Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 vindhöggs, 8 tek snöggt í, 9 borguðu, 10 spils, 11 láta af hendi, 13 skilja eftir, 15 reifur, 18 ugla, 21 kvendýr, 22 minn- ast á, 23 hæsi, 24 hjálpar. Lóðrétt | 2 fimur, 3 álíta, 4 krók, 5 málmi, 6 dúsk, 7 rola, 12 spott, 14 bók- stafur, 15 vandræði, 16 fékk í arf, 17 priks, 18 askja, 19 sárri, 20 straum- kastið. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 búlki, 4 sekta, 7 tinna, 8 listi, 9 nál, 11 róms, 13 undu, 14 æskan, 15 töng, 17 dund, 20 ann, 22 felds, 23 end- um, 24 norpa, 25 tomma. Lóðrétt | 1 bætur, 2 linum, 3 iðan, 4 soll, 5 kösin, 6 atinu, 10 álkan, 12 sæg, 13 und, 15 tófan, 16 nælur, 18 undum, 19 dimma, 20 assa, 21 nekt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki drepa niður stemninguna í dag. Þú ert sannfærður um að þú hafir rétt fyrir þér, og lætur alla heyra það. Það er ekkert sniðugt. Kældu þig eilítið. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er nánast heltekið af þeirri hugmynd að kaupa tiltekinn hlut í dag og þarf að láta talsvert fé af hendi rakna fyrir vikið. Vonandi veistu hvað þú ert að gera. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Skoðanaágreiningur kemur hugs- anlega upp á milli þín og einhvers ná- komins í dag. Ekki hella olíu á eldinn. Sættu þig bara við það sem gerðist. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn er uppfullur af orku í vinnunni í dag. Hann kemur auga á það sem má betur fara. Ekki samt haga þér eins og fíll í postulínsbúð. Forðastu ágreining. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Slitnað gæti upp úr rómantísku sam- bandi ef ljónið gætir sín ekki. Það vill komast til botns í ótilgreindu máli, nálgast sannleikann og byrja upp á nýtt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Tækjabúnaður og vélar gætu bilað í dag. Meyjan vill gera við og hrinda af stað víðtækum breytingum til hins betra. Ekki samt neyða neinu upp á aðra. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Rifrildi um stjórnmál, trúmál og heimspekileg viðhorf koma voginni bara úr jafnvægi. Ekki leggja út í eitt- hvert þras, það er einfaldlega ekki þess virði. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hlutirnir eru annaðhvort svartir eða hvítir í dag og allir sitja fast við sinn keip. Ekki rífast um sameiginlegar eignir á meðan. Bíddu með það þar til síðar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Ákefð í samskiptum við einhvern gæti svipt hulunni af leyndarmálum bog- mannsins. Kannski koma einhverjar hliðar hans eða annarra í ljós sem hingað til hefur verið horft fram hjá. Sýndu miskunn. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin kemur auga á betri leiðir til þess að framkvæma ótilgreint verk í vinnunni. Hún sér hvað þarfnast lag- færingar. Gættu þess að stíga ekki á tærnar á neinum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn á ekki að knýja fram vilja sinn með valdi núna, það gæti leitt til sambandsslita við einhvern. Hann vill láta óánægju sína í ljós en verður að fara fínt í hlutina. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Notaðu daginn til þess að gera við tæki og sinna viðgerðum á heimilinu í dag. Ekki vera of ráðríkur í sam- skiptum við fjölskyldumeðlimi. Þeir munu ekki bregðast vel við. Stjörnuspá Frances Drake Tvíburar Afmælisbarn dagsins: Þú þarfnast frelsis og ert bæði athafna- söm og ævintýragjörn manneskja. Þú ert að sama skapi hugrökk og metn- aðargjörn. Skoðanir þínar eru sterkar og fátt sem gerist í kringum þig fer fram hjá þér. Þú ert beinskeytt og skefur ekki utan af hlutunum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Myndlist Café Karólína | Hugleikur Dagsson – „I see a dark sail“ til 24. júní. Energia | Sigurður Pétur Högnason. Feng Shui Húsið | Diddi Allah sýnir olíu- og akrýlverk. Opið kl. 10–18 virka daga, kl. 12– 18 um helgar. Gallerí 100° | Dieter Roth til 21. ágúst. Gallerí Sævars Karls | Kristín Blöndal sýn- ir málverk. Gamla Kaupfélagshúsið | KFL group sýnir. Opið alla daga 14–18. Aðgangur ókeypis. Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn- ara II er opin virka daga frá kl. 11–17 og um helgar frá kl. 13–17. Kaffikönnur, bangsar, gosdrykkjamiðar, dúkkulísur, munkar, lista- verk úr brotajárni og herðatrjám, fyr- irlestrar, bíó o.fl. Sjá www.gerduberg.is. Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til 1. ágúst. Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Benediktsson Fiskisagan flýgur ljós- myndasýning til 31. ágúst. Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce- vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Guðbjörg Lind Jónsdóttir sýnir myndverk í forkirkju og kór Hallgrímskirkju. Sýningin stendur til 14. ágúst. Hallgrímskirkja | Þórólfur Antonsson og Hrönn Vilhelmsóttir sýna ljósmyndir í Hall- grímskirkjuturni. Hönnunarsafn Íslands | Circus Design frá Bergen. Til 4. sept. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auð- ur Vésteinsdóttir. Hrafnista Hafnarfirði | Rúna (Sigrún Guð- jónsdóttir) sýnir í Menningarsalnum á fyrstu hæð. Kaffi Sel | Ástin og lífið. Gréta Gísladóttir sýnir á Kaffi Seli við golfvöllinn á Flúðum. Sýningin stendur frá 12. júní til 3. júlí. Kaupfélag listamanna | KFL – group er með hressandi myndlist í Gamla Kaup- félaginu í Hafnarfirði að Strandgötu 28, 2. hæð. Myndlist 27 listamanna leikur um alla hæðina, í herbergjum, í sal, á klósettum og dregur sig einnig út úr húsinu. Sýningin stendur til 23. júní og er opið alla daga frá 14–18. Aðgangur er ókeypis. Leonard | Mæja sýnir út júnímánuð. Sjá nánar á www.maeja.is. Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst. Listasafn Reykjanesbæjar | 365 skúlptúr- ar eftir Martin Smida. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur Jónsson, Urs Fischert il 21. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sumarsýning Listasafns Íslands. Norska húsið í Stykkishólmi | Ástþór Jó- hannsson. Saltfisksetur Íslands | Kristinn Benedikts- son ljósmyndari með ljósmyndasýningu. Smekkleysa Plötubúð – Humar eða Frægð | Ólöf Nordal og Kelly Parr. Sýningin heitir Coming Soon er fyrsta úrvinnsla í samvinnu þeirra. Sýningin stendur til 15. júní. Suðsuðvestur | Sólveig Aðalsteinsdóttir. Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi Pétursson sjá nánar www.or.is. Við Fjöruborðið | Inga Hlöðvers. 50 vatns- lita- og olíumálverk í 3 sölum, ný og eldri verk. Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á þili í Boga- sal. Sýningin er afrakstur rannsókna Þóru Kristjánsdóttur á listgripum Þjóðminja- safnsins en munirnir eru frá 16., 17. og 18. öld. Sýningin er liður í Listahátíð í Reykja- vík 2005. Söfn Bókasafn Kópavogs | Sýning á ljós- myndum úr fórum Kópavogsbúa af börn- um í bænum í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar í samstarfi Bókasafns og Héraðsskjalasafns Kópavogs. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóð- leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning og skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu. Jagúarinn í hlaðinu. Opið alla daga í sumar, frá kl. 9–17. Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð- húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg- undir og furðufiska. Þjóðmenningarhúsið | Fyrirheitna landið er heiti sýningar sem segir frá ferðum fyrstu Vestur-Íslendinganna; mormónanna sem settust að í Utah. Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð- menningarhúsinu eru opnar alla daga frá kl. 11 til 17. Helstu sýningar eru; Handritin, Fyrirheitna landið og Þjóðminjasafnið – svona var það. Á veitingastofunni Matur og menning er gott að slaka á og njóta veit- inganna og útsýnisins yfir Arnarhólinn og höfnina. Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband 2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk eftir jafnmarga bókbindara frá Norð- urlöndunum. Sýningin fer um öll Norð- urlöndin og verður í Þjóðmenningarhúsinu til 22. ágúst. Opið frá kl. 11–17. Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi, Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í sumar frá kl. 10–17. Fyrirlestrar Karuna Búddamiðstöð | Enska nunnan Kelsang Nyingpo fjallar um eðli hugans. Ný kennsla og hugleiðsla í hvert skipti, kennt á ensku. Háskóli Íslands, Lögberg, stofa 204, kl. 20–21.15. www.karuna.is. Raunvísindadeild Háskóla Íslands | Mánu- daginn 13. júní kl. 13 í Tæknigarði, Dunhaga 5, mun Egill Skúlason verja ritgerðina: „Kennilegar rannsóknir á rafefnafræðileg- um ferlum Myndun ammoníaks og vetnis“. Í þessari ritgerð er sá möguleiki kannaður hvort hægt sé að nota rafefnafræði til að mynda ammoníak við herbergishita og -þrýsting. Siðfræðistofnun | Mánudaginn 13. júní kl. 12.00 heldur Holmes Rolston, prófessor í náttúruheimspeki, fyrirlestur á vegum Sið- fræðistofnunar sem hann nefnir „Challen- ges in Environmental Ethics.“ Fyrirlest- urinn verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn. Staður og stund http://www.mbl.is/sos Blaðið The Reykjavík Grapevine ertveggja ára í dag, en fyrsta tölublaðGrapevine kom út föstudaginn 13.júní 2003. Það byrjaði sem hug- arfóstur þriggja manna, en sinnir nú stöðugri og umfangsmikilli útgáfustarfsemi, segir Hilm- ar Steinn Grétarsson, einn stofnenda Grape- vine og útgefandi. Blaðið kemur nú út 16 sinn- um á ári, það er í hverjum mánuði yfir vetrartímann og annan hvern föstudag yfir sumartímann. Ellefu manns eru í föstu starfi hjá Grapevine og þar vinnur einnig fjöldi laus- astarfsmanna. Hugmyndin að Grapevine varð til er tveir stofnendanna, Jón Trausti Sigurðarson og Hilmar Steinn Grétarsson, sátu saman á dimm- um bar í Prag haustið 2002. Snemma árs 2003 hófst undirbúningur að fyrstu útgáfunni og með hjálp Odds Óskars Kjartanssonar, þriðja stofnanda The Reykjavík Grapevine, var hafist handa við að búa til blað á ensku fyrir ferða- menn og útlendinga búsetta á Íslandi. Fyrsta blaðinu var ritstýrt af Jóni Trausta Sigurð- arsyni og Vali Gunnarssyni. Sumarið 2003 komu út sex tölublöð, en þá var ákveðið að taka vetrarfrí þar sem hugmyndin hafði einungis verið sú að gefa út sumarblað. Grapevine er einkum ætlað útlendingum búsettum á Íslandi og ferðamönnum og segir Hilmar að góðar undirtektir íslenskra lesenda hafi komið útgef- endum skemmtilega á óvart. „Samkvæmt könn- un sem gerð var í fyrrasumar er lestur meðal Íslendinga, sem búsettir eru í Reykjavík og á suðvesturhorninu, 41% yfir sumarið. Ástæðan er líklega sú að Íslendingar eru forvitnir um land og þjóð,“ segir hann. Fyrsta blað síðasta sumars kom út 28. maí og var því ritstýrt af Vali Gunnarssyni. Um haustið var síðan ákveðið að halda áfram út- gáfu yfir veturinn, í ljósi sæmilegrar velgengni, segir hann ennfremur. „Í mars 2005 hætti Val- ur Gunnarsson sem ritstjóri og var Bart Cam- eron ráðinn í hans stað. Bart hefur nú ritstýrt fjórum tölublöðum og hefur blaðinu aldrei farn- ast betur en undir hans ritstjórn,“ segir Hilmar Steinn. Í byrjun júní var svo opnuð upplýsinga- miðstöð og verslun á Laugavegi 11 í tengslum við Grapevine. „Grapevine birtir lista yfir það sem er á döfinni reglulega, en með þessu getur fólk nálgast upplýsingar um það sem er á seyði í tónlistar- og menningarlífi í borginni á hverj- um degi. Það getur komið við og fengið upplýs- ingar um það hvað hægt er að gera í kvöld, ef út í það er farið,“ segir hann. Grapevine sinnir að auki tónleikahaldi í sum- ar í samstarfi við Smekkleysu og verða haldnir 47 tónleikar á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum á Bar 11. Fjölmiðlar | The Reykjavík Grapevine hefur fest sig í sessi og fagnar tveggja ára afmæli Forvitnir um land og þjóð  Hilmar Steinn Grét- arsson er einn þriggja stofnenda blaðsins The Reykjavík Grapevine, sem jafnframt tengist upplýsingamiðstöð og tónleikahaldi í seinni tíð. Hilmar fæddist árið 1982 og er frá Hvann- eyri í Borgarfirði. Hilm- ar var nemandi við Menntaskólann á Laug- arvatni og bjó um tíma í Tékklandi. Um þessar mundir er hann í BS-námi í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík og lýkur því á næsta ári. Hilmar Steinn sinnir starfi sínu sem útgef- andi Grapevine með námi. 1. e4 c5 2. c3 e6 3. d4 d5 4. exd5 exd5 5. Rf3 Rc6 6. Be3 cxd4 7. Rxd4 Rf6 8. h3 Bd6 9. Bd3 Be6 10. Rd2 a6 11. R2f3 Dd7 12. Dc2 Hc8 13. Rxc6 Dxc6 14. O-O Dd7 15. Hfe1 O-O 16. Bd4 Re4 17. Bxe4 dxe4 18. Dxe4 Hfe8 19. Dh4 h6 20. Had1 Dc7 Staðan kom upp á meistaramóti Skákskóla Íslands sem lauk fyrir skömmu. Sigurvegari mótsins, Dagur Arngrímsson (2350), hafði hvítt gegn Hjörvari Steini Grétarssyni (1680). 21. Bxg7! Útilokar að svartur fái við- unandi mótspil fyrir peðstapið í fram- haldinu þar sem biskups hans nýtur ekki lengur við. 21...Kxg7 22. Dd4+ Kh7 23. Dxd6 Dxd6 24. Hxd6 Bxa2 25. Hed1 Bb3 26. H1d2 Be6 27. Rd4 Bc4 28. Hf6 Hcd8 29. Hc2 Hd7 30. Hc1 Hde7 31. Hb6 Bd5 32. Kh2 He5 33. f3 Hg8 34. c4 Hc8 35. b3 He7 36. Hxh6+ eftir langt þóf vinnur hvítur annað peð og er þá skammt að bíða endalokanna. 36...Kg8 37. Hd1 Bc6 38. Rxc6 Hxc6 39. Hxc6 bxc6 40. Ha1 Ha7 41. Ha5 Kf8 42. b4 Ke7 43. b5 cxb5 44. cxb5 Kd7 45. bxa6 Kc6 46. h4 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.