Morgunblaðið - 11.06.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 47
MINNINGAR
✝ Jófríður Ólafs-dóttir fæddist í
Reykjavík 28. febr-
úar 1935. Hún lést á
heimili sínu 2. júní
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Guðlaug Sigríður
Magnúsdóttir, f. 19.
sept. 1913, d. 3. júlí
1960 og Ólafur Óskar
Jónsson, f. 25. júlí
1908, d. 10. júlí 1976.
Systkini Jófríðar eru:
1) Jón, f. 27. janúar
1940, kona hans er
Agnes Jónsdóttir, f.
26. júní 1945, þau eru búsett í
Grindavík. Þau eiga tvö börn og
þrjú barnabörn. 2) Pálína, f. 18.
október 1944, maður hennar er Ís-
leifur Haraldsson, f. 25. júlí 1947,
þau eru búsett í Grindavík. Þau
eiga þrjá syni, fimm barnabörn og
eitt barnabarnabarn. 3) Gísli Örn,
f. 30. desember 1949, kona hans er
Njála Vídalín, f. 20. desember
1952, þau eru búsett í Hafnarfirði.
Þau eiga tvö börn og þrjú barna-
börn. 4) Magnús Óskar, f. 30. maí
1952. Fyrri kona hans er Halldóra
Baldursdóttir, f. 30. júlí 1957. Þau
eiga fjögur börn og átta barna-
börn. Þau skildu. Seinni kona
hans er Ragnheiður Arngríms-
dóttir, f. 17. mars 1957. Þau eru
búsett í Grindavík.
Þau eiga einn son.
Jófríður giftist 19.
september 1959 Geir
Guðmundssyni frá
Vetleifsholtsparti í
Ásahreppi í Rangár-
vallasýslu, f. 15.
september 1929, d.
12. mars 1994. Hann
er sonur hjónanna
Guðbjargar Guðna-
dóttur, f. 12. mars
1892, d. 21. júlí 1972
og Guðmundar Tyrf-
ingssonar, f. 8. des-
ember 1893, d. 1.
mars 1932.
Jófríður og Geir bjuggu allan
sinn búskap í Mörk, nú Staðar-
hrauni 3, í Grindavík.
Jófríður ólst upp í Grjótagötu
12 í Reykjavík. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Vesturbæjarskól-
anum og fór í Húsmæðraskólann í
Reykjavík. Hún stundaði líka
margskonar nám tengt sinni at-
vinnu. Jófríður var verkstjóri í
Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða, þar
sem Geir var vélstjóri til dánar-
dags. Seinustu starfsárin var
Fríða starfskona á Hjúkrunar-
heimilinu Víðihlíð í Grindavík.
Útför Jófríðar verður gerð frá
Grindavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Elsku Fríða, um morguninn þegar
ég ætlaði að sækja þig, eins og alla
aðra morgna, höfðum við þegar
ákveðið að heimsækja Jakob og Söru
og sjá litla langömmubarnið mitt, þú
varst búin að kaupa gjöf sem þú
hlakkaðir svo til að færa henni. Gjöfin
er komin til skila, systir mín góð, og
þú komin í þann faðm sem þú þráðir
heitast, til Geirs þíns.
Er vorið kemur sunnan yfir sund
með söng í hjarta, gneistaflug um brár,
þá breytast öll hin löngu liðnu ár
í ljósan dag í heiða morgunstund.
Við fjallsins rætur á ég lítinn lund
og leyndardóm sem enn er hreinn og skær
og heillað getur svip þinn, nær og nær,
og nafni þínu gefið hold og blóð,
laugað í dögg og dagsins morgunglóð.
Sú fegurð öll, sem fyrir sjónir bar
á förnum vegi, birtist vinum tveim,
sem ennþá muna yndislegan heim
sem einu sinni var.
Og endurfundum fagna sálir tvær,
sem frjálsar teyga angan þína, jörð
og seltuna við silfurbláan fjörð.
(Höf. ók.)
Hafðu þökk fyrir allt, kær kveðja.
Pálína, Ísleifur og fjölsk.
Kveðja til ástkærrar systur.
Hún Fríða systir mín er fallin frá.
Þó það hafi verið tæplega 15 ára
aldursmunur á okkur, þá áttum við
saman margar góðar stundir. Ég vil
kveðja hana með þessum sálmi.
Tíminn líður, loks þín bíður,
loks þín bíður á himni ró.
Bróðirinn besti, mannvinur mesti,
mannvinur mesti þar stað þér bjó.
Tíminn líður, loks þín bíður,
loks þín bíður á himni ró.
(Helgi Hálfdánarson.)
Hvíl í friði, þinn
Gísli.
Kom þú, andinn kærleikans,
tak þú sæti í sálu minni,
svala mér á blessun þinni,
brunnur lífs í brjósti manns.
Andinn kærleiks, helgi, hreini,
hjálp mér, svo ég deyi frá
sjálfum mér og synda meini.
Sæll í Guði eg lifi þá.
(Björn Halldórsson.)
Mig langar til að kveðja mágkonu
mína. Þegar ég kom í fjölskylduna þá
kynntist ég Fríðu ekki mikið þar sem
hún og Geir voru búin að stofna heim-
ili í Grindavík. Seinna fluttum við
Gísli í Grindavík og ég fékk vinnu á
Þórkötlustöðum þar sem Fríða var
verkstjóri. Kannski var ég ekki alltaf
eins og hún vildi hafa mig en við náð-
um saman fyrir því. Þegar við Gísli
fluttum til Reykjavíkur þá minnkaði
samgangurinn. En alltaf þegar við
komum til Grindavíkur þá var vel
tekið á móti okkur með kaffi, meðlæti
og vináttu. Mig langar til að senda
systkinum hennar samúðarkveðjur
en sérstaklega Pálínu systur hennar
og Ísleifi fyrir óeigingjarna um-
hyggju gagnvart Fríðu undanfarin
ár.
Hvíl í friði, þín
Njála.
Elsku Fríða.
Þá ertu farin á braut, fyrr en mað-
ur átti von á. Síðasta minning mín um
þig er úr sjötugsafmæli þínu í febrúar
síðasliðnum. Þá leist þú svo vel út og
lékst á als oddi. En ég á tvær eldri
minningar um þig sem eru mér kær-
ar. Sú fyrri er jarðaberjakakan þín.
Það voru góðar stundir þegar
mamma og pabbi tóku okkur systk-
inin á rúntinn í Grindavík. Þú bauðst
ávallt uppá kaffi og meðlæti. Jarða-
berjakakan stóð þar upp úr. Seinni
minningin er jólagjöf sem ég fékk frá
þér og Geir þegar ég var 12 ára. En
það var vasadiskó og kassetta með
Kenny Rogers. Óvenjulegt val fyrir
12 ára stúlku en hitti beint í mark. Ég
átti margar góðar stundir við að
hlusta á Kenny Rogers. Ég er þakk-
lát fyrir minningarnar sem ég á um
þig og vona að þú sért ánægð þar sem
þú ert núna með honum Geir þínum.
Kveðja,
Ragnheiður Gísladóttir.
Elsku Fríða.
Í ríki himnaföður ríkir eflaust mikil
gleði, þú komin til Geirs þíns sem þú
hefur saknað svo mikið. Kristófer
vonar að þú verðir dugleg að spila við
Arnar litla og bakir með honum
piparkökur.
Hafðu hjartans þakkir fyrir allt og
Guð geymi þig.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem.)
Minning þín lifir um ókomin ár.
Kær kveðja,
Gylfi, Kristbjörg og synir.
Mér er ljúft að minnast Fríðu
frænku með nokkrum orðum. Hún
hefur verið hluti af lífi mínu alla ævi.
Ekki er hægt að minnast Fríðu án
þess að minnast Geirs manns hennar,
svo samhent voru þau. Þar sem Fríða
var, þar var Geir. Þau unnu nær allan
sinn starfsaldur í Hraðfrystihúsi Þór-
kötlustaða. Fríða sem verkstjóri og
Geir sem vélavörður. Unga fólkið
naut þess að kynnast þeim þegar það
flykktist til vinnu í skólafríum til að
vinna í fiski, humri eða öðru sem til
féll. Oft var glatt á hjalla og skipti þá
máli að þeim hjónunum líkaði ákaf-
lega vel að vera innan um unga fólkið
þó þeim yrði sjálfum ekki barna auð-
ið.
Fríða var ekki allra en vinur vina
sinna og vildi hag þeirra sem bestan.
Ég kynntist henni bæði sem ættingja
og yfirmanni. Ég vissi að það skipti
hana máli að ég ynni mína vinnu helst
100 prósent því það var hennar siður.
Hún fylgdist ekki síður með menntun
minni og hvatti til hennar.
Fríða las alla tíð mjög mikið. Ég
minnist hennar við eldhúsborðið í
Mörk með bækur í kringum sig. Ekki
þótti henni verra að ræða efni þeirra
við aðra. Þeim hjónum líkaði vel að
ferðast um landið í góðra vina hópi.
Þar var borin virðing fyrir landinu,
mönnum og málleysingjum. Þau fóru
margar ferðir með Slysavarnafélag-
inu Þorbirni þar sem Geir var félagi.
Ekki létu þau sitt eftir liggja á kvöld-
vökum við söng og gleði. Eftir andlát
Geirs fór hún í margar húsbílaferðir
með Pöllu systur sinni og oft var
Nonni bróðir með í för á sínum bíl.
Fríða lét sér annt um velferð
systkina sinna og systkinabarna.
Hún vildi hag fjölskyldunnar sem
bestan og gladdist yfir nýjum ein-
staklingum sem bættust í hópinn.
Mér þykir sérstaklega gaman að
minnnast þess þegar haldið var upp á
sjötugsafmæli Fríðu en þá héldu
systkini og systkinabörn henni veislu.
Meðal okkar var hún kölluð höfuð
ættarinnar enda var hún elst af
systkinunum. Síðari ár átti hún við
veikindi að stríða en bjó heima og
ættingjar litu til með henni.
Ég kveð kæra frænku og þakka
fyrir góðar stundir á liðnum árum.
Blessuð sé minning hennar.
Ingunn Jónsdóttir.
JÓFRÍÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
Ástkær faðir minn,
HELGI HALLGRÍMSSON
húsgagna-
og innanhússarkitekt,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 21. júní kl. 13:00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Blindrafélagið og Krabbameinsfélagið.
Rut Helgadóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÞÓRARINN BRYNJÓLFSSON,
Háholti 12,
Keflavík,
lést föstudaginn 27. maí síðastliðinn.
Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Víðihlíðar í Grindavík fyrir góða umönnun.
Jóhanna Ragna Magnúsdóttir,
Magnea Gógó Þórarinsdóttir, Gunnar Jónsson,
Birgir Þórarinsson, Anna Rut Sverrisdóttir,
Margrét Þórarinsdóttir, Pétur Pétursson
og barnabörn.
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR E. EGGERTSSON,
Móabarði 16,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 13. júní kl. 13.00.
Ingveldur Ingvadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Ástkær systir okkar,
SIGRÍÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Ormsstöðum,
Breiðdal,
lést á Sjúkrahúsi Neskaupstaðar laugardaginn
4. júní.
Jarðarförin verður gerð frá Heydalakirkju í
Breiðdal mánudaginn 13. júní kl. 14:00.
Guðný Brynjólfsdóttir
Guðrún Brynjólfsdóttir.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónustaMorgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar