Morgunblaðið - 11.06.2005, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 53
DAGBÓK
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík
Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
16
67
2
Benidorm
Hotel Mediterraneo
Nýtt og glæsilegt hótel með hálfu fæði
Heimsferðir bjóða nú nýtt og glæsi-
legt 4 stjörnu hótel á Benidorm,
Hotel Mediterraneo. Gott hótel, sem
er vel staðsett og með einum besta
aðbúnaði á Benidorm. Herbergi eru
rúmgóð og mjög vel búin, öll með
sjónvarpi, síma, loftkælingu, minibar
og öryggishólfi. Góður veitingastaður
og bar á jarðhæð. Stór og fallegur sundlaugagarður og að auki er
innisundlaug, líkamsrækt, sauna, heitir pottar og sameiginleg tóm-
stundaaðstaða. Sannarlega glæsileg aðstaða fyrir farþega Heimsferða.
Fararstjórar: María Alfreðsdóttir
Birgitte Bengtsson
Glæsileg ferð 28. september
fyrir eldri borgara
Frá 69.190 kr. í 3 vikur
Á mann í tvíbýli með hálfu fæði, 21 nótt á
Hotel Mediterraneo, 28. september.
Innifalið í verði: Flug, gisting, skattar, skemmtidagskrá og íslensk
fararstjórn. Aukavika, kr. 19.700 á mann (aukavika er frá 21.-28.sept.).
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Góð staðsetning
Hálft fæði innifalið
Skemmtidagskrá
Kvöldvökur
Gönguferðir
Minigolf
Félagsvist
Kynnisferðir
Aukavika í boði
Fleiri gististaðir
í boði
Til leigu 300-600 fm á 2.
hæð í glæsilegu verslun-
ar- eða skrifstofuhús-
næði. Húsnæðið er full
innréttað, en er skiptan-
legt í minni einingar eftir
óskum væntanlegs leigj-
anda.
ATVINNUHÚSNÆÐI - HLÍÐASMÁRI
Upplýsingar gefur Gunnar í síma 693 7310
eða í tölvupósti á gunnar@bygg.is
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250 • Borgartúni 31 • www.fjarfest.is
Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson,
Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson.
Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl.
Fríblöð til vandræða
Í BLOKKINNI þar sem ég bý eru
gulir miðar á flestum póstkössum þar
sem ruslpóstur er afþakkaður. Nú er
hætt að setja Fréttablaðið í póstkass-
ana en í staðinn er lagður bunki af
blaðinu á gólfið, sem er ekki minna til
vandræða.
Nýtt blað „Blaðið“ er borið út af Ís-
landspósti og er það sett í póstkass-
ana, jafnvel þótt á þeim séu miðar þar
sem svona póstur er afþakkaður, og
eru þetta miðar sem hægt er að fá hjá
Íslandspósti, en þeir virðast ekki taka
mark á þeim þar.
Pósthólf í sambýlishúsum eru ekki
stór og þegar búið er að fylla þau af
svona blöðum er jafnvel ekki pláss
fyrir póst til viðkomandi. Ættu starfs-
menn Íslandspósts að taka þetta til
athugunar.
190923-4799.
Herra Ísland 1988
ÉG ER að leita að upptöku af fyrstu
keppninni um Herra Ísland sem hald-
in var á Akureyri 1988. Bryndís
Schram var kynnir í þessari keppni.
Þeir sem gætu liðsinnt mér eru beðn-
ir að hafa samband við Margréti eða
Karl í síma 462 4443 eða 462 4646.
Auglýsing
Bræðranna Ormsson
ÉG þoli ekki að horfa á eina auglýs-
ingu um þvottavélar frá Bræðrunum
Ormsson. Sú auglýsing gengur út á
að láta lítið barn setja þvott í vélina,
svo setur barnið bangsann sinn í vél-
ina og lokar og setur vélina í gang.
Ég er svo hissa á að þetta góða fyr-
irtæki skuli auglýsa svona.
Reykjavíkurstúlkan Stella.
Vantar gengisvísitölu
ÉG er áskrifandi blaðsins og hef verið
í mörg ár. Ég hef mikinn áhuga á að
fylgjast með genginu en finnst vanta
að blaðið birti gengisvísitölu krón-
unnar. Ekki ætti að vera mikið mál að
bæta því við, þetta er aðeins ein lína.
Páll.
Dísarpáfagaukur í óskilum
–og annar sem týndist
GRÁR dísarpáfagaukur týndist fyrir
tveimur vikum frá Ástúni í Kópavogi.
Hann er með blýhólk á fæti. Á sama
stað er grár dísarpáfagaukur með
gulan haus í óskilum, hann fannst í
Seljahverfi. Upplýsingar í síma
567 2275 og 892 0022.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. Rgf3 Rf6 5.
e5 Rfd7 6. c3 Rc6 7. Bd3 Be7 8. O-O g5
9. dxc5 g4 10. Rd4 Rdxe5 11. Bb5 Bd7
12. R2b3 Hg8 13. He1 Rc4 14. Bf4
Rxd4 15. Rxd4 Hc8 16. b3 Ra3 17. Bd3
Hxc5 18. Bxh7 Hg7 19. Bd3 Hxc3 20.
Be5 Bf6 21. Dd2 Bxe5 22. Hxe5 Dc7 23.
Hh5 Hg8 24. Hh7 e5 25. Rf5 e4
(Sjá mynd)
Staðan kom upp á opnu móti sem
lauk fyrir skömmu í Minneapolis í
Bandaríkjunum. Ilya Smirin (2.649)
hafði hvítt gegn Varuzhan Akobian
(2.556). 26. Dg5! og svartur gafst upp
þar sem hvítur hótar í stöðunni að
máta hann á e7 og g8 en ef drottningin
er tekin með 26...Hxg5 mátar hvítur
eftir 27. Hh8+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
75 ÁRA afmæli. Í dag, 11. júní, er75 ára Margrét Kristjáns-
dóttir, fyrrverandi verslunarkona og
húsmóðir. Hún er að heiman í dag.
60 ÁRA afmæli. Í dag, 11. júní, ersextug Margrét Jónsdóttir,
fótaaðgerðafræðingur, Lindarbraut
3, Seltjarnarnesi. Af því tilefni munu
Margrét og eiginmaður hennar, Guð-
jón Margeirsson, taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Safnaðarheimili
Neskirkju við Hagatorg, Reykjavík, á
milli kl. 17 og 19 á afmælisdaginn.
60 ÁRA afmæli. Í dag, 11. júní,verður sextug Margrét Odds-
dóttir, Flétturima 38, Reykjavík. Hún
verður að heiman í dag.
ÁRLEG Menningarhátíð BSRB í
Munaðarnesi verður haldin í dag. Á
hátíðinni verður opnuð myndlist-
arsýning Önnu Hrefnudóttur.
Skagfirska söngsveitin mun syngja
og Þorsteinn frá Hamri lesa upp.
Ávarp flytur Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB. Menningarhátíðin
hefst kl. 14.00 og er opin öllum. Að-
gangur er ókeypis og er boðið upp
á veitingar.
Sýningin á verkum Önnu Hrefnu-
dóttur verður opin á afgreiðslutíma
veitingarsalarins í þjónustu-
miðstöðinni í Munaðarnesi fram til
1. október.
Menningarhátíð í Munaðarnesi
UNNUR Ýrr Helgadóttir opnar sína
fyrstu einkasýningu á Thorvaldsen á
laugardaginn klukkan 17.00. Unnur
útskrifaðist sem grafískur hönnuður
frá Listaháskóla Íslands á dögunum
og vakti mikla athygli fyrir lokaverk-
efnið sitt þar, segir í kynningu. Unn-
ur sýnir málverk með grafísku ívafi.
Unnur Ýrr
á Thorvaldsen
Mikið af góðum 50% tilboðum
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16
Mörkinni 6, sími 588 5518