Morgunblaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 203. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Björn Thors
í Bayreuth
Leikur skugga Parsifals Wagners
í leikstjórn Schlingensief | 37
Bílar | Líflegur Passat Rassskelltir í rallinu Íþróttir |
Jakob Jóhann Sveinsson í undanúrslit á HM í sundi
Keflavík áfram, Eyjamenn úr leik Borgvardt bestur
London. AFP. | Breska lögreglan handtók í
gærmorgun níu manns til viðbótar í
tengslum við rannsókn sína á tilraunum til
sprengjuárása í London fyrir rúmri viku.
Hafa nú 27 manns verið handteknir í
tengslum við rannsóknina sem er afar um-
fangsmikil. BBC greindi frá því í gærkvöld
að viðbúnaðarstig lögreglu væri hátt og að
„meiriháttar lögregluaðgerð“ væri í undir-
búningi innan samgöngukerfisins. Haft er
eftir lögreglu að aðgerðinni sé ætlað að róa
almenning og koma í veg fyrir að hugsan-
legir árásarmenn láti til skarar skríða.
Ian Blair, lögreglustjóri í London, ítrek-
aði í gær að mennirnir þrír, sem enn eru
ófundnir og taldir eru hafa reynt að
sprengja sprengjur í lestum og strætisvagni
21. júlí, væru ógn við öryggi borgaranna.
Tók hann fram að á meðan þeir gengju laus-
ir væri vissulega fyrir hendi sá möguleiki að
þeir reyndu aftur að gera árásir.
Meiriháttar
lögregluað-
gerð í bígerð
SÍMINN var í gær seldur hæst-
bjóðanda á 66,7 milljarða króna og
sér þar með fyrir endann á stærstu
einkavæðingu á Íslandi til þessa.
Þrjú bindandi tilboð bárust í fyr-
irtækið og var það hæsta frá fjár-
festingarfélaginu Skiptum ehf.,
sem er að stærstum hluta í eigu
Exista og KB banka, auk fjögurra
lífeyrissjóða og fleiri fjárfesta.
Burðarás og fleiri fjárfestar áttu
næsthæsta tilboðið sem var 60
milljarðar kr. eða tæpum 7 millj-
örðum og 10% lægra en hæsta til-
boðið. Þriðja tilboðið var frá
Atorku Group og fleiri fjárfestum
og var upphæð þess tæpir 54,7
milljarðar kr. eða 12 milljörðum og
18% lægra en tilboð hæstbjóðanda.
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu opnaði tilboðin á Nordica
hótelinu í gær að viðstöddum bjóð-
endum, fjölmiðlum og fleirum.
Kaupsamningur vegna sölunnar
verður formlega undirritaður á
föstudaginn kemur, en nokkrar
vikur munu líða áður en endanlega
verður gengið frá kaupunum og
greiðsla og afhending hlutabréfa
fer fram þar sem leita þarf
umsagnar Samkeppnisstofnunar
vegna sölunnar.
Sanngjarnt verð
Erlendur Hjaltason, forstjóri
Exista ehf., sagði að fjárfestarnir
væru mjög ánægðir með kaupin á
Símanum. „Við skoðuðum Símann
sem fyrirtæki mjög vel og gaum-
gæfilega og komumst að þeirri nið-
urstöðu að þetta verð, sem við buð-
um, væri sanngjarnt verð fyrir
fyrirtækið, bæði fyrir kaupendur
og seljendur,“ sagði Erlendur.
„Fyrirtækið er geysilega sterkt,
öflugt og gott og á sér mikla fram-
tíðarmöguleika. Við munum setjast
niður með stjórnendum og starfs-
mönnum félagsins í framhaldinu
og fara yfir hvaða möguleika við
sjáum í spilunum.“
Jón Sveinsson, formaður fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu
sagði að sú upphæð sem fengist
fyrir Símann væri að mati nefnd-
arinnar góð, einnig með tilliti til
þess að greiddur hefði verið út arð-
ur að upphæð 6,3 milljarðar fyrr á
árinu. Hann sagði að einkavæðing-
arferli Símans hefði verið langt og
strangt og rifjaði upp að það hefði
hafist árið 1999 og staðið með
hléum síðan.
Síminn seldur á 66,7
milljarða króna
Morgunblaðið/Sverrir
Hver býður best? Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, dregur nöfn hæstbjóðenda úr umslaginu.
Þrjú tilboð bárust og munaði 12 milljörðum á hæsta og lægsta tilboði
12 milljörðum | Miðopna
Eftir Hjálmar Jónsson og Örnu Schram
Strassborg. AFP. AP. | Þýsk stjórnvöld
hafa samþykkt að greiða Karólínu,
prinsessu af Mónakó, tíu þúsund evr-
ur í bætur (780 þús. ísl. kr.) í kjölfar
dóms Mannréttindadómstóls Evrópu
þess efnis að brotin hefði verið frið-
helgi einkalífs
hennar með birt-
ingu mynda í þýsk-
um fjölmiðlum.
Mannréttinda-
dómstóllinn til-
kynnti þessa nið-
urstöðu í gær, en
dómur hans féll í
fyrra. Mál Karól-
ínu fór fyrir Mann-
réttindadómstól-
inn eftir að dómi
þýska stjórnlagadómstólsins frá 1999
var áfrýjað. Þar sagði að Karólína
væri opinber persóna og yrði að
sætta sig við áhuga almennings á
myndum úr daglegu lífi hennar. Í
dómi Mannréttindadómstólsins sagði
hins vegar að myndir sem teknar
voru af Karólínu á skíðum, á hestbaki
og á kaffihúsi án vitundar hennar og
birtar í þýskum blöðum væru, sam-
kvæmt Mannréttindasáttmála Evr-
ópu, brot á friðhelgi einkalífs hennar.
Karólínu
dæmdar bætur
Karólína, prinsessa
af Mónakó
STJÓRNVÖLD á Bretlandi og Ír-
landi fögnuðu í gær yfirlýsingu
Írska lýðveldishersins (IRA) þess
efnis að hann hygðist hætta vopn-
aðri baráttu sinni. „Ef orðum IRA
verður fylgt eftir með gjörðum,
verða það afdrifarík og söguleg tíð-
indi,“ sögðu forsætisráðherrar
Bretlands og Írlands, Tony Blair
og Bertie Ahern, í sameiginlegri
yfirlýsingu.
Ahern sagði að í yfirlýsingu IRA
fælust „endalok IRA sem hernað-
arlegra samtaka,“ og Blair sagði
hana skref sem ætti sér enga hlið-
stæðu í sögu Norður-Írlands á síð-
ari árum. „Þetta kann að vera sá
dagur þegar loksins kemur að því,
eftir allar fölsku væntingarnar og
vonbrigðin, að friður tekur við af
stríði og aðferðir stjórnmála taka
við af hryðjuverkum,“ sagði Blair.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Féin, sagðist í gær líta svo á að
IRA hefði með yfirlýsingunni lýst
því yfir að stríði þeirra væri lokið
og að hún gæti orðið til þess að
endurvekja friðarferlið milli fylk-
inga í landinu. „Gerum nú allt sem í
okkar valdi stendur til að tryggja
að engir fleiri láti lífið vegna átaka í
landinu okkar,“ sagði Adams og
bætti því við að það væri á valdi al-
mennings, auk stjórnmálamanna,
að tryggja friðinn.
Leiðtogar mótmælenda voru á
hinn bóginn tortryggnir út í yfir-
lýsinguna og sögðust vilja bíða í
nokkra mánuði og sjá hvort hugur
reyndist fylgja máli hjá IRA. Í
þeim efnum var vísað til friðarsam-
komulagsins frá 1998 þar sem sam-
tökin hefðu ekki staðið við ákvæði
um afvopnun. Ian Paisley, leiðtogi
Lýðræðislega sambandsflokksins
(DUP), sagði að yfirlýsinguna
skorti nægjanlegt „gegnsæi“ til að
fullvissa fólk um að „byssurnar
væru algjörlega farnar“. Sagði
hann IRA áður hafa haldið sínu
striki þrátt fyrir „sögulegar“ yfir-
lýsingar og að heilindi samtakanna
yrðu metin á næstu „mánuðum og
árum í samræmi við hegðun þeirra
og gjörðir“.
Afdrifaríkt og sögulegt
Bresk og írsk stjórnvöld fagna
yfirlýsingu IRA um að samtökin
hyggist hætta vopnaðri baráttu
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
bab@mbl.is
Vopnin kvödd | 14
Bílar og Íþróttir í dag
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra segir að niðurstaðan í
Símasölunni sé mjög jákvæð fyrir
ríkissjóð. Söluverðið hafi verið
heldur hærra en hann hafi reikn-
að með. Hann segir að það verði
rætt innan stjórnarflokkanna á
næstu mánuðum hvernig andvirð-
inu verði ráðstafað. Ýmsar hug-
myndir séu uppi í þeim efnum.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra kveðst ánægður með sölu-
verðið. „Ég er fyllilega sáttur og
tel þetta mjög viðunandi verð.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
segir ljóst að ríkið sé ekki hlunn-
farið í sölunni. Hún segir þó
ákveðnar spurningar vakna varð-
andi söluferlið.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, segir sölu-
andvirðið hátt út frá sjónarhóli
kaupanda. Engir aðrir en neyt-
endur, þ.e. þjóðin, muni borga
það á komandi árum.
Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjálslynda flokks-
ins, segist enn hafa ákveðnar efa-
semdir um að grunnnetið sé selt
með Símanum.
Hærra en búist var við
Bosníu-Herzegóvínu, AFP. | Ljiljana Karadzic,
eiginkona Radovan Karadzic, fyrrum leið-
toga Bosníu- Serba, vill að eiginmaður sinn
gefi sig fram við stríðsglæpadómstól Sam-
einuðu þjóðanna. Karadzic er eftirlýstur
fyrir þjóðarmorð og er, ásamt herforingj-
anum Ratko Mladic, talinn ábyrgur fyrir
því að 8000 múslímskir karlmenn og dreng-
ir voru myrtir í Srebrenica árið 1995.
Ljiljana Karadzic hefur hingað til staðið
með eiginmanni sínum en í gær kom hún
fram í sjónvarpsviðtali þar sem hún sár-
bændi mann sinn um að gefa sig fram, fjöl-
skyldu sinnar vegna.
Karadzic
gefi sig fram