Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 35 MENNING HM ungmenna. Norður ♠973 ♥K6 V/AV ♦K876 ♣K1052 Vestur Austur ♠KD5 ♠8 ♥G983 ♥D10752 ♦54 ♦DG2 ♣ÁDG3 ♣9764 Suður ♠ÁG10642 ♥Á4 ♦Á1093 ♣8 Einhliða dobl upp á von og óvon hafa gjarnan þá hliðarverkun að kosta vörnina slag, því bæði er sagn- hafi meira á varðbergi og betur upp- lýstur um leguna. Hér er dæmi frá HM ungmenna, þar sem Ungverjinn Balasz Szegedi refsaði vestri fyrir vafasamt viðskiptadobl. Vestur Norður Austur Suður 1 grand Pass 2 tíglar * 2 spaðar 3 hjörtu 3 spaðar Pass 4 spaðar Dobl Allir pass Eftir veika grandopnun vesturs og yfirfærslu, komast NS í réttan samn- ing, sem vestur doblar af eintómri græðgi. Hann horfir vissulega á þrjá líklega slagi í vörn, en makker hans hefur engu lofað með yfirfærslunni. Austur á reyndar DGx í tígli og sá varnarstyrkur dugði á hinu borðinu til að taka fjóra spaða einn niður. En Szegedi vissi af spaðahjón- unum í bakið og hagaði spilamennsk- unni í samræmi við það. Út kom hjarta og Szegedi tók slaginn heima til að spila laufi að kóngnum. Vestur drap og skipti yfir í tígulfimmu, sem var upplýsandi spil. Szegedi tók gosa austurs heima með ás, spilaði tígli á kóng, tók laufkóng (henti tígli) og stakk lauf. Fór aftur inn í borð á hjartakóng og trompaði síðasta lauf- ið. Nú var sviðið sett fyrir fallegan lokahnykk. Szegedi spilaði litlum spaða að níu blinds. Vestur varð að fara upp með spaðadrottningu og gat nú valið um tvo slæma kosti – að spila spaða upp í gaffalinn, eða hjarta í tvöfalda eyðu. Hann spilaði hjarta, en það var trompað í borði og tapspilinu í tígli hent heima. Tíu slagir. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Hárgreiðslustofa Guðnýjar s. 562 7200 og fótaaðgerð- arstofa Hrannar s 552 6760 eru opn- ar alla daga frá kl. 9–16. Frjáls spila- menska alla daga. Allir velkomnir. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30, gönguhópur kl. 13.30, púttvöllur kl. 10–16.30. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, Kl. 9–16.45 hárgreiðslu- stofan opin, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–16 félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi. FEBÁ, Álftanesi | Púttæfingar fyrir eldri borgara verða alla miðvikudaga í ágúst, kl. 11–12 á púttvellinum hægra megin við Haukshús. Kaffi og meðlæti að loknum æfingum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Mið- vikudagur: Göngu–Hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 10. Dagsferð 20. ágúst: Mýrar, Hítardalur, Hvanneyri. Ekið um Mýrar, komið við í Álftanesi, í Straum- firði. Dagsferð 25. ágúst: Reykjanes- skagi. Uppl. og skráning í síma 588 2111. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasal- ur opinn. Skráning á postulíns- námskeið hafin. Unnið er að vetr- ardagskrá, óskir og ábendingar vel þegnar. Allar uppl. á staðnum og í síma 575 7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dag- blöðin, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 boccia og pútt, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 ferð í Bónus, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Brids kl 13. Pútt á Hrafnistuvelli kl. 14– 16. Hvassaleiti 56–58 | Boccia kl. 9.30– 10.30. Böðun virka daga fyrir hádegi. Hádegisverður. Helgistund kl. 13.30 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Dagblöðin liggja frammi. Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrting 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll- um opið. Púttvöllur alltaf opinn. Lista- smiðja og Betri stofa kl. 9–16. Morg- unkaffi, hádegisverður og síðdegiskaffi. Dagblöðin liggja frammi. Gönguhópurinn Sniglarnir kl. 10–11. Bónus kl. 12.40. Bókabíll kl. 14.15– 15.00. Snæfellsnesferð 18. ágúst. Uppl. 568 3132. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handa- vinna. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, handavinnustofan opin, hár- greiðsla og böðun félagsvist kl. 14. Skráning stendur yfir í námskeið sími 411 9450. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9. Stutt bænastund með ritning- arlestri og sálmasöng. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón- usta alla þriðjudaga kl. 18.30. Garðasókn | Opið hús í sumar í Kirkju- hvoli, Vídalínskirkju, á þriðjudögum, kl. 13 til 16. Við spilum lomber, vist og brids. Röbbum saman og njótum samverunar. Kaffi á könnunni. Vett- vangsferðir mánaðarlega, auglýstar hverju sinni. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýsingar í síma 895 0169. Allir vel- komnir. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs- þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hjallakirkja | Bæna– og kyrrðarstund er í Hjallakirkju þriðjudaga kl. 18. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos ÉG sagði í fyrra að Kammersveitin Ísafold flytti „tónlistarfjöll úr stað“ og sú mynd er óbreytt eftir að hlýða á áðurnefnd tónverk á tónleikunum í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju núna. Aftur varð ég vitni að glimrandi fínum flutningi Ísafoldar undir öruggu slagi stjórnanda síns, Daníels Bjarnasonar, og að ógleymdum glæsilegum söng og grípandi túlkun Guðrúnar Jóhönnu. Ég byrja á að agnúast út í atriði sem mér finnst að mættu og ættu að fara betur. Tónleikarnir byrjuðu 20 mínútum eftir auglýstan tíma, sem á ekki að gerast nema tilgreindar ástæður valdi. Samkvæmt minni kennslufræði tók röðun verka ekki nægilegt tillit til móttækileika áheyr- enda. Þau verk sem gerðu meiri kröf- ur um einbeitta hlustun eins og Keðj- an hans Lutoslawskis og nýja verkið hennar Þuríðar átti að mínu mati að setja fyrir hlé og hafa bæði þjóðlög Berios og Pribaoutki Stravinsky eftir hlé. Tónlistarfólki gleymist stundum að það er áheyrandinn, sem fær oft að- eins eitt tækifæri til að meðtaka verk- ið, sem það sjálft er búið læra í þaula. Efnisskráin spannaði yfir sl. hundrað ár tónlistarsögunnar, það elsta eftir Ravel frá 1903 og það yngsta glænýtt, Ballaða frá Önund- arfirði eftir Þuríði. Tónleikarnir hóf- ust á Pribaoutki. Verkið er samið 1914 á Parísarárum og er tóntak Vor- blótsins alltaf nærri. Fjögur ljóð, eins konar rússnesk orðaleikjafjarstæðu- runa, eru uppistaða verksins en hljómsveitin samanstendur af strengjum, hörpu, tréblæstri og slag- verki. Guðrún Jóhanna túlkaði verkið á áhrifamikinn og næman hátt, sér í lagi fannst mér ljóð nr. 2 Natashka og nr. 4, Starets grípandi. Guðrún Jó- hanna hefur vel þjálfaða fallega rödd og býr yfir miklum túlkunar- og sannfæringarhæfileika. Hin glæsilega hljóðfæ- raumgjörð í Stravinsky var á stundum of viða- mikil og á stundum hefði mátt dempa hljóðfærin og styrkja þannig áhrif söngsins. Tigran Mansurian, armenskt tónskáld, samdi árið 1983 einkar næmt og fallegt verk fyrir kammersveit í minningu Stravinsky. Verkið flutti Ísafold einkar vel. Falleg opn- un píanósins í byrjun, horn- og fagotteinleiks- strófur voru hrífandi. Liggjandi sónteppi strengja og trés á móti innskotum málmblást- urshljóðfæra og skemmtilegt slagverk mögnuðu áhrif verks- ins. Í þjóðlögunum 12, sem reyndar eru sum þjóðlagalíki, og Lu- ciano Berio samdi fyrir eiginkonu sína, söng- konuna frægu Cathy Berberian, fór hljóm- sveit og söngkona á of- urkostum. Glæsileiki í söng og hljóðfæraleik fór saman svo um mun- aði og var þessi flutn- ingur að mínu mati há- punktur tónleikanna. Eftir hléið hóf Hildigunnur Ein- arsdóttir hörpuleikinn á loft í frá- bærri frammistöðu og vönduðum flutningi á verki Ravel, Introduction et allegro. Chain nr. I, Keðja, samdi pólska tónskáldið árið 1983 og er í raun hörkumikil stúdía og etýða í hljóðfærasetningu og leik nútíma- tónlistar. Og ekki bregst honum bogalistin þarna frekar en fyrri dag- inn. En verkið er tyrfið og hefði að mínu mati átt að flytjast snemma á tónleikum til að vera numið sem skyldi. Nýja verkið hennar Þuríðar er mikill galdur, þar sem höfundur skrifar fyrir söngrödd og hljóðfæri af mikilli kunnáttu. Ég saknaði þó sparsemi af hennar hálfu og stund- um týndust litlu skelj- arnar Í fjöru Ásdísar Ólafsdóttur, ljóðinu sem verkið var samið yfir. Ef við skoðum vísuorðin: og við brjóst sofa brotnar skeljar, þá skil ég ekki hvað þessi mikli styrkur í hljóð- færum og þéttleiki átti að þýða á kostnað söngsins. Í lokahend- ingunum voru þó áhrif- in sterk og rödd Guð- rúnar Jóhönnu greindist vel frá á háu raddsviði. Frammistaða hljóð- færaleikaranna ungu og stjórnanda var í hæsta gæðaflokki, og ég vil í því sambandi benda á frábæran selló- leik sem gott dæmi fyr- ir þá góðu frammi- stöðu. Í lok tónleikanna var hljómsveit, söngkonu, stjórnanda og tónskáldi ákaft fagnað, sem svar- að var með aukalagi. Mér finnst sem fyrr Ísafold vera einn falleg- asti blómsproti sumarsins og hvet hljómsveitina til að heimsækja Ak- ureyri næsta sumar og þá sem fastur liður á dagskrá Listasumars 2006. Einn fallegasti blómsproti sumarsins TÓNLIST Safnaðarheimili Akureyrarkirkju Flytjendur: Kammersveitin Ísafold, Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir messósópran. Stjórnandi: Daníel Bjarnason. Á efnisskrá: Pribaoutki eftir Igor Strav- insky, Because I do not hope (Hommage a Igor Stravinsky) eftir Tigran Mans- urian, Folk Songs eftir Luciano Berio, Introduction et allegro eftir Maurice Rav- el, Chain I eftir Witold Lutoslawski og Ballaða frá Önundarfirði eftir Þuríði Jóns- dóttur (frumflutningur). Fimmtudaginn 11. ágúst, kl. 20.00. Kammertónleikar Jón Hlöðver Áskelsson Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Daníel Bjarnason ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122 SÖGUFÉLAG og Örnefnastofnun ís- lands gefa út Sýslu- og sóknalýsingar Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Það var Jónas Hallgrímsson skáld og nátt- úrufræðingur sem átti frumkvæði að verkinu sem unnið var á árunum 1839 til 1873 en það átti að vera hluti af Íslandslýsingu sem Hið ís- lenska bókmenntafélag hugðist gefa út. Af þeirri útgáfu varð þó aldrei. Sagnfræðingarnir Guðrún Ása Grímsdóttir og Björk Ingimundardóttir annast þessa útgáfu og eru í ritinu prentaðar í fyrsta sinn tvær sýslulýs- ingar og þrettán sóknarlýsingar. Er t.d. getið um jarðir, alfaravegi, ár, vötn og jarðhita. Bókin er 338 blaðsíður að lengd og lýkur á nafnaskrá upp á tæpar 40 blaðsíður. Útgáfan var styrkt af Menning- arsjóði, Menningarmálanefnd Borg- arfjarðar, Sparisjóði Mýrasýslu og Sögufélagi Borgarfjarðar. Nánari upp- lýsingar á www.sogufelag.is Sýslulýsing Út er komin á vegum Hornsins Árbók Ólafsfjarðar 2004 en þetta er sjötti ár- gangur ritsins. Í tilkynningu segir að Árbókin hafi verið að mestu í föstum skorðum frá upphafi en hún endurspeglar mannlíf og menn- ingu á Ólafsfirði. Í Árbókinni er að þessu sinni efni eftir 31 höfund: greinar, viðtöl, pistlar og ljós- myndir. Ber þar að nefna ávarp Svein- björns I. Baldvinssonar rithöfundar og fastan pistil Hannesar Garðarssonar ritstjóra. Þórir Jónsson á þrjú viðtöl í bókinni: við Magnús Sigursteinsson sveppabónda, Erlu Sigurðardóttur í Ástralíu og Helga Sveinsson. Einnig má nefna í ritinu Völvuspá Tótu, sjö annála félaga í Ólafsfirði og ljósmyndir úr safni Sigmundar Jóns- sonar. Einnig eru myndir af nýburum, brúðhjónum og fermingarbörnum og loks minnast fimm prestar þeirra Ólafsfirðinga sem létust árið 2003. Hannes Garðarsson ritstýrir verkinu en ásamt honum skipa ritnefnd þeir Friðrik G. Olgeirsson og Þórir Jóns- son. Prentun er í höndum Ásprents. Árbók

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.