Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
NIÐURGREIÐSLUR Trygginga-
stofnunar ríkisins (TR) vegna lyfja
við ofvirkni og athyglisbresti jukust
um 70% milli áranna 2003 og 2004
eða um 64 milljónir. Lyfið concerta
er mest notað núna en rítalín í
minnkandi mæli. Heildarkostnaður
TR vegna þessara lyfja var því um
157 milljónir á síðasta ári.
Matthías Halldórsson, aðstoðar-
landlæknir, segir að mestur kostn-
aðurinn sé við ný og betri, langverk-
andi lyf. „Það góða við þau er að það
þarf ekki að taka þau nema einu
sinni á dag. Krakkar geta fengið lyf-
ið á morgnana og þurfa því ekki að
taka það inn í skólanum sem oft
skapaði vandræði,“ segir Matthías
og bætir við að helsti kosturinn við
þessi nýju lyf sé að þau séu síður
misnotuð. „Rítalínið er misnotað
nokkuð mikið en nýja lyfið er lang-
verkandi og veitir því ekki sömu
áhrif,“ segir Matthías og vísar til
þess að fíkniefnaneytendur sæki oft í
rítalín til að leysa það upp og sprauta
í æð en það sé ekki hægt með con-
certa.
Ofvirkni og athyglisbrestur
kostuðu TR 157 milljónir
Lyfjanotkun eykst | 8
BÓNDI á Vatnsenda í Eyjafirði fann nýver-
ið sprengikúlu frá stríðsárunum í vegkant-
inum einn kílómetra frá bæjarhúsunum.
Hann taldi að kúlan gæti reynst hættuleg
svo að hann kom henni í hendur lögregl-
unnar á Akureyri. Lögreglan á Akureyri
hafði þá strax samband við sprengjudeild
Landhelgisgæslunnar sem sendi tvo
sprengjusérfræðinga til að eyða kúlunni.
Við athugun sprengjusérfræðinganna á
staðnum þar sem kúlan fannst og miðað við
ástand kúlunnar er líklegast að hún hafi
borist þangað með malarefni sem notað var
í viðgerð á veginum. Við frekari athugun
kom í ljós að malarefnið var tekið úr árbotni
við Melgerðiseyri en þar var stór herflug-
völlur í seinna stríði.
Um var að ræða bandaríska sprengju-
kúlu af gerðinni M54 með hlaupvídd 37 mm
sem var notuð í loftvarnabyssur. Sprengju-
sérfræðingar Landhelgisgæslunnar vara
fólk við að snerta hluti sem gætu hugsan-
lega verið sprengjur. Hafa skal samband
við lögreglu eða Landhelgisgæsluna ef tor-
kennilegir hlutir, sem gætu reynst vera
sprengjur, finnast.
LHG/Adrian King
Bóndi fann
sprengju
í veg-
kantinum
„HELSTU vonbrigðin í ár, að minnsta
kosti innan ráðuneytisins, er hversu marg-
ir skiluðu ekki inn framtali,“ segir Marí-
anna Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu. „Tossarnir“ voru um
13.000 í ár en um 10.000 í fyrra. „Hluti af
skýringunni liggur líklega í hinum mikla
fjölda útlendinga sem nú starfa í umdæmi
skattstjórans á Austurlandi,“ segir Marí-
anna um ástæður. Þeim sé ætlað að skila
framtali en geti, vegna vanþekkingar, lent
í að skila of seint. „Því miður virðist þó
líka hafa aukist að menn skili ekki á rétt-
um tíma.“
Framtaldar eignir heimilanna voru tæp-
lega 2.000 milljarðar króna í lok árs 2004
og höfðu þá aukist um 15,4% frá árinu áð-
ur. Skuldir höfðu hins vegar aukist um
15,2% frá fyrra ári.
Í dag munu skrár um álagningu op-
inberra gjalda liggja fyrir hjá skatt-
stjórum og er öllum frjálst að skoða
skrárnar. | 4
Þrettán þús-
und tossar
SAMANLAGÐUR hagnaður
bankanna á fyrri helmingi ársins
nam tæplega 54 milljörðum
króna og er hann ríflega 8,6
milljörðum hærri en hagnaður
þeirra á öllu síðasta ári. Á fyrri
hluta síðasta árs var hagnaður
bankanna tæplega 23,9 milljarð-
ar og hefur afkoman því batnað
um 136% á milli ára.
Sé einungis litið til viðskipta-
bankanna þriggja var hagnaður-
inn 46,334 milljarðar króna sem
er 16 milljónum króna meira en
hagnaður allra bankanna á síð-
asta ári.
Mest munar um hagnað KB
banka sem á fyrri helmingi árs-
ins nam 24,8 milljörðum króna.
KB banki birti sex mánaða upp-
gjör sitt í gær og sló þar með
tæplega vikugamalt Íslandsmet
Burðaráss í hagnaði, en hagn-
aður Burðaráss á fyrri helmingi
ársins nam 24,5 milljörðum.
Hagnaður KB banka á öllu síð-
asta ári var tæplega 15,8 millj-
arðar króna.
Landsbanki Íslands birti einn-
ig sex mánaða uppgjör sitt í gær
og var hagnaður bankans á fyrri
hluta ársins ríflega 11 milljarðar
króna. Hagnaður bankans á öllu
síðasta ári var 12,7 milljarðar.
Samhliða miklum hagnaði og
útrás bankanna hafa eignir
þeirra vaxið verulega á tíma-
bilinu. Við lok síðasta árs námu
heildareignir bankanna tæplega
3.085 milljörðum (3 billjónum)
króna en í lok júní síðastliðins
námu eignir þeirra tæplega 4.377
milljörðum (4,377 billjónum)
króna. Þannig hafa eignir bank-
anna aukist um tæplega 44% á
hálfu ári. Þess ber að geta að yf-
irtaka KB banka á breska bank-
anum Singer & Friedlander er
ekki tekin með í þetta dæmi.
Bankarnir högnuðust
um 54 milljarða króna
28
( ( ? ( :
'
( !
H
G
H! GH
C'
>
'
!
H
KB banki slær | 11
OLÍUFÉLÖGIN þrjú, ESSO (Ker), Olís og
Skeljungur, hafa höfðað mál á hendur Sam-
keppniseftirlitinu þar sem sú krafa er gerð að
úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála
um samráð olíufélaganna frá því 31. janúar sl.
verði ógiltur eða sektir lækkaðar.
Heimir Örn Herbertsson, lögmaður sam-
keppnisráðs, kvaðst í samtali við Morgunblaðið
hafa tekið við stefnunum frá olíufélögunum. Ker
hf. þingfesti sitt mál í lok júní en Skeljungur og
Olís munu þingfesta sín mál 13. september. Þá
fær lögmaður samkeppnisyfirvalda frest til að
skila greinargerð. Heimir vildi að öðru leyti
ekki greina frá efni stefnanna.
Félögin þrjú munu ekki sýna fjölmiðlum
stefnurnar eða greinargerðir sem þeim fylgja.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er í
stefnunum gerð sú aðalkrafa að ákvörðun sam-
keppnisráðs verði ógilt og til vara að sektir verði
lækkaðar. Fyrir þessum kröfum séu færð þau
rök að málsmeðferðarreglur hafi verið brotnar
og mannréttindi félaganna og starfsmanna
þeirra ekki virt. Þá sé því einnig haldið fram að
þrátt fyrir mikið samneyti félaganna hafi þau
ekki hagnast af því og viðskiptavinir að sama
skapi ekki orðið fyrir tjóni. Þetta eigi sér stuðn-
ing í gögnum félaganna, en þar sé ekkert að
finna sem bendi til þess að þau hafi hagnast á
samneytinu.
Áfrýjunarnefndin dæmdi olíufélögin til að
greiða samtals 1.505 milljónir í sekt sem skipt-
ust þannig að ESSO greiddi 495 milljónir, Olís
560 milljónir og Skeljungur 450 milljónir króna.
Olíufélögin höfða mál vegna
úrskurðar áfrýjunarnefndar
Eftir Árna Helgason og Guðna Einarsson
arnihelgason@mbl.is | gudni@mbl.is
UNGLINGALANDSMÓTIÐ 2005
er haldið í Vík í Mýrdal um
helgina og voru gestir að
hreiðra um sig á tjaldstæðunum
í gærkvöldi. Að sögn Sædísar
Ívu Elíasdóttur, formanns móts-
nefndar, hafa um eitt þúsund
keppendur skráð sig til leiks og
sagði hún góða stemningu á
svæðinu. Mun fleiri gestir voru
mættir en hún átti von á á
fimmtudagskvöldi. Einhverjir
hafa hugsanlega lagt snemma af
stað til að vera á undan mestu
umferðinni, en búast má við
þungri umferð á vegum landsins.
Sædís sagði hæglætisveður í Vík
en góð veðurspá er fyrir
helgina.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Kristín Björnsdóttir og Erna Jónsdóttir skemmta sér vel á unglingalandsmóti í Vík í Mýrdal.
Um eitt þús-
und manns
mætt í Vík
Fiðringur í ferðalöngum | 6
♦♦♦