Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 23
ERLENDUR Hjaltason, forstjóri Exista ehf., sem er stærsti hluthafinn í Skiptum ehf. með 45% eignarhlut, sagði að þeir væru mjög ánægðir með kaupin á Símanum. „Við skoð- uðum Símann sem fyrirtæki mjög vel og gaumgæfilega og komumst að þeirri nið- urstöðu að þetta verð, sem við buðum, væri sanngjarnt verð fyrir fyrirtækið, bæði fyrir kaupendur og selj- endur og við erum ánægðir með það verð,“ sagði Erlend- ur. „Fyrirtækið er geysilega sterkt, öflugt og gott og á sér mikla framtíðarmöguleika. Við munum setjast niður með stjórnendum og starfs- mönnum félagsins í fram- haldinu og fara yfir hvaða möguleika við sjáum í spil- unum,“ sagði hann enn- fremur. Erlendur sagði að það sem næst gerðist í þessum efnum væri að skrifað yrði undir endanlegan kaupsamning næstkomandi föstudag. Í framhaldi af því myndi Sam- keppnisstofnun fá málið til meðferðar og skera úr um það að þeirra hópur væri hæfur til þess að eignast fé- lagið. Þegar því ferli væri lokið myndu þeir fá fyr- irtækið afhent endanlega og það gæti tekið allt að sjö vik- um. Aðspurður hvort fyrir lægi hvernig staðið yrði að sölu á hlutafé í Símanum til almennings sagði Erlendur að í þeim kaupsamningi sem þeir hefðu gert væri ákvæði um að selja ætti 30% af fé- laginu fyrir árslok 2007. „Við munum auðvitað standa við það. Hvenær það verður gert á því tímabili höfum við ekki ákveðið,“ sagði hann. Hann bætti því við að það væri heldur ekki ákveðið á hvaða verði það hlutafé yrði selt. Það myndi koma í ljós og ylti að sjálfsögðu á því hvernig félaginu vegnaði og fleiri atriðum. „Það eru mjög spennandi tímar framundan. Fjar- skiptasviðið er mjög lifandi og skemmtilegt. Við erum fegnir að þessu ferli er öllu lokið með þessum hætti. Þetta er búin að vera mikil vinna og okkar lið hefur staðið sig geysilega vel í öll- um undirbúningnum,“ sagði Erlendur einnig. Hann sagði að hlut- hafahópurinn væri sam- hentur. Einkavæðingarferlið hefði verið mjög umdeilt í upphafi en eftir að fyrsta boð hefði verið sent inn hefði ver- ið skorið úr um það að nið- urstaðan réðist af því hver ætti hæsta boð í fyrirtækið og önnur sjónarmið myndu ekki hafa áhrif í þeim efnum og þeir gætu ekki annað en verið sáttir við það. Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista ehf., um kaupin Tel verðið sann- gjarnt fyrir báða aðila MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 23 hófst í ársbyrjun 2004 með gerð áreiðanleikakönnunar og verðmats á fyrirtækinu. Var ráðgjafa- og fjármálafyrirtækið Morgan Stanley fengið til að vera ráðgefandi við söluna að undangengnu útboði. Var ákveðið í samræmi við ráðgjöf þess að hafa söluferlið tvíþætt. Var fyrst leitað eftir óbindandi tilboðum og bárust alls fjórtán slík tilboð og stóðu að baki þeim 37 innlendir og erlendir fjárfestar. Tólf af þessum fjórtán uppfylltu skilyrði nefndar- innar og var boðið að taka þátt í síðara stigi söluferlisins, en þá stóð fjárfestunum til boða að kynna sér rekstur Símans betur í gegnum heimsóknir og áreiðanleikakannan- ir og gera á grundvelli þess bind- andi tilboð í Símann. Endanleg nið- urstaða varð sú að þrjú bindandi tilboð bárust frá ofangreindum 17 fjárfestum. Langt og strangt Framkvæmdanefnd um einka- væðingu boðaði til fréttamanna- fundar eftir að niðurstaða tilboð- anna lá fyrir, þar sem meðal annars var farið yfir ýmis atriði í tengslum við söluferlið. Jón Sveinsson sagði að það hefði verið langt og strangt. Hann rifjaði upp að það hefði hafist 1999 og staðið með hléum síðan. Hann sagði að sú upphæð sem fengist fyrir Símann væri að mati framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu góð og þá bæri einnig að líta til þess að fyrr á þessu ári hefðu verið teknir út úr fyrirtækinu 6,3 milljarðar króna í þágu hluthaf- anna sem arður, sem ekki hefði áð- ur verið gert í jafnríkum mæli Jón sagði að nú lægi fyrir af hálfu nefndarinnar, eftir að þessi niðurstaða væri fengin, að ljúka lokafrágangi á kaupsamningi. Hann lægi fyrir í öllum meginatrið- um, en bjóðendur hefðu skilað inn drögum að kaupsamningi í fyrra- dag sem væru árituð af þeim, þann- ig að kaupsamningurinn væri tilbú- inn í grundvallaratriðum. Gert væri ráð fyrir að hann yrði undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu næstkom- andi föstudag og í framhaldi af því gerðu lög um samkeppniseftirlit ráð fyrir því að kaupandinn sendi inn tilkynningu um kaupin. Sam- keppniseftirlitið myndi síðan taka það til sérstakrar skoðunar og kanna hvort einhver samkeppnis- sjónarmið þyrftu að koma til at- hugunar, en framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefði kannað það ásamt lögfræðingum sínum sér- staklega og teldi ekki ástæðu til að ætla að það tefði málið. Að mati nefndarinnar ætti niðurstaða að geta legið fyrir í síðari hluta ágúst- mánaðar og þá hægt að ganga end- anlega frá kaupunum með greiðslu kaupverðs og afhendingu hluta- bréfanna. Jón sagði aðspurður að ýmsar skýringar hefðu komið fram á því af hverju ekkert bindandi tilboð hefði komið frá útlöndum, en hann hefði skynjað það fljótt að erlendir fjárfestar hefðu haft áhyggjur af því að íslensku fjárfestarnir myndu ganga lengra í því að bjóða hátt verð en þeir væru tilbúnir til og þess vegna hefðu þeir ef til vill ekki verið tilbúnir að leggja í þann kostnað og fyrirhöfn sem fylgdi því að fylgja þessu ferli til enda. Önnur skýring gæti verið sú að Síminn væri einfaldlega ekki nógu stórt fyrirtæki fyrir stóra erlenda fjár- festingasjóði og í þriðja lagi kynnu þær takmarkanir sem settar hefði verið varðandi eignarhald að hafa haft neikvæð áhrif á þá. boðin og ganga úr skugga um að þau samrýmdust útboðsskilmálum. Fulltrúar þessara þriggja bjóðenda fóru einnig afsíðis í sérstök her- bergi og biðu niðurstöðu nefndar- innar. Um klukkustundu síðar, þegar framkvæmdanefnd um einkavæðingu hafði lokið athugun á tilboðunum, tilkynnti Jón Sveins- son, formaður nefndarinnar, að fjármálaráðherra sem fer með eignarhlut ríkisins í Símanum, hefði í samráði við ráðherranefnd um einkavæðingu samþykkt tillögu framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu að taka tilboði hæstbjóðanda í hlut ríkisins í Símanum. Jafnframt kom fram að nýjum eigendum væri skylt að uppfylla skilyrði vegna sölunnar um að eng- inn einn einstakur aðili, skyldir eða tengdir aðilar, eignaðist stærri hlut í Símanum en 45% fram að skrán- ingu félagsins í Kauphöllinni og að ekki minna en 30% af heildar- hlutafé félagsins yrði boðið almenn- ingi og öðrum fjárfestum til kaups ekki seinna en fyrir árslok 2007. Yfirstandandi söluferli Símans em send var ð hafði að til- að kaupin hluta lands- þeirra í líf- ss sem stefnt allista Kaup- ta lagi fyrir skráningunni s banka boð- fjárfestum til járfestahóps- ur það jafn- n eigi áfram standa mun bera fyllsta og starfs- er það ljóst s eru undir- rangurs síð- ýrra eigenda framúrskar- skiptavini og mans á fjar- ennfremur. lboðanna fór m einkavæð- fara yfir til- sins í Símanum í stærstu einkavæðingu Íslandssögunnar eða 18% mun- lægsta tilboði >" "7 # 4 8" 9#B # =.  B' # C) # :(" # 8'  # ;&'' # : ' # 9  # 9D #  E CF 4 ( # :7 # 27$ ( # G HE 27 9&'   E A # ; B' #  E : &)'  E :'  &)' )7  '  ("' :  1 !E  E  E !  E 1 HE !  E 1  E ! E G E G E  E ? &   E  I  &)' Morgunblaðið/Sverrir Hjaltason, forstjóri Exista, handsala kaupin. JÓN Sveinsson, formaður framkvæmdanefndar um einkavæðingu, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið vera mjög sáttur við þau tilboð sem bárust í Símann, sér- staklega hæsta tilboðið. „Ég vil ekki segja að þetta sé umfram væntingar, en ef maður ber þetta saman við þau tilboð sem bárust árið 2001 og reyndar þá gagnrýni sem sett var fram á þeim tíma að verðið hefði verið alltof hátt, þá er þetta gott verð. Ég held að það hljóti allir að sjá það í dag að sú ákvörðun sem ríkið tók á þeim tíma að fresta sölunni heldur en að selja á jafn lágu verði og ýmsir töluðu um þá, hafi verið skynsamleg, eink- um í ljósi þeirra tilboða sem komu hér inn í dag,“ sagði Jón. Hann bætti því við, að- spurður, að framkvæmda- nefnd um einkavæðingu hefði lagt sig fram um að hafa ferl- ið eins faglegt og nokkur kostur væri. Reynt hefði ver- ið að hafa ferlið opið og gagn- sætt og hafa bein samskipti við bjóðendur og fjölmiðla þannig að allir væru ná- kvæmlega upplýstir um hvað væri að gerast. „Ég vonast til þess að okkur hafi tekist það. Enn sem komið er, að minnsta kosti, höfum við ekki fengið miklar gagnrýn- israddir út af fyrirkomulag- inu. Það skiptir auðvitað gríðarlega miklu í svona stóru máli að það sé hafið yfir allan vafa,“ sagði Jón. Matskennd atriði afgreidd áður Hann sagði að í þessu til- viki hefði nefndin ákveðið að afgreiða öll svokölluð mats- kennd atriði áður. Þannig hefði legið alveg ljóst fyrir hverjir uppfylltu þær kröfur sem settar hefðu verið og að því frágengnu hefði það ein- göngu verið verðið sem réð úrslitum. Jón sagði að endanlegur frágangur kaupanna, greiðsla kaupverðsins og af- hending hlutabréfanna, biði þess að samkeppniseftirlitið skilaði niðurstöðum sínum í framhaldi af því að kaupand- inn sendi inn tilkynningu um kaupin samkvæmt sam- keppnislögum. Það ætti ekki þurfa að taka mjög langan tíma þar sem hér væri um innlenda aðila að ræða. „Við erum að vonast til þess að það verði núna í síð- ari hluta ágústmánaðar að það takist að ljúka því öllu, þannig að verkefninu verði lokið,“ sagði Jón einnig. Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar Sáttur við til- boðin í Símann dlega ekki nn niðurstöð- ði. „Nei, fyrir mörg- bréfamark- bara önnur málaráð- með sölu- rð sem feng- fyrir hann. mjög ur með það g þetta ferli þróast og að uli hafa bor- na gott til- m við höfum fyllilega ög viðunandi rt verðið sé í ar segir eið að segja hversu hátt skanir voru og lægri. arkaðurinn þessu fyr- Ekkert fyr- irtæki er verðmætara heldur en það sem einhver annar er tilbúinn að borga fyrir það.“ Geir segir að söluferli Símans hafi gengið mjög vel. „Það var vel að því staðið í hvívetna enda höf- um við notið góðrar ráðgjafar bæði frá Morgan Stanley og ýms- um innlendum aðilum. Og einka- væðingarnefndin hefur staðið sig með mikilli prýði í þessu máli.“ un- GUNNLAUGUR Jónsson, ráðgjafi Nýja símafélagsins ehf., segir að hæsta tilboðið í Símann hafi í sjálfu sér ekki komið á óvart. „Maður var í sjálfu sér búinn að gera sér í hugarlund að verðið gæti verið svona hátt, að því leyti kom það ekki á óvart,“ segir hann. Tilboð Nýja símafélagsins hljóðaði upp á rúma 54,6 milljarða króna. Var það 18,03 prósentustigum lægra en hæsta tilboð. Gunnlaugur segir að- spurður að tilboð síns hóps hafi verið það hæsta sem hópurinn hafi verið til í að bjóða, að minnsta kosti í fyrsta tilboði. „Þetta var það sem menn voru til í að bjóða miðað við stöðuna,“ útskýrir hann. Inntur eftir því hvort hópurinn hefði verið til í að hækka tilboðið, ef komið hefði í ljós að hann hefði verið innan við fimm prósentustig- um frá hæsta tilboði segir hann: „Það hefði ef til vill gerst, en það var ekki búið að ákveða það end- anlega.“ Gunnlaugur segist almennt mjög ánægður með einkavæðingu Sím- ans. „Ég held að þetta sé fyr- irtækinu til heilla og þjóðinni allri. Ég vona líka að þetta verði kaup- endunum til heilla og að þeir hagnist vel á þessari fjárfestingu. Ég held líka að seljandinn geti verið mjög ánægður með það sem hann fær og ég vona að hann noti peningana vel í að lækka skatta.“ Gunnlaugur Jónsson Seljandinn geti verið ánægður HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráð- herra segir að niðurstaðan í Símasöl- unni sé mjög jákvæð fyrir ríkissjóð. Söluverðið hafi verið heldur hærra en hann hafi reiknað með. Aðspurður segir hann að það verði rætt innan stjórnarflokkanna á næstu vikum og mánuðum hvernig andvirðinu verði ráðstafað. „Mér finnst niðurstaðan mjög já- kvæð fyrir ríkissjóð,“ segir hann. „Við héldum símafund [í gær], þ.e. ráðherranefnd um einkavæðingu og framkvæmdanefnd um einkavæðingu, þar sem einkavæðing- arnefnd lagði til við fjármálaráðherra og ráðherranefndina að ganga til samninga við hæstbjóð- anda. Fjármálaráðherra féllst á það að höfðu samráði við ráðherranefnd- ina.“ Hann segir að einkavæðing- arnefnd hafi staðið einstaklega vel að málum. „Ég held að allir geti verið ánægðir með það.“ Aðspurður segist hann mjög sáttur við verðið. „Það verður að hafa í huga að það eru jafn- framt teknar yfir verulegar skuldir; yfir sjö milljarðar. Auk þess var arð- greiðslan í ár miklu hærri en venju- legt er, þ.e. milli sex og sjö millj- arðar. Þannig að það er búið að taka nokkurt fjármagn með þeim hætti út úr fyrirtækinu af hálfu ríkissjóðs.“ Inntur eftir því hvað eigi að gera við söluandvirðið segir hann: „Ýmsar hugmyndir eru á lofti. En það er ljóst að þetta styrkir stöðu ríkisins veru- lega og gerir okkur kleift að ráðast í viðfangsefni sem við annars hefðum ekki getað farið í. En það verður fjallað um það á næstu vikum og mánuðum.“ Halldór Ásgrímsson Niðurstaðan jákvæð SJÁ SÍÐU 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.