Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 219. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Ferskar og frjóar Sigríður og Ólöf eru skapandi glerlistakonur | Daglegt líf Dúmbó kveikjan Klara Kristín Arnaldsdóttir kennir Disney-áfanga í MH | 21 Íþróttir í dag Sautján sigrar í röð og met hjá FH  Guðjón skoraði 17 gegn Hamm  Halldór Jóhann til liðs við Essen Jerúsalem. AP. AFP. | Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, segir það þungbært að loka gyðingabyggðum á Gaza-svæðinu, en um leið nauðsyn- legt skref til að tryggja örugga fram- tíð Ísraelsríkis. „Við getum ekki haldið Gaza-svæð- inu að eilífu … Það að við tökum þetta skref er merki um styrk okkar, ekki veikleika,“ sagði forsætisráðherrann í sjónvarpsávarpi í gær. Sagðist hann skilja angist og mótmæli þeirra sem andvígir eru brotthvarfinu og hét stuðningi við þá sem yfirgefa heimili sín sjálfviljugir. „Með Guðs hjálp verður þetta veg- ur sameiningar en ekki sundrungar. Vegur gagnkvæmrar virðingar en ekki fjandskapar milli bræðra. Vegur skilyrðislauss kærleika en ekki ástæðulauss haturs,“ sagði hann. Með því að loka gyðingabyggðun- um dragi úr ágreiningi gyðinga og Palestínumanna og fórnarlömbum beggja þjóða fækki. Palestínumenn verði nú að „berjast gegn hryðjuverkasamtökum, rífa nið- ur skipulagsgerð sína og sýna einlæg- an friðarásetning“ til að sýna fram á að Ísraelar afhendi Gaza í ábyrgar hendur manna sem séu færir um að stuðla að lýðræði. Velji Palestínu- menn áfram leið ófriðar verði þeim svarað af meiri hörku en nokkru sinni áður. Ekki kom til alvarlegra átaka vegna brottflutningsins í gær en um 40.000 ísraelskir her- og lögreglu- menn voru að störfum til að tryggja að allt færi friðsamlega fram. Land- tökumenn höfðu þó víða safnast sam- an til að sýna óánægju með brott- flutninginn. Talsmenn þeirra segja að þeim finnist stjórnvöld í Ísrael hafa svikið sig. Palestínumenn fögnuðu ákaft í gær, en þetta er í fyrsta sinn sem Ísr- aelar yfirgefa gyðingabyggðir á pal- estínsku landi frá því þeir tóku sér þar land í sex daga stríðinu árið 1967. Brottflutningur þung- bær en nauðsynlegur  Sharon segir Palestínumenn þurfa að sýna einlægan ásetning um frið Reuters Ísraelskur landtökumaður situr á þaki húss síns í Neve Dekalim. Í bakgrunni má sjá ísraelska lögreglumenn. Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur jse@mbl.is  Hafa tvo sólarhringa | miðopna Bagdad. AP. | Íraska þingið sam- þykkti í gær að frestur til að samþykkja drög að stjórnar- skrá yrði framlengdur til 22. ágúst. Stefnt hafði verið að því að klára drögin fyrir miðnætti í gær, en enn var ágreiningur um nokkur efnisatriði. Sjítar, súnnítar og Kúrdar virtust hafa náð samkomulagi um atriði á borð við olíutekjur og nafn á landið er líða tók á kvöldið. Eftir stóðu þó umdeild- ustu atriðin sem eru sam- bandsstjórnarstefna, réttindi kvenna, hlutverk íslam og möguleg sjálfstjórn Kúrda í eigin málum. Það að ekki skyldi nást sam- komulag í gær er ákveðinn ósigur fyrir Bandaríkjaforseta, en hann hafði ýtt á eftir því að stjórnarskráin yrði tilbúin fyrir þann tíma. Jalal Talabani, forseti Íraks, sagði þó mikilvægt að stjórn- arskráin yrði unnin þannig að vel væri gengið frá hverju ein- asta atriði svo að öll íraska þjóðin gæti staðið heil að baki allri stjórnarskránni. „Við meg- um ekki vera fljótfær í að af- greiða ágreiningsefnin svo stjórnarskráin verði ekki and- vana fædd,“ sagði hann. Stjórn- arskrá frestað um viku EITT af ákæruatriðunum í Baugsmálinu lýtur að viðskiptum og færslum á hlutafé í Baugi hf. fyrir 330,8 milljónir sem í bókhaldi Baugs var skráð að hefði verið selt Kaupþingi. Um er að ræða bókfært verð en nafnverð hlutafjárins var 40 milljónir. Ríkislögreglustjóri telur á hinn bóginn að Baugur hafi ekki selt bréfin og að þeim hafi verið ráðstafað í nafni Baugs í Lúx- emborg, m.a. til að greiða nokkrum af æðstu stjórnendum félagsins. Þá hafi meðferð á þess- um fjármunum verið rangfærð í bókhaldi og dul- in með færslum sem tilteknar eru í ákærunni. Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson neita sök og í athugasemdum þeirra segir að Baugur hafi ekki haft formlegt eignarhald á bréfunum. Einnig benda þeir á að skattrann- sóknarstjóri hafi ekki séð ástæðu til að gera at- hugasemdir við umræddar færslur. Rangar og tilhæfulausar færslur Jóni Ásgeiri og Tryggva er gefið að sök að hafa fært eða látið færa rangar og tilhæfulausar færslur um viðskiptin með hlutaféð. Um var að ræða svokölluð eigin hlutabréf í Baugi, þ.e. hlutafé sem félagið átti í sjálfu sér. Samkvæmt ákæru var fært í bókhald að hlutaféð hefði verið fært til vörslu hjá Kaupthing Bank Luxem- bourg, eins og um sölu hefði verið að ræða en bréfin hefðu í raun og veru áfram verið í eigu Baugs. Handskrifuð og óundirrituð fyrirmæli Í ákærunni eru tilteknar fjórar bókhalds- færslur vegna þessara viðskipta. Sú fyrsta er dagsett 30. júní 1999 með skýringunni „Hluta- bréf í Baugi seld Kaupþingi“ og er upphæðin 330,8 milljónir. Upphæðin er tekjufærð á reikn- ingi hjá Kaupþingi en gjaldfærð af biðreikningi í eigu Baugs. Næst er tilgreind færsla með text- anum „Kaupþing“ frá 7. júlí þar sem Kaupþing færir nákvæmlega helming þessarar fjárhæðar (tæplega 165,4 milljónir) af reikningi Kaupþings inn á tékkareikning Baugs hjá SPRON. Færsl- an er byggð á fyrirmælum, án skýringa, og á handskrifuðu, ódagsettu og óundirrituðu bréfi en með árituðu nafni Tryggva Jónssonar. Hið sama á við um næstu tvær færslur sem nefndar eru í ákærunni. Daginn eftir, þ.e. 8. júlí 1999, eru tæplega 21,6 milljónir færðar af tékkareikn- ingnum hjá SPRON yfir á biðreikning Baugs, hinn sama og hlutabréfin voru seld frá rúmlega viku áður. Textinn er sem fyrr „Kaupþing“. Næsta færsla sem er tilgreind í ákærunni er af biðreikningnum og eignfærð sem „annar fyr- irframgreiddur kostnaður“. Færslan er dagsett 30. júní 2001 með textanum „Kaupþing fært á fyrirframgreiddan kostnað“. Upphæðin er ná- kvæmlega sú sama og var færð á biðreikninginn hinn 8. júlí 1999 eða tæplega 21,6 milljónir. Hvorki stórkostlegt gáleysi né ásetningur Í athugasemdum sakborninga segir að sam- kvæmt lögum í Lúxemborg hafi Kaupþing kom- ið fram sem eigandi gagnvart þriðja aðila. Baug- ur hafi ekki haft formlegt eignarhald á þeim verðmætum sem stóðu inni á reikningnum held- ur hafi þau staðið til fullnustu á kröfum bankans vegna lána til Baugs sem fóru í gegnum reikn- inginn. Í bréfi Jóns Ásgeirs til ríkislögreglustjóra frá 30. júní 2005 ræðir hann um þær ásakanir að hann hafi stofnað vörslureikning í Lúxemborg og fært þangað hlutabréf í Baugi án þess að gera grein fyrir því í bókhaldi eða ársreikningum Baugs. Þar segir að umrædd hlutabréf hafi ver- ið vegna samningsbundinna kaupréttarákvæða hans, Tryggva Jónssonar og Óskars Magnús- sonar. Samkvæmt ráðningarsamningum þeirra hafi þeir haft átt rétt á að kaupa hlutabréf í Baugi á fyrirfram ákveðnu gengi og í samráði við sérfræðinga verið stofnaður vörslureikning- ur hjá Kaupþingi í Lúxemborg þangað sem bréfin voru færð og þau ávöxtuð. Upphaflega hafi ríkislögreglustjóri talið að um fjárdrátt væri að ræða en síðan hafi rannsóknin lotið að því að kanna hvort ranglega hafi verið gerð grein fyrir hlutabréfunum í bókhaldi félagsins, m.a. í því skyni að komast undan skatt- greiðslum. Jón Ásgeir segir að á þessum tíma hafi ríkt verulegur vafi um skattalega meðferð kaupréttar. Ljóst sé að í þessu máli geti ekki verið um að ræða stórkostlegt gáleysi, hvað þá ásetning af hans hálfu. Í ákæru ríkislögreglustjóra segir að bréf, sem voru skráð sem seld, hafi áfram verið í eigu Baugs Ákært fyrir að dylja meðferð á 330,8 milljónum af hlutafé Baugs  Ákært í Baugsmálinu | 6 | 12 Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.