Morgunblaðið - 11.06.2005, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Inside Deep Throat kl. 7 - 9 og 11 b.i. 16
A Lot Like Love kl. 5.45 - 8 og 10.15
Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 og 10.15
Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16
The Hitchhiker´s Guide to the Galaxy kl. 5.40 - 8 og 10.20
RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU
aston kutcher amanda peet
Ó.H DV
H.L MBL
Ó.H.T RÁS 2
Halldóra - Blaðið Í hraða lífsins
kemur að því að
við rekumst á
hvert annað
ROGER EBERT
ROLLING STONE
S.K. DV.
Capone XFM
Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar
Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
Myndin var tekin á 6 dögum fyrir 25.000 dali.
Ríkisstjórnin vildi ekki að þú sæir myndina.
Hún var bönnuð í 23 ríkjum.
Myndin halaði inn 600 milljónir dala á heimsvísu.
Hún er arðsamasta mynd kvikmyndasögunnar.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Heimildarmynd frá Óskarsverðlaunahafanum
Brian Grazer
HÚN er eina Arenan á landinu og
er ánægð með það. Arena Huld
Steinarsdóttir er 16 ára gamall
nemi við Menntaskólann við
Hamrahlíð. Hún hlaut nafnið eftir
samnefndri plötu Duran Duran frá
1984.
„Ég vinn í Hagkaupum í Smára-
lind og fólk spyr mig mikið út í
nafnið,“ segir Arena, sem ber
nafnspjald í vinnunni. „Sumir trúa
því ekki að ég heiti þessu nafni og
halda að þetta sé eitthvert nafn-
spjaldagrín.“
Hún segir að nafnið hafi reynst
henni vel. „Það rímar ekki við
neitt leiðinlegt. Það er sérstakt og
það ruglar enginn manni saman
við einhvern annan. Fólk man
frekar eftir manni út af nafninu,
nafnið er eftirminnilegt,“ segir
Arena, sem finnst það bara já-
kvætt.
Hefurðu hlustað eitthvað á Dur-
an Duran? „Já, líka uppá húm-
orinn því ég heiti náttúrulega eftir
plötu með þeim,“ segir hún og ját-
ar að Arena sé uppáhalds platan
sín með Duran Duran. „Án efa.“
Og uppáhalds lagið hennar er
„Hungry Like the Wolf,“ segir
hún en það lag er einmitt í lifandi
flutningi á Arena.
Ætlarðu á tónleikana með Dur-
an Duran? „Mig langar alveg
svakalega mikið en á ekki pening
fyrir því. Ég ætla að reyna að
skrapa einhverju saman ef ég næ
að safna mér. Allur peningurinn
minn fer núna í það að ég er að
fara út sem skiptinemi til Perú í
haust,“ segir hún.
Fær gefins miða á tónleikana!
Þess má geta að Arena getur
hætt að safna strax því fyrir til-
stuðlan Morgunblaðsins kemst
hún á tónleikana. Tónleikahaldari
frétti af henni og fannst upplagt
að bjóða henni og fjölskyldunni á
tónleikana. Það verða væntanlega
hamingjusamar mæðgur sem
dansa við Duran Duran í Egilshöll
30. júní. Á áreiðanlega eitthvað af
þeim þekktu lögum sem eru á
Arena eftir að hljóma á tónleik-
unum.
Átta allir sig á tengingu nafns-
ins og hljómsveitarinnar? „Ég á
það til að minnast á þetta þegar
fólk spyr mig út í nafnið og segi
að ég heiti eftir Duran Duran
plötu. Flestum vinum mínum
finnst það rosalega sniðugt,“ segir
Arena.
Hún spilar á hljóðfæri, nánar
tiltekið á bassa eins og John Tayl-
or. Til dæmis spilaði hún með
hljómsveitinni AnTaReS í Galta-
læk síðasta sumar. Arena, sem var
í tónlistarskóla í þrjú ár, er ekki í
hljómsveit núna. Hún er samt ekki
búin að pakka bassanum niður
heldur ætlar að stunda tónlistina á
ný þegar hún kemur til baka frá
Perú.
Arena hlustar mest á ýmiss
konar rokk. „Alveg frá Iron Maid-
en, Guns N’ Roses og Metallica
yfir í Korn og Slipknot og jafnvel
Júróvisjón-lög,“ segir hún og svo
að sjálfsögðu Duran Duran.
Fólk | Arena Huld Steinarsdóttir
Heitir eftir plötu Duran Duran
Morgunblaðið/Eyþór
Fólk spyr Arenu gjarnan hvaðan nafnið sé og hún upplýsir með gleði að
það komi frá plötu með Duran Duran, sem hún heldur hér á.
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Í DAG kemur út tólf tommu vínylplata með hljómsveitinni Jagúar. Platan,
sem ber heitið One of Us, kemur út á vegum Smekkleysu á Íslandi en til
stendur að gefa hana út víðar í Evrópu að mánuði liðnum.
Í tilefni útgáfunnar ætla Jagúar-menn að blása til útgáfuveislu í Gallerí
Humar eða frægð sem er á Laugavegi 59.Tónleikarnir hefjast klukkan 15.
Hljómsveitin Jagúar er þó með talsvert breyttu sniði þar sem þeir Börk-
ur Hrafn Birgisson gítarleikari, Daði Birgisson hljómborðsleikari og Sig-
fús Örn Óttarsson trommuleikari hafa sagt skilið við sveitina. Þessar
fregnir staðfesti Börkur í samtali við Morgunblaðið en vissi ekki hverjir
myndu koma í stað þeirra þremenninga.
Ekki náðist í Samúel Samúelsson áður en blaðið fór í prentun.
Útgáfuveisla Jagúars
Jagúar býður til útgáfuveislu í Galleríi Humar eða frægð í dag.
Bandaríska rokk-sveitin Velvet
Revolver segist ekki
vera að hætta en
finnskir fjölmiðlar
hafa fullyrt það í vik-
unni. Velvet Revol-
ver aflýsti um
helgina fimm tón-
leikum í Evrópulöndum í sumar, þar
á meðal á Íslandi, en Kristine Asht-
on-Magnuson, talsmaður hljómsveit-
arinnar segir að ástæðan sé sú að
upptökur standi fyrir höndum í
Bandaríkjunum á nýrri hljómplötu.
Hljómsveitin, sem er skipuð fyrr-
um meðlimum Guns N’ Roses og
Stone Temple Pilots, hóf Evrópuferð
3. júní og mun halda áfram til 2. júlí.
M.a. mun hljómsveitin koma fram á
Live 8 góðgerðartónleikunum í Lund-
únum. En hljómsveitin aflýsti tón-
leikum í Montreux og Zürich í Sviss,
Reykjavík, Björgvin í Noregi og
Turku í Finnlandi.
Til stóð að Velvet Revolver spilaði
á tónleikum í Egilshöll 7. júlí. Þeim
var aflýst sl. sunnudag og var ástæð-
an sögð heilsufarsástæður liðsmanna.
Ný rós hefurfengið nafn
Camillu Parker-
Bowles, eiginkonu
Karls Bretaprins,
og fá hjónakornin að
sjá hana á blóma-
sýningu í næstu
viku.
Rósin er fölbleik og nefnist „Her-
togaynjan af Cornwall“.
Ágóðinn af sölu hverrar slíkrar
rósar mun renna óskertur til styrkt-
arsjóðs bresku beinþynningarstofn-
unarinnar en Camilla er konunglegur
verndari hans.
Fólk folk@mbl.is