Morgunblaðið - 29.07.2005, Side 17

Morgunblaðið - 29.07.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 17 MINNSTAÐUR SENDUM Í PÓSTKRÖFU Í dagsins önn Náttúrulegt B-vítamín ásamt magnesíum og C-vítamíni í jurtabelgjum www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Borgartúni 24 Árnesaptóteki Selfossi Kárastíg 1 Fjarðarkaupum HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Reykjavík | Félagsstofnun Stúd- enta veitti á dögunum fjórum meistaranemum verkefnastyrki vegna lokaverkefna. Þeirra á meðal var Silja Björk Baldursdóttir, sem hlaut styrk fyrir meistaraverkefni sitt í uppeldis- og menntunarfræði. Bar verkefni Silju Bjarkar heitið „Forvarnir Reykjavík- urborgar – hver er árangurinn? Mat á fram- kvæmd og ár- angri forvarna- starfs á vegum Reykjavík- urborgar á ár- unum 1997- 2004.“ Leiðbeinendur Silju Bjarkar voru Sigurlína Davíðsdóttir lektor í uppeldis- og menntunarfræði og Inga Dóra Sigfúsdóttir hjá Rann- sóknum og greiningu. Ekki hefur áður verið ráðist í svo viðamikið mat á forvarnastarfi. Silja segir mikið af forvarnastarfi aldrei metið og af þeim for- varnaverkefnum sem hafi verið metin hafi aðeins nokkur reynst bera árangur. Þó sé algengt að áfram sé stuðst við verkefni sem ekki hafi reynst árangursrík. Eitt útbreiddasta vímuvarnaverkefni á heimsvísu sé þannig t.a.m. ekki að bera tilætlaðan árangur. Þannig geti verið að fjármunum og tíma sé víða sóað í marklaust starf og ómarkvissar forvarnir geti jafnvel vakið áhuga barna og unglinga á vímuefnaneyslu. Blönduð aðferð Markmið verkefnis Silju Bjarkar var að leggja mat á hvort lang- tímaárangur hafi orðið af forvarna- starfi Reykjavíkurborgar og kann- aði hún framkvæmd þess með blandaðri aðferð. Annars vegar not- aði hún megindlega aðferð, þar sem hún studdist við gögn Rannsókna og greiningar til að varpa ljósi á þróun vímuefnaneyslu unglinga í 9. og 10. bekk og samhengi hennar við ýmsa þætti, m.a. samveru for- eldra og unglinga og útivist. Hins vegar notaði hún eigindlega aðferð, þar sem hún tók ítarleg viðtöl við einstaklinga sem starfa að for- varnamálum. „Árið 1997 var eiginlega toppur í eiturlyfjaneyslu unglinga hér á landi,“ segir Silja. „Þess vegna var hentugt að mæla frá þeim tíma og skoða þróun vímuefnaneyslu í sam- hengi við ýmsar breytur.“ Forvarnastarf í auknum mæli beinst að foreldrum Helstu niðurstöður rannsóknar Silju sýndu að vímuefnaneysla ung- linga dróst markvisst saman á ár- unum 1997 til 2004, en samtímis jókst samvera þeirra með for- eldrum sínum og útivist þeirra utan lögboðins útivistartíma minnkaði. Átti það enn frekar við í Reykjavík en utan borgarinnar. „Líta má á það sem vísbendingu um að skila- boð forvarna, sem lutu að þeim þáttum, hafi komist til skila,“ segir Silja. „Mikið af forvarnastarfi síð- ustu ára hefur beinst að foreldrum þar sem athygli hefur verið vakin á mikilvægi samveru fjölskyldunnar og að útivistarreglur séu virtar. Hins vegar voru t.d. ekki breyt- ingar á íþróttaiðkun unglinga á þessu tímabili. En það má túlka niðurstöðurnar þannig að þessi skilaboð sem hefur verið beint að foreldrum og börnum um samveru og útivist hafi komist til skila og leið forvarnanna hafi legið í gegn- um fjölskylduna.“ Silja segir ennfremur að viðmæl- endur hafi lýst því að áherslubreyt- ingar hafi orðið í forvarnarstarfi síðustu ár. Samvinna sé meiri og í auknum mæli sé hugað að mati á forvarnarstarfi. Þetta sé vissulega af hinu góða. „Það er miklu ódýr- ara á öllum sviðum, frá meðferð og upp í samfélagslegan kostnað, að koma í veg fyrir að fólk fari út í neyslu með forvörnum en að glíma við vímuefnavandann eftir á,“ segir Silja og undirstrikar að lokum nauðsyn þess að árangur forvarna- starfs sé metinn reglulega og vel. Árangur forvarnastarfs í Reykjavík metinn vandlega Samvist foreldra og unglinga og skýrar reglur um útivist skila árangri Morgunblaðið/Jim Smart Samvera Það er afar mikilvægt að foreldrar hætti ekki samverustundum sínum með börnunum þegar þau komast á unglingsaldurinn.Silja Björk Baldursdóttir Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is Seltjarnarnes | Fimm aðilar skil- uðu inn tilkynningum og sýndu því áhuga að sjá um og reka líkams- ræktarstöð í tengslum við Sundlaug Seltjarnarness en bygging líkams- ræktarstöðvar er hluti af end- urbótum á sundlaugar- og íþrótta- mannvirkjum bæjarins. Bærinn áformar ekki að eiga eða reka líkamsræktarstöðina en mun koma að undirbúningi og fram- kvæmd verkefnisins eftir atvikum. Þeir sem skiluðu þátttöku- tilkynningum eru: Þrek ehf. sem rekur World Class, Jóhann G. Jó- hannsson og Guðrún Kaldal, Naut- ilus Ísland ehf., Páll Þórólfsson og Björgvin Finnsson og Þorsteinn Guðjónsson og Bjargey Aðalsteins- dóttir. Fimm vilja reka líkamsræktarstöð Í TILEFNI 15 ára afmælisárs Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins verður garðurinn opinn frá kl. 10-23 nk. laugardag. Stuðmenn verða m.a. með tónleika um kvöldið þar sem Valgeir Guðjónsson kemur fram. Von er á nýju tæki þennan dag í garðinn, Þrumufleyg, en þar er um að ræða vagn alskreyttan litskrúð- ugum myndum af þrumuguðnum Þór og hans veröld. Í því er þrumað á ákveðin skotmörk úr Goðafræð- inni líkt og Ellikerlingu, Miðgarðs- orminn og Þursa. Brian Pilkington sá um að myndskreyta. Hefðbundin dagskrá verður á sunnudeginum og tilboð á dagpöss- um. Mánudaginn 1. ágúst heldur VR hátíðlegan líkt og undanfarin ár og býður gestum og gangandi ókeypis aðgang að garðinum. Þrumufleygur í Húsdýragarðinn AFREKSFÓLK okkar á skíðum sit- ur ekki auðum höndum þótt nú sé mitt sumar, því þessa vikuna er skíðalandsliðið í alpagreinum við þrekæfingar á Dalvík undir stjórn landsliðsþjálfarans Pavel Cebulj frá Slóveníu. Hópinn skipa heimamenn- irnir Kristinn Ingi Valsson og Björg- vin Björgvinsson, Kristján Uni Ósk- arsson frá Ólafsfirði og Sindri Már Pálsson úr Garðabæ. Þá tók Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri þátt í einni æfingu með strákunum en hún er að ná sér á strik aftur eftir erfið hnémeiðsli og verður vonandi komin á fulla ferð á komandi keppn- istímabili. Þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins brá sér til Dalvíkur í hádeginu gær var Kristján Uni farinn til vinnu í Ólafsfirði og Sindri Már suður á bóginn. Æft er tvisvar á dag, allt að þrjá tíma í senn, og er um ræða hlaupa- og hjólaæfingar og lyftingar. Strákarnir hafa fengið að taka vel á því, enda ætla þeir sér stóra hluti á komandi keppnistímabili sem hefst í nóvember nk. Framundan eru m.a. Evrópu- og heimsbikarmót og Vetr- arólympíuleikarnir í Torino á Ítalíu í febrúar á næsta ári. Eyfirsku skíða- mennirnir þrír, sem og Dagný Linda, hafa áunnið sér keppnisrétt á leik- unum. Nýi landsliðsþjálfarinn frá Slóveníu happafengur „Þetta er heilsársíþrótt og um leið og veturinn er liðinn taka við þrekæf- ingar af fullum krafti,“ sagði Björg- vin og Kristinn Ingi bætti við að yfir vetrartímann væri mikið um mót og ferðalög og því væri mikilvægt fyrir þá að nýta sumarið vel til að byggja upp þrek fyrir komandi átök. Björgvin hefur verið lengi í fremstu röð íslenskra skíðamanna og hann sagði að landsliðsþjálfarinn Pavel væri mikill happafengur, enda mjög fær þjálfari þar á ferð. Pavel kom til liðs við hópinn í vor en sagðist vel geta hugsað sér að starfa hér næstu árin og hann er bjartsýnn fyr- ir hönd íslensks skíðafólks. Snjó- framleiðsla hefst á skíðasvæðunum í Böggvisstaðafjalli á Dalvík og Hlíð- arfjalli á Akureyri í vetur og sagði Pavel að um byltingu yrði að ræða, sem ætti eftir að nýtast gríðarlega vel og þá ekki síst hinu unga og efni- lega skíðafólki landsins. „Hér á landi er hæfileikaríkt skíðafólk og það er ástæðan fyrir því að ég kom hingað. Skíðafólkið sem skipar landsliðið í dag dregur vagninn en þessi hópur ætti að geta orðið enn stærri og öfl- ugri í framtíðinni. Hér er margt já- kvætt að gerast og ég tel mig geta gert góða hluti á næstu árum.“ Pavel er sjálfur gamall landsliðsmaður á skíðum og hann keppti m.a. á Íslandi, á Akureyri, Húsavík og Dalvík á ár- unum 1987 og 1990. Björgvin og Kristinn Ingi hafa báðir lokið námi við skíðamennta- skóla í Noregi, Björgvin fyrir um 4 árum og Kristinn í nóvember í fyrra. Björgvin hefur m.a. æft með lands- liðum Noregs og Svíþjóðar en í vetur æfðu þeir báðir með íslenska lands- liðinu, í Slóveníu, Austurríki og Ítalíu og tóku þátt í mótum. Hadið í æfinga- og keppnisferð til Ástralíu í næsta mánuði Um miðjan næsta mánuð heldur landsliðið til Ástralíu, þar sem liðið mun æfa og keppa í þrjár vikur. Þar kemur til liðs við hópinn hinn lands- liðsþjálfarinn, Ástralinn Jamie Dun- lop. Þar ætlar Sindri Már að reyna að vinna sér þátttökurétt á Vetraról- ympíuleikunum. Eftir þá ferð verður stoppað heima á Íslandi í 20 daga áð- ur en haldið verður til æfinga í Aust- urríki. Þeir Björgvin og Kristinn Ingi voru sammála þjálfara sínum um að snjóframleiðslan á Dalvík og Ak- ureyri ætti eftir að gjörbreyta að- stöðu til skíðaiðkunar. Sjálfir vonast þeir til að geta nýtt sér þá aðstöðu og þá verið lengur á heimaslóðum og sparað peninga, enda mjög dýrt að stunda æfingar og keppnir erlendis. Það er mikill hugur í skíðalandsliðs- mönnunum sem ætla sér stóra hluti í skíðabrekkunum. „Strákarnir eru í fínu formi og þeir eiga eftir að standa sig vel,“ sagði Pavel landsliðsþjálfari. Morgunblaðið/Kristján Skíðamenn Landsliðsmennirnir Björgvin Björgvinsson, t.v., og Kristinn Ingi Valsson með landsliðsþjálfarann Pavel Cebulj á milli sín í Böggvisstaðafjalli, en hann sagði þá í fínu formi og ættu eftir að standa sig vel. Skíðalandsliðið við æfingar á Dalvík Eftir Kristján Kristjánsson krkr@mbl.is Innbrot upplýst | Rannsóknadeild lögreglunnar á Akureyri hefur upp- lýst 7 innbrot á Akureyri og nágrenni, sem framin voru í vetur og nú nýlega. Í sex tilvikum komu piltar á aldrinum 17-18 ára við sögu, eða vegna tveggja innbrota í leikskólann Pálmholt, inn- brots í leikskólann Álfastein í Hörg- árbyggð, Oddvitann, Bónusvídeó og Eyrarbúðina. Að sögn Daníels Snorrasonar lögreglufulltrúa er and- virði þýfisins í þessum innbrotum um ein milljón króna. Þýfið hefur ekki skilað sér og telur Daníel að það hafi verið notað sem gjaldmiðill í fíkni- efnaviðskiptum. Þá hefur lögreglan upplýst innbrot tveggja aðila í sum- arbústað í Grýtubakkahreppi. Þar var stolið hálfsjálfvirkri haglabyssu sem ekki hefur enn komið í leitirnar. Þá voru tveir menn staðnir að verki við innbrot í Lindina við Leiruveg ný- lega, eftir að þjófavarnakerfi fór þar í gang. Að sögn Daníels er rannsókn þessara mála að mestu lokið. AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.