Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd með ensku tali.
með ensku tali
-KVIKMYNDIR.IS
DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 b.i. 12
Madagascar enskt tal kl. 6 - 8 og 10
Elvis has left the building kl. 8 og 10
Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12
Voksne Mennesker kl. 5.45
-S.V. Mbl.
-Steinunn/
Blaðið
MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM
JENNIFER CONNELLY
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR
FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
SUMAR RÁÐGÁTUR BORGAR
SIG EKKI AÐ UPPLÝSA
I I
Nýjasti teiknimyndasmellurinn
frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.
Sýnd bæði
með íslensku
og ensku tali.
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR
DRAUGATRYLLIR
FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM
WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
HÁDEGISBÍÓ
EFNT var til blaðamannafundar í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum á miðvikudag-
inn vegna fyrirhugaðra tónleika Stuðmanna
annað kvöld. Stuðmenn mættu einn af öðrum
í ósköp eðlilegum ham, köstuðu kveðju á þá
sem þarna voru mættir en gengu svo inn í
kaffiteríuna inn af salnum. Sjálfsagt að fá sér
einn bolla áður en fundurinn hæfist, þó að
undirritaður hefði sjálfur kosið íspinna í
þessari hitasvækju. Stuttu síðar komu Stuð-
menn aftur fram en hvorki sást rjúkandi
kaffibolli né bráðnandi íspinni í hendi, hins
vegar höfðu Stuðmenn í tilefni af fundinum
brugðið sér í litríkar Hawaii-skyrtur og höf-
uð þeirra prýddu forláta deraugu sem ku
vera nýjasta nýtt og framleitt af uppfinn-
ingamanni norður á Ólafsfirði.
Það er orðið frægt þegar Stuðmenn héldu
fjölmennustu útihátíðina í fyrra um versl-
unarmannahelgina og skutu þar öðrum gam-
algrónum drykkjuhátíðum ref fyrir rass.
Heiðursgesturinn á þeirri hátíð var gamla
blúsbrýnið Long John Baldry en hann lést
sviplega í síðustu viku og eru tónleikarnir í
ár því tileinkaðir honum.
Í ár verður annar heiðurs-leynigestur á
tónleikum Stuðmanna og þann leynigest þarf
vart að kynna í sömu andrá og tónlist Stuð-
manna er leikin. Valgeir Guðjónsson heitir
maðurinn en hann mun nú koma fram í
fyrsta sinn opinberlega með upphaflegum
meðlimum Stuðmanna, þeim Gylfa Krist-
inssyni, Ragnari Daníelssyni og Jakobi Frí-
manni Magnússyni. Þá mun Valgeir einnig
leika nokkur valin lög með núverandi lið-
skipan Stuðmanna.
Eins og áður sagði lék veðrið við gesti
Fjölskyldu- og húsdýragarðsins svo að það
var fljótt afráðið að ljósmynda sveitina utan-
dyra. Stuðmenn stilltu sér upp með Parísar-
hjólið í baksýn, því næst við hringekjuna og
að lokum var brugðið á leik við glænýtt leik-
tæki sem kallast Þrumufleygurinn en það
mun vera nýtísku-útgáfa af skotbökkunum –
leiktæki sem allflestir hafa einhvern tímann
á lífsleiðinni sakað um vélræði.
Tónlist | Stuðmenn leika ásamt Valgeiri Guðjónssyni í Laugardalnum
Stuðmenn endurtaka leikinn
um verslunarmannahelgina
Ljósmynd/Thorsten Mann
Stuðmenn héldu stærstu útihátíð síðasta árs. Nú mæta þeir aftur til leiks, vopnaðir deraugum og í litríkum Hawaii-skyrtum.
Laugardagurinn 30. júlí. Fjölskyldu- og hús-
dýragarðurinn verður opinn frá kl. 10 til 23.
Tónleikar Stuðmanna hefjast kl. 21. Aðgangs-
eyrir er kr. 500.
hoskuldur@mbl.is
Á MÁNUDAGINN kom út geislaplatan
100% sumarást.
Það er útgáfufyrirtækið 21 12 Cult-
ure Company sem gefur plötuna út en
hún er safnplata sem inniheldur sextán
íslensk topplög um ástina og lífið. Lög-
in eiga það líka öll sameiginlegt að
vera eigi yngri en frá árinu 2000. Plat-
an kemur bæði út í íslenskum og ensk-
um umbúðum en þær ensku munu
einkum vera ætlaðar ferðamönnum.
Samúel Kristjánsson, útgáfustjóri 21 12
CC, segir að þótt platan beri nafnið
100% sumarást séu ekki einungis ást-
arlög á safnplötunni. „Þarna er til
dæmis lagið Ævintýri eftir Valgeir
Guðjónsson og önnur sem væru betur
skilgreind sem ástarlög til lífsins, ef
svo mætti segja.“
Þeir söngvarar sem þenja radd-
böndin á plötunni eru ekki heldur af
verri endanum. Þeirra á meðal eru
Guðrún Gunnarsdóttir, Margrét Eir,
Helgi Björnsson, Jón Ólafsson og Þór-
unn Antonía auk fyrrgreinds Valgeirs
Guðjónssonar og annarra landskunnra
tónlistarmanna.
Ástin og
lífið