Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Konur í
stjórnum
enn of fáar
BRÉF iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra til hlutafélaga varðandi fjölg-
un kvenna í stjórnum hefur ekki skil-
að viðunandi árangri að mati
ráðherrans, Valgerðar Sverrisdótt-
ur. Áður en bréfið var sent voru
10,08% stjórnarmanna í hlutafélög-
um konur, en eftir aðalfundahrinuna
sem nú er lokið er hlutfallið 11,28%.
Hún segir fyrirtæki fara á mis við
mikinn mannauð því konur hafi
kraft, víðsýni og þekkingu sem nýst
geti fyrirtækjum vel. „Ég er ennþá
þeirrar skoðunar að lagasetning sé
ekki ákjósanleg,“ segir hún hins veg-
ar. Valgerður segir áberandi hvað
útrásarfyrirtæki standi sig betur að
þessu leyti en þau sem heima sitja.
Óviðunandi / 16
ÞAÐ VAR sannkölluð skrautsýn-
ing í Skautahöllinni í Laugardal í
gærkvöldi þegar sýnd var nýjasta
tískan í kvenfatnaði frá Karen
Millen, Oasis, Coast og fleiri
vörumerkjum. Fjöldi áhrifafólks
úr íslenskum og breskum tísku-
og viðskiptaheimi var viðstaddur
sýninguna, sem var á vegum
Mosaic Fashions, tískuversl-
anakeðju í eigu Baugs Group og
KB banka.
Almennu hlutafjárútboði Mosa-
ic Fashions lauk í gær en verið er
að skrá fyrirtækið í Kauphöll Ís-
lands. Var eftirspurn eftir bréf-
unum um 8,6 sinnum meiri en
framboð. Um 2.400 fjárfestar
óskuðu eftir að kaupa liðlega
90,6 milljónir nýrra hluta í fyr-
irtækinu. Forstjóri Mosaic Fash-
ions segist í Morgunblaðinu í dag
vera afskaplega ánægður með
árangurinn. | 16
Morgunblaðið/Sverrir
Skrautsýning í Skautahöllinni
LANDIÐ er að gliðna og austurhluti
þess að færast í norðaustur og vest-
urhlutinn að færast í norðvestur.
Gliðnunin nemur um tveimur senti-
metrum á ári og almennt fylgja
hreyfingarnar áður þekktum plötu-
skilum landsins. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í fyrstu niðurstöðum
á endurmælingu á grunnstöðvaneti
Íslands, landshnitakerfinu, sem fram
fóru í ágúst í fyrra en lokið er fyrsta
áfanga í úrvinnslu gagnanna.
Í niðurstöðu mælinganna kemur
fram að þegar litið sé nánar á hreyf-
ingarnar séu bæði Evrópuplatan og
Ameríkuplatan á hreyfingu til norð-
urs auk þess að gliðna í austur og
vestur. „Einnig koma í ljós stað-
bundnar bjaganir á netinu og eru
augljós dæmi um slíkar færslur á suð-
ur- og norðurhluta Reykjaness,“ seg-
ir þar meðal annars. Kemur og fram
að hreyfingar við Grímsvötn séu
meiri en í nálægum punktum eða um
27 cm frá árinu 1993 og að hreyfingar
í Grímsey séu frábrugðnar hreyf-
ingum í nálægum svæðum. Dæmi um
mikla tilfærslu nálægt byggð er um
20 cm, skammt frá Akureyri.
Fara varlega í túlkun
Þórarinn Sigurðsson, for-
stöðumaður mælingasviðs Landmæl-
inga Íslands, tjáði Morgunblaðinu að
hann færi sér rólega í að túlka nið-
urstöðurnar og léti það jarðvís-
indamönnum eftir. Hann segir að til
að treysta niðurstöðurnar hafi mæl-
ingarnar verið sendar til Þýskalands
og þegar þær verði fengnar munu
Landmælingarnar gefa þær formlega
út. Hann segir að burtséð frá þeirri
vitneskju sem mælingarnar eigi eftir
að færa sé verkefnið merkilegt þar
sem hnitakerfi landsins hafi nú verið
endurmælt í fyrsta sinn með þessum
hætti og hafi Íslendingar staðið einir
að verkefninu. Hann segir margar
opinberar stofnanir og sveitarfélög
hafa komið við sögu og án þeirrar
samvinnu hefði verkefnið verið ofviða
Landmælingum.
Magnús Guðmundsson, forstjóri
Landmælinga Íslands, segir að nauð-
synlegt sé talið að mæla allt netið á 10
ára fresti til að tryggja nákvæmni
þess. Segir hann niðurstöðurnar nýt-
ast við jarðfræðirannsóknir og hvers
kyns framkvæmdir. Hann segir að
fastar mælistöðvar séu nú á þremur
stöðum á landinu, Reykjavík, Höfn og
Akureyri og fást upplýsingar frá
þeim með sírita. Magnús segir æski-
legast að koma upp 9 slíkum síritandi
stöðvum til viðbótar til að nema allar
hreyfingar jarðskorpunnar, slíkt geti
nýst til rannsókna á jarðhræringum á
svæðum sem nauðsynlegt er talið að
fylgjast vel með.
Fyrstu niðurstöður mælinga Landmælinga Íslands á grunnstöðvanetinu liggja fyrir
Landið gliðnar áfram og færist í norður
Örvarnar sýna hreyfinguna frá árinu 1993 til 2004 á 115 grunnstöðva-
punktunum og hvernig landið færist í norðvestur og norðaustur.
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
ARENA Huld Steinarsdóttir er
nefnd eftir einni plötu Duran Dur-
an. Hún spilar á bassa eins og John
Taylor og hefur áhuga á tónlist.
Hún segir að nafnið hafi reynst
henni vel, fólk muni frekar eftir
henni vegna þess og „það rímar
ekki við neitt leiðinlegt“. Arena,
sem á enga nöfnu á Íslandi, verður
á meðal gesta á tónleikum Duran
Duran í Egilshöll 30. júní. | 60
Morgunblaðið/Eyþór
Arena með plötuna Arena.
Eina Arenan
Feneyjar | Sýning Gabrí-
elu Friðriksdóttur,
Versations/Tetralogía á
Feneyjatvíæringnum
var opnuð í gærdag.
Laufey Helgadóttir sýn-
ingarstjóri sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að
ef marka mætti hversu
Gabríela hefði verið
önnum kafin við viðtöl
frá því foropnanir hóf-
ust væri ljóst að sýning hennar vekti
mikla athygli.
Við opnun íslenska skálans í gær var
mikið fjölmenni. Veðurblíðan lék við gesti
sem nutu íslensks vatns, lambakjöts og
ítalsks freyðivíns undir skafheiðum himni
og merkja mátti marga mikilvæga gesti
úr myndlistarheiminum, galleríista, sýn-
ingarstjóra og safnstjóra á svæðinu, auk
fjölmargra listamanna íslenskra og er-
lendra. Menntamálaráðherra Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir og sendiherra Ís-
lands í París, Tómas Ingi Olrich, heiðruðu
einnig samkomuna með nærveru sinni.
Þorgerður Katrín lýsti sýninguna opna
og vísaði síðan í orðum sínum til þess að
Íslendingar munu væntanlega ekki sýna
oftar í skálanum sem þeir hafa haft afnot
af í áraraðir, þar sem Finnar, sem eiga
skálann, hyggjast nýta hann sjálfir.
Ítarlega er rætt við Gabríelu um sýn-
inguna í Lesbók Morgunblaðsins í dag.
Gabríela
Friðriksdóttir
Aldrei jafn | Miðopna
Galopnar dyr | Lesbók
Fjölmenni við
opnun íslenska
sýningarskálans
Fyrstu lax-
arnir í Kjósinni
„ÉG var búinn að láta mér detta í hug að
það væri lax þarna,“ sagði Ólafur Haukur
Ólafsson frá Valdastöðum eftir að hafa
landað ellefu punda hrygnu eftir snarpa
baráttu við Laxfoss í Laxá í Kjós um sjö-
leytið í gærkvöldi. Þetta var fjórði laxinn
sem opnunarhollið veiddi og tók hann
svarta Frances túbu. Fyrsta laxinn veiddi
Ásgeir Þór Árnason í fyrsta rennsli með
maðkinum klukkan sjö í gærmorgun í
Kvíslarfossi. „Þegar ég vissi að ég fengi
þetta svæði í morgun þá var ég viss um að
fá fisk,“ sagði Ásgeir við blaðamann í Kjós-
inni í gærkvöldi. „Laxinn er greinilega
mættur.“ Allt voru þetta tveggja ára laxar,
tíu til ellefu pund.
♦♦♦