Morgunblaðið - 11.06.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | „Þetta er bílabærinn,“ segir Hilmar
Pálsson sem rekið hefur Betri bílasöluna á Sel-
fossi síðan árið 2000 en bílasalan hefur verið
starfrækt í 15 ár við Hrísmýri á Selfossi. Núna
heitir bílasalan IH á Selfossi og er í eigu Hilmars
og Önnu Dóru Jónsdóttur. Það er mikill gangur í
bílasölu á Selfossi og á dögunum tóku Hilmar og
Anna Dóra í notkun nýtt 300 fermetra viðbótar-
húsnæði með sýningarsal og aðstöðu fyrir sölu-
menn og stjórnendur. IH er með umboð fyrir
Ingvar Helgason hf. á nýjum og notuðum bílum
og til þess að efla þjónustuna enn frekar verður
á næstunni opnað nýtt þjónustuverkstæði við
hliðina á bílasölunni.
Þrjár bílasölur eru í næsta nágrenni við IH og
segja má að á þessu svæði sé mesta framboð af
bílum á landinu. Hekluumboðið og Bílasala Sel-
foss eru við Hrísmýrina, Toyotaumboðið og Bíla-
sala Suðurlands eru skammt þar frá og einnig IB
umboðið sem selur ameríska bíla. Geta má sér
þess til að á svæðinu starfi 40-45 manns við bíla-
sölu og í þjónustustörfum við bíla. „Bílasölurnar
hérna á þessu svæði eru svo nálægt hver annarri
að það er nánast eins og um eina bílasölu sé að
ræða. Nálægðin og samkeppnin styrkir okkur.
Það er því ógrynni af bílum sem þeim bjóðast
sem vilja kaupa bíla á Selfossi. Nú fyrir utan
hvað það er þægilegt að geta bara labbað á milli
bílasalanna hérna á svæðinu, til að spá og spek-
úlera,“ segir Hilmar.
Hann bætir því við að það sé því heilmikið á
bak við það að Selfoss sé tvímælalaust mesti bíla-
bær á landinu. Öll stærstu bílaumboðin séu kom-
in með fulla starfsemi á Selfossi og síðan verði
ekki framhjá því litið að saga Selfoss sé nátengd
bílum og bílaútgerð. Bendir hann í því sambandi
á að Mjólkurbú Flóamanna og Kaupfélag Árnes-
inga hafi í árdaga staðið að einu fullkomnasta
flutninganeti í Evrópu með mjólkurbílum og
áætlunarbílum sem fluttu vörur og fólk um sveit-
ir Suðurlands og til Reykjavíkur. Á bak við þetta
mikla flutninganet var fjöldi starfsmanna sem
annaðist mikla þjónustu á viðgerðarverkstæði
KÁ við að halda úti þessum mikla bílaflota. „Það
kemst enginn með tærnar þar sem við erum með
hælana í þessum efnum,“ segir Hilmar og bendir
auk þess á mikla útgerð fólksflutningabíla hjá G.
Tyrfingssyni í næsta nágrenni og síðan starfsemi
Austurleiðar hf. sem tók við af Sérleyfisbílum
Selfoss og Suðurlands. „Síðan eru hér fullkomin
sérhæfð verkstæði á Selfossi og í nágrenninu
sem breyta bílum“, segir Hilmar.
Fólk kemur úr Reykjavík
„Við leggjum áherslu á góða þjónustu. Bíla-
sala er þannig að maður selur sjálfur fyrsta bíl-
inn en svo er það þjónustan sem á að selja næstu
bíla. Hún fylgir þessu eftir, dregur að fólk, lætur
það finna að það hafi gert rétt í því að kaupa bíl
hjá okkur en ekki einhvern annan bíl ann-
arsstaðar. Það er töluvert um að fólk komi hing-
að úr Reykjavík til að kaupa bíla, bæði nýja og
notaða. Fólkið er að sækja í úrvalið og því líkar
þjónustan, annars kæmi það ekki.
Já, já. mér finnst gott að vera bílasali, ég sef í
það minnsta lengur en ég gerði í faginu sem ég
lærði sem var bakaraiðn. Þetta er þægilegt starf
en getur tekið á, það er mikil samkeppni og mað-
ur þarf að hafa fyrir hlutunum en þannig á lífið
að vera, það gerist ekkert af sjálfu sér hvorki í
þessu né öðru,“ segir Hilmar Pálsson bílasali.
Liðlega fjörutíu manns vinna hjá fyrirtækjum á bílasölusvæðinu á Selfossi
„Tvímælalaust bílabærinn“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bílasali og bakari Hilmar Pálsson bílasali fyrir
framan höfuðstöðvar IH á Selfossi.
Allar upp-
lýsingamið-
stöðvarnar
eru opnar
ALLAR sjö upplýsingamiðstöðvar
ferðamanna á Suðurlandi hafa ver-
ið opnaðar. Þær eru í Hveragerði,
á Selfossi, á Hellu, á Hvolsvelli, í
Vík, á Kirkjubæjarklaustri og í
Vestmannaeyjum. Við þennan lista
má bæta Þjónustumiðstöðinni á
Þingvöllum og litlum upplýsinga-
hornum eins og t.d. í félagsheim-
ilinu Þjórsárveri í Villingaholts-
hreppi.
Miðstöðvarnar veita ferðafólki
meðal annars upplýsingar um
áhugaverða staði, afþreyingu, gist-
ingu, veðurhorfur og ástand vega í
nágrenninu.
Í dag, laugardag, verður haldið
upp á það að eitt ár er liðið frá því
að verslunarmiðstöðin Sunnumörk
í Hveragerði var opnuð. Mikið
verður um dýrðir í tilefni dagsins.
Að auki verður vígt upphleypt lík-
an af Suðurlandi sem verður fram-
vegis til sýnis í verslunarmiðstöð-
inni. Í Upplýsingamiðstöðinni er
hægt að sjá hina margfrægu jarð-
skjálftasprungu og fara í jarð-
skjálftaherminn.
Grindavík | „Þetta er mikilvægur
áfangi í starfsemi Bláa lónsins. Við
getum betur nýtt lækningamátt lóns-
ins og stundað vísindarannsóknir á
því,“ segir Grímur Sæmundsen,
framkvæmdastjóri Bláa lónsins hf. Í
gær var ný meðferðarstöð fyrir
psoriasis-sjúklinga opnuð en hún
nefnist Bláa lónið – lækningalind.
Með henni aukast mjög möguleikar
fyrirtækisins til að taka við erlendum
sjúklingum til meðferðar.
Lækningalindin er byggð í hraun-
inu í nágrenni Bláa lónsins og hefur
við hönnun hennar og byggingu mjög
verið hugað að því að hún falli vel að
umhverfinu. Sigríður Sigþórsdóttir
arkitekt heilsulindarinnar teiknaði
húsið og Keflavíkurverktakar
byggðu það. Við stöðina er sérstakt
baðlón og innilaug með Bláa lóns
jarðsjó, hvort tveggja hannað með
þarfir meðferðargesta í huga.
Auk aðstöðu til meðferðar og vís-
indarannsókna eru fimmtán tveggja
manna gistiherbergi í lækningalind-
inni ásamt veitingastað og setustofu.
Uppbyggingin er samvinnuverk-
efni Bláa lónsins hf. og íslenskra
stjórnvalda sem gert hafa Eign-
arhaldsfélagi Suðurnesja kleift að
fjármagna helming kostnaðar við
framkvæmdina á móti Bláa lóninu hf.
sem alfarið annast reksturinn. Fast-
eignafélagið Hraunsetrið ehf. byggir
húsið. Kostnaður við framkvæmdina
er um 440 milljónir kr., án virð-
isaukaskatts, að sögn Gríms.
Grannt fylgst með uppbyggingu
Lækningalindin var opnuð í gær
með því að Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra og Eðvarð Júl-
íusson, formaður stjórnar Bláa lóns-
ins hf., afhjúpuðu áletraða
hraunhellu. Þessa hellu losuðu þeir
einmitt í sameiningu við upphaf
framkvæmda við lækningalindina í
byrjun janúar á síðasta ári.
Bláa lónið hefur rekið meðferð-
arstöð fyrir psoriasis-sjúklinga frá
árinu 1994 í bráðabirgðaaðstöðu við
gamla lónið. Sú starfsemi er nú flutt í
lækningalindina. „Það hefur alltaf
verið áhugamál mitt að koma með-
ferðarstöðinni í aðstöðu sem henni
sæmir. Lækningamáttur Bláa lóns-
ins var ástæða þess að ég kom að
málum hér við lónið í upphafi og
þetta er því mikilvægur áfangi fyrir
mig persónulega,“ segir Grímur Sæ-
mundsen, en hann er læknir og starf-
aði við fagið áður en hann kom að
stjórnun Bláa lónsins hf. Hann segir
að eftir því sem næst verði komist sé
lækningalindin eina húðlækn-
ingastöðin í heiminum sem einbeitir
sér að rannsóknum og meðferð á
psoriasis.
Þótt meðferðarstöðin hafi verið í
ófullnægjandi bráðabirgðahúsnæði
hafa komið þangað 3000 gestir til
meðferðar á ellefu árum. Meðferðin
er þekkt víða erlendis og þangað
hafa komið gestir frá nítján þjóð-
löndum. Grímur segir að mikill
spenningur sé fyrir nýju aðstöðunni
og forystufólk í psoriasis-samtökum
hafi fylgst grannt með uppbygging-
unni. Nú verði hægt að hefja kynn-
ingu starfseminnar erlendis fyrir al-
vöru. Nefnir hann að von sé á
stjórnun allra norrænu psorias-
issamtakanna á fund síðar í þessum
mánuði og einnig fulltrúum frá
bandarísku samtökunum. Heimsókn
þeirra síðarnefndu er liður í und-
irbúningi rannsóknaráætlunar sem
Bláa lónið vinnur að í samvinnu við
íslensk og bandarísk heilbrigðisyf-
irvöld. Gert er ráð fyrir að sjúklingar
komi frá Bandaríkjunum til með-
ferðar og rannsóknar.
Jón Þrándur Steinsson húðlæknir
hefur verið ráðinn yfirlæknir lækn-
ingalindarinnar og Ragnheiður Al-
freðsdóttir er hjúkrunarforstjóri.
Rannsóknir auknar
Grímur segir að bætt aðstaða auki
mjög möguleika á vísindarann-
sóknum. Nefnir tvennt í því sam-
bandi. Annars vegar rannsóknir sem
miða að því að stytta meðferð psor-
isasissjúklinga án þess að slakað sé á
kröfum um árangur og öryggi með-
ferðarinnar. Hins vegar rannsóknir í
tengslum við þróun á húðvörum Bláa
lónsins og hugsanlega nýjum vörum.
Segir hann áhuga á að athuga hvort
hægt sé að kortleggja hvaða efni það
eru í lífríki Bláa lónsins sem hafi
þessi jákvæðu áhrif á húðina og hvort
hægt sé að einangra þau til að nota
við þróun lyfja eða nýrra húðvara.
„Þessi aðstaða gefur okkur mögu-
leika á að færa starfsemi meðferð-
arstöðvarinnar á alveg nýtt stig, eins
og þegar við fluttum í nýju heilsu-
lindina fyrir sjö árum,“ segir Grímur
Sæmundsen.
Bláa lónið tekur í notkun lækningalind sem stórbætir aðstöðu til meðferðar psoriasis-sjúklinga
Getum betur nýtt
lækningamátt
Bláa lónsins
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sérstakt baðlón Nokkrir psoriasis-sjúklingar vígðu nýja baðlónið og innisundlaugina í lækningalind Bláa lónsins.
Opnun Eðvarð Júlíusson, formaður
stjórnar Bláa lónsins, og Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra afhjúp-
uðu hraunhellu sem þeir losuðu við
upphaf framkvæmdanna.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Undirbúa stækkun heilsulindar
BLÁA lónið er að undirbúa stækkun húsnæðis heilsulindarinnar og
lónsins sjálfs.
Samhliða byggingu lækningalindarinnar hefur Bláa lónið verið að
byggja hús fyrir vöruframleiðslu sína. Þá er hafinn undirbúningur að
stækkun heilsulindarinnar. „Við höfum skapað okkur sterka ímynd
og við viljum viðhalda henni,“ segir Grímur Sæmundsen fram-
kvæmdastjóri. Aukið húsnæði verður notað til að bæta aðstöðu í bún-
ings- og baðklefum og veitingasal og verslun. Stefnt er að því að hefj-
ast handa við framkvæmdir í haust, að loknum sumarönnum.
Jafnframt er að sögn Gríms hafin athugun á möguleikum þess að
stækka baðlónið.