Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ERLENT FÉLAG SKRÁÐ
Færeyska olíufélagið P/F Atlantic
Petroleum í Þórshöfn verður skráð í
Kauphöll Íslands á miðvikudaginn
kemur. Þetta er fyrsta erlenda fé-
lagið sem þar er skráð. Fljótlega
fylgir Mosaic Fashions hf. í kjölfar-
ið. Þessar skráningar eru tímamót,
því síðast var félag skráð í Kauphöll-
ina í nóvember 2003 þegar Flaga
Group tók upp skráningu.
Milljarður í fræðslu
Kostnaður vegna kennslu og
rannsókna á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi nam einum milljarði
króna á síðasta ári. Alls voru um
1.100 nemendur þar í í klínísku námi
eða starfsþjálfun. Kennslan er fjár-
mögnuð af framlögum til reksturs
spítalans og fellur undir heilbrigð-
iskostnað. Vilja stjórnendur sjúkra-
hússins að kostnaðurinn verði
greiddur af menntamálaráðuneyti.
Laus úr haldi mannræningja
Florence Aubenas, franskur
blaðamaður sem hafði verið í haldi
mannræningja í Írak í fimm mánuði,
kom til síns heima í gær. Aubenas
var rænt ásamt íröskum túlki sínum,
Hussein Hanoun al-Saadi, í Bagdad
þann 5. janúar. Al-Saadi kom einnig
til síns heima í gær.
Aftökur í Palestínu
Fjórir dæmdir morðingjar voru
teknir af lífi í Palestínu í gær og var
það í fyrsta sinn sem dauðarefsingu
var beitt þar síðan í ágúst árið 2002.
Þá var gert hlé á beitingu dauðarefs-
ingar í Palestínu en nú sjá stjórnvöld
þar ástæðu til að taka hana upp að
nýja vegna aukinnar glæpatíðni.
Mannréttindasamtök gagnrýna þá
ráðstöfun harðlega.
Samkomulagi fagnað
Rammasamkomulagi fjár-
málaráðherra G-8 ríkjanna um að
fella niður skuldir 18 af fátækustu
ríkjum heims við Alþjóðabankann,
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Þróun-
arbanka Afríku, er fagnað víða um
heim. Samkomulaginu fylgja þau
skilyrði að sparnaður sá sem af því
hlýst renni til heilsugæslu, mennta-
og þróunarmála, en ekki í vasa ráða-
manna. Í því felst einnig að 20 lönd
til viðbótar geti fengið skuldir sínar
felldar niður standist þau kröfur um
bætta stjórnarhætti og afnám spill-
ingar. Ýmir benda á að afléttingu
skulda verði að fylgja auknir styrkir
og afnám viðskiptahindrana eigi að
takast að uppræta fátækt í heim-
inum fyrir fullt og allt.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 34/36
Vesturland 12 Myndasögur 34
Viðskipti 12 Víkverji 34
Erlent 13 Staður og stund 36
Menning 19 Leikhús 37
Daglegt líf 20/24 Bíó 38/41
Forystugrein 22 Ljósvakar 42
Umræðan 25/28 Veður 43
Minningar 29/31 Staksteinar 43
* * *
GERT er ráð fyrir að sú breyting
verði á starfsemi Landmælinga Ís-
lands að samkeppnisrekstur verði
færður frá stofnuninni og falinn
einkaaðilum sem það kjósa. Það þýðir
m.a. að Landmælingarnar myndu
hætta útgáfu á landakortum en meg-
inhlutverk stofnunarinnar yrði eftir
sem áður landmælingar, öflun gagna
og öll vinna varðandi svonefndar
grunnþekjur sem snerta landupplýs-
ingar.
Þessar breytingar eru að tillögum
nefndar sem skilað hefur tillögum til
umhverfisráðherra um hlutverk hins
opinbera í landmælingum og korta-
gerð. Magnús Guðmundsson, for-
stjóri Landmælinga Íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið að þetta
þýddi að stofnunin yrði af 40 til 50
milljónum króna árlega í sértekjur.
Yrði að kanna hver áhrif þessara
breytinga yrðu á rekstur stofnunar-
innar. Magnús sagði að ætlunin væri
sú að Landmælingarnar önnuðust
gerð gagnagrunna og gætu þá út-
gáfufyrirtæki t.d. gefið út margs kon-
ar kort og ferðaþjónustufyrirtæki
fengið gagnagrunna til að gefa út leið-
söguefni sem byggðust á slíkum
grunnum. Hann segir að með nýju
skipuriti sem tók gildi 1. maí sé þessi
breyting að nokkru undirbúin. Nú sé
starfseminni skipt upp í tvö svið í stað
fjögurra áður, en þau eru mælinga-
svið og landupplýsingasvið.
Verkaskipting verður skýrari
Í nýjasta fréttabréfi Landmælinga
Íslands, Kvarðanum, greinir Sigríður
Anna Þórðardóttir umhverfisráð-
herra frá þeirri niðurstöðu nefndar-
innar að æskilegt sé að opinberir að-
ilar tryggi tilvist og aðgengi að
ákveðnum grunngögnum sem eru
nauðsynleg almannahagsmunum og
tryggi samræmi og lágmarks gæði
landupplýsinga. Landmælingarnar
muni áfram sinna því en draga sig út
úr samkeppnisrekstri til að verka-
skipting stofnunarinnar og einkafyr-
irtækja verði skýrari auk þess sem
hætta á árekstrum minnki.
Í Kvarðanum kemur fram að um-
hverfisráðherra gerir ráð fyrir að
leggja fram á næstunni frumvarp um
landmælingar sem byggist á framan-
greindum hugmyndum sem ráðherra
telur jákvæðar fyrir stofnunina,
einkafyrirtæki á landupplýsinga-
markaði og notendur landupplýsinga.
Samkeppnisrekstur færð-
ur frá Landmælingum
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
MINNINGARREITUR, til minningar um þau fjórtán
sem fórust í snjóflóðinu í Súðavík aðfaranótt 16. janúar
1995, var vígður síðdegis á laugardag. Minningarreit-
urinn stendur við Túngötu og eru þar letruð nöfn fórn-
arlamba snjóflóðsins.
Hugmyndina að minningarreitnum, eða minningar-
lundinum, áttu hjónin Berglind Kristjánsdóttir og Haf-
steinn Númason, að sögn Ómars Más Jónssonar sveit-
arstjóra Súðavíkurhrepps. Berglind og Hafsteinn voru
búsett í Súðavík og misstu þrjú börn í hamförunum þessa
örlaganótt.
„Þetta var hugmynd sem þau létu teikna fyrir nokkr-
um árum. Undirbúningur að gerð minningarreitsins var
hafinn árið 2003 og Pétur Jónsson hjá Landark var feng-
inn til að útfæra nánar hugmynd þeirra Hafsteins og
Berglindar,“ sagði Ómar.
Kammerkórinn á Ísafirði söng við vígsluathöfnina,
Ómar Már Jónsson sveitarstjóri flutti ávarp og séra
Magnús Erlingsson sóknarprestur vígði minningarreit-
inn. Þá lögðu börn, aðstandendur og fólk sem bjargaðist
úr flóðinu blóm og krans að minnismerkinu.
Að athöfn lokinni var öllum viðstöddum, nálægt 150
manns, boðið að þiggja veitingar í grunnskóla Súðavíkur
í boði Súðavíkurhrepps.
Minningarreitur um
fórnarlömb snjóflóðsins
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Börn, aðstandendur og fólk sem bjargaðist úr snjóflóð-
inu lögðu blóm að minnismerkinu í Súðavík.
FLUG Boeing 767 leiguvélar Ice-
landair til San Francisco á vest-
urströnd Bandaríkjanna tafðist um
rúman sólarhring vegna bilunar í
hreyfli vélarinnar. Vart varð við bil-
unina áður en flugvélin hélt af stað
til Bandaríkjanna en þangað átti
hún að fara síðdegis á laugardaginn.
260 farþegar áttu bókað flug með
vélinni. Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi Icelandair, segir að
erfitt hafi reynst að fá varahluti í
vélina, þeir hafi ekki verið til hér á
landi. Því þurfti að fá þá senda frá
London og Kaupmannahöfn og
komu þeir ekki hingað til lands fyrr
en í gærkvöldi. Guðjón gerði ráð fyr-
ir að vélin færi af stað til Bandaríkj-
anna um hálftvö í nótt.
„Þessi vél er notuð áfram í áætl-
anakerfi okkar þannig að þetta mun
hafa einhver áhrif á flugið á morgun
[í dag],“ segir Guðjón og hvetur fólk
til þess að fylgjast með brottfarar-
og komutímum flugvéla Icelandair
því þetta gæti haft áhrif á önnur
flug.
Tafir á flugi til
San Francisco
GABRÍELA Friðriksdóttir, fulltrúi Íslands
á Feneyjatvíæringnum, ásamt Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra og Laufeyju Helgadóttur sýning-
arstjóra, fagnar að loknum gjörningi í
veislu í tilefni af íslensku sýningunni í Fen-
eyjum á laugardagskvöldið. Með þeim á
sviðinu eru allir þeir sem unnu með lista-
manninum að gerð og uppsetningu verks-
ins í íslenska skálanum. Þeirra á meðal
Björk Guðmundsdóttir sem stóð á sviðinu
lengi kvölds og sá til þess að fjölbreytt tón-
list ómaði meðal gestanna. Veislan sem var
í boði menntamálaráðherra var ein-
staklega glæsileg og með eindæmum vel
heppnuð kynning á sýningu Gabríelu og
um leið íslenskri samtímalist.
Fagnað í
Feneyjum
Morgunblaðið/Fríða Björk
BÆJARSTJÓRAR Akureyr-
arbæjar, Húsavíkurkaupstaðar og
sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa
verið boðaðir til fundar við Val-
gerði Sverrisdóttur iðnaðarráð-
herra í dag þar sem ræða á áform
um álver á Norðurlandi.
Sveitarfélögin hafa verið að
fjalla um drög að samkomulagi við
Alcoa um að láta fara fram athug-
anir á mögulegum stöðum undir ál-
ver, þ.e. í austanverðum Skagafirði,
við Dysnes í Eyjafirði og Húsavík.
Undirbúningur í iðnaðarráðuneyti
að undanförnu hefur m.a. miðað að
því að stilla saman strengi Norð-
lendinga um staðarvalið og mat
kosta með sambærilegum hætti.
Bæjarstjórar
ræða álversmál
TÓLF síldarskip voru stödd í gær um 105 sjó-
mílur austur af Dalatanga. Þar voru þau að
veiða norsk-íslensku síldina innan íslensku
lögsögunnar. ,,Þetta er sama síldin og við vor-
um í fyrir helgi, stór og falleg og full af átu.
En það er mikil ferð á henni suður og suð-
austur þannig að erfitt er að eiga við hana,“
sagði Sigurbergur Pálsson, skipstjóri á Beiti
NK-123 frá Neskaupstað. Þeir á Beiti fengu
um 120 tonn í fyrsta halinu gærmorgun eftir
átta tíma tog. Svo var tekið annað hal og í
gærkvöldi var heildaraflinn orðinn um 250
tonn af fallegri síld.Morgunblaðið/ Alfons
Erfitt að eiga
við síldina