Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 56
56 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
CIRKUS CIRKÖR 14.-17. JÚNÍ
Sirkusinn sem allir tala um!
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 12/6 kl 14 - UPPSELT,
Su 12/6 kl 17 - UPPSELT,
Lau 18/6 kl 14,
Su 19/6 kl 14 - UPPSELT,
Su 26/6 kl 14,
Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14,
Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR FRÁ SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20,
Mi 15/6 kl 20,
Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20
Aðeins þessar sýningar
Stóra svið
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20, Þri 14/6 kl 20 - Styrktarsýning,
Fi 16/6 kl 20, Lau 18/6 kl 20, Su 19/6 kl 20
Síðustu sýningar
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Geirmundur Valtýsson
og hljómsveit
í kvöld
Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar 1. – 16. júní
11. júní – Safnadagur – ókeypis í söfnin
Kl. 18-21 Músík og matur Flensborgarkórsins. Í tilefni tónleika-
ferðalags Flensborgarkórsins til Spánar í júlí í sumar ætla kórfélagar
og stuðningshópur þeirra að halda tónleika og matarkvöld í Flensborg-
arskólanum. Kr. 1.000 á mann / frítt fyrir 10 ára og yngri.
Byggðasafnið, Bókasafnið og Hafnarborg bjóða alla velkomna í heim-
sókn á safnadegi Bjartra daga. Opið frá 11-17 og aðgangur er ókeypis.
Kl. 16:00 Skógarlíf - Mæting er við Selið. Fræðsluganga um skóginn
með leiðsögn kunnugra þar sem gefinn er gaumur að öllu því sem lifir
og hrærist í skóginum. Gangan tekur um 2 klukkustundir.
Kl. 17:00 Tónleikar í tilefni 40 ára afmælis Kórs Öldutúnsskóla í Víði-
staðakirkju. Kórtónlist úr ýmsum áttum, meðal annars frumflutningur
á lagi eftir Jón Ásgeirsson við frumort hátíðarljóð Sigríðar Þorgeirs-
dóttur, hvort tveggja samið sérstaklega af þessu tilefni. Stjórnandi er
Egill Friðleifsson. Einsöngvarar eru Drífa Andrésdóttir, Guðrún Árný
Karlsdóttir og Margrét Eir Hjartardóttir. Undirleikari er Antonía He-
vesí. Einnig koma fram fyrrverandi kórfélagar undir stjórn Brynhildar
Auðbjargardóttur. Aðgangseyrir kr. 1000. Miðar verða seldir við inn-
ganginn.
Kl. 18:00 Tónleikar í Gamla bókasafninu við Mjósund. Eftirtaldar
hljómsveitir troða upp: Hello Norbert, Big kahuna, Nilfisk, Bertel, Isi-
dor, Mammút og Gas station hookers. Aðgangur ókeypis.
Kl. 20:00 Þið hér hjá mér. Grínharmleikur í leikstjórn Ágústu Skúla-
dóttur, í Gúttó, Suðurgötu 7. Aðgangseyrir kr. 1000.
Kl. 20:00 Dátaball Byggðasafnsins
Á Björtum dögum slær Byggðasafnið upp dátaballi í tengslum við
hernámssýninguna „Jæja, eru þeir þá komnir. “
Bjartir dagar
35 manna strengjasveit Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar mun á
sunnudag leggja upp í tónleikaferð
til Minnesota í Bandaríkjunum.
Haldnir verða hljómsveitar- og
kammertónleikar í Minneapolis og
nágrenni í samvinnu við MacPhail-
tónlistarskólann, og komið fram á
þjóðhátíðardegi Íslendinga á veg-
um Íslendingafélagsins þar.
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir
Jón Leifs, Magnús Blöndal Jóhanns-
son, Emil Thoroddsen, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Sigvalda Kaldalóns
og Einojuhani Rautavaara.
Það er foreldrafélag strengja-
sveitarinnar sem hefur veg og
vanda að skipulagi ferðarinnar.
Stjórnandi strengjasveitarinnar
er Sigursveinn Magnússon.
Meðfylgjandi mynd er tekin á æf-
ingu sveitarinnar í vikunni en hún
kemur fram á tónleikum í Seltjarn-
arneskirkju í dag kl. 14. Þar flytur
hún efnisskrána í ferðinni. Allir eru
velkomnir.
Morgunblaðið/Eyþór
Tónlistarnemar til Minnesota
ÁLFTAGERÐISBRÆÐURNIR Sig-
fús, Pétur, Gísli og Óskar Péturs-
synir eru á faraldsfæti þessa dag-
ana og verða með tónleika í Hvoli á
Hvolsvelli í kvöld og í Selfosskirkju
á morgun. Með þeim í för er undir-
leikarinn Stefán R. Gíslason og
leika þeir og syngja fjölbreytt og sí-
gild alþýðulög, innlend sem erlend.
Bræðurnir gerðu góða för á
Grundarfjörð og Patreksfjörð um
síðustu helgi og sungu þar og
skemmtu fyrir fullu húsi. Á leið
sinni suður yfir heiðar komu þeir
fram í gærkvöldi á Indriðastöðum í
Borgarfirði, í tengslum við Borg-
firðingahátíðina.
Tónleikarnir í Hvoli hefjast kl. 21
í kvöld og í Selfosskirkju hefja
bræðurnir upp raust sína kl. 16 á
morgun.
Álftagerðisbræður á Suðurlandi
NÁTTÚRAN og þjóðsagan, Mann-
eskjan – litur – tjáning, Um form og
náttúru og Raunsæi og veruleiki eru
þemu sýningarinnar Listasafn Ís-
lands – úrval verka frá 20. öld sem
opnar í Listasafni Reykjavíkur á
Kjarvalsstöðum í dag.
Á sýningunni eru hvorki meira né
minna en 107 verk eftir 28 lista-
menn.
Sýningin, sem stendur til 25. sept-
ember, er samstarfverkefni Lista-
safns Reykjavíkur og Listasafns Ís-
lands og er haldin á Kjarvalsstöðum
þar sem sýning Dieter Roths stend-
ur nú yfir í Listasafni Íslands.
Ólafur Kvaran sýningarstjóri seg-
ir ekki aðeins hafa verið valin verk
sem eru innan ákveðins tímaramma
hvers þema heldur einnig verk sem
sýna þróun listamannsins á list-
sköpun sinni. Sameiginleg tenging
verka innan hvers kafla er list-
sögulegt viðmið, orðræðan, við-
fangsefnið, stíllinn eða hug-
myndalegt erindi.
Markmiðið með sýningunni er
ekki að sýna sögulegt yfirlit heldur
hefur hver kafli ákveðið hug-
myndalegt og fagurfræðilegt sam-
hengi. Kaflarnir eru mótaðir af ólíkri
hugmyndafræði og túlkunum en búa
jafnframt yfir sögulegum tilvís-
unum.
Verk sem tilheyra þemaflokknum
Náttúran og þjóðsagan „voru í upp-
hafi aldarinnar hluti af mikilvægri
orðræðu sem varðaði pólitískt sjálf-
stæði og menningarlega sjálfsmynd
Íslendinga,“ segir Ólafur.
Expressionismi fjórða áratug-
arins tengir saman verk viðfangs-
efnisins Manneskjan – litur – tjáning
og segir Ólafur að myndefni af hin-
um vinnandi manni og hversdagslíf-
inu hafi tekið yfir hina rómantísku
fjallasýn Náttúruhlutans.
„Á sjötta áratugnum er geómetr-
íska abstraktlistin öðru fremur stíll
þeirrar kynslóðar sem fram kemur í
íslenskri myndlist og verður hluti af
þeirri listrænu þróun sem átti sér
stað í norrænni og evrópskri mynd-
list,“ segir Ólafur er hann lýsir
þemahlutanum Um form og náttúru.
Myndir fjórða hlutans, Raunsæi
og veruleiki, sýna veruleikann og er
mikið um vísanir til umhverfisins.
Fyrstu innsetningarnar ryðja sér til
rúms um 1970 og eru verk nokkurra
listamanna sem tengdust Gallerí
SÚM til sýnis.
Á sýningunni eru verk eftir helstu
listamenn Íslands; Ásgrím Jónsson,
Gunnlaug Scheving, Jóhannes Kjar-
val, Erró, Nínu Tryggvadóttur og
Þorvald Skúlason svo einhverjir séu
nefndir.
Á morgun, sunnudag, klukkan
þrjú mun Ólafur Kvaran vera með
leiðsögn um sýninguna.
Myndlist | Listasafn Íslands – úrval verka frá 20. öld
Listamenn Íslands
á Kjarvalsstöðum
Kvöld í sjávarþorpi, 1937 (olía) eftir Jón Engilberts.
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@mbl.is
Blákoma, 1989 (lágmynd) eftir Hrein Friðfinnsson.
DANSHÖFUNDASMIÐJA Íslenska
dansflokksins sýnir D&D con fuoco
stringendo eftir Karen Maríu Jóns-
dóttur á Hlemmi í dag klukkan
14.30.
Karen María Jónsdóttir er annar
danshöfundurinn sem tekur þátt í
danshöfundasmiðju Íslenska dans-
flokksins. Verkið hefur hún þróað
ásamt dönsurum og óperusöngkonu
innan veggja Íslenska dansflokksins
og er það nú tilbúið til fyrstu sýn-
ingar. Hlemmur varð fyrir valinu
vegna góðrar staðsetningar í nánd
við mannlífið.
Í D&D con fuoco stringendo, mæt-
ast dansinn og óperuformið, rekast
á og víxlast. Vísar nafn verksins
annarsvegar í samskiptaform vin-
anna Dabba og Dóra sem skoðað er
út frá nálguninni „ef þeir væru ung-
ar konur á þrítugsaldri,“ og hins-
vegar í tónlistarformið og túlkun
tónlistar en í verkefninu er verið að
leika sér með óperutónlist sem og
popptónlist.
Flytjendur eru Karen María Jóns-
dóttir, Lovísa Gunnarsdóttir dans-
ari, Aðalheiður Halldórsdóttir dans-
ari og Sibylle Köll óperusöngkona.
Danshöfundasmiðjan sýnir á Hlemmi