Morgunblaðið - 11.06.2005, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
Sýnd kl. 8
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í
kl. 2.40, 5.20 og 10.10 B.I 10 ÁRA
kl. 2, 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.I 10 ÁRA
Skráðu þig á bíó.is
Sýnd kl. 2 m. ísl tali
Miðasala opnar kl. 13.30
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDEFRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDE
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
HEIMSFRUMSÝNING
HEIMSFRUMSÝNING
Sýnd kl. 3, 8 og 10.40 B.i 14 ára
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
kl. 8 og 10.40
kl. 2 og 5
EMPIRE
EMPIRE
EMPIRE
EMPIRE
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Bourne IdentityBourne IdentityFrá leikstjóra Bourne Identity
Frá leikstjóra Bourne Identity
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
AÐSÓKNARMESTAMYND ÁRSINS
AÐSÓKNARMESTAMYND ÁRSINS
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og10.20 B.i 14 ára
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
NÝR íslenskur grínharmleikur sem nefnist
Dauði og jarðarber verður frumsýndur í Gúttó
í Hafnarfirði í kvöld. Höfundar eru Ágústa
Skúladóttir, Björn Thorarensen, Gunnar B.
Guðmundsson og Snorri Engilbertsson en
Ágústa er jafnframt leikstjóri verksins sem er
farandsýning og er ætlunin að ferðast með
hana um landið í sumar.
Leikurinn fjallar um tvo sígaunabræður
sem búið hafa hjá ömmu sinni alla ævi. Bræð-
urnir komast að því sér til mikillar skelfingar á
afmælisdag ömmunnar að hún hefur geispað
golunni. Hæfileikar bræðranna hafa verið
bældir niður af krafti af ömmu gömlu og hún
staðið í vegi fyrir því að þeir geti látið drauma
sína rætast.
Ágústa Skúladóttir er tilnefnd til þrennra
grímuverðlauna í ár; sem leikstjóri ársins fyrir
leikstjórn verksins Klaufa og kóngsdætra, og
fyrir leiksýningu ársins sem eru Klaufar og
kóngsdætur og Landið vifra.
Gúttó hefur í gegnum tíðina þjónað m.a. sem
leikhús en langt er síðan leikrit var sett upp
þar síðast eftir því sem sýnendur best vita, að
því er fram kemur í tilkynningu.
Leiklist | Dauði og jarðarber frumsýnt
Grínharmleikur í Gúttó
Sýning hefst klukkan 20.00 og er um klukku-
tími að lengd. Miðaverð kr. 1000.
Lífið er jarðar-
ber: Sígauna-
bræður á kross-
götum.
Hinn 23. júní næstkomandi kemur út ný
geislaplata frá einum ástsælasta söngvara
þjóðarinnar, Ragnari Bjarnasyni. Platan
heitir Með hangandi hendi en Raggi Bjarna,
eins og hann er oftast kallaður, nýtur á
plötunni liðfylgis margra af bestu tónlist-
armönnum landsins. Það er Kristján
Hreinsson sem sér um textagerð á öllum
nýjum lögum plötunnar utan eins.
„Ég sem þarna sjálfur texta við eitt lag.
Menn hafa verið að gera grín að mínum
skáldskap – eða leirburði réttara sagt – en
ég tók mig samt til og samdi íslenskan
texta við lagið „Tequila“ í flugvél á leiðinni
norður. Á íslensku nefnist lagið „Kalli
kvennabósi“ og fjallar um þessa gutta sem
maður sá svo oft á böllunum í gamla daga.
Frískir strákar sem skelltu sér í sturtu og
svo beint á djammið. Og textinn fjallar ein-
mitt um það þegar einn af þessum guttum
er farinn að eldast og má ekki lengur
snerta neitt.“
Geisladiskurinn er tileinkaður Stefáni Jó-
hannssyni, vini Ragga og trommuleikara,
sem lést langt fyrir aldur fram. „Ég syng á
plötunni lag sem Rúnar Gunnarsson heitinn
samdi, „Það er svo undarlegt með unga
menn“ en við Stefán spiluðum það lag oft á
sínum tíma.“ Til gamans má geta að sonur
Stefáns er Bjössi í Mínus og hann spilar
enn þann dag í dag á trommusett föður
síns.
Mörgum mun líklega þykja það nokkuð
merkilegt að á plötunni syngur Raggi lagið
„Til eru fræ“ sem Haukur Morthens gerði
ódauðlegt á sínum tíma. „Ég var svolítið
hikandi með að hafa þetta lag á plötunni en
að lokum sló ég til. Þetta er gullfallegt lag
og það var gaman að fá að syngja það með
félögum úr Fóstbræðrum.“
Plötunni fylgir tuttugu síðna bók með
textum auk þess sem Þorgeir Ástvaldsson
skrifar um hvert lag. Einnig er þar af finna
myndir frá upptökum á plötunni og ferli
Ragga Bjarna. „Ég hvet alla sem eignast
plötuna til að skoða þessa bók vandlega. Ég
byrjaði til dæmis sem trommari og í bók-
inni er að finna mynd af mér þegar ég er
trommari hjá Hauki Morthens. Þarna verð-
ur margt forvitnilegt að sjá. Mig langar
einnig að það komi fram að ég enda plötuna
á lagi sem heitir „Megi dagur hver, fegurð
þér færa“ sem er óskaplega fagurt lag með
fallegum texta eftir Jóhönnu G. Erlingsen
og það er lag sem ég vil senda þjóðinni sem
þakklætisvott fyrir allan stuðninginn í
gegnum tíðina.“
Eins og áður sagði kemur platan út 23.
júní en útgáfutónleikar eru ekki fyrirhug-
aðir fyrr en í haust. Þangað til verður
Raggi Bjarna að syngja og skemmta með
Þorgeiri Ástvaldssyni en þeir félagar ku
vera falir í alls kyns uppákomur, brúðkaup,
afmæli og árshátíðir.
Tónlist | Ný plata frá Ragga Bjarna
Með hangandi hendi
Raggi Bjarna hefur sjaldan verið í betra
formi en á væntanlegri plötu sem nefnist
Með hangandi hendi.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Macaulay Culkin, barna-stjarnan sem sló í gegn
snemma á níunda áratug síð-
ustu aldar, hefur viðurkennt
að hafa haft í fórum sínum lyf
án leyfis frá lækni og kanna-
bisefni. Dómari í Oklahoma
dæmdi leikarann í gær til
eins árs skilorðsbundins fangelsis fyrir hverja
sök og til greiðslu 540 dala sektar.
Culkin var handtekinn í september á síðasta
ári í kjölfar þess að lögregla fann í fórum hans
lítilræði af kannabisefnum og Xanax, en það er
lyf sem tekið er gegn þunglyndi og kvíðaköst-
um og þarfnast ávísunar frá lækni.
Saksóknari í máli Culkins sagði að þetta
hefði verið einsdæmi, enda hefði leikarinn
hvorki misnotað lyfin né efnin. Culkin leitaði
sér hjálpar í kjölfarið.
Svartar nærbuxur popp-stjörnunnar Madonnu
seldust á þúsund pund eða
117 þúsund krónur, á upp-
boðsvefnum eBay á Netinu.
Buxurnar sem söngkonan
klæddist í kvikmyndinni Body of Evidence frá
árinu 1993 voru í eigu nektarstaðar í Aberdeen
í Skotlandi en eigandi staðarins vildi selja bux-
urnar eftir að staðurinn var endurhannaður.
Hann hafði boðið þær til sölu á eBay en
hætti við eftir að forsvarsmenn vefjarins sögðu
að sala á notuðum nærfötum samræmdist ekki
reglum vefjarins. En þá hafði aðdáandi söng-
konunnar í Bandaríkjunum þegar boðið í þær
og seldi seljandinn honum þær þá beint.
Fólk folk@mbl.is