Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 14
14 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Allt að gerast á
Austurlandi!
Þann 17. júní fylgir Morgunblaðinu glæsilegur
blaðauki um Austurland, landsfjórðung í
örum vexti.
Meðal efnis er mannlíf og menning, framtíðarsýn
fjórðungsins, húsbyggingar og þróun fasteignaverðs,
umsvif og atvinna, áhugaverðir staðir og margt fleira.
Auglýsendur! Pantið fyrir
kl. 16 þriðjudaginn 14. júní.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
NORSKT laxeldisfyrirtæki, Eco
Farms, hefur náð því að lækka fram-
leiðslukostnað verulega með því að
ala laxinn í kerum á landi. Fram-
leiðslukostnaður á hvert kíló getur
verið allt niður í 123 krónur, en að
meðaltali var þessi kostnaður 156
krónur í norsku laxeldi árið 2003.
Betri nýting á fóðri er lykilatriði.
Þetta kemur fram á sjávarútveg-
svefnum SeafoodIntelligence.com.
Þar segir að norska fyrirtækið hafi
unnið að eldi í lokuðum kerum á landi
síðan árið 2000 með góðum árangri.
Hægt sé að lækka framleiðslukostn-
að um 25% borið saman við eldi í
sjókvíum, og umhverfisáhrif séu
hverfandi. Einnig sé það hugsanlegt
að seiðin þurfi engin lyf.
Grundvöllurinn fyrir þessum ár-
angri er endurnýting vatns og betri
fóðurnýting og hefur fyrirtækið
fengið alþjóðlegt einkaleyfi á upp-
finningu sinni. Tæplega 200 milljón-
um króna hefur verið varið í þetta
verkefni og hefur það fengið fransk-
an styrk að upphæð 35,4 milljónir
króna.
Laxinn sleppur ekki
Framkvæmdastjóri Eco Farm,
Stephen Willoughby, segir að það
séu margir þættir sem leiði til lægri
framleiðslukostnaðar, aðrir en fóður-
nýtingin. Þar komi meðal annars til
eftirlit með vatnsgæðum, stjórnun
hitastigs, vatnsflæði, lýsing og súr-
efni. Auk þess sé mun minni hætta á
sjúkdómum, sem þýði minni kostnað
vegna bólusetningar og að fiskurinn í
kerum á landi búi ekki við sömu
áhættuþætti og fiskur í sjókvíum, á
landi sé til dæmis engin laxalús. Af-
föll á laxi í sjókvíum eru að meðaltali
20% samkvæmt opinberum norskum
tölum, en í kerum á landi eru afföllin
miklu minni. Umhverfisáhrif eru
nánast engin og til dæmis sleppur
laxinn alls ekki eins og oft gerist í
sjókvíum.
Miklu minna fóður
Betri fóðurnýting er ennfremur
mikilvægur þáttur. „Ef maður tekur
trúanlegar tölur frá Bellona og
WWF, þarf 2,5 til 4 kíló af fiski til að
framleiða 1 kíló af laxi. Þar sem við
höfum sýnt fram á að hægt sé að ná
fóðurstuðlinum niður í 0,85 má
reikna út að land eins og Noregur
gæti notað 1,3 milljón tonnum minna
af villtum fiski í laxafóður en nú er
gert,“ segir Willoughby.
Útreikningar Eco Farm sýna að á
árinu 2003 var fóðurnotkun í norsku
fiskeldi 768.000 tonn. Með aðferð Eco
Farm mætti minnka þessa notkun
niður í 330.000 tonn. Willoughby seg-
ir ennfremur að gæði fisksins séu
framúrskarandi, eins nálægt villtum
laxi og hægt sé. Lögun laxins og litur
á holdi sé góður og engir útlitsgallar,
hvorki uggaskemmdir né vetrarsár.
Getur verið nánast
hvar sem er
Hann bendir einnig á að með þess-
ari aðferð sé hægt að hafa laxeldi og
vinnslu á laxinum á sama stað og
jafnvel verksmiðju sem ynni áburð úr
slógi og afskurði. Starfsemina mætti
líka hafa nær mörkuðunum. Þannig
yrði lítið sem ekkert um flutninga á
fiskinum, sem einnig dragi úr kostn-
aði. Það megi í raun vera með eldið
hvar sem næst í nægilega gott vatn.
Þess vegna sé það ekki bundið við af-
skekktari landsvæði eins og Norður-
Noreg og nyrstu hluta Skotlands.
Eco Farm er í samstarfi við
franska fyrirtækið Aqua 21, en það
hefur tryggt sér svæði undir eldi á
40.000 tonnum af laxi á ári. Til sam-
anburðar var framleiðsla stærsta fyr-
irtækis Noregs, Marine Harvest,
60.000 tonn í fyrra.
Þegar laxeldi var fyrst reynt hér á
landi í miklum mæli fyrir um tveimur
áratugum var það allt í kerum á
landi. Sú tilraun gekk ekki upp og var
miklum kostnaði umfram eldi í
sjókvíum meðal annars kennt um.
Morgunblaðið/RAX
Sjókvíar Eldi á laxi hérlendis er nú nær eingöngu í sjó en f́yrir tuttugu árum var eldið á landi.
Lækka kostnað um
25% með laxeldi á landi
Umhverfisáhrif nær engin og fóðurnýting miklu betri
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, segir Íslendinga eiga
óskoraðan rétt til síldveiða á vernd-
arsvæðinu við Svalbarða. Þeir muni
því stunda síldveiðar þar verði þess
þörf.
Þetta kemur fram í viðtali norska
blaðsins Fiskaren við Árna. „Norð-
menn geta ekki sett reglur sem að-
eins útiloka Íslendinga. Hvers
vegna gera Norðmenn til dæmis
upp á milli rússneskra og íslenskra
skipa á verndarsvæðinu“? spyr
Árni.
Árni segir að það séu Norðmenn
sem hafi dregið sig út úr því sam-
komulagi sem var í gildi á milli
landanna og hann gerir ekki ráð
fyrir því að lausn sé á næstu grös-
um vegna þess hve stutt sé í kosn-
ingar í Noregi. Það þurfi ekkert að
vera að ný ríkisstjórn nái betri
samningi, en í stöðunni eins og hún
er nú sé hæpið að skynsamlegur
samningur náist.
Norðmenn hafa farið fram á
verulega aukningu eigin hlutdeildar
á kostnað annarra þjóða, sem veið-
arnar stunda, en þær hafa hafnað
því.
Fullur réttur
til veiða við
Svalbarða
Stundum
fæ ég
þakkarbréf
á morgun
Elisabet
Drozyner
þerna