Morgunblaðið - 29.07.2005, Side 16

Morgunblaðið - 29.07.2005, Side 16
www.flugger.com 10 28 61 Ný leið til að mála stóra fleti Rúllusett verð aðeins349 kr. Viðarvörn Viltu láta hlutina ganga hratt? Stórhöfða 44 110 Reykjavik Sími 567 4400 Dalasýsla | Ágætisveiði hefur verið undanfarið í Fáskrúð í Dölum. 22. júlí voru komnir áttatíu og þrír laxar á land og er þetta nokkuð betri veiði en á sama tíma í fyrra. Í síðustu viku hrapaði áin í vatni og voru margir veiðistaðir straumlausir. En svo skemmtilega vildi til að 4 ára strákur, Ragnar Berg Vignisson, fékk maríulaxinn, sem var 6 pund, í Hellufljóti og eina aðstoðin sem hann fékk frá föður sínum var í löndun enda sátu þeir feðgar á kletta- syllu, og síðar um kvöldið var veiðimanndóms- vígsla. Lítill snáði bítur fyrsta laxinn Maríulax Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu Ljósmyndasýning | Sl. vetur voru stofnuð hollvinasamtök um Þórð Halldórsson á Dag- verðará. Þórður var margbrotinn maður, þekktur sem sagnamaður, listmálari, refa- skytta, sjómaður og margt fleira. Í sumar hafa Hollvina- samtökin staðið fyrir ýmsum við- burðum á Snæfellsnesi til að minnast Þórðar, m.a. komið upp áhugaverðri ljósmyndasýningu frá ævi hans. Sýningin er þessa dagana í veitingasal Hótels Hellissands og verður þar fram eftir næstu viku. Hún er hugsuð sem farandsýning.    Kotbýli vel af stað | Annar hluti galdra- sýningar á Ströndum, „Kotbýli kuklarans“ hefur farið vel af stað að sögn aðstandenda, en fjöldi gesta hefur heimsótt sýninguna á Klúku frá opnunarkvöldinu síðasta laugardagskvöld. Afsláttarkerfi hefur nú verið tekið í gagnið svo gestir Galdrasýningar á Ströndum fá nú góðan afslátt að annarri sýningunni með framvísum dagsetts aðgöngumiða af hinni. Miðarnir gilda í tvo daga eftir heimsókn á aðra sýninguna. Um það bil helmingur gesta Kotbýlis kuklarans í gær nýttu sér afslátt- arkjörin samdægurs. Á fréttavefnum Strand- ir.is kemur fram að Strandagaldursmenn séu ánægðir með viðtökurnar. Segir Sigurður Atlason að þær komi í sjálfu sér lítið á óvart, því gríðarlegur áhugi sé fyrir öllu verkefninu. Í gestakönnun sem var lögð fyrir gesti Galdrasýningarinnar á Hólmavík síðasta sumar kom fram að 98% aðspurða hefðu áhuga á að heimsækja seinni áfanga sýning- arinnar þegar þeir opna. Sigurður segir í viðtali við Strandir.is þenn- an mikla áhuga afar ánægjulegan, sér- staklega í ljósi þess að eitt meginmarkmið verkefnisins sé að það hafi sem mest marg- feldisáhrif á sölu á annarri vöru og þjónustu í héraðinu. Þrátt fyrir það að takmörkuð kynn- ing hafi átt sér stað í tengslum við opnun Kot- býlisins, sé ljóst að fjölmargir fylgist vel með verkum galdramanna á Ströndum og séu að setja farartækin sín í réttan gír og taka miðið á Galdrastrandir, enda séu þær orðnar fjöl- kunnugar. Aðgangseyrir á Galdrasýningu á Ströndum er 500 krónur, en aðeins 400 krónur næstu tvo daga eftir heimsókn á hina sýninguna með framvísun á dagsettum aðgöngumiða. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri og meðlimir Til- beraklúbbsins fá frítt inn hvenær sem er. Morgunblaðið/Hrefna Magnúsd. HÉÐAN OG ÞAÐAN næst með því að nota hús- einingar sem koma á byggingarstað fullbúnar með rafmagni og ein- angrun. Er húsið meira að segja málað að utan. Þá er einingunum raðað á steyptan sökkul og ger- ir verktaki ráð fyrir að húsið verði tilbúið til af- hendingar þann 20. ágúst. Annað hús sömu gerð- Leiftursnöggt gekkað reisa hið fyrraaf tveimur ein- býlishúsum sem Súðavík- urhreppur hefur ákveðið að láta byggja. Fram- kvæmdir við byggingu hússins hófust í fyrra- morgun og var þakið sett á í gær. Reis þannig húsið á einum sólarhring. Þetta kemur fram í frétt bb.is. Þessi byggingarhraði ar er í byggingu í Súða- vík og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið um hálf- um mánuði seinna. Húsin eru um 177 fermetra ein- býlishús og kostar um 20 milljónir að byggja þau. Súðavíkurhreppur selur húsin aftur á 16 milljónir og er það liður í að fjölga íbúum sveitarfélagsins. Þegar hefur verið gengið frá sölu á öðru húsinu. Ljósmynd/Ómar Már Jónsson Reisa hús á einum degi Davíð Hjálmar Har-aldsson yrkir áheitum sum- ardegi: Miðsumardagur Á húsunum glampar á glugga. Gleiðfættur köttur á sjóðandi malbiki stiklar. Dormandi fuglar en maðkurinn skriðinn í skugga. Skáldið er þögult og rykfallnir tölvunnar lyklar. Hjálmar Freysteinsson læknir leggur út af vís- unni: Miðsumardagur, Brynjuís börn- in sér kaupa blíðan og sólskinið kætir flesta og styrkir, en skáldinu Davíð þykir of heitt til að hlaupa og hímir inni við tölvu sína og yrkir. Og Davíð Hjálmar svar- ar í léttum dúr: Enn virðist hitna, þeir öldruðu roðna í framan, augnaráð flöktir og hjartað er komið úr lagi. Læknirinn brosir og lófunum nuddar hann saman, leitar að skiptimynt. Brátt fara nokkrir úr slagi. Í sumarhita pebl@mbl.is Vesturbyggð | Hafnarstjórn Vesturbyggð- ar hefur boðið út ákveðna þætti í þjónustu Patrekshafnar á Patreksfirði. Um er að ræða móttöku fiskiskipa, vigtun og skrán- ingu sjávarafla, móttöku flutningaskipa svo og annarra skipa er þjónustu þurfa ut- an auglýsts afgreiðslutíma hafnarinnar. Gert er ráð fyrir að samningur við verk- taka taki gildi 1. september og verði ótíma- bundinn með þriggja mánaða uppsagnar- fresti. Útboðið kemur í kjölfar skipulagsbreyt- inga sem gerðar voru á rekstri hafnarinnar í vor. Þá var tekið upp bakvaktarkerfi utan hefðbundins afgreiðslutíma en ekki hefur tekist að manna þær bakvaktir að fullu. Því ákvað hafnarstjórn að fara útboðsleiðina „og með því [var] kannað hvort koma mætti á samningi um þjónustukaup af aðila sem betur væri í stakk búinn að sinna þess- um þætti og kæmist með því á hagstæður samningur báðum aðilum“, eins og segir í samþykkt hafnarstjórnar. Tilboðsfrestur rennur út þann 3. ágúst. Bæjarins besta segir frá þessu. Verkþættir við höfnina boðnir út Ólafsfjörður | Búið er að sameina skólana í Ólafsfirði í einn grunnskóla. Fræðslunefnd og bæjarráð samþykktu nýverið að leita eftir tillögum frá bæjarbúum um nafn á skólann. Nefndin hvetur unga sem aldna til að koma með tillögu að nýju nafni. Hægt er að senda tillöguna inn á netfang bæjar- stjóra, stefania@olf.is, netfang skóla- stjóra, threyk@ismennt.is eða koma á bæjarskrifstofuna með tillögu sem verður skráð niður. Stefnt er að því að kynna nýtt nafn á skólanum þegar hann verður settur. Hvað á skól- inn að heita? ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.