Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 37
UMRÆÐAN
Vertu me› í Kvennahlaupinu 11. júní. Nánari uppl‡singar á sjova.is.
Sjóvá hefur
veri› a›alstyrktara›ili
Kvennahlaupsins í 13 ár.
Njóttu lífsins – áhyggjulaus
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Einstök ferð þar sem allar helstu perlur og borgir Kína eru heimsóttar ásamt hinni
mögnuðu stórborg Hong Kong. Stórkostleg ferð um framandi land á einstökum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Perlur Kína
21. okt. - 10. nóv - 20 dagar
Síðustu 6 sætin
Innifalið:
Flug, skattar, gisting, flestar
máltíðir, allar kynnisferðir,
ferðir milli áfangastaða og fararstjórn.
Ferðatilhögun: Flogið til London og
þaðan til Peking. Gist í Peking í 5 næt-
ur, Xian í 3 nætur, Shanghai í 3 nætur,
Suzhou 2 nætur, Guilin í 3 nætur og
Hong Kong í 2 nætur. Gist á 4-5
stjörnu hótelum. Flogið frá Hong Kong
til London og þaðan til Íslands.
Frábært verð
Kr. 269.900 á mann í tvíbýli
Aukagjald fyrir einbýli
Kr. 64.900
• Peking
• Xian
• Shanghai
• Suzhou
• Guilin
• Hong Kong
• Kínamúrinn
• Forboðna borgin
• Torg hins himneska friðar
• Terracotta herinn
GAGNSTÆTT mörgum kenn-
ingum, er ofvirkni enginn nútíma
menningarsjúkdómur því að tauga-
læknir að nafni Heinrich Hoffmann
í Frankfurt í Þýskalandi lýsti svip-
uðum einkennum árið
1848. En svo virðist
sem tíðni þessa sjúk-
dóms fari vaxandi í
vestrænum þjóð-
félögum. Sjúkdóm-
urinn er arfgengur og
útbreiddasti tauga-
sjúkdómur hjá börnum
í Noregi, en þar er nú
lögð mikil áhersla á að
rannsaka eðli hans og
orsök. Ofvirkir ein-
staklingar með athygl-
isbrest fá að öðru
jöfnu meðferð með
geðlyfjum eins og metylfenídati eða
amfetamíni. Þar sem þessi efna-
sambönd eru gjarnan misnotuð eru
þau oft kölluð „dóp“ í daglegu tali,
sem er mjög óheppilegt, þar sem sú
nafngift stendur í vegi fyrir réttri
notkun efnanna. „Dóp“, sem er
tökuorð í íslensku, ætti aðeins að
nota, þegar efni eru misnotuð.
Talið er, að einkenni sjúkdómsins
eigi sér ekki alltaf sálrænar orsakir.
Samkvæmt kenningu svissneska
barnalæknisins Professor dr. Kurt
Baerlocher gæti verið um magn-
esíumskort að ræða, sem alltof
sjaldan er hugað að. Samkvæmt
skoðun hans ætti þess vegna í upp-
hafi að reyna magnesíumgjöf.
Magnesíum er málmur, sem er til
margra hluta nytsamlegur. En ekki
er eins vel þekkt, að
það er eitt af 50 frum-
efnum, sem líkaminn
þarfnast og verður að
fá með fæðunni og eru
lífsnauðsynleg á svip-
aðan hátt og vítamín.
Þessi frumefni ganga
undir heitum eins og
steinefni og snefilefni.
Í líkama fullorðsins
manns eru 20–28
grömm af magnesíum
og af þeim eru 99%
inni í frumunum, þar
sem það stjórnar staf-
semi hinna ýmsu gerhvatakerfa
(ensímkerfa), en gerhvatar eru efni,
sem stjórna hinum margvíslegu
efnahvörfum líkamans svo sem
myndun boðefnisins dópamín. Sum-
ir vísindamenn telja, að magn-
esíumneysla á Norðurlöndum sé of
lítil og til dæmis hefur danska heil-
brigðisstjórnin ákveðið 400 mg sem
ráðlagðan dagskammt.
Góðar magnesíumlindir eru
grænt grænmeti (magnesíum er
meðal annars í blaðgrænunni) og
jurtir, kornmeti, kjöt og fiskur.
Í nýlegri útgáfu Pharmazeutische
Zeitung, tímariti þýskra lyfjafræð-
inga, er greint frá tilraun með 230
ofvirk börn, þar sem náðist mjög
góður árangur með því að gefa
þeim 10 mmol af magnesíumasp-
artati á dag. Börnin, sem tóku þátt í
rannsókninni voru á aldrinum 4 til
12 ára og höfðu oft kvartað um ein-
beitingarskort, mikla þreytu, kvið-
verki, svefntruflanir eða höfuðverk.
Í upphafi rannsóknar höfðu öll
börnin minna en 0,76 mmol magn-
esíum í blóði. 112 barnanna fengu
síðan 5 mmol magnesíu-L-aspartat
(Magnesiocard-R) tvisvar sinnum á
dag í þrjár vikur.
Til viðmiðunar fengu 118 börn 5
mmol samsvarandi kalsíumsalts 2
sinnum á dag.
Báðar gjafir þoldust vel þannig
að aðeins eitt barn í „magn-
esíumhópnum“ og sex börn í „kalsí-
umhópnum“ kvörtuðu um auka-
verkanir, sem voru smávægilegar.
Samkvæmt mati sjúklinga, for-
eldra og barnalæknis var magn-
esíumsaltið marktækt betra en
kalsíumsaltið.
Hjá 80,2% barnanna sýndi magn-
esíumaspartat-meðferðin „mjög
góða“ til „góða“ verkun, en hjá
kalsíumaspartati var samsvarandi
árangur 65,5%. Höfundar grein-
arinnar telja, að 10 mmol magn-
esíumaspartat á dag sé lágmarks-
skammtur til þess að fá fram
marktæka verkun.
Vandamál samfélagsins
Ofvirkni er ekki aðeins alvarlegur
sjúkdómur, sem hrjáir einstaklinga
og þeirra nánasta umhverfi. Sjúk-
dómurinn hefur einnig samfélags-
legar afleiðingar. Talið er, að 3–5%
allra drengja þjáist af þessum sjúk-
dómi, en tíðnin hjá stúlkum sé
lægri. Um það bil 30% þeirra, sem
dvelja í norskum fangelsum þjást af
þessum sjúkdómi, einnig fjöldi
þeirra, sem misnota ávana- og fíkni-
efni. Námserfiðleikar hrjá þessa
sjúklinga með afleiðingum, sem
fylgja þeim alla ævi, ef ekki er að
gert og fólk, sem hefur þennan
sjúkdóm, er oftar viðriðið bílslys og
þjáist oftar af þunglyndi en aðrir.
Það er greinilegt, að lyf eins og
metylfenidat (Ritalin, Concerta) og
amfetamín hafa gagnleg áhrif á at-
hyglisbrest og ofvirkni, en eins og
öll lyf geta þau haft óæskilegar
aukaverkanir. Auk þess taka fram-
leiðendur þessara lyfja fram, að þau
skuli ekki nota handa börnum, sem
eru yngri en 6 ára, en samkvæmt
áðurnefndri rannsókn er forsvar-
anlegt að gefa 4 ára börnum magn-
esíumsölt. Þau hafa, eftir því sem
ég best veit, ekki verið mikið í um-
ræðunni sem heppilegur valkostur,
en hljóta að koma til greina, ef
reynsla þeirra við nánari rann-
sóknir verður eitthvað í líkingu við
það, sem greint er frá í áðurnefndri
tilraun. Ástæðan er sú, að magn-
esíum er eðlilegur hluti mannslík-
amans, það er mjög ódýrt, auka-
verkanir eru hverfandi og það hefur
verið notað í öðrum tilgangi áratug-
um ef ekki öldum saman. En aðal-
atriði er, að það er gagnlegt og
skaðlaust.
Enda þótt orsök þessa alvarlega
sjúkdóms sé ekki þekkt, er vitað að
heili þessara sjúklinga framleiðir of
lítið af boðefninu dópamín. Ástæða
þess kann að vera sú, að gerhvat-
inn, sem hvetur myndun þess úr
ákveðinni amínósýru er ekki nægi-
lega virkur, en verður það, ef nægi-
legt magnesíum kemst með blóði til
myndunarstaðarins. Við það
minnka sjúkdómseinkenni eða
hverfa með öllu.
Auk þess er talið að magnesíum
hafi milda róandi verkun og þar
sem það er hættulaust getur það að
vissu marki komið í stað róandi
lyfs.
Orð í belg – fyrst magnesíum
en síðan metylfenídat
Vilhjálmur G. Skúlason fjallar
um lyf og athyglisbrest ’Talið er að magnesíumhafi milda róandi verk-
un og þar sem það er
hættulaust getur það að
vissu marki komið í stað
róandi lyfs.‘
Vilhjálmur G. Skúlason
Höfundur er prófessor emeritus
í lyfjaefnafræði í HÍ.
Í DAG er 16. Kvennahlaup ÍSÍ
haldið. Allt frá upphafi hlaupsins,
árið 1990, hefur verið kappkostað
að hvetja konur til þátttöku í því og
leggja stund á útiveru
og hreyfingu.
Margir koma að
undirbúningi hlaupsins
hverju sinni enda má
fullyrða að hann hafi
alltaf verið góður og
umgjörð hlaupsins
með ágætum og til fyr-
irmyndar. Garðbæing-
ar með UMF. Stjörn-
una í fararbroddi hafa
lagt metnað sinn í að
standa þannig að
þessum íþrótta-
viðburði að hann sé
eftirsóknarverður og
þátttakendum eftirminnilegur.
Hvað er svona eftirsóknarvert?
Kvennahlaupið – ganga og skokk
– er sniðið að þörfum kvenna, til-
gangurinn að efla líkamsrækt
kvenna. Það hvetur konur á öllum
aldri til að koma saman, njóta sam-
verustundar og hreyfa sig án þess
að keppni sé í fyrirrúmi. Vega-
lengdir hæfa getu og mismunandi
aldri. Um allt land koma konur
saman. Kvennahlaupið
í Garðabæ hefur sáð
fræjum um land allt –
og þau hafa blómstrað
vel! Öflug framkvæmd
hlaupsins af hálfu ÍSÍ
hefur eflt hlaupið á
landsvísu og erlendis.
Breyttar áherslur í
líkamsrækt
Ýmislegt hefur
breyst frá því fyrsta
hlaupið fór fram. Meiri
áhersla er nú lögð á
hollt mataræði og
reglubundna og fjöl-
þætta hreyfingu en áður var gert.
Allir eiga helst að hreyfa sig dag-
lega. Stafganga hefur rutt sér til
rúms og náð vinsældum. Mikilvæg-
ast er að líkamsrækt sé skemmti-
leg. Það er lykillinn að reglubund-
inni hreyfingu og að árangur skili
sér. Einnig hefur andlegri líðan ver-
ið meiri gaumur gefin í þessu sam-
bandi.
Hvatning
Undirrituð hefur starfað við
Kvennahlaupið frá upphafi og m.a.
skrifað margar greinar í blöð í þeim
tilgangi að hvetja konur til þátt-
töku. Í dag hvet ég konur til að
mæta. Ég hvet konur á öllu landinu
til að vera með. Njótið þess að vera
úti í íslensku sumri og vera með
kynsystrum, vinkonum, frænkum,
dætrum, mæðrum og ömmum! Bæt-
um heilsu okkar með hreyfingu:
Dagleg ganga er hressandi fyrir lík-
ama og sál.
Kvennahlaup –
ganga og skokk
Lovísa Einarsdóttir hvetur
konur til að taka þátt í
Kvennahlaupinu
Lovísa
Einarsdóttir
’Allir eiga helst aðhreyfa sig daglega‘
Höfundur er íþróttakennari
og býr í Garðabæ.
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –