Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
!"#$%&'()* +++,-.$-/-,%
580 80 80
Vilt þú auglýsa!
Þetta svæði er laust núna
hringdu í síma
midlun@midlun.is
Reynir er sannkallaður fjöl-listamaður í efni og anda.Það fyrsta sem ég tek eftirþegar ég geng inn í húsið
hans í Sandgerðisbæ er að það prýða
ótal málverk eftir hann, björt og sól-
rík, full af lotningu fyrir lífinu. Einnig
falleg hálsmen og rúnir sem Reynir
sker gyðjumerkin út í. En Reynir
starfar líka við heilun og nudd. Fólk
leitar til hans hvort sem það vill vinna
í sér á líkamlega eða andlega sviðinu
og þá ákallar hann gyðjurnar úr nor-
rænu goðafræðinni.
Fáir þekkja gyðjurnar
„Fensalir eru bústaður Friggjar og
þar er sú uppsprettulind sem við get-
um sótt í þegar við þörfnumst ráð-
legginga, svara eða uppbyggjandi
orða. Frigg sendir okkur til hjálpar,
gleði og yndisauka meyjarnar sextán
sem þjóna henni. Þær benda okkur á
allan þann fjölbreytileika sem líf okk-
ar hefur,“ segir Reynir.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
goðafræðinni og lesið mér mikið til
um goðin og gyðjurnar. Flestir Ís-
lendingar þekkja goðin og læra um
þau, en gyðjurnar eru fleirum sem
lokaður heimur. Við höfum auðvitað
heyrt um Frigg, Freyju, Gefjun og
Sjöfn, en hvað með Gná, Vár, Lofn,
Fullu og Hlín? Eins og ég sagði eru
sextán gyðjur sem þjóna Frigg, og
þær eru tilbúnar að hjálpa okkur.
Frigg verndar síðan óskir okkar og
sér til þess að ekkert standi í vegi fyr-
ir því sem við þurfum að framkvæma
til þess að þær rætist. Þegar ég fyrst
náði sambandi við þær sögðu þær:
„Loksins!“ því þær höfðu beðið lengi
eftir því að ná sambandi við einhvern
á Íslandi.“
Gyðjur í dropum og steinum
Reynir hefur mikið unnið með þau
skilaboð sem gyðjurnar hafa sent
honum. Hann hefur útlagt heila speki
um hverja og eina gyðju, hannað
merki fyrir þær, hreyfingu, spákort
og rúnir. Í rúnirnar notar hann sér-
staka steina sem hann segir bara
finnast á einum stað á öllu landinu, á
Snæfellsnesi. Úr þeim hannar hann
einnig falleg hálsmen. Síðast en ekki
síst blandar hann gyðjudropa sem
hann gefur fólki til hjálpar.
„Droparnir eru unnir á svipaðan
hátt og blómadropar og hafa svipuð
áhrif. Hver dropategund heitir eftir
einni gyðju og orkan er sótt í hennar
stein. Þá liggur viðkomandi steinn í
vatnsblöndunni og við það fyllist
blandan af orku steinsins, og drop-
arnir eru unnir úr henni, líkt og í
blómadropunum þar sem er sótt í
orku jurtarinnar, en ekki jurtina
sjálfa. Gyðjan Lofn hefur t.d. steininn
rauðan jaspis og orkusvið hennar í
líkamanum eru nýrun. Hún kemur til
hjálpar þegar vandamálin snúa að
ákvörðunum, velgengni og þörf fyrir
að losa sig við eitthvað,“ segir Reynir
sem býr greinilega yfir djúpri og ein-
stakri þekkingu.
Leitað eftir svari
Ég vil endilega láta á þetta reyna
og er fljót upp á nuddbekkinn hans
Reynis þegar hann býður mér að
leggjast. Ég loka augunum og nýt
þess að slappa af. Ég heyri að Reynir
tekur tvo steina sem hann slær sam-
an allt í kringum mig, en þannig seg-
ist hann hreinsa andrúmsloftið, ná
upp orkunni og kalla til gyðjurnar.
Heilunin byrjar á því að hann grípur
um fæturna á mér og það er satt að
maður finnur orkuna streyma um lík-
amann. Reynir færir sig síðan upp
eftir líkamanum með því að leggja
lófana á vissa staði og endar á höfð-
inu. Þaðan förum við í lítið ferðalag
og saman svífum við upp í huganum
og hann kynnir mig fyrir gyðjunum.
Reynir tengir við þær og við leggjum
fyrir þær vandamál sem við viljum fá
lausn við. Eftir það förum við aftur
niður og alveg ofan í jörðina, allt inn
að miðju jarðar, og þaðan eiga svörin
að koma. Reynir spyr mig hvað ég
sjái, svörin geti birst í hvaða formi
sem er. Ég sé bara hurð og þegar hún
opnast sé ég manninn minn og dóttur.
Þau faðma mig og biðja mig að koma
með sér. Það geri ég og finn hvað mér
líður vel með þeim. Síðan förum við
Reynir aftur upp. Ég sé ekki alveg
hvernig það sem ég sá er svarið við
spurningu minni, en eftir spjall við
Reyni sé ég hversu rökrétt og aug-
ljóst þetta allt er. Og brosið breikkar
enn meira þegar Reynir laumar að
mér gyðjudropum sem ég á að taka
bæði kvölds og morgna. „Taktu þá
þrisvar sinnum þrjá í hvert skipti.
Ekki níu dropa, það segir mér eitt-
hvað að það séu þrisvar sinnum þrír
dropar,“ segir Reynir sem eflaust er
enn í sambandi við vinkonur sínar,
norrænu gyðjurnar.
Að upplifa jákvæða hluti
En Reynir hjálpar ekki bara fólki,
heldur hjálpar hann líka fólki að
hjálpa sér sjálft með því að halda hin
ýmsu námskeið í nuddi, heilun, gyðju-
hreyfingum og -dansi, áhrifum jurta
og notkun þeirra, þrýstipunktum,
myndlist út frá myndbirtingum og
hugformum og tarot svo fátt eitt sé
nefnt. „Markmiðið er að breyta um-
hverfinu í andlegum málum hér á
landi og í heiminum. Þegar við bara
gefum okkur tækifæri til að upplifa
jákvæða hluti hefur það strax áhrif út
í líf okkar og umhverfi. Þar með byrj-
um við að knýja fram þær breytingar
sem við viljum gera,“ segir Reynir
Katrínar að lokum og lætur mig
draga eitt gyðjukort, og þegar ég les
það bregður mér heldur betur í brún.
Þar stendur svarið við vandamálinu
mínu, grátt á gulu.
Reynir Katrínar situr við eitt málverka sinna.
Gyðjudroparnir á góðum stað með steinum.
Þegar Reynir Katrínar náði fyrst sam-
bandi við gyðjurnar sögðu þær: „Loksins!“, enda
höfðu þær beðið lengi eftir að ná sambandi við ein-
hvern á Íslandi. Hildur Loftsdóttir hitti þann útvalda.
Á Sandgerðisdögum sem verða 6.
og 7. ágúst verður opið hús hjá
Reyni að Uppsalavegi 2. Sími 861-
2004/423-7560.
HEILSA
Norrænu gyðj-
urnar gefa ráð
hilo@mbl.is
KVEF
Sólhattur
virkar ekki
ÉG VIL koma í veg fyrir að ég fái
kvef og flensu – hvað á ég að
gera? Nú, taka sólhatt. Ég er þeg-
ar kominn með kvef – hvað skal
aðhafast? Nú, gleypa sólhatt og
nóg af honum. Eða hvað?
Nei, samkvæmt nýrri rannsókn
er alveg eins gott að láta sólhatt-
inn eiga sig. Jurtin virkar hrein-
lega ekki – hvorki til að lækna
kvef né til að koma í veg fyrir það.
Þetta eru athyglisverðar nið-
urstöður og ganga þvert á al-
mannatrú og aðrar rannsóknir þar
sem virkni sólhattsins er haldið
fram.
Sólhattur hefur verið tekinn, til
dæmis í töfluformi, til að efla
ónæmiskerfið og er langmest not-
aða jurtin á Vesturlöndum. Sól-
hattur var í fyrra notaður af tæp-
lega 15 milljónum Banda-
ríkjamanna eða 40% þeirra sem
nota bætiefni úr jurtum þar í
landi. Hann hefur sömuleiðis notið
mikilla vinsælda hér á landi.
Breytti engu
Hin nýja rannsókn á sólhattinum
var birt í The New England Journ-
al of Medicine fyrir skemmstu.
Kvefvírus var sprautað inn um nef
437 manns. Vikuna á undan höfðu
sumir tekið sólhatt en aðrir töflur
með enga virkni, svokallaða lyf-
leysu. Þátttakendur voru lokaðir
af í 5 daga meðan þeir voru
grandskoðaðir. Í ljós kom að eng-
inn munur var á þeim sem tekið
höfðu sólhatt og hinum. Þeir fyrr-
nefndu voru alveg jafnlíklegir til
að fá kvef og hinir síðarnefndu og
einkennin voru alveg jafnslæm. Til
að kanna virkni sólhatts eftir að
kvef hefur gert vart við sig var
hópi þátttakenda gefinn sólhattur
þegar hann var kominn með vírus-
inn. Samanburðarhópur fékk lyf-
leysu. Í ljós kom að sólhatturinn
skipti engu máli um framgang
kvefsins.
Dr. Ronald B. Turner, sem fór
fyrir rannsakendum, segir nið-
urstöðurnar afar athyglisverðar.
Hópurinn hefði við bestu mögu-
legu kringumstæður reynt að fá
sólhattinn til að virka en hann
hefði einfaldlega ekki gert það.
Aðrir í rannsóknarhópnum sögðu
að æskilegt væri að endurtaka
rannsóknina og þá með öðrum af-
brigðum af sólhatti og öðrum
skammtastærðum. Dr. Turner full-
yrti hins vegar að fólk skyldi
ganga út frá því að sólhattur virk-
aði ekki – þangað til einhver sann-
aði beinlínis að hann gerði það.
Það væri öfugt við það sem fólk
hefði gert hingað til.