Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 19
ERLENT
A t l a n t i c
P e t r o l e u m
P/F Atlantic Petroleum, with the secondary
name P/F Atlants Kolvetni, is the issuer of
the shares. The company's registered office
is located at Gongin 10, 3rd floor, FO-110
Tórshavn, Faroe Island. Atlantic Petroleum is
registered in the Faroe Islands at the Faroese
Business Registration Office (Skráseting
Føroya) with registration number P/F 2695.
Atlantic Petroleum was founded in 1998 as
the first independent upstream oil and gas
company in the Faroe Islands. According to
clause 1 of the company's Ar ticles of
Association its objective is to conduct busi-
ness in the field of hydrocarbon production
and other related business. Atlantic
Petroleum currently participates in explora-
tion on the Faroese Continental Shelf and
exploration and development in the UK sector
of the North Sea. The long term strategic
goals are:
· Oil and gas exploration and development in
Faroese waters
· Oil and gas exploration and development in
UK waters
· Acquisition of assets under development
and producing assets
The shares of P/F Atlantic Petroleum will be
listed on the Main List of ICEX on 15 June
2005.
The total listed shares amounts to DKK
73,997,800 nominal value.
The securities are electronically registered at
VP Securities Services in Denmark.
The ticker symbol of the shares at ICEX and
VP will be FO-ATLA and the ISIN code
DK0016303696. Payment for trades in
Atlantic Petroleum's shares is 3 days after
trading.
Kaupthing Bank is the manager of the listing.
A Prospectus on the listing is published in
English and can be obtained on the websites
www.kaupthing.fo, www.kaupthing.net, and
www.petroleum.fo. The Prospectus is also
available at their respective offices at
Tinghúsvegur 14 in Tórshavn, Borgartún 19 in
Reykjavík, and Gongin 10, 3rd floor in
Tórshavn.
S
te
p
h
a
n
ss
o
n
s
H
ú
s
Atlantic Petroleum listed on ICEX on 15 June 2005
Eduardo Rodríguez Veltzé sór í gærembættiseið forseta Bólivíu.Fyrsta verk hans var að boða aðkosningar yrðu haldnar í landinu í
þeirri von að þannig megi binda enda á of-
beldi og ólgu undanliðinna vikna.
Rodríguez, sem er 49 ára gamall, sór emb-
ættiseiðinn seint á fimmtudagskvöld að stað-
artíma á réttnefndum neyðarfundi þingsins,
er haldinn var í hinni opinberu höfuðborg
landsins, Sucre. Ekki þótti ráðlegt að þing
kæmi saman í La Paz, höfuðborg stjórnsýsl-
unnar, sökum ólgunnar, sem þar ríkir í kjöl-
far uppreisnar þess hluta þjóðarinnar er með
réttu má flokka sem „öreiga“.
Rodríguez, sem var forseti hæstaréttar
Bólivíu, tekur við embættinu af Carlos Mesa
en hann baðst lausnar á mánudag. Sam-
kvæmt stjórnarskránni hefði Hormando
Vaca Díez, forseti öldungadeildar þingsins,
átt að taka við sem forseti en leiðtogar upp-
reisnarmanna höfðu látið þau boð út ganga
að það yrði ekki liðið. Veruleg hætta var talin
á að borgarastríð myndi brjótast út í landinu
tæki hann við af Mesa. Vaca Díez ákvað þá að
lýsa yfir því að hann myndi ekki taka við for-
setaembættinu, sem þá hefði lögum sam-
kvæmt átt að koma í hlut Mario Cossío, for-
seta fulltrúadeildar þingsins. Hann hafði hins
vegar gjört kunnugt að hann myndi ekki
setjast að í Quemado-forsetahöllinni í La
Paz.
Krefjast þjóðnýtingar
Á undanliðnum vikum hefur uppreisnar-
ástand ríkt í Bólivíu. Þar fara fremstir smá-
bændur, indíánar, námsmenn, vinstrisinnar
og námuverkamenn sem krefjast þess að
olíu- og gasiðnaðurinn í landinu verði þjóð-
nýttur á ný. Þar að baki býr hin gamla krafa
um að auðnum verði skipt með réttlátari
hætti í þessu fátæka landi. Þá krefjast upp-
reisnarmenn þess að gerðar verði breytingar
á stjórnarskrá landins í þá veru m.a. að vald-
dreifing verði aukin og réttindi indíána virt.
Samkvæmt nýrri skýrslu Efnahagsnefndar
Sameinuðu þjóðanna vegna Rómönsku-
Ameríku og Karíbahafsríkja (Comisión
Económica para América Latina y el Caribe)
draga 54% íbúa Bólivíu fram lífið undir skil-
greindum fátæktarmörkum. Þessir hópar
hinna allslausu standa fyrir uppreisninni í
landinu en ríkinu ræður auðug yfirstétt sem
er einkum af spænskum uppruna.
Í Bólivíu búa rétt rúmlega níu milljónir
manna og eru tveir af hverjum þremur íbú-
anna indíánar. Bólivía er tíu sinnum stærra
en Ísland. Íbúar Bólivíu ráða yfir umtals-
verðum náttúruauðæfum en einna mikilvæg-
ust eru miklar gaslindir og tin-námur.
Markaðsvæðing sögð hafa
gagnast auðstéttinni einni
Uppreisnarmenn fullyrða að „umbætur“
undanliðinna tveggja áratuga, kapítalísk
markaðsvæðing, hafi orðið til þess eins að
auka auð fámennrar yfirstéttar. Einkum er
horft til markaðsvæðingar á sviði orkumála,
sem fullyrt er að hafi á engan veg skilað sér
til þjóðarinnar. Forræði yfir auðlindunum
hafi verið afhent erlendum stórfyrirtækjum,
sem stundi réttnefnt „arðrán“ í landinu.
Mesa forseti brást við kröfum þessum með
því hækka framleiðsluskatta, sem lagðir eru
á alþjóðlegu stórfyrirtækin. Þar ræddi um
verulegar hækkanir en þessi ráðstöfun nægði
ekki til að friða mótmælendur og varð enn-
fremur til þess að þær raddir tóku að heyrast
að fyrirtækin myndu einfaldlega hætta starf-
semi í landinu.
Rodríguez forseti boðaði að haldnar yrðu
kosningar en tiltók ekki hvenær það myndi
gerast. Samkvæmt stjórnarskrá Bólivíu eiga
þær að fara fram innan sex mánaða. Hann
lagði áherslu á að hann tæki við embættinu
til bráðabirgða en forsetinn nýi hefur eftir
því sem næst verður komist ekki áður haft
afskipti af stjórnmálum í heimalandi sínu.
Evo Morales, vinstrisinnaður þingmaður af
bálki Aymara-indíána, foringi kókabænda og
einn helsti leiðtogi uppreisnarinnar, hvatti
forsetann til að heita því að olíu- og gasiðn-
aðurinn yrði þjóðnýttur á ný, auk þess sem
stjórnlagaþing yrði kallað saman.
Mesa fráfarandi forseti sagði í viðtölum við
fjölmiðla er hann hafði látið af embætti að
hann væri „sáttur við eigin frammistöðu“ á
þeim 20 mánuðum sem hann var í embætti.
Um það bil sem þessi orð féllu töldu margir
útlit fyrir að ekki reyndist unnt að halda
þingfundinn í Sucre þar sem uppreisnarmenn
höfðu fjölmennt til borgarinnar.
Einingu ríkisins ógnað?
Eftirmaður Mesa á því tæpast rólega daga
í vændum. Í borginni Santa Cruz í suð-
austurhluta landsins, hefur hætta skapast á
annarri uppreisn. Þar er að finna miklar olíu-
og gaslindir og hefur auðstéttin þar krafist
aukinnar sjálfstjórnar og aukins hluta í arð-
inum af vinnslunni. Uppreisnarmenn styðja
ekki þessa kröfu og það gera ekki heldur
índíánar sem þarna búa. Helstu foringjar við-
skiptalífsins í Santa Cruz hafa heitið því að
boða til atkvæðagreiðslu um aukna sjálf-
stjórn héraðsins 12. ágúst. Þeir kveðast hafa
fengið nóg af upplausninni í landinu og segja
engu skipta hvort stjórnvöld samþykkja at-
kvæðagreiðsluna eður eigi.
Mesa forseti sagði á dögunum verulega
hættu á því að borgarastríð brytist út í Bóli-
víu. Líklegt sýnist að eftirmaður hans þurfi á
öllu sínu að halda eigi honum að takast að
tryggja friðinn.
Tryggir nýr
forseti stöðug-
leika í Bólivíu?
Fréttaskýring | Uppreisnarástand hefur ríkt í Bólivíu á
undanliðnum vikum. Ásgeir Sverrisson segir frá ástæðum
þess að þjóðfélagið er við suðumark.
Reuters
Eduardo Rodríguez, nýr forseti Bólivíu (t.h.), ásamt Hormando Vaca Díez, sem með réttu hefði
átt að taka við embættinu. Rodríguez hefur fram til þessa ekki haft afskipti af stjórnmálum.
asv@mbl.is