Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
NEYTENDASAMTÖKIN hafa
gert verðkönnun á ofnæmislyfjum
sem virka á frjóofnæmi og seld
eru í lausasölu í apótekum. Verð
var kannað á 6 tegundum lyfja í
þremur apótekum, Apótek-
aranum, Lyf og heilsu og Apótek-
inu. Verðmunur var almennt ekki
mikill, apótekið þó oftast með
lægsta verðið og Lyf og heilsa oft-
ast með það hæsta. Fram kemur í
könnuninni að 10 töflur af ofnæm-
islyfi kosti frá 520 krónum upp í
tæpar 700 krónur, sem þýðir að
ein tafla getur kostað allt að 70
krónum.
Ódýrara í Danmörku
Neytendasamtökin höfðu einnig
samband við apótek í Danmörku
og þar var kannað verð á þessum
lyfjum. Fram kom að 10 stykkja
pakki kostaði um 30 danskar
krónur, um 330 krónur íslenskar.
Telja samtökin ljóst að skoða
verði nánar þann verðmun sem er
á algengum lausasölulyfjum hér á
landi og í nágrannalöndum.
VERÐKÖNNUN | Neytendasamtökin kanna verð á ofnæmislyfjum
Apótekið oftast
með lægsta verðið
Morgunblaðið/Arnaldur
Gestgjafi kvöldsins varKristín Sigtryggsdóttirsöngkona og hafði húnboðið til sín nokkrum vin-
konum.
„Ég hef aldrei farið á svona
heimakynningu, mér hefur oft verið
boðið en alltaf náð að koma mér hjá
því. Þar sem ég þekki hana Öldu
ákvað ég að slá til og halda kynn-
ingu,“ segir Kristín en Alda Ingi-
bergsdóttir var sölukona kvöldsins.
Undirfötin eru frönsk og fást í
heimakynningum í mörgum lönd-
um. Íslenska fyrirtækið SÍON ehf.
hóf innflutning og kynningu á þeim
fyrir skemmstu. Helga Georgsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Charlott á Ís-
landi, segir þetta undirföt sem höfði
til allra. „Við erum með fimmtán til
tuttugu kynningar á viku og oftast
eru um fimm til tíu konur á hverri
þeirra, en svo hittum við líka stærri
hópa eins og kvenfélög. Sölukon-
urnar okkar eru um þrjátíu og eru
þær á öllum aldri eins og konurnar
sem við erum að kynna fyrir. Það
hefur ekki verið neitt vandamál fyr-
ir okkur að fá kynningar og oft er
hringt og óskað eftir þeim.“
Að sögn Helgu eru konur meðvit-
aðar um gæði og þægindi heima-
kynningar. „Þjónustan er góð og
persónuleg. Á þessum kynningum
hittast konur, skoða undirföt saman
og tala um kvenleg mál. Það slæðist
jafnvel einn og einn karlmaður með
á kynningar, enda Charlott með
sérstaka línu fyrir þá.“
Oft í rangri brjóstahaldarastærð
Þegar allir gestirnir hafa komið
sér fyrir í sófanum hjá Kristínu
hefst kynningin. Alda sölukona er
örugg og hress. Nærfötin eru fyrir
augað, alls konar blóm og slaufur
skreyta þau og verður einni kon-
unni á orði: „Maður fengi nú ekki
að vera lengi í þessu.“
Hópurinn á kynningunni virðist
passlega stór. Fyrir utan Kristínu
segjast þær allar hafa farið á
heimakynningu áður og þá aðallega
á Tupperware og heilsu- og hrein-
lætisvörum.
Alda mælir út brjóstahald-
arastærð hverrar konu með rönt-
genaugum og segist sjaldan hafa
rangt fyrir sér. „Ég hef tekið eftir
því að konur kaupa ekki réttar
stærðir, eitt ráð er að kaupa aldrei
haldara sem þarf að setja í innsta
krók á bakinu því ef þeir slappast
er gott að hafa möguleika á þreng-
ingu.“
Skyndilega er dyrabjöllunni
hringt og karlkyns ljósmyndari
Morgunblaðsins mætir á staðinn.
Andrúmsloftið breytist strax, það
er kominn karlmaður í húsið. En
konurnar grínast í honum með þá
heppni að lenda í þessum mynd-
arlega kvennahópi.
Eftir hina formlegu kynningu
fara konurnar að skoða nærfötin á
borðinu. Það er þreifað, andvarpað,
spurt og valið til mátunar.
Alda drífur sig í einn toppinn og
sýnir hvað hann fer vel undir jakka
og kallar svo yfir hópinn: „Mátið,
stelpur,“ og þær drífa sig inn í her-
bergi með nærfatabunkana. Mikið
stuð virðist vera hjá konunum í
mátuninni og skyndilega kemur ein
út í glæsilegum brjóstahaldara og
önnur kallar á eftir: „Sjáið hvað
hún er geggjuð.“
Gestgjafanum Kristínu finnst
þetta skemmtilegt og öðruvísi en að
fara út í búð. „Maður gefur sér oft
lítinn tíma til að kaupa nærföt og
svo er leiðinlegt að troða sér inn í
mátunarklefa með lélegri lýsingu.
En hérna heima fær maður nægan
tíma til að máta og svo er frábært
að fá álit vinkvennanna og fé-
lagsskap þeirra,“ segir Kristín um
leið og hún ber fram ilmandi epla-
köku með ís og kaffi. Það róast að-
eins í húsinu yfir veitingunum og
hegðun karla í búðum er komin í
umræðuna. „Í Frakklandi gera kon-
ur í því að halda heimakynningar
þegar karlarnir þeirra eru að horfa
á fótbolta í sama húsi. Því þá fá
þær að kaupa hvað sem er, þeir eru
svo uppteknir af leiknum að þeir
segja bara „já, elskan“ þegar þær
spyrja hvort þær eigi að kaupa eitt-
hvað,“ segir Helga og hópurinn
hlær.
HEIMAKYNNING | Konur skoða undirföt og spjalla
Gestgjafinn, Kristín Sigtryggsdóttir, skoðar ásamt vinkonum sínum.
Morgunblaðið/Golli
Bleikur dúkurinn er í stíl við undirfötin sem verið er að kynna þetta kvöldið.
Félagsskapurinn
gerir þetta
skemmtilegt
Vörukynningar í heimahúsum hafa lengi þekkst á Íslandi. Það er
hinsvegar liðin tíð að það séu bara plastílát, hreinsivörur eða pottar
á slíkum kynningum. Ingveldur Geirsdóttir slóst í hópinn í heima-
húsi í Kópavoginum þar sem verið var að kynna undirfatalínu.
Nánari upplýsingar um nærfötin
má finna á www.charlott.is
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Fréttir
í tölvupósti