Morgunblaðið - 29.07.2005, Síða 36

Morgunblaðið - 29.07.2005, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING www.kringlukrain.is sími 568 0878 „Labbi í Mánum“ ásamt hljómsveitinni Karma í kvöld Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 30. júlí kl. 12.00: Anne Kirstine Mathiesen, orgel 31. júlí kl. 20.00: Danski organistinn Anne Kirstine Mathisen leikur m.a. verk eftir Bach og Widor. Sumartónleikar í Skálholtskirkju www.sumartonleikar.is 29.7. kl. 20:00 Oddsstofu, Skálholtbúðum: Dean Ferrell flytur verk e. T. Hume o.fl. 30.7. kl. 14:00 Erindi í Skálholtsskóla: Steinunn Stefánsdóttir fjallar um Boccherini kl. 14:55 Tónlistarsmiðja unga fólksins kl. 15:00 Bachsveitin í Skálholti u. stj. Jaap Schröder. Einsöngvari: Eyjólfur Eyjólfsson Aðall og alþýða, England á 17. öld kl. 17:00 Djúpstrengjahópurinn Lilja Verk e. Boccherini, Haydn og Wagenseil kl. 21:00 Bachsveitin í Skálholti Einsöngvarar: Hlín Pétursdóttir, Marta G. Halldórsdóttir og Eyjólfur Eyjólfsson Stabat Mater eftir L. Boccherini 31.7. kl. 15:00 Bachsveitin í Skálholti Endurtekin dagskrá frá laugardegi kl. 15:00 kl. 17:00 Guðsþjónusta Önd mín og sála upp sem fyrst í úts. Þóru Marteinsdóttur frumflutt. Einnig flutt tónlist af tónleikum helgarinnar. 1.8. kl. 15:00 Stabat Mater eftir L. Boccherini Endurtekin dagskrá frá laugardegi kl. 21:00 Hjónin og listamennirnir Ás-mundur Ásmundsson ogGunnhildur Hauksdóttir eru búsett og starfandi í Berlín. Þar hafa þau fengið mikinn inn- blástur, eru dugleg við sýning- arhald bæði hér heima og erlendis. Í dag opna þau hvort sína sýn- inguna í galleríi Kling & Bang og þeir sem ekki yfirgefa borgina um helgina geta því skellt sér á glað- lega og sumarlega blöndu í gall- eríinu við Laugaveginn. Gunnhildur útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2002 og er þessa dagana að ljúka námi í Sandberg Institute of Fine Arts í Amsterdam í Hollandi. Innsetningar hennar bera yf- irskriftina Pelabörn þar sem hún blandar saman skrítnum en líf- legum fígúrum og ljósatúttum við kvikmyndainnsetningu.    Ég hef í einhvern tíma haftáhuga á fyrirbærinu barn sem myndlíkingu og stundum finnst mér fullorðið fólk vera eins og börn,“ segir Gunnhildur en hún byrjaði að fást við móðurfyrirbærið í hinum ýmsu myndum fyrir þrem- ur árum og sýndi skúlptúrinn Me- ditation Mama á alþjóðlegri sýn- ingu í Amsterdam. Þaðan færði hún sig yfir í smábörn og mjólkurpela „Tútturnar vitna kannski í það að fólk sýgur í sig listina,“ útskýrir Gunnhildur þegar hún er innt eftir þýðingu eins verksins þar sem mjólk flæðir um rýmið út úr lampa- pelum. Hún segist þó vilja skapa list án þess að vera með eitthvað ákveðið í huga. „List þarf ekki alltaf að segja eitthvað við samfélagið og ég vil að fólk finni það hjá sjálfu sér hvað verkin tákna,“ segir Gunnhildur. Ásmundur kallar sinn sýning- arhluta G.A.M.A.N og segir að með sýningunni sé hann að gleðja þjóð- ina með ýmsum hætti og falleg bros, velmegun og eintóm gleði er við völd í verkum hans.    Ásmundur fyllir kjallara gallerís-ins af stuttermabolum í stærð 10XL og prýða glaðlegir karlar bol- ina. Listamaðurinn segir stærð bol- anna merkja ákveðna velmegun sem er til staðar í þjóðfélaginu. „Það má alltaf bæta við gleðina hjá fólki og ég vil að það slaki svo- lítið á,“ segir Ásmundur um verkin á sýningunni. Þau eru svipuð því sem hann hef- ur unnið að áður en samt vill Ás- mundur forðast að endurtaka sig heldur halda leið sinni á listabraut- inni áfram. Ásmundur vill einnig koma því á framfæri með verkum sínum að vel- gengnin er ekki einungis fallvölt heldur líka ógæfusemin.    Hjónatvíeykið mun varpa gjörn-ingi á vegg gallerísins á opn- uninni í dag sem önnur hjón ættu ekki að missa af. Hvorki Ásmundur né Gunnhildur fást þó til að segja meira um þá uppákomu. Litaglöð skrípavélmenni og flæð- andi mjólk munu eflaust fá hugann á skrið og það er ýmislegt sem fólki dettur eflaust í hug þegar það skoð- ar verk Gunnhildar. Barnslegt sak- leysi er horfið og svolítið ógnvæn- leg börn komin í stað þess. Í Kjallaranum er gleðin við völd þó svo að hún geti einnig virkað svolítið yfirgnæfandi á köflum. Sýningargestir ættu að geta velt fyrir sér þýðingu fígúra og stutt- ermabola í yfirstærð í Kling & Bang fram til 21. ágúst. G.A.M.A.N. hjá Pelabörnum ’List þarf ekki alltaf aðsegja eitthvað við sam- félagið og ég vil að fólk finni það hjá sjálfu sér hvað verkin tákna.‘ AF LISTUM Vala Ósk Bergsveinsdóttir Morgunblaðið/Jim Smart „Fólk sýgur í sig listina,“ segir Gunnhildur Hauksdóttir. valaosk@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart „Það má alltaf bæta við gleðina hjá fólki,“ segir Ásmundur Ásmundsson. ÞAÐ verður að venju margt um að vera í Skálholtskirkju um helgina, í tengslum við Sumartónleikana sem haldnir eru í kirkjunni á hverju sumri. Í kvöld verða fyrstu tónleikar helg- arinnar haldnir, þar sem Dean Fer- rell, kontrabassa- og víólóneleikari, leikur dagskrá með verkum eftir Tobias Hume, Erik Satie, sjálfan sig og fleiri. Tónleikarnir fara fram í Oddsstofu í Skálholtsbúðum, en ein af nýjungunum Sumartónleikanna í ár er að bjóða upp á tónleika á þessum stað á virku kvöldi. Aðrir tónleikar helgarinnar fara fram í Skálholts- kirkju samkvæmt venju. Lilja og Stabat Mater Á morgun hefst dagskráin með fyr- irlestri í Skálholtsskóla kl. 14, en þá mun Steinunn Stefánsdóttir sellóleik- ari fjalla um tónskáldið Luigi Bocc- herini. Fyrstu tónleikar laugardags- ins hefjast kl. 15 í kirkjunni. Þar verður flutt efnisskrá undir yf- irskriftinni „Aðall og alþýða – Eng- land á 17. öld“, þar sem leikin verða verk eftir tónskáldin William Lawes, Tobias Hume og Nicholas Lanier. Bachsveitin í Skálholti og Eyjólfur Eyjólfsson tenór flytja, en leiðari er Jaap Schröder. Á öðrum tónleikum laugardagsins, sem hefjast kl. 17, flytur djúp- strengjahópurinn Lilja efnisskrá sem ber heitið „Boccherini ungur að árum og áhrifavaldar hans“. Að þessu sinni skipa fjórir djúpstrengjaleikarar Lilju þrjú selló og víólóne, og flytja þau verk eftir Boccherini, F.J. Haydn og G.C. Wagenseil. Einleikarar á tón- leikunum eru Hanna Loftsdóttir og Steinunn Stefánsdóttir sellóleikarar. Á laugardagskvöld hefjast tón- leikar í kirkjunni kl. 21. Þá flytur Bachsveitin í Skálholti Stabat Mater eftir Boccherini. Leiðari er Jaap Schröder og einsöngvarar í verkinu eru Hlín Pétursdóttir sópran, Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran, og Eyjólfur Eyjólfsson tenór. Verk Þóru Marteinsdóttur Fyrstu tónleikar sunnudagsins hefjast kl. 15. Þá verða tónleikarnir „Aðall og alþýða – England á 17. öld“ endurfluttir. Í messu kl. 17 sama dag frumflytur Bachsveitin í Skálholti, ásamt Hlín Pétursdóttur, Mörtu Guðrúnu Hall- dórsdóttur og Eyjólfi Eyjólfssyni, sálminn Önd mín og sála upp sem fyrst í útsetningu Þóru Marteins- dóttur, en hún er eitt af stað- artónskáldunum í Skálholti í ár. Á mánudag kl. 15 verða síðan loka- tónleikar helgarinnar, en þá verður Stabat Mater endurflutt af sömu flytjendum og daginn áður. Tónlist | Fimmta tónleikahelgin í Skálholtskirkju Boccherini í Skálholti Marta Guðrún Halldórsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson og Hlín Pétursdóttir. Bachsveitin sem leikur í Skálholti á laugardag og sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.