Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristján Guðna-son Jónsson fæddist í Hafnar- firði 8. október 1922 og bjó þar alla ævi. Hann lést á Sólvangi 4. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jón Jóhann- esson sjómaður, f. 1884, d. 1965, og Guðrún Kristjáns- dóttir, f. 1892, d. 1974. Þau eignuðust saman auk Kristjáns sjö börn: Gyðu, Kristínu, Kjartan Friðberg og Ey- þór, öll látin, en á lífi eru: Jóhann- es, f. 1925, Valgerður, f. 1927, og Páll, f. 1930. Hálfsystkini Krist- jáns eru: Jón, látinn, samfeðra, Svandís Borg Ragnars, samfeðra, og Laufey Karlsdóttir, f. 1912, sammæðra, búsett á Akranesi. Fyrri kona Kristjáns var Ragn- heiður Þorvaldsdóttir, þau skildu. Börn þeirra eru: Guðrún, f. 1954, Hjörtur, f. 1956, og Jón Ragnar, f. 1959. Önnur börn Krist- jáns eru: Sigurjón, f. 1946, Jóhanna Kristín, f. 1947, Sig- urður Arnar, f. 1948, og Hafsteinn, f. 1948. Seinni kona Krist- jáns er Sóley Þor- steinsdóttir, f. 3. júlí 1932. Þau hófu sam- búð 1964 á Öldugötu 7, Hafnarfirði, en áttu síðast heima á Álfaskeiði 64b. Kristján hlaut réttindi sem bif- vélavirki. Hann starfaði lengi á vélaverkstæði Hafnarfjarðarbæj- ar, en áður við störf á Keflavík- urflugvelli og víðar við akstur, viðgerðir og bílamálun. Um tíma var Kristján við störf á sjó. Útförin fer fram frá Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Óðum fækkar þeim eldri Hafn- firðingum sem sett hafa sérstæðan svip á bæjarlífið og um margt eru minnisstæðir. Í þeim hópi var vinur minn, Kristján G. Jónsson, sem lok- ið hefur jarðvíst eftir veikindi hin síðari ár og eftir að hafa notið góðr- ar umönnunar á Sólvangi hátt í tvö ár. Kristján eða Stjáni á Öldugöt- unni, eins og hann var oft kallaður á yngri árum, ólst upp við um- hyggju góðra foreldra í húsinu á Öldugötu 7 í Hafnarfirði, sem þau höfðu látið byggja. Þar, við nálægð Lækjarins og skjóli Hamarsins, naut Kristján vel æskuáranna, en þessar svæðisperlur okkar Hafn- firðinga voru honum alltaf mjög kærar. Og þegar Kristján hóf sam- búð 1964 með Sóleyju sinni var þeirra heimili í þessu sama húsi. En lengst bjuggu þau hjónin í húsi bæjarins á Austurgötu 26 og ann- aðist Kristján þar jafnframt hús- vörslu af samviskusemi. Minnisstæð verður rík réttlæt- iskennd Kristjáns. Hann var ófeim- inn við að tjá sig um almenn mál- efni og kom oft með ábendingar til bóta í rekstri bæjarins. Hann var einlægur og hvetjandi liðsmaður í samtökum óháðra borgara, sem áttu farsæla aðild að stjórn Hafn- arfjarðarbæjar um tuttugu ára skeið með góðum árangri. Kristján var mjög áhugasamur um veiðiskap. Þannig átti hann þátt í því að bæta aðstöðu fyrir eldri borgara til að stunda veiðar í Hval- eyrarvatni, en hann var þar veiði- vörður um árabil og einnig við Kleifarvatn. Hann eignaðist trillu- bát með Finnboga Bjarnasyni, sem þeir gerðu út frá Hafnarfirði. Hafði Kristján gert upp bátinn og end- urbætt af mikilli snilld að sögn Finnboga. Strax á unga aldri hafði Kristján kynnst sjómennskunni, þar sem faðir hans var sjómaður, þekktur bræðslumaður á togurum, og sjálfur var Stjáni til sjós um tíma. Kristján var kvikur á velli og fimur íþróttamaður á yngri árum, einkum á skautum, laghentur og listfengur. Málaði myndir og smíð- aði áhöld, sem voru eftirsótt. Hand- lagni hans kom að góðum notum í starfi hans sem bifvélavirki og öðr- um verkefnum. – Alltaf var hann snyrtilegur og stundum frumlegur í klæðaburði. Og ekki gleymist hjálp- fýsi hans, þægilegt viðmót, létta lundin, gleðiríku samskiptin og holl- ustan við þann málstað, sem Krist- ján batt tryggð við. Kær vinur er kvaddur með ein- lægri þökk fyrir velvilja og trygga vináttu og það góða sem af honum mátti læra. Megi blessun fylgja minningu hans. Árni Gunnlaugsson. KRISTJÁN G. JÓNSSON Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Sendum myndalista Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBRANDUR SÆMUNDSSON vélvirkjameistari, til heimilis í Boðahlein 7, Garðabæ, lést laugardaginn 13. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Kristín María Hartmannsdóttir, María Guðbrandsdóttir, Sveinbjörn Dýrmundsson, Berglind Guðbrandsdóttir, Sigmundur Dýrfjörð, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengda- faðir, ERLINGUR VIGFÚSSON óperusöngvari, andaðist á sjúkrahúsi í Köln í Þýskalandi sunnu- daginn 14. ágúst. Irene Vigfússon, Marta J. Erlingsdóttir Klein, Josef Klein, Íris Erlingsdóttir, Ólafur E. Jóhannsson, Guðný K. Erlingsdóttir, Oddur Gunnarsson, Lára B. Erlingsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGA SIGRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR, áður til heimilis að Rauðalæk 22, Reykjavík, lézt á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 15. ágúst. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 18. ágúst kl. 15.00. Steinunn Þorvarðsdóttir, Rik de Visser, Steinn Helgason, Sif, Salka og Egill, Ólöf Þorvarðsdóttir, Jón Valur Jensson, Ísak og Sóley Kristín. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ODDNÝ AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR Rauðalæk 20, Reykjavík, áður Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði, lést á Landakotsspítala föstudaginn 12. ágúst sl. Útförin verður auglýst síðar. Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir, Víðir Sigurðsson, Guðný Björg Þorvaldsdóttir, Sigurður Þorgeirsson, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Kristján Þorvaldsson, Ómar Ásgeirsson, Helga Jóna Óðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, systir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN S. MAGNÚSDÓTTIR, Valhúsabraut 13, Seltjarnarnesi, lést sunnudaginn 14. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Björn Jónsson, Heiður Agnes Björnsdóttir, Hákon Óskarsson, Magnús Jón Björnsson, Ragna Árnadóttir, Helgi Magnússon, Kjartan Hákonarson, Brynhildur Magnúsdóttir, Agnes Guðrún Magnúsdóttir. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, KOLBRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Álftamýri 2, Reykjavík, andaðist á heimili sínu mánudaginn 15. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Höskuldur Elíasson, Sigrún Höskuldsdóttir, Antonio Cavaleiro, Elías Höskuldsson, María Carolina Skackauskaite, Sigurður Höskuldsson, Dagbjört Edda Barðadóttir, Linda Rut, Telma Rós, Alexander Freyr, Ragnar Már, Lilja Björk, Ragnhildur Sara og Vigdís Karólína. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR frá Hlíð, Siglufirði, Kópavogsbraut 1B, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstu- daginn 12. ágúst. Sólveig Helga Jónasdóttir, Einar Long Siguroddsson, Ásgeir Jónasson, Ásdís Hinriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.