Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 24
Safnkassinn nær tilbúinn. Annað hólfið verður notað þetta árið og garðdúkur hefur verið settur á þrjá vegu svo að það sullist ekki milli rimlana. Þú hefur almennar hugmyndir um hvað beri að gera fyrir umhverfið en fyrir utan að koma úrgangi í endur- vinnslu veistu ekki hvað fleira er hægt að gera eða hvernig. Þú þarft hvatningu til að koma þekkingu þinni í framkvæmd. Þú gerir margt á vistvænan hátt en þarft stuðning til að halda þér við efnið. Þú hefur vistvænan lífsstíl en vilt þróa hann áfram. Vilhjálmur Hjálmarsson setur upp safnkassa og í hann er safnað lífrænum úrgangi. Kassinn fékk nafnið Ingibjörg, en Vilhjálmur og eiginkona hans, Borghildur, eru virk í visthópnum Kál og Kenning. Ljósmynd/Borghildur Óskarsdóttir Ef eitt eða fleiri eftirfarandi atriði eiga við þig væri tilvalið að taka þátt í vistverndunarhópi Tekið úr handbók GAP á Íslandi „Vistvernd í verki“ 24 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN Technology so advanced, it´s TURN-FREE TILBOÐ Amerískar lúxus heilsudýnur TURN-FREE Queen 153x203 cm Verð frá 72.000.- Skipholt 35 Sími 588 1955 www.rekkjan.is                   !"#$%&'()* +++,-.$-/-,% EITT sumarkvöld, þegar rigningin er loksins komin til að væta gróð- urinn, sitja sjö konur saman í fal- legu, gömlu húsi á Ránargötu og velta fyrir sér hvernig þær geti stuðlað að umhverfisvænni lífs- háttum landans. Það er komið að sjöunda fundi þessa vistvernd- unarhóps, sem gengur undir nafninu Kál og kenning og hittist vikulega í Reykjavík. Honum er stýrt af Bryn- dísi Þórisdóttur, verk- efnastjóra verkefnisins „Vistvernd í verki“ hjá Landvernd. Konurnar hafa hist reglulega, og einnig mættu nokkrir eiginmenn þeirra á fyrsta fundinn en þeir hafa haldið sig heima í seinni skiptin. Þeir bíða þó spenntir eftir að heim sé komið með dýrmætar upp- lýsingar um vistvænni lífshætti. Dýrmætar því vistvænt heimilishald er ekki bara betra fyrir umhverfið heldur einnig mjög hagkvæmt og sparar fjölskyldum talsverðar fjár- upphæðir. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Landverndar, www.land- vernd.is er hægt að minnka útgjöld heimilisins um allt að 46 þúsund krónur á ári með einföldum aðgerð- um. Þemu verkefnisins eru margvísleg frá sorpi til vatns og orku, en einnig er fjallað um samgöngur og innkaup. Hver fund- ur fjallar um ákveðið þema, er stjórnað af fundarstjóra og þátttakendur setja sér sín eigin markmið. Bryndís tek- ur fram að það er enginn þrýstingur á fólk á að gera eitthvað sem það vill ekki gera. „Enginn getur gert allt en allir geta gert eitthvað,“ segir hún og virðast það hafa verið ein- kennisorð átaksins. Í þessum hópi hefur fólk uppgötv-  VISTVÆNT | Vistverndarhópar í 10 sveitarfélögum Vistvernd í verki er liður í al- þjóðlegu verkefni sem er skammstafað GAP (Global act- ion for the earth). 19 lönd taka þátt í verkefn- inu. Um 600 íslensk heimili hafa verið þátttakendur í um 11 sveitarfélögum. Hvítársíða er það sveitarfé- lag sem hefur staðið sig best á Íslandi, með um 50% þátttöku íbúa.  Þú getur sparað heimilinu um 46 þúsund krónur á ári með vistvænum lífsstíl. Hvað er Vistvernd í verki? Landvernd stendur fyrir samsetn- ingu samskonar vistvernd- unarhópa um land allt. Ekki eru hóparnir þó einskorðaðir við kven- fólk, töluna sjö eða fundir endilega haldnir á rigningardögum. Hægt er að senda tölvupóst á vist- vernd@landvernd.is og fá nánari upplýsingar. að hreyfilhit- ara, smíðað safnkassa, lag- að vatnsleka og eru allir sammála um að fyrsta skrefið sé að vera meðvit- aður um eigið vistkerfi. Þá fylgir hitt í kjölfarið. Einnig finnst þátttak- endum þeir hafa breyst töluvert sem neytendur, þeir þurfa ekki lengur á óþarfa hlutum að halda. Nauðsynlegt að virkja aðra Ekki síður er það umræðan um fé- lagsskapinn sem er mikilvæg og smitar út frá sér. Fundirnir hafa verið svo skemmtilegir að vinnu- félagar, vinir og nágrannar fylgjast spenntir með útkomu hvers fundar og vilja vera með. Konurnar hér læra mikið hver af annarri og eru sammála um það að fundirnir séu mun skemmtilegri nálgun en að kaupa bókina með námsefninu úti í búð og reyna að byrja að bjarga heiminum sjálfur heima í stofu. Það virðist vera undantekningalítið að fólk sem er komið af stað í verkefn- inu klári það, að mati Bryndísar. Það virðist vera auðveldara að breyta straumnum en maður heldur. Sparar fjölskyldum talsverðar fjárhæðir Aðeins dauðir fiskar synda með straumnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.