Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRAMTALDAR eignir heimilanna
voru tæplega 2.000 milljarðar króna í
lok árs 2004 og höfðu þá aukist um
15,4% frá árinu áður. Skuldir höfðu
hins vegar aukist um 15,2% frá fyrra
ári. „Jákvætt í þessu öllu er að nettó-
niðurstaðan er í plús og eignir aukast
umfram skuldir,“ sagði Maríanna
Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Fasteignamatið hækkar mikið
milli ára sem endurspeglast í eigna-
stöðunni. Sömuleiðis virðast hafa orð-
ið miklar hækkanir á verðbréfaeign
auk þess sem þjóðin stendur t.d. í
miklum bílakaupum.“
Mun fleiri greiddu hátekjuskatt
Gjaldstofn tekjuskatts og útsvars
nam 526,8 milljörðum króna sem var
9,0% hækkun milli ára. Framteljend-
um með tekjur fjölgaði um 1,9% milli
ára og gjaldstofninn hækkaði að með-
altali um 7,0% á mann. „Það er aðeins
umfram almenna tekjubreytingu sem
er eðlilegt, það er uppsveifla og skatt-
arnir að gefa í samræmi við það,“ seg-
ir Maríanna en vekur athygli á að
fjármagnstekjuskattur sé að skila
talsverðu í ríkiskassann. Söluhagnað-
ur hlutabréfa og vextir af verðbréfum
hafi hækkað talsvert auk þess sem
uppgreiðslur á húsbréfum vegna
breytinga á Íbúðalánasjóði geti hafa
haft talsvert að segja. Fjármagns-
tekjuskattur einstaklinga nam 7,6
milljörðum og hækkaði um 17,7%
milli ára meðan greiðendum hans
fjölgaði aðeins lítillega en þeir voru
rúmlega 77 þúsund.
Sérstakan tekjuskatt, hátekju-
skatt, greiddu 17.456 skattgreiðendur
en þeim fjölgaði um 16,5%, sem getur
að hluta til skýrst af því að viðmið-
unarmörk hátekjuskatts hækkuðu lít-
ið milli ára svo fleiri borgi skattinn en
árinu áður. Samtals námu greiðslurn-
ar 1.411 milljónum króna sem er 3,9%
hærra en árinu áður og það þótt
skatthlutfallið hafi lækkað úr 5 í 4%.
Barnabætur voru nær óbreyttar
milli ára og námu 5 milljörðum en
2,8% færri fengu þær greiddar.
Vaxtabætur héldust óbreyttar milli
ára og voru 5,2 milljarðar. Framtelj-
endum sem nutu þeirra fækkaði um
6,7% og eru um 54 þúsund.
Greidd verður út ofgreidd stað-
greiðsla af tekjum, að fjárhæð 2,4
milljarðar en Maríanna sagði aðspurð
að einnig yrði innheimtur ógreiddur
almennur tekjuskattur og útsvar,
samtals um 12,7 milljarðar króna, á
næstu fimm mánuðum.
Heildarfjöldi framteljenda við
álagningu árið 2005 reyndist vera
234.437 sem er fjölgun um 4.772 ein-
staklinga.
Bæði eignir og skuldir
landsmanna hafa aukist
Fjármagnstekjuskattur hækkaði talsvert milli ára
!
"
#
$
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
Álagning opinberra gjalda á einstaklinga og þá sem reka fyrirtæki í eigin nafni fyrir árið 2005
STAÐGREIÐSLAN sem skatt-
greiðendur borga af launum sínum
rennur annars vegar til ríkissjóðs
og hins vegar til sveitarfélaganna.
Til ríkissjóðs rennur almennur og
sérstakur tekjuskattur (há-
tekjuskattur) auk fjármagns-
tekjuskattsins en svk. útsvar er
tekjustofn sveitarfélaganna. Á
liðnu ári greiddu aðeins 2/3 hlutar
framteljenda almennan tekjuskatt í
ríkissjóð eða tæp 158 þúsund
manns. 97% allra á grunnskrá
framteljenda guldu hins vegar út-
svar til sveitarfélaga. Með öðrum
orðum, fólk getur haft lægri tekjur
en nemur persónuafslætti og þá
skilar sér enginn skattur til rík-
isins. Hins vegar fá sveitarfélögin
útsvar af öllum tekjum, jafnvel þótt
einstaklingur borgi ekki. Ríkið
greiðir þá útsvarið fyrir hann í
formi persónuafsláttar.
Samkvæmt gildandi lögum legg-
ur ríkið 25,75% tekjuskatt á þær
tekjur sem einstaklingur aflaði sér
á árinu 2004, en veitir jafnframt af-
slátt af
þeirri skattálagningu í formi per-
sónuafsláttar. Sá afsláttur nam kr.
27.496 á mánuði á árinu 2004.
Þessi skattlagning gengur undir
heitinu almennur tekjuskattur og
renna tekjur af þeim skatti beint í
ríkissjóð.
Auk þess þarf einstaklingur að
greiða útsvar til sveitarfélagsins
sem hann býr í, en það er mishátt
eftir sveitarfélögum.
Að teknu tilliti til persónu-
afsláttar og áætlanaárið 2004 var
meðalskatthlutfall almenns tekju-
skatts til ríkisins 12,5% og meðalút-
svarið nokkru hærra eða 13,1% –
því samtals 25,6% af heildartekjum
þótt skattprósenta á einstaklinga
fyrir persónuafslátt hafi verið
38,58%.
%&
'
'
'
!
$
#
'
(
'
&)'
*
'
"
$
(
+
! "# #
$
!! &#'(
#
$
#'"(
)
*
!!%+
,
-
$
! "# #
.#/
0(
1
0
,-
.
/'# " " 2"
" " " "
3
Meðalskatthlutfall
skattgreiðenda var 25,6%
UMFERÐ um tvöfaldan Vesturlandsveg í gegnum
Mosfellsbæ hófst seinnipartinn í gær en fram-
kvæmdir við tvöföldunina hafa staðið yfir að und-
anförnu. Að sögn Árna Friðleifssonar, vaktstjóra
hjá umferðardeild lögreglunnar, gekk opnunin von-
um framar og var verkið vel undirbúið af hálfu
verktaka.
Tvöföldunin mun liðka mjög fyrir umferð til og
frá bænum um verslunarmannahelgina en Árni seg-
ir að þó megi búast við ákveðnum umferðartöfum
enda sé umferðargetu vegarins ákveðin takmörk
sett. Enn er þrenging yfir Úlfarsá og reiknar Árni
með að tafir verði þar. Hann segir að lögregla verði
með öfluga löggæslu um helgina og ökumenn megi
búast við að sjá lögreglumenn allt upp að Hafn-
arfjalli. Eins megi þeir sem keyra með tjaldvagna
og fellihýsi búast við því að vera stöðvaðir og jafn-
vel vísað til baka ef speglar og annar öryggisbún-
aður er ekki í lagi.
Hann hvetur ökumenn til að keyra varlega. „Ég
vona að ökumenn stilli hraðanum í hóf, sýni tillits-
semi, aki rólega og glotti út í annað.“
Morgunblaðið/Júlíus
Vesturlandsvegur tvöfaldaður
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, var kölluð út um klukkan hálf-
sex í gær í leit að bát sem ekki hafði
tilkynnt sig frá því á miðvikudags-
kvöldið.
Báturinn, sem er 28 tonn, fannst á
lúðuveiðum um 60 sjómílur suðvest-
ur af Reykjanesi. Hafði hann farið út
fyrir sjálfvirku tilkynningaskylduna.
Ekkert amaði að þeim fjórum sem í
áhöfn voru. Samkvæmt upplýsingum
frá Landhelgisgæslunni eru bátar
sem fara út fyrir sjálfvirku tilkynn-
ingaskylduna skyldaðir til að til-
kynna sig handvirkt til Vaktstöðvar
siglinga. Brögð eru að því að skip-
stjórar báta leiði hjá sér að tilkynna
staðsetningu báta sinna til Vakt-
stöðvar siglinga. Er nú unnið að úr-
bótum á því.
TF-SIF leitaði báts
sem tilkynnti sig ekki
BJÖRGUNARFÉLAG Horna-
fjarðar bjargaði í gær tveimur
mönnum sem höfðu fest bílaleigubíl
sinn í Skyndidalsá sem rennur í Jök-
ulsá í Lóni. Útkall barst um klukkan
hálf eitt á hádegi og þegar björg-
unarmenn bar að garði voru menn-
irnir komnir upp á þak bílsins. Frið-
finnur F. Guðmundsson situr í
landsstjórn björgunarsveita sem fer
með samræmingu aðgerða þegar
þess er þörf. Hann segir að bíllinn
hafi farið ansi djúpt, en Skyndidalsá
er breið og mjög straumþung þar
sem bíllinn festist. Björgunarmenn
gátu keyrt á öflugum björg-
unarsveitarbíl út í ána og var mönn-
unum bjargað upp á pall hans.
Mennina sakaði ekki en þeim varð
nokkuð hverft við. Að björguninni
lokinni náðist bílaleigubíllinn upp úr
ánni og segir Friðfinnur hann vera
mikið skemmdan.
Slysavarnafélagið Landsbjörg vill
koma því ferðafólks sem ætlar sér að
fara yfir jökulár að flestar eru þær í
miklum vexti um þessar mundir og
geta verið varhugaverðar yfirferðar.
Ljósmynd/Friðrik J. Friðriksson
Mönnum bjargað
úr Skyndidalsá
ÍÞRÓTTABANDALAG Vest-
mannaeyja (ÍBV) er ósátt við að
þurfa að greiða löggæslukostnað í
bæjarfélaginu vegna Þjóðhátíðar í
Vestmannaeyjum. ÍBV hefur deilt
við lögregluyfirvöld um hverjum
beri að greiða kostnaðinn. Bæjarráð
Vestmannaeyja fól í vikunni bæjar-
stjóra Vestmannaeyja að óska eftir
fundi með dómsmálaráðherra til að
fá niðurstöðu í deiluna.
Guðrún Erlingsdóttir, varafor-
maður bæjarráðs Vestmannaeyja,
segir bæjarfélagið ósátt við að lög-
gæslukostnaðurinn skuli leggjast á
íþróttafélagið. Hún nefnir sem
dæmi að þegar Menningarnótt er
haldin í Reykjavík sjái ríkislög-
reglustjóri alfarið um að greiða all-
an löggæslukostnað vegna hátíðar-
innar. Aðspurð segir hún lög-
gæslukostnaðinn í fyrra hafa
hljóðað upp á rúmar þrjár milljónir
króna. Hún bætir því við að þessu til
viðbótar sé verið að greiða töluvert
háar upphæðir til björgunarsveita
sem einnig sjá um gæslu á svæðinu.
„Við teljum okkur ekki sitja við
sama borð og aðrir landsmenn,“
segir Guðrún og bætir því við að
íþróttahreyfingin hafi lýst því yfir
að hún væri til í að greiða það sem
henni beri, en annað ekki. Hún segir
að fyrir ári hafi verið sent bréf til
dómsmálaráðuneytisins sem ekki
hafi borist viðunandi svar við.
Deilt um löggæslukostn-
að í Vestmannaeyjum