Morgunblaðið - 29.07.2005, Síða 19

Morgunblaðið - 29.07.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 19 MINNSTAÐUR FERÐAÞJÓNUSTAN í Lónkoti í Sléttuhlíð í Skagafirði, nokkru utar en Hofsós, fagnar um þessar mundir ýms- um afmælisáföngum: Tuttugu ár eru síðan fjölskyldan þar keypti jörðina og hóf fljótlega smávegis grásleppuútgerð, fimmtán ár eru síðan ferðaþjónusta hófst þar formlega og 10 ár eru síðan veitingastaðurinn Sölva-Bar tók til starfa. Ólafur Jónsson, sem sér um reksturinn, segir slagorð staðarins vera „kúltúr og krásir“ en í Lónkoti má auk veitinganna fá gistingu innan dyra eða á tjaldsvæði og stunda golf. „Ég legg einkum áherslu á mat og menningu,“ segir Ólafur í samtali við blaðamann Morgunblaðsins og er ekki með hefð- bundinn matseðil með nokkrum réttum heldur „diska dagsins“, fjögurra rétta málsverð sem er breytilegur dag frá degi. Er þar boðið uppá það sem nýjast er og ferskast hverju sinni. Hægt er einnig að fá drykkjarföng með eins og hver vill hafa það. Lónkot er lítil sjávarjörð og standa byggingarnar við ströndina þar sem heitir Málmeyjarsund. Einkennir fjöru- grjótið staðinn, bæði fjöruna sjálfa og eins hefur Ólafur nýtt grjótið í hleðslur í landinu. Sagan svífur yfir vötnum í Lón- koti og nágrenni því Sölvi Helgason fæddist til dæmis stutt frá, að Fjalli í Sléttuhlíð og hann bar einnig beinin þar í sveit. Hann var listhneigður förumað- ur, sem átti erfiða ævi, en eftir hann liggja myndverk sem m.a. má sjá á Sölva-Bar í Lónkoti og þar hefur honum verið reistur minnisvarði. Handan Málmeyjarsunds má sjá Málmey, Drangey og Þórðarhöfða sem eru helstu kennileiti Skagafjarðar. Stutt er í Vest- urfarasetrið á Hofsósi og þar innan við er bærinn Gröf þar sem Hallgrímur Pétursson fæddist. Ólafur lætur vel af rekstrinum í Lónkoti, segir gestagang þokkalegan í júní, júlí og ágúst, þann tíma sem veitingastaðurinn er opinn en unnt er að fá gistingu bæði fyrr á vorin og lengur fram á haustið. Hægt er að taka um 30 manns í gistingu. „Við höfum náð fótfestu en auðvit- að væri hér meiri umferð ef við vær- um nær hringveginum. Ég geri samt ráð fyrir að umferðin hér aukist smám saman. Staðurinn hefur verið byggður upp hægt og rólega og ég geri ráð fyrir að svo verði áfram.“ Nú á sunnudag, 31. júlí kl. 13 til 17, verður markaður í hinu stóra sam- komutjaldi sem hefur verið eins kon- ar einkennismerki Lónkots. Hefur verið haldinn þar flóamarkaður síð- asta sunnudag í júní, júlí og ágúst frá árinu 1999. Kemur þá sölufólk með varning og býður gestum og gang- andi. Að lokum má geta þess að kaffi- hlaðborð er alla sunnudaga. Þrefalt afmæli í Lónkoti í Skagafirði Morgunblaðið/jt Ferðaþjónustan Lónkoti í Sléttuhlíð býður veitingar, gistingu og golfiðkun ef menn kjósa svo. Hægt er að taka við 30 manns í gistingu í senn í Lónkoti. Ólafur Jónsson ber hér fram einn réttinn, lunda með ýmsu góðgæti. Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.