Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 19 MENNING Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali BLIKANES - SJÁVARÚTSÝNI Einstaklega glæsilegt 340 fm einbýlishús við Blikanes með sjávarútsýni. Tvöfaldur innbyggður bílskúr. Eignin er vönduð í alla staði og skiptist m.a. í forstofu, snyrtingu, hol, fimm herbergi (skv. teikningu), stofu, borðstofu, eldhús og þvottahús á aðalhæð sem er u.þ.b. 200 fm. Á neðri hæð (jarð- hæð) er m.a. baðherbergi, geymsla, tvö herbergi og fjölskyldurými með arni. Mögu- leiki er á að hafa aukaíbúð á jarðhæð. Garðurinn er sérlega vel hirtur og gróinn með næturlýsingu, stórum pöllum og heitum potti. 5003 LINDASMÁRI Höfum fengið í einkasölu tvílyft endaraðhús á mjög vinsælum stað í Lindasmára í Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús, stofu, herbergi og bað- herbergi á neðri hæðinni. Á efri hæðinni eru tvö herbergi, alrými (sjónvarpshol) og baðherbergi. Falleg lóð út af stofu. Eignin er ekki fullfrágengin að innan. V. 39,5 m. 5179 HLÍÐARVEGUR - SUÐURHLÍÐAR KÓP. Mjög falleg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérverönd og sérinngangi í Suðurhlíð- um Kópavogs. Eignin skiptist m.a. í eldhús, bað, þrjú herbergi og stofu. Parket á gólf- um. Vönduð innrétting í eldhúsi. 5215 BERGSTAÐASTRÆTI Stórglæsileg íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli á frábærum stað í Þingholtunum. Íbúðin er sérlega björt og vel umgengin. Íbúðin skiptist í hol, stofu, herbergi, eldhús og bað. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og geymsla og sérgeymsla með hillum. Raf- lagnir hafa verið endurnýjaðar. Baðher- bergið var nýlega tekið í gegn. Nýtt þak var sett á húsið sumarið 2004. Gluggar voru málaðir 2004. V. 14,5 m. 5196 VESTURGATA - SÉRSTÖK EIGN Vorum að fá sölu fallegt einbýli við Vestur- götuna. Húsið er mikið endurnýjað og vel viðhaldið og stendur á eignarlóð. Húsið er 187,1 fm. Á jarðhæð eru þrjú herbergi, hol, baðherbergi, eldhús, sólstofa, vinnuher- bergi og geymsla með þvottaaðstöðu. Í risi er stofa og herbergi. V. 39 m. 5199 FORNISTEKKUR - EINLYFT EINBÝLI Fallegt einlyft einbýlishús með tvöföldum bílskúr við Fornastekk í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, innri forstofu, hol, snyrt- ingu, forstofuherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú herbergi og baðher- bergi. Garðurinn er einstaklega fallegur og vel umgenginn. Húsið lítur mjög vel út að utan. Arinn í stofu. 5202 SNORRABRAUT/AUÐARSTRÆTI Falleg og mikið uppgerð 124,4 fm neðri hæð í þríbýlishúsi sem stendur á milli Snorrabrautar og Auðarstrætis Hæðin skiptist í hol, 2 samliggjandi stofur, hjóna- herb., baðherb., eldhús og tvö barnaher- bergi. M.þ. sem endurnýjað hefur verið eru gólfefni, eldhús, baðherbergi og rafmagn að hluta, auk þess hefur jarn á þak verið endurnýjað. V. 24,5 m. 5144 KLAPPARBERG Vandað einbýlishús með fallegu útsýni til austurs og góðri hellulagðri verönd. Lóðin er mjög falleg og með miklum gróðri, fjórum bílastæðum o.fl. Á 1. palli er innbyggður bíl- skúr, forstofa, hol, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Innangengt er í bílskúrinn. Á miðpalli er sjónvarpsherb. (getur verið svefnh.), hjónaherb., baðherb. og sauna- klefi. Á efsta palli eru stofurnar, eldhús og þvottaherbergi/búr. Húsið virðist vera í mjög góðu ástandi að utan sem innan. Neðsti pallurinn er útgrafinn og er hann um 50-60 fm og skiptist í tvær stórar geymslur. Í aðra þeirra er gengið úr bílskúr en í hina úr hol- inu. V. 39 m. 5177 ÍRANSKI leikstjórinn Abbas Kiar- ostami verður heiðursgestur Alþjóð- legrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem hefst 29. september næstkom- andi. Kiarostami verður viðstaddur Evrópufrumsýningu stuttmynd- arinnar The Roads, og opnun sam- nefndrar sýningar listamannsins, The Roads of Kiarostami. Sýningin er fengin hingað til lands í gegnum samstarf hátíðarinnar og Orkuveitu Reykjavíkur en hún verður haldin í höfuðstöðvum Orkuveitunnar við Bæjarháls. Þá verður efnt til sér- stakrar dagskrár, sem helguð er ferli Kiarostamis, á kvikmyndahátíðinni þar sem sýnd verða eldri verk leik- stjórans og efnt til fyrirlestra og um- ræðna. Abbas Kiarostami er einn áhrifa- mesti leikstjóri Írans. Hann hefur unnið til fjölmargra verðlauna og við- urkenninga á ferli sínum, en árið 1997 vann hann m.a. Gullpálmann á Kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir Taste of Cherry (Ta’m e guilass). Kiarostami útskrifaðist í myndlist frá Háskólanum í Teheran. Síðan þá hefur hann reynt fyrir sér á ýmsum sviðum þó svo að hann sé frægastur fyrir kvikmyndagerð. Ljósmyndun er honum hugleikin og hann hefur haldið sýningar um víða veröld á myndum sínum. Ljósmyndasýningin The Roads of Kiarostami tilheyrir Torino Museum of Cinema og hefur verið á ferðalagi um heiminn í nokk- urn tíma. Sýningin hefur ekki verið sýnd á Norðurlöndum til þessa. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram dagana 29. sept- ember til 9. október. Sýndar verða um 40 myndir í ólíkum flokkum. Markmið hátíðarinnar er fjölþætt en megináhersla er lögð á að bjóða upp á það merkilegasta úr kvikmyndalist- inni hverju sinni og að auki skapa virkt umhverfi þar sem kvikmynda- gerðarfólk, fræðimenn og áhugafólk hvaðanæva úr heiminum getur fund- ið eitthvað við sitt hæfi, að því er seg- ir í fréttatilkynningu frá aðstand- endum hátíðarinnar. Hátíðin nýtur stuðnings menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og fjölmargra samstarfsaðila. Abbas Kiarostami kemur til Íslands Abbas Kiarostami verður heiðursgestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. MÁLVERK sem Dieter Roth málaði árið 1959 er til sölu hjá Fyrirtækja- sölunni Suðurveri, eins og fram kom í auglýsingu í Morgunblaðinu í gær. Það er Reynir Þorgrímsson fyr- irtækjasali sem selur málverkið, en það hefur verið í hans eign í nær þrjá áratugi. Máluð í sumarbústað Reynir keypti málverkið á sínum tíma af Þorsteini Jónssyni. Það hef- ur merkinguna „Dieter Roth 75 (1959)“, sem að líkindum merkir að hann hafi málað það árið 1959, en merkt það árið 1975. Um er að ræða geometrískt olíumálverk í jarð- arlitum, málað aftan á gamlan fata- skáp. „Sagan af þessu málverki er dálítið sérstök,“ segir Reynir, en söguna hefur hann frá seljandanum. „Dieter Roth og nokkrir vinir hans fóru upp í sumarbústað við Hafra- vatn, til að meðhöndla bjór. Þar finn- ur hann málningu og málar þessa mynd aftan á gamlan klæðaskáp.“ Málverkið var í ramma, sem Reynir hefur látið fjarlægja og setja nýjan blindramma á bakvið. Myndin var auk þess hreinsuð af óhrein- indum sem safnast höfðu upp gegn- um tíðina. Að sögn Reynis hafa bæði Að- alsteinn Ingólfsson listfræðingur og Sigríður eiginkona Dieters skoðað myndina, og kannast við hand- bragðið. Erfitt að segja um verð „Ég er að losa mig við málverkið vegna þess að það er fyrirferð- armikið, og mig langar til að koma fyrir nokkrum myndum eftir sjálfan mig heima,“ segir Reynir, sem vinn- ur sjálfur að myndlistarsköpun – ljósmyndum af íslenskum nátt- úruminnum sem prentaðar eru á striga. Hann segir erfitt að segja hvað málverkið muni seljast á. Leita þurfi tilboða og sættast á verð. Hann telur að margir muni sýna því áhuga. „Það eru mjög margir að safna lista- verkum og tækifæri til að fá góða mynd eftir Dieter Roth, sem hægt er að hengja upp heima hjá sér, eru afar sjaldgæf. Auðvitað hafa ekki allir smekk fyrir þessari geometr- ísku stefnu sem hann málar þetta verk í, en hún var mjög virt á sínum tíma. Þetta er eina málverkið sem ég veit um eftir Dieter Roth, sem er til sölu á frjálsum markaði.“ Myndlist | Málverk eftir Dieter Roth til sölu í Reykjavík Morgunblaðið/Þorkell Reynir Þorgrímsson fyrirtækjasali við verk Dieters Roth sem hann er að selja. Sjaldgæft tækifæri Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.