meirihluti í bankanum
verði myndaður.
Hvorug fylkingin ætlar þó að rasa
um ráð fram, heldur halda áfram að
vinna í baklandi sínu, meðal smærri
hluthafa og bíða eftir því að bera fram
ósk um hluthafafund, þar til önnur
hvor fylkingin hefur gulltryggt sér yfir
50% atkvæða í Íslandsbanka.
Þeir hluthafar sem forsvarsmenn
Straums og Burðaráss treysta á stuðn-
ing frá, auk eigin atkvæða, eru, sam-
kvæmt mínum heimildum: Arion safn-
reikningur, sem er skráður fyrir 2,93%
hlut. Arion er bakvinnslufélag í eigu
KB banka, þar sem vistuð eru hluta-
bréf í mismunandi eigu. Segja má að
slíkir reikningar gegni því hlutverki að
vista hlutabréf, þar sem eigendur
þeirra telja óheppilegt að eignatengsl
þeirra sjáist. Þeir sem eiga bréfin í
reynd, fara með atkvæðisrétt sinna
bréfa;
Landsbanki Íslands hf. 1,61%;
Lífeyrissjóðurinn Framsýn 1,43%;
Lífeyrissjóður verslunarmanna
1,32%;
Lífeyrissjóður sjómanna (sem nú
heitir Gildi) 0,89%;
Fjárfestingarsjóður Búnaðarbank-
ans 0,89%;
Samherji hf. 0,86% og
Jón Ásgeir Jóhannesson, 0,74%.
Þetta jafngildir um 38,5% hlut í Ís-
landsbanka og þar að auki staðhæfa-
viðmælendur úr röðum Burðaráss og
Straums, að þeir hafi tryggt sér stuðn-
ing fjölda smærri hluthafa, þannig að
samtals hafi þeir tryggt sér stuðning
frá um 41% hluthafa í Íslandsbanka.
Það sem aftur gæti virkað til lækk-
unar á þeirri tölu, eru staðhæfingar úr
röðum meirihlutans, í þá veru að
Straumur geti ekki farið með atkvæði
alls síns skráða hlutar, sem er 21,24%,
heldur einungis um 18%, þar sem ann-
ar eigandi en Straumur eigi í raun og
veru liðlega 3%.
Íslandsbanki á 5,07%
Þeir hlutir, sem tryggt má telja að
þeir Bjarni Ármannsson og meirihluti
bankastjórnar Íslandsbanka, geta litið
á sem örugg stuðningsatkvæði eru:
Hlutur Milestone Import Export
Ltd og Milestone ehf. sem eru í eigu
Ingunnar Wernersdóttur, Karls
Wernerssonar og Steingríms Wern-
erssonar. Félög þeirra eiga 12,52% í
Íslandsbanka;
Hluturinn sem Jón Helgi Guð-
mundsson, í BYKO, seldi Bjarna Ár-
mannssyni, Einari Sveinssyni og fimm
framkvæmdastjórum Íslandsbanka og
nemur 1,78% hlut í bankanum;
Hrómundur ehf. 1,89% hlutur, félag
í eigu Einars Sveinssonar;
Hafsilfur ehf. 1,23%, félag í eigu
Benedikts Sveinssonar. Samtals ráða
þeir bræður Benedikt og Einar
Sveinssynir yfir um 4,8% atkvæða í Ís-
landsbanka, Bjarni Ármannsson um
2% og aðrir stjórnendur um 2,5% at-
kvæða.
Samtals gerir þetta 21,82% at-
kvæða, en það skal áréttað hér, að
óvissuatkvæði, eins og þeirra Jóns og
Sturlu Snorrasona og hluturinn sem
Jón Helgi Guðmundsson á enn eru tal-
in með hvorugri blokkinni, en samtals
nemur þeirra hlutur um 5,8%. Sam-
kvæmt mínum upplýsingum eru þeir
Jón og Sturla nú að þreifa fyrir sér
með sölu á sínum hlut í Íslandsbanka,
þannig að ekki er hægt að segja til um
hvernig þeirra atkvæðamagni verður
ráðstafað.
Íslandsbanki á 5,07% hlut í sjálfum
sér, en þeim atkvæðum getur meiri-
hluti bankastjórnar ekki beitt í at-
kvæðagreiðslu á hluthafafundi.
Þó gætu stjórnendur bankans, þ.e.
þeir Bjarni Ármannsson forstjóri og
Einar Sveinsson, formaður stjórnar,
kosið að leggja til við bankastjórn að
eigin bréf væru seld vinveittum fjár-
festum rétt fyrir hluthafafund, þannig
að þeir gætu tryggt sér atkvæðamagn-
ið og látið síðan bankann kaupa bréfin
aftur, að afstöðnum hluthafafundi.
Þetta er einmitt það sem stjórn
bankans gerði fyrir síðasta aðalfund til
þess að geta nýtt atkvæðin, sam-
kvæmt mínum heimildum og leysti svo
bréfin til sín nokkrum dögum eftir
fundinn.
Því gæti stuðningur við núverandi
meirihluta bankastjórnar meðal
stærstu hluthafanna í Íslandsbanka
verið um 26,8%, fari svo að ákveðið
verði að selja bréf bankans tímabundið
til vinveittra fjárfesta. Fari svo að
meirihlutinn njóti einnig stuðnings
Jóns Helga og þeirra Snorrasona,
Jóns og Sturlu, þá er hlutur þeirra
kominn í um 32% og sé raunin sú, að
liðlega 3% af atkvæðamagni Straums
muni nýtast meirihlutanum, þá væri
stuðningur við hann kominn í 35%.
Jafnframt fullyrða menn úr röðum
núverandi meirihluta, að þeir njóti
stuðnings mjög margra smærri hlut-
hafa og hafi því tryggt sér vel yfir 40%
hlutafjár í bankanum.
Ekki liggur fyrir, hvernig eft-
irstandandi hlut í Norvest ehf. Jóns
Helga Guðmundssonar, sem hann ekki
seldi, 1,7% yrði ráðstafað, komi til at-
kvæðagreiðslu, en þó er talið ólíklegt, í
kjölfar þess að Steinunn, dóttir hans,
ákvað að selja Burðarási sinn hlut, að
hann komi til með að nýtast núverandi
meirihluta.
Rauðatorg ehf. með 1,67% hlut er
félag í eigu Jóns Snorrasonar, Alnus
ehf. með 1,19% hlut er félag í eigu Jóns
Snorrasonar og Taxus ehf. 1,16% er fé-
lag í eigu Sturlu Snorrasonar, bróður
Jóns Snorrasonar. Menn greinir á um
það hvernig þeir bræður muni verja
sínum atkvæðum, komi til hluthafa-
fundar.
Þó benda menn úr röðum núverandi
meirihluta á, að það hljóti að þurfa um-
talsverðan snúning hjá þeim Snorra-
sonum, til þess að þeir ákveði að styðja
fulltrúa Burðaráss og Straums í
stjórnarkjöri, þar sem Jón er fimmti
maður meirihlutans í stjórn Íslands-
banka. Aðrir í meirihlutanum eru Ein-
ar Sveinsson, Karl Wernersson, Ro-
bert Melax og enn sem komið er,
Steinunn Jónsdóttir. Fulltrúar minni-
hlutans, þ.e. þeir sem kjörnir voru með
atkvæðum Straums, Burðaráss og líf-
eyrissjóðanna eru þeir Þórarinn Viðar
Þórarinsson og Úlfar Steindórsson.
Enn er ótalið hvernig Lífeyrissjóðir
Bankastræti (lífeyrissjóðir starfs-
manna hins opinbera) munu ráðstafa
sínum atkvæðum, en þeir munu ekki
hafa gefið sig upp og ekki viljað blanda
sér í átökin með nokkrum hætti. Líf-
eyrissjóðir Bankastræti eiga 1,72%
hlut.
Gæti orðið mjótt á mununum
Tuttugu stærstu hluthafar í Íslands-
banka eiga samtals um 64,5% hlut í
bankanum, eins og áður greinir. Þar
sem tekist hefur að eyrnamerkja
hvernig megninu af þeim atkvæðum
verður ráðstafað komi til stjórnarkjörs
Steinunn sneri vörn
í sókn með sölu
Fréttaskýring | Eins
og kunnugt er hefur
Burðarás keypt 4,11%
hlut Steinunnar Jóns-
dóttur í Íslandsbanka.
Agnes Bragadóttir
segir átökin nú um
völdin í Íslandsbanka
líkast til jafn harðvít-
ug og átökin sem hóf-
ust vorið 2000.
Karl Wernersson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason ætluðu í félagi að ná völdum
: ' %
! ;
'&
!"#$"
%#&'
"#$'
"#''
/12
31
()**
* *+
* *
**
* * *
,*
**
*
,* ,
**
* *- .
&
%
&<
: ' %
! ;
'&
"!#"&
/#%0
"#12
!#0!
!#%2
!#2"
'#&1
'#&1
'#&0
'#/%
414
214
**
* .*3*
*!&45
**
* **
*
*
**
*6,* ,*7 8
**
*6
*( .9 **
*6
*
.
**
*6
* .*3: **
*(
8 *
**
*.7
*7 8
**
*; *-
*; 7
&
%
&
(< *.
,.* .
***** *24* * ) .* . =&
%
%
$#'/
!#/'
%#'"
!#/"
* ) * ,
*; *
*:., *; * * *
*6
* "
;
'&