Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Buxnadress,
blússur og pils
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið 10:00 – 18:00
ÚTSALA - ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
40—60% afsláttur
Ótrúlega lágt verð
Hettupeysa 6.500 3.900
Jakkapeysa 6.100 3.700
Peysusett 8.600 4.900
Peysa m/v-hálsmáli 6.900 3.900
Ermalaus toppur 3.800 2.300
Siffonbolur m/perlum 6.600 3.300
Blúndutoppur 2.600 1.600
Vafinn toppur 2.500 1.500
Röndóttur bolur 3.300 2.000
Stutterma skyrta 3.300 2.000
Síð skyrta 6.200 3.800
Teinóttur jakki 6.200 2.900
Kjóll m/blúndu 7.100 3.900
Pils 3.500 1.900
Dömubuxur 5.200 2.900
Gallabuxur 4.800 2.900
Kvartbuxur 5.700 2.900
Og margt, margt fleira
Stuttkápur
Sportjakkar
Leðurjakkar
Rúskinnsjakkar
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið virka daga frá kl. 10-18
Opið laugardaga frá kl. 10-16
Mikið úrval
af baðkörum,
bæði með nuddi og án
Fosshálsi 1 • Sími 525 0800
„FRAMKVÆMDAVALDIÐ hefur
að undanförnu sótt í sig veðrið á
kostnað þingsins,“ sagði Sigurður
Líndal lagapró-
fessor á fundi
sem Þjóðarhreyf-
ingin stóð fyrir á
sal Menntaskól-
ans í Reykjavík.
Yfirskrift
fundarins var
„Hvernig tryggj-
um við þrískipt-
ingu ríkisvalds-
ins“ og var hann
haldinn í tilefni af endurskoðun
stjórnarskrárinnar sem nú stendur
yfir.
Í framsögu sinni sagði Sigurður
að í núverandi stjórnskipan væru
skilin milli framkvæmda- og lög-
gjafarvalds ekki nægilega skörp og
að þetta fyrirkomulag kæmi niður á
því aðhaldshlutverki sem þrískipt-
ingin ætti að tryggja. Hann sagði
einnig að í raun hefði aldrei tekist
að afnema deildaskiptingu þingsins
og að ríkisstjórnin gegndi nú því
hlutverki sem efri deildin gerði
áður.
Forseti haldi málskotsrétti
Á fundinum var einnig kynnt
yfirlýsing sem Þjóðarhreyfingin
sendi Stjórnarskrárnefnd sem nú
situr að störfum. Í yfirlýsingunni er
lögð áhersla á tvo þætti. Annars
vegar að forsetinn haldi málskots-
réttinum og hins vegar að íslenskur
her verði aldrei settur á stofn og að
Ísland fari ekki með stríð á hendur
neinu öðru ríki eða þjóð.
Sigurður Líndal
Sigurður Líndal á fundi
Þjóðarhreyfingarinnar
Ríkisstjórnin
í hlutverki
efri deildar SÓLSTÖÐUGANGA verður íÖskjuhlíð þriðjudagskvöldið 21. júní
næstkomandi í tilefni þess að þá eru
sumarsólstöður. Þann sólarhringinn
verður lengsti dagur ársins og stysta
nóttin og um miðjan daginn verður
sól hæst á lofti árið 2005. Síðan tek-
ur dag að stytta á ný og hádegissól
að lækka smám saman.
Sumarsólstöður og vetrarsól-
stöður voru um þúsundir ára tíma-
mót í samfélagi manna um víða ver-
öld og hafa löngum verið tilefni
hátíða. Smám saman urðu menn síð-
an afhuga sólstöðuhátíðum er þær
breyttust í annan fagnað á sama
tíma, svo sem jól og Jónsmessu. Ár-
leg sólstöðuhátíð seinni tíma hér á
landi hófst með sólstöðugöngu frá
Þingvöllum til Reykjavíkur 21. júní
1985. Síðan hafa verið gengnar ár
hvert ýmsar leiðir í nágrenni höf-
uðstaðarins á sumarsólstöðum og
einnig hefur vetrarsólstöðum verið
fagnað. Vígorð sólstöðugöngu,
„meðmælaganga með lífinu og
menningunni“, hefur fengið hljóm-
grunn, en æ fleiri á Íslandi skipu-
leggja nú sólstöðuhátíðir og göngur.
Mælt hefur verið með því að fólk
víðs vegar um land fagnaði sólstöð-
um með jákvæðum hætti hver á sína
vísu.
Gangan í Öskjuhlíð hefst klukkan
átta norðan undir hitaveitugeym-
unum en lagt verður af stað frá
Baugasteini, þar skammt frá á gras-
flötinni, og gengið verður rólega
stóran hring um Öskjuhlíð. Allir eru
velkomnir.
Sólstöðuganga
í Öskjuhlíð
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið