Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 27 MINNINGAR til lífsins og þeim styrk, réttsýni, dugnaði og sjálfsbjargarviðleitni sem einkenndi hana. Það var alltaf gott og auðvelt að leita til hennar. Okkur er mjög minnistætt hve mikils virði það var að hennar naut við þegar faðir okkar lést fyrir fjórum árum. Amma lifði tímana tvenna og hefur upplifað ýmislegt, og víst er að margt hefur gjörbreyst á hennar lífsleið. Þrátt fyrir það náði hún alltaf að fylgjast vel með því sem var að gerast og það var hægt að tala við hana um allt mögulegt. Hún reyndi m.a.s. að skilja sms-skilaboð og internetið. Það hefur verið fastur punktur í til- verunni að heimsækja ömmu, allt frá því að við vorum litlar og sátum á eld- húsgólfinu hjá ömmu og afa í Espi- gerði og glömruðum á öll eldhúsáhöld heimilisins. Heimili ömmu hefur í gegnum tíðina verið okkur griðastað- ur frá annríki hversdagslífsins og hjá henni ríkti mikill friður og ró. Við sát- um oft og spjölluðum, spiluðum rommí og gæddum okkur á nýbök- uðum pönnukökum. Amma var mikil stoð og styrkur fyrir alla fjölskylduna og öll barna- börnin áttu vísan stað í hjarta hennar. Þau voru ófá skiptin sem hún kveikti á kerti og hugsaði til okkar þegar eitt- hvað sérstakt var um að vera. Einnig dró hún oft fram gömlu landabréfa- bókina til að sjá hvar fólkið hennar var niðurkomið því tíð hafa ferðalögin verið í fjölskyldunni. Hún átti orðið heilmikið safn bréfa og korta sem henni hafa verið send hvaðanæva úr heiminum. Ömmu fannst nauðsynlegt að hafa eitthvað fyrir stafni og hélt þannig huganum gangandi alla tíð. Hún minntist þess oft hvað fötluðu börnin sem hún kenndi voru ánægð þegar þau höfðu eitthvað við að vera. Amma hafði til að bera mjög sérstaka hæfi- leika til ýmiss handverks. Það er ótrúlegt hvað hún allt fram á síðasta dag fann sér eitthvað til dundurs og var þá hvað fallegast það sem kom frá henni sjálfri. Hugur hennar var ótæmandi brunnur hugmynda og hún hafði til að bera sérstaka sköpunar- gleði. Heimili hennar sem og allra í fjölskyldunni bera gott vitni um list- ræna hæfileika hennar og hún skilur eftir sig ógrynni af fallegu og fjöl- breyttu handverki. Elskuleg amma okkar kveður með mikilli reisn eftir að hafa átt langa og góða ævi. Hún var hvíldinni fegin og það er gott að hugsa til þess að nú sé hún komin til afa og pabba. Fyrir hönd móður okkar er starfsfólki Droplaugarstaða þökkuð umhyggja og hlýja. Guð blessi og varðveiti minningu ömmu. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Kristín og Gerður Guðmundsdætur. Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. Í öllum sálmum sínum hinn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Ég vakti oft og bað. Nú hallar helgum degi á Hausaskeljastað. Í gegnum móðu’ og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir drjúpa, og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég krjúpa og kyssa sporin þín. Ég fell að fótum þínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi og verndar hverja rós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós. (Davíð Stefánsson.) Kveðja, Sveinn Rúnar Jónsson og Þorbjörg Jónsdóttir, Hilmar Bjarnason og Guðrún Hilmarsdóttir. ✝ Guðrún Kon-ráðsdóttir fædd- ist á Ytri-Tröð í Eyrarsveit á Snæ- fellsnesi 24. júlí 1918. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 22. júlí síðastlið- inn. Hún var yngsta barn hjónanna El- ísabetar Stefáns- dóttur Hjaltalín, f. 23.7. 1877, d. 11.10. 1966, og Konráðs Jónssonar, f. 18.2. 1883, d. 19.4. 1919. Systkini Guðrúnar voru: Guð- laugur Stefán Hjaltalín, f. 1907, d. 1922, Pétur, f. 1909, d. 2000, Jón, f. 1911, d. sama ár, Olga Fanney, f. 1913, d. 2001 og Guð- berg, f. 1915, d. 1968. Hálfsystir Guðrúnar, sammæðra, var Helga Hjartardóttir, f. 1905, d. 1990. Guðrún giftist 12. júlí 1940 Kristni Guðbrandssyni, f. 24.6. 1911, d. 4. maí 1983, frá Skálm- holti, í Villingaholtshreppi í Ár- nessýslu. Foreldrar hans voru Hólmfríður Hjartardóttir, f. 1873, d. 1945 og Guðbrandur Tómasson, f. 1864, d. 1941. Guð- rún og Kristinn eignuðust þessi börn: 1) Hlöðver, f. 25.1. 1940, maki Hildur Bóasdóttir, f. 4.12. 1941, d. 19.3. 1987, en sonur þeirra er Hermann, f. 1966. Sam- býliskona Hlöðvers er Margrét Eyþórsdóttir, f. 4.8. 1936. 2) El- ísabet Hjaltalín, f. 9.5. 1942, maki Haraldur Henrysson, f. 17.2. 1938, sonur þeirra er Ásgeir Kristinn, f. 1981. 3) Kristín Hólm- fríður, f. 1.5. 1946, maki Victor Knútur Björnsson, f. 18.9. 1946, synir þeirra eru Björn Ingi, f. 1974, Krist- inn Rúnar, f. 1977, Victor Knútur, f. 1981 og Ófeigur Orri, f. 1983. 4) Svavar, f. 31.7. 1960, maki Karólína Sesselja Hróðmars- dóttir, f. 28.2. 1962, börn þeirra eru Andri, f. 1984, Íris Brá, f. 1989 og Bjarki, f. 1995. Barnabarnabörn Guðrúnar eru sjö. Frænka Guðrúnar, Elísabet Hauksdóttir, f. 30.11. 1949, dvald- ist einnig mikið á heimili hennar á barnsaldri, en maður hennar var Gestur Breiðfjörð Sigurðs- son, f. 2.10. 1943, d. 23.3. 2004, og eiga þau fjögur börn. Guðrún og Kristinn bjuggu alltaf í Reykjavík, lengst í Stóra- gerði 18. Á yngri árum vann Guð- rún hjá ullarverksmiðjunni Ála- fossi en síðan helgaði hún sig húsmóðurstörfum. Kristinn starf- aði sem verkamaður, lengst hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- unni Kletti í Reykjavík. Eftir að börnin voru öll komin á legg hóf Guðrún að starfa sem gæslukona á barnaleikvöllum Reykjavíkur- borgar og vann þar í um 15 ár. Síðustu árin, áður en hún flutti að Hrafnistu í Reykjavík 2002, bjó hún í sama húsi og yngsti sonur hennar og fjölskylda hans. Útför Guðrúnar fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. Við fráfall tengdamóður minnar, Guðrúnar Konráðsdóttur, eru horfin á braut öll börn og tengdabörn for- eldra hennar, svo og tengdaforeldra. Það er himinn og haf milli þeirra lífs- skilyrða, sem þessi kynslóð bjó við í uppvexti sínum og þeirra, sem við njótum nú. Þetta minnti Guðrún af- komendur sína oft á, er henni fannst þeir vanmeta þau gæði, er bjóðast í dag. Hún missti föður sinn innan við eins árs aldur og tók móðir hennar þá við búskap, lengst af að Mýrhúsum í Grundarfirði. Má nærri geta að lífs- baráttan var þá oft hörð. Guðrún hugsaði oft til heimahaganna og var henni kappsmál að afkomendur hennar vissu um uppruna sinn og lífs- kjör forfeðranna. Guðrún fór ung til Reykjavíkur í atvinnuleit og vann um hríð við ull- arverksmiðjuna að Álafossi. Þar kynntist hún Kristni Guðbrandssyni, sem varð eiginmaður hennar, og bjuggu þau ætíð í Reykjavík. Vinnu- dagur Kristins var oft erfiður og strangur, en hann var einstaklega ósérhlífinn og samviskusamur í öllum sínum störfum. Heimili þeirra var hlýlegt og fallegt og bar ekki síst vott um natni Guðrúnar og myndarskap. Hún var mikil hannyrðakona og naut heimilið þess. Á seinni árum bar Guð- rún sig eftir því að læra listmálun og leirkeraskreytingu og komu margir fallegir munir frá henni. Meðal ann- ars hnýtti hún teppi með Krists- mynd, er hún gaf Grafarvogskirkju fyrir nokkrum árum og hangir mynd- in uppi í húsakynnum kirkjunnar. Hér skal einnig nefnt að Guðrún var einstaklega hjálpsöm og tók nærri sér ef hún vissi að einhver stóð höllum fæti. Heimili þeirra Kristins stóð ávallt opið bæði vinum og vanda- mönnum og voru þeir æði margir er nutu þess í tímans rás. Á kveðjustund hugsa ég með þakk- læti til tengdamóður minnar fyrir hlýhug og vináttu í minn garð. Hún var og ákaflega umhyggjusöm og ást- úðleg amma og langamma og allt til hins síðasta fylgdist hún vel með hvernig afkomendum hennar vegn- aði. Blessuð sé minning hennar. Haraldur Henrysson. Kæra amma. Ég velti því fyrir mér lengi vel hvað ég ætti að segja til minningar um þig og satt best að segja komu svo margar minningar upp í hugann að ég hreinlega átti erf- itt með að koma því niður á blað. Því miður var ég aðeins 2 ára gam- all þegar við misstum Kristin afa og það eina sem ég hef til minningar um hann er mynd af okkur saman sem hefur átt sinn fasta stað síðan ég man eftir og það mun aldrei breytast. En ég veit ekki hvernig það hefði verið ef ég hefði aldrei fengið að kynnast þér. Á mínum yngri árum fannst mér allt- af hápunktur dagsins ef ég var að fara með foreldrum mínum í heim- sókn til ömmu, tala nú ekki um þegar ég fékk að gista og horfa á hvað sem ég vildi í sjónvarpinu og leika mér með leikföngin mín langt fram á kvöld. Og sömu ánægju sá ég í augum sonar míns þegar hann kom með í heimsókn í Hrísrimann þar sem þú og Svavars fjölskylda bjugguð. Þaðan á ég margar góðar minningar, bæði með þér og Andra og Írisi Brá. Alltaf gafstu okkur barnabörnunum góðar gjafir, þú hugsaðir alltaf um okkur á undan sjálfri þér. Og sama hvaða vandamál komu upp í fjölskyldunni, við gátum alltaf komið til þín og vandamálin hurfu eins og skot, þú lifðir fyrir fjölskylduna, ekki sjálfa þig. Þú settir okkur alltaf í fyrsta, annað og þriðja sæti. Það er ótalmargt sem mig langar til að segja við þig og hefði líklega átt að gera það fyrir löngu, en ég er viss um að þú veist þetta allt saman. En ég vil þó að þú vitir að ég sársé eftir að hafa ekki endurgoldið þér vænt- umþykjuna með því verja meiri tíma hjá þér síðustu ár og sérstaklega núna síðustu mánuði, sem ég veit að voru þér mjög erfiðir. Því ég veit að ef ég lægi rúmfastur vegna veikinda værir þú hjá mér eins mikið og þú gætir. Minning þín mun lifa áfram í mér, Aroni Inga og komandi ættliðum, þín verður sárt saknað, elsku amma mín, vona að þú munir finna hvíld og ró hjá Kristni afa. Ásgeir Kristinn Haraldsson. Ástkær amma mín og verðandi langamma barns míns … Nú þegar þú hefur kvatt þá renna svo margar minningar upp, bæði í huga mér og í daglegu lífi. Málið er að við erum búin að vera saman frá því að ég fæddist. Ég man eftir því þegar við fórum saman út á gæsluvöll og lékum okkur saman í sandkassanum og man hvað við eyddum óhemju- löngum tíma saman á gólfinu í bíla- leik. Þú varst alltaf til í að gera hvaða vitleysu sem mér datt í hug. Svo var ég svo heppinn að þú fluttir á neðri hæðina hjá okkur uppi í Grafarvogi, þar gátum við eytt enn meiri tíma saman. Þú varst ótrúleg, það var sama hvað við vorum mikið saman, þú gast alltaf kennt mér eitthvað nýtt og nytsamlegt. Við gengum saman í gegnum erfiðleika hvors annars og alltaf stóðum við uppi sem sigurveg- arar. En allt tekur enda, en þú verður samt alltaf hjá mér. Amma mín, þegar ég hugsa um setninguna að „ömmur séu englar“ þá veit ég að þetta er satt því þú ert engillinn minn. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku amma þú kenndir mér þessa bæn og ég mun kenna mínum börn- um hana. Nú kveð ég þig með söknuði en veit samt að nú líður þér mikið bet- ur og nú ertu hjá Kidda afa á miklu betri stað. Blessuð sé minning þín. Andri Svavarsson. Elsku amma mín. Það eru svo margar minningar sem við eigum saman sem mér þykir svo vænt um. Ég á aldrei eftir að gleyma þeim. En lífið tekur enda og nýtt líf kemur í staðinn fyrir það líf sem hefur kvatt. Ég veit að þig hefur langað að fara í nokkur ár en guði sé lof að þú fékkst nokkur ár í viðbót hjá okkur. Ég man þegar þú horfðir alltaf á okkur leika okkur í garðinum, þér þótti það svo gaman, og ef einhver meiddi sig komst þú alltaf út að hugga. Þú varst „amman“ í götunni. Þú kenndir mér svo margt, eins og að prjóna og biðja bænir, sem á eftir að gagnast mér alla mína ævi. Ég man þann tíma að ég kom á hverjum degi til þín og allt það sem við gerðum saman, þótt stundum hafi það ekki verið meira en að horfa á sjónvarpið með þér. Ég mun sakna þín alla daga, en veit samt að þú ert hjá mér. Kveðja, Íris Brá Svavarsdóttir. Í dag kveðjum við hinstu kveðju mæta konu, Guðrúnu Konráðsdóttur. Guðrún var gift yngsta föðurbróður mínum, Kristni Guðbrandssyni, sem lést fyrir mörgum árum langt um ald- ur fram. Sá missir var henni mjög erfiður en hún átti börnin sín að ann- ast og jafnframt að styðjast við og líf- ið hélt áfram. Guðrún var greind kona, lífsglöð og orðheppin, hlátur- mild og hafði jákvætt viðhorf til lífs- ins. Hún var falleg kona, ávallt grönn og spengileg og bar sig vel. Ég minn- ist hennar sérstaklega frá yngri ár- um hennar. Þá bjuggum við um ára- bil í sama húsi, sem þeir bræður Kristinn og Friðbjörn faðir minn höfðu byggt sér og fjölskyldum sín- um. Síðar þegar börnin uxu úr grasi keyptu þau Guðrún og Kristinn sér stærra og glæsilegra húsnæði. Þá varð nálægðin ekki eins mikil. Guð- rún var ákaflega ræktarsöm og trygglynd. Það sannaðist þegar faðir minn í hárri elli dvaldist á Eir, dval- arheimili aldraðra. Þá bjó Guðrún í Grafarvoginum hjá syni sínum Svav- ari. Hún lagði það á veikt hjarta að ganga upp á Eir reglulega til að heimsækja mág sinn. Þar hittumst við oft og áttum góðar stundir saman og rifjuðum upp liðna tíð. Margs var að minnast og faðir minn og hún skemmtu sér konunglega við þær upprifjanir. Þessar heimsóknir voru föður mínum afar kærar og styttu honum stundir í þeirri einsemd sem fylgir því að verða gamall og flestum gleymdur. Fyrir þessa ræktarsemi verð ég Guðrúnu ævinlega þakklát. Síðustu árin naut hún umönnunar og umhyggju Elísabetar dóttur sinnar, sem var henni alltaf afar kær og náin. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem.) Blessuð sé minning Guðrúnar Konráðsdóttur. Hólmfríður Friðbjörnsdóttir. GUÐRÚN KONRÁÐSDÓTTIR Elsku amma. Nú ertu komin til Kidda afa. Guð og englarnir passi ykkur bæði. Þinn Bjarki. HINSTA KVEÐJA Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem á einn eða annan hátt auðsýndu okkur samúð, styrk og nærveru við fráfall sonar okkar og bróður, ÞORSTEINS VÍÐIS VALGARÐSSONAR, Hringbraut 114, Reykjavík. Valgarður Ármannsson, Elínborg J. Þorsteinsdóttir, Margrét S. Valgarðsdóttir, Einar Ármann Valgarðsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, sonur, bróðir og mágur, ÞÓRÐUR JÓN GUÐLAUGSSON fv. útibússtjóri Sparisjóðs Norðfjarðar á Reyðarfirði, Ljárskógum 5, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 23. júlí sl., verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði miðvikudaginn 3. ágúst kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á hjúkrunarþjónustuna Karitas, sími 551 5606. Brynhildur Garðarsdóttir, Gunnar Ármannsson, Margrét Gunnarsdóttir, Guðlaugur Jón Þórðarson, Erna Mjöll Grétarsdóttir, Helgi Þórðarson, Anna Ósk Óskarsdóttir, Fjóla Hreindís Gunnarsdóttir, Gabríel Ingi Helgason, Gunnar Þór Bergsson, Guðlaugur B. Þórðarson, Sjöfn Lára Janusdóttir, Janus Guðlaugsson, Sigrún Knútsdóttir, Kristinn Guðlaugsson, Hanna Ragnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.