Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG ÞOLI
EKKI RAKA
ÞÚ SEGIR
EKKI
KENNAR-
ARNIR ERU
ENNÞÁ Í
VERKFALLI
GREYIN,
ÞAU ERU
BÚIN AÐ
STANDA
ÞARNA SVO
LENGI
ÞARNA
FÉLL EIN
EITT ÞEIRRA DATT,
OG LÁRUS RAUK TIL
AÐ HJÁLPA
MIKIÐ ER HANN VITLAUS.
ÞAÐ BORGAR SIG EKKI AÐ
BLANDA SÉR Í SVONA DEILU
HVAÐ
ER
AÐ?
EDDI, ÞÚ ÁTT ALDREI EFTIR
AÐ VERÐA ALVÖRU VÍKINGUR SANNIR KARL-MENN DREKKA
EKKI BJÓRINN
SINN MEÐ
RÖRI!!!
DJÚPFRYSTIR
LÍKAMS-
HLUTAR
HANN VAR
NÆSTUM BÚINN AÐ
KEYRA ÞAU NIÐUR.
SVO STOPPAÐI HANN
EKKI EINU SINNI
ÉG
SKAL
NEYÐA
HANN TIL
AÐ
STOPPA
...SEM
KÓNGULÓAR
-MAÐURINN
EF VIÐ VÆRUM AÐ
FLÝJA ÞAÐAN NÚNA,
HVAÐ VÆRI ERFIÐAST?
HMM..
... ÞAÐ VÆRI ERFIÐAST AÐ
DRÖSLA STOFUBORÐINU Í
GEGNUM EYÐIMÖRKINA
ÞAÐ ER SIÐUR HJÁ OKKUR AÐ
MINNAST FLÓTTA ÆTTFEÐRA OKKAR
FRÁ EGYPTALANDI, Á ÞESSUM DEGI
FÆRÐU
ÞIG! ÞÚ ERT
Á MÍNUM
HELMING!
KOMDU
MEÐ TEPPIÐ!
KALVIN, FARÐU
AÐ SOFA!
ÞÚ
HEYRÐIR
HVAÐ HANN
SAGÐI.
FÆRÐU ÞIG!
ÞÚ
TÓKST
KODDANN
MINN.
ÞESSI ER
HARÐARI
EN MINN
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 16. ágúst, 228. dagur ársins 2005
Víkverji er mikilláhugamaður um
ensku knattspyrnuna
og fagnaði fyrir vikið
innilega um helgina
þegar keppni hófst á ný
í úrvalsdeildinni,
skemmtilegustu deild í
heimi. Fátt kom á óvart
í fyrstu umferð en liðin
sem flestir reikna með
að bítist um bikarinn,
Manchester United,
Arsenal og Chelsea,
unnu öll leiki sína.
Víkverji var þokka-
lega sáttur við sína
menn, Arsenal, sem
lögðu Newcastle eftir japl, jaml og
fuður, en heldur er nú tómlegt um að
litast á miðjunni, að Patrick Vieira
förnum. Ungstirnið Cesc Fabregas
er að vísu gríðarlegt efni en fáir leik-
menn hafa á umliðnum árum verið
svipmeiri í ensku knattspyrnunni en
Vieira. Víkverji hefur samt tekið þá
afstöðu að bera ekki kala til kappans.
Það ber að virða að fáir útlendingar
hafa leikið lengur með ensku úrvals-
deildarliði, níu ár. Í fljótu bragði
kemur aðeins Dennis Bergkamp upp
í hugann en hann er að hefja sitt ell-
efta tímabil með Arsenal.
Ástæðan fyrir brotthvarfi Vieira
er einföld. Hann telur meiri líkur á
því að vinna Meist-
aradeildina með Juv-
entus en Arsenal en það
er eini titillinn sem
þennan metnaðarfulla
leikmann vantar í safn-
ið. Fróðlegt verður að
sjá hvort hann hefur
rétt fyrir sér.
Það er skrýtin tilfinn-
ing að lokaárið sé runn-
ið upp á Highbury en
þar hefur Arsenal háð
sína heimahildi allar
götur síðan 1913. Eft-
irsjá er að þessum vina-
lega velli en öllum er
hins vegar ljóst að Ars-
enal varð að koma sér upp stærra
heimili ætlaði það að standa pen-
ingaveldunum Manchester United
og Chelsea á sporði á komandi árum.
Helsta framlag Arsenal til góð-
gerðarmála á þessum síðasta vetri á
Highbury verður að setja á laggirnar
sjóð í minningu Davids Rocastle. Fé-
lagið sýnir þarna tilfinningalegan
styrk sem alls ekki er sjálfgefinn á
auraöld. Víkverji fagnar þessu enda
hafði hann mikið dálæti á Rocastle á
sínum tíma en hann lést úr krabba-
meini árið 2001, aðeins 33 ára að
aldri. Var hann mörgum harmdauði
enda séntilmenni innan vallar sem
utan.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Ballett | Yury Yanowsky og Julie Diana æfa saman atriði úr Svanavatninu.
Ballettinn frægi við tónlist Tchaikovskys verður fluttur á Edinborgarhátíð-
inni. Ballettinn var frumfluttur í Bolshoi leikhúsinu árið 1877 og er í dag tal-
inn einn vinsælasti og fegursti ballett allra tíma. Segir sagan frá prinsinum
Siegfried sem ástfanginn er af prinsessunni Odettu sem er undir álögum
vonds galdrakarls og er því í svansmynd, utan á nóttunni að hún losnar und-
an galdrinum. Edinborgarhátíðin, sem haldin er árlega, er helguð klassískri
tónlist, leiklist, óperu og dansi.
Reuters
Sigfried og Odetta
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Því hvar sem fjársjóður yðar er þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)