Morgunblaðið - 13.06.2005, Side 1

Morgunblaðið - 13.06.2005, Side 1
Fasteignir | Útsýnisíbúðir við Perlukór  50 Búmanna- íbúðir við Grænlandsleið Íþróttir | KR-ingar lágu 2–1 í Eyj- um  Hvít-Rússar lagðir með 9 marka mun STJÓRNVÖLD eru ekki enn tilbúin að breyta fjár- mögnun Landspítala – háskólasjúkrahúss frá föst- um fjárlögum yfir í afkastatengdar greiðslur. Þau óttast óhefta framleiðslu- og kostnaðaraukningu í kjölfarið. Búið er að kostnaðargreina alla starfsemi sjúkrahússins en heilbrigðisráðherra segist ekki eiga von á því að tekið verði tillit til hennar við af- greiðslu næstu fjárlaga. Með innleiðingu svokallaðs DRG-kerfis og kostnaðargreiningu á þjónustu sjúkrahússins, sem unnin er samhliða, er hægt að mæla afköst og kostnað, hvað hvert læknisverk kostar og þar með hver deild og hvert svið. „En stjórnvöld hafa enn ekki verið tilbúin að breyta fjármögnunarkerfinu þannig að fjárframlög verði reiknuð út frá DRG-kostnaðargreiningu,“ segir Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga á LSH. Stjórnendur sjúkrahússins telja að fjármögnun hafi ekki verið breytt vegna þess að stjórnvöld telji þá hættu á að framleiðslan verði óheft og að kostn- aður rjúki upp. Anna Lilja segir þetta óþarfa áhyggjur. Vel sé hægt að stýra framleiðslunni. En með fjármögnun sem tengist beint verkefnum heil- brigðisþjónustunnar sé það hins vegar á valdi stjórnvalda að ákveða verkefnin. „Með þessu móti eru yfirvöld orðin upplýstir kaupendur – þetta yrði ekki aðeins ein föst tala sem þeir hefðu litla stjórn á hvað gert yrði við.“ Magnús Pétursson, forstjóri LSH, segir að lengi hafi verið sagt að spítalinn hefði ekki nægilega góða skilgreiningu á kostnaðinum, en nú eigi þau sjón- armið ekki við. „En íslensk stjórnvöld eru hikandi. Ég held að skýringin sé sú að þegar farið verður að greiða eftir afköstum haldi þau að það verði áhlaup á fjárveitingavaldið. En þetta er ekki nauðsynlega þannig því umfjöllun um þjónustuna breytist í þá átt að fjárveitingavaldið og spítalinn munu semja og ákveða sameiginlega hve mikla þjónustu skuli veita árlega.“ Afrakstur DRG-kostnaðargreiningar spítalans hefur verið kynntur heilbrigðisráðherra og fjár- málaráðherra. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra segir að skoða verði hvenær og með hvaða hætti kostnaðargreiningin verði nýtt við útreikn- inga á fjármögnun spítalans. „Nú liggur fyrir að skoða hvenær og með hvaða hætti DRG-greiningin verði nýtt,“ segir Jón. „Ég sé fyrir mér að ef við tök- um þetta upp þá verði fjármögnunin blönduð. En þetta er verkefni sem þarf að skoða í fullri alvöru.“ Hægt að breyta fjármögn- un strax að mati LSH  Stjórnvöld/14–18 Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is KOSTNAÐUR vegna kennslu og rannsókna á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi var milljarður á síðasta ári. Um 1.100 nemendur voru þar í klínísku námi eða starfsþjálfun. Kennslan er fjár- mögnuð af framlögum til reksturs spítalans og fellur því undir heil- brigðiskostnað. Stjórnendur LSH vilja að kostnaðurinn verði í fram- tíðinni greiddur af mennta- málaráðuneyti. Nauðsynlegt var að meta kostn- að við kennslu og rannsóknir því ekki er hægt að breyta fjár- mögnun spítalans frá föstum fjár- lögum og yfir í afkastatengdar greiðslur eins og stefnt er að, nema að taka þennan kostnað sér- staklega út. Milljarður í kennslu og rannsóknir París. AFP. AP. | Florence Aubenas, franskur blaða- maður sem hafði verið í haldi mannræningja í Írak í fimm mánuði, kom til síns heima síðdegis í gær. Aubenas lenti á flugvellinum í Villacoublay, vestur af París, við mikinn fögnuð þeirra sem þar biðu hennar. Fremst í flokki var móðir hennar ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum og forseta landsins, Jacq- ues Chirac. Aubenas var rænt ásamt íröskum túlki sínum, Hussein Han- oun al-Saadi, í Bagd- ad, þann 5. janúar síð- astliðinn. Hún segir mannræningjana hafa geymt þau í kjallara og að yfirleitt hafi þau verið bundin þannig að þau gátu sig lítið hreyft, auk þess sem bundið var fyrir aug- un á þeim. Al-Saadi kom einnig til síns heima í gær og þar var honum fagnað af konu sinni og þremur ungum börnum. Aubenas var lúin en geislaði af gleði að sögn blaðamanna sem hún ávarpaði á flugvellinum. Hún sagðist á síðustu vikum hafa fengið að sjá franskt sjónvarp og varð hún hrærð yfir fréttum þar sem verið var að telja dagana sem hún hafði verið í haldi. „Það er gleðilegt að sjá slíkt þegar maður liggur í hnipri á gólfinu,“ sagði Aubenas, „þess vegna er mér svo mikilvægt að þakka öllum hér“. Þegar blaða- menn spurðu hana hvernig henni liði við heimkom- una, hló hún og svaraði: „miklu betur“. Þrátt fyrir langa vist hjá mannræningjunum beið Aubenas ekki skaða af veru sinni í haldi þeirra. Hún ætlar sér nú að verja tíma utan sviðsljóssins í faðmi fjölskyldunnar. Móðir hennar, Jaqueline Aubenas, sagði við blaðamenn um atburði gærdagsins: „Ég hélt að ég hefði vitað allt um hamingjuna. En það var ekkert. Nú veit ég hamingjan er miklu betri en ég hélt.“ Líður „miklu betur“ Florence Aubenas í faðmi móður sinnar, Jacqueline, við heimkomuna. Franskur blaðamaður laus úr haldi mannræningja MENNINGARHÁTÍÐ Seltjarn- arness lauk í gærkvöldi með því að útilistaverkið Kvika eft- ir Ólöfu Nordal var vígt að viðstöddu fjölmenni. Verkið stendur á Kisuklöppum í fjör- unni við Norðurströnd og þar geta gestir og gangandi dýft menningarnefndar Seltjarn- arness, vígðu listaverkið og létu vel af fótabaðinu í volgu vatninu. fæti í það, ef svo má að orði komast. Jónmundur Guð- marsson bæjarstjóri og Sól- veig Pálsdóttir, formaður Morgunblaðið/Árni Torfason Útilistaverk vígt með fótabaði Washington. AFP. | Bandarískur þingmaður, sem var á sínum tíma í forsvari fyrir því að franskar kartöflur yrðu kallaðar frelsis- kartöflur (freedom fries) í mötuneytum op- inberra bygginga í Washington hefur snúist gegn stríðinu í Írak. Walter Jones, sem er þingmaður Repúblikanaflokksins, berst nú fyrir því að hersveitir Bandaríkjamanna verði kallaðar heim úr stríðinu. Árið 2003 var hans hins vegar harður stuðningsmaður stríðsins og krafðist þess að orðalagi yrði breytt á matseðlum í mötu- neytum Washington þannig að franskar kartöflur yrðu kallaðar frelsiskartöflur. Átti það að vera táknræn aðgerð til að lýsa óánægju með Frakka sem ekki studdu stríð- ið. Jones segist hafa tekið sinnaskiptum í málinu þegar hann sótti jarðarför hermanns, þriggja barna föður, sem fallið hafði í stríð- inu. „Sú reynsla hefur búið í hjarta mér síð- an,“ segir hann. „Þegar ég hugsa um þá sem hafa fallið, næstum 1.700 manns, auk þeirra 12.000 sem hafa særst, þá finn ég til.“ Að auki segir Jones búið að sanna að forsendur stríðsins, að Írakar gætu búið til gjöreyðing- arvopn, hafi ekki átt við rök að styðjast. Frelsiskartöflu-manni snýst hugur STOFNAÐ 1913 158 . TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Bersögull Bubbi Dómur Arnars Eggerts um plötu- tvennu söngvaskáldsins | Menning Fasteignir og Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.