Morgunblaðið - 16.08.2005, Page 6

Morgunblaðið - 16.08.2005, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is Sofia, höfuðborg Búlgaríu, er ein af elstu og sérstæðustu borgum Evrópu, með gríðarlega fjölbreytni í afþreyingu. Tónleikahús, söfn, óperuhús, ölstofur, verslanir og ótrúlega hagstætt verðlag. netverð á mann í tvíb‡li á Hotel Princess. 59.940* kr. Ver›dæmi: Flugsæti: 39.940 kr. skattar innifaldir. * Innifalið: Flug, gisting í 4 nætur, íslensk fararstjórn og föst aukagjöld. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu greiðist bókunar- og þjónustugjald sem er 2.000 kr. á mann. ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 91 96 0 8/ 20 05 Sofia 21.-25. sept. BOGI Nilsson, ríkissaksóknari, hef- ur minnt á leiðbeiningar embættis- ins um aðgang fjölmiðla að ákæru- skjölum, en í leiðara Morgunblaðsins á sunnudag kom fram það sjónarmið að ákæruvaldið þyrfti að aðlaga sig breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu, m.a. væri eðlilegt að opna aðgang að ákærum í kjölfar þess að þær eru birtar sakborningum. Bendir Bogi á að laga- eða reglugerðarákvæði hafa ekki enn verið sett hérlendis um þetta efni og séu aðstæður nú hinar sömu og árið 1998, þegar embættið gaf út leiðbeiningar sínar. Ríkissaksóknari hlynntur lagasetningu Í leiðbeiningunum segir m.a. að þagnarskyldu um efni ákæru ljúki í seinasta lagi þegar ákæran er lesin upp í heyranda hljóði við þingfest- ingu eða í upphafi aðalmeðferðar máls, hafi dómþing ekki verið haldið fyrir luktum dyrum. Það sjónarmið, að ákærandi geti veitt fjölmiðlum að- gang að ákæruskjali eftir að það hafi verið birt hinum ákærða, sé gott og gilt í sjálfu sér en hafa beri í huga að aðrir hagsmunir eða hagsmunir ann- arra kunni að mæla gegn þessu. Er í því sambandi nefnt málið sjálft og meðferð þess, svo og tillitið til hins ákærða og fjölskyldu hans. Þá segir: „Ríkissaksóknari telur æskilegt að reglum um aðgang fjölmiðla að efni ákæruskjala verði skipað í lögum og/ eða reglugerð og hefur lagt til að svo verði gert.“ Dómsmálaráðherra setji reglur En á meðan ekki nýtur laga eða reglugerðar um efnið eru eftirfar- andi leiðbeiningar gefnar ákærend- um til eftirbreytni: „Eftir að ákæra í máli hefur verið birt hinum ákærða eða ákærðu og lesin í heyranda hljóði á opnu dóm- þingi er ákæranda rétt, að höfðu samráði við viðkomandi héraðsdóm- ara almennt, eða í hverju tilviki, að láta fjölmiðlum í té afrit af ákærunni verði þess óskað af þeirra hálfu. Áð- ur en ákæran er afrituð skal afmá nöfn og önnur kenni sem vísað geta til þess sem fyrir broti hefur orðið. Afrit ákæru skal eingöngu vera aðgengilegt fréttamönnum fjölmiðla í þágu starfa þeirra en öðrum ekki.“ Þá vísar Bogi til dönsku réttar- farsreglnanna um þetta efni, en ákvæðum þeirra var seinast breytt í fyrra. Í dönsku reglunum segir m.a. að embætti saksóknara afhendi sam- kvæmt beiðni afrit af ákæru eða stefnu þeim aðilum sem tilgreindir eru sérstaklega í lagagreinum þar um. Fyrir afritun skal gera skjölin þannig úr garði að ekki komi fram nöfn vitna eða þeirra sem sæta rann- sókn. Dómsmálaráðherra setji regl- ur um hvenær aðgangur að málinu er veittur. Þau skjöl og afrit sem veittur er aðgangur að, mega ekki vera að- gengileg öðrum en blaðamönnum og starfsmönnum ritstjórna fjölmiðla og aðeins megi nota gögnin til frétta- flutnings. Þá megi afrit af úrskurð- um í sakamálum, sem afhent eru sér- staklega tilgreindum einstaklingum, ekki vera aðgengileg fyrir aðra en blaðamenn eða ritstjórnarstarfs- menn og má aðeins nota til frétta- flutnings uns málinu lýkur. Dóms- málaráðherra setur reglur um vörslu fjölmiðla á afritum. Tilteknum skjöl- um skal skilað í síðasta lagi við lok réttarhalda. Þá er þess getið að brot á þessum reglum varði sektum. Ríkissaksóknari lagði til fyrir sjö árum að sett yrði löggjöf um aðgang fjölmiðla að ákærum í dómsmálum Aðeins til leiðbeiningar frá árinu 1998 VEGNA viðskipta með hlutafé í Ar- cadia í árslok 2000 og á árinu 2001 er Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni gefið að sök að hafa með röngum og tilhæfulausum færslum búið til skuld í bókhaldi Baugs hf. að fjárhæð rúmlega 212 milljónir. Þessu er neitað af hálfu sakborninga og vakin athygli á því að á sama tíma og þeim er gefið að sök á öðrum stað í ákærunni að hafa oftal- ið tekjur Baugs séu þeir í þessu til- felli sakaðir um að hafa fært inn til- hæfulausa skuld. Baugur hafi hagnast á viðskiptunum og engir fjármunir farið út af reikningum fyr- irtækisins. Í ákæru ríkislögreglustjóra er þeim Jóni Ásgeiri og Tryggva gefið að sök að hafa látið færa sölu á 3,1 milljón hluta í Arcadia til Kaupthing Bank í Lúxemborg fyrir 332 millj- ónir og fyrir tilhæfulaus endurkaup á sömu hlutum fyrir 544 milljónir króna. Mismunurinn á söluverði og kaupverði er 212 milljónir króna. Í ákærunni eru tilgreindar fjórar færslur í bókhald Baugs því til stuðnings að þessi viðskipti hafi ver- ið tilhæfulaus og segir að með þess- um færslum hafi verið búin til skuld í bókhaldi Baugs fyrir mismuninum, þ.e. 212 milljónum króna en sú skuld eigi ekki við rök að styðjast. Í ákærunni er tekið fram að með þremur af færslunum fylgi engin ytri frumgögn og að tvær þeirra byggist á handskrifuðum blöðum og hinar tvær á óundirrituðum færslublöðum. Bréfin seld en keypt til baka Í athugasemdum sakborninga er þessu neitað og m.a. vísað til bréfs Jóns Ásgeirs til ríkislögreglustjóra frá 30. júní sl. Þar ræðir Jón Ásgeir raunar um að því hafi verið haldið fram að hann hafi gerst sekur um fjárdrátt í tengslum við þessi við- skipti en ekki er ákært vegna fjár- dráttar vegna þessara brota heldur um skattalagabrot, lögum um árs- reikninga og hlutafélaga. Í bréfinu segir að kjarni málsins sé sá að í fjármögnunarskyni hafi umrædd bréf í Arcadia verið seld Kaupthing Bank í Lúxemborg í árs- lok 2000. „Var hugmyndin að þau skyldu höfð á vörslureikningi félags- ins hjá bankanum til tryggingar en söluverðið ganga til uppgreiðslu skuldar hjá Íslandsbanka, og gekk það eftir. Í ársbyrjun 2001 vaknaði önnur hugmynd, þ.e.a.s. að stofna eignarhaldsfélag ásamt Kaupþingi, Íslandsbanka og Gaumi og leggja hlutabréfaeign þessara aðila inn í slíkt félag sem síðar fékk nafnið A-Holding. Bréfin, sem seld höfðu verið Kaupthing Bank, voru keypt til baka, en þá hafði orðið 212 milljóna króna hækkun á markaðsvirði þess- ara hluta í Arcadia. Voru bréfin færð á því markaðsvirði inn í A-Holding,“ segir í bréfi Jóns Ásgeirs. Segir enga fjármuni hafa farið út úr Baugi Við endanlega sölu hlutabréfanna haustið 2002 hafi komið fram ábend- ing frá endurskoðendum um að rétt- ara væri að bakfæra þessi viðskipti og það hefði verið gert. Síðar á árinu hafi Baugur fengið lán til að greiða skuldina við Kaupthing Bank í Lúx- emborg sem legið hafði ótryggð inni á vörslureikningnum þar sem hluta- bréfin í Arcadia höfðu verið lögð til A-Holding. Jón Ásgeir segir að rík- islögreglustjóri virðist á hinn bóginn halda að þarna hafi orðið til 212 milljóna króna hagnaður, þ.e.a.s. gengismunur bréfanna í Arcadia í árslok 2000 og febrúar 2001, sem hafi átt að leyna. Það sé hins vegar fráleitt að halda því fram að nokkur auðgunarbrot hafi verið framin. „Staðreyndin er sú að hagnaðurinn kom allur fram þegar Baugur seldi bréf sín í Arcadia haustið 2002 eftir að samningaviðræður um yfirtöku félagsins höfðu runnið út í sandinn í kjölfar upphafsaðgerða RLS. Engir fjármunir höfðu farið út úr félaginu eða af reikningum þess,“ segir í bréfi Jóns Ásgeirs. Þá er þeim Jóni Ásgeiri og Tryggva gefið að sök að hafa fært eða látið færa tilhæfulausar færslur í bókhald Baugs þegar þeir létu færa til eignar samtals rúmlega 38 millj- ónir sem voru sagðar tekjur vegna ábyrgðar og þóknunar vegna hluta- bréfakaupa. Í báðum tilfellum vant- aði frumgögn í bókhaldið færslunum til staðfestingar. Líkt og vegna ann- arra ákæruliða neita þeir sök. 212 milljóna skuld Baugs vegna Arcadia Engir fjármunir runnu út af reikningum vegna Arcadia, segja sakborningar Morgunblaðið/Kristinn Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is MÁLSSKJÖL ákæruvaldsins í Baugsmálinu, sem telja 20 þúsund blaðsíður, verða ekki gerð opinber, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun, miðviku- dag, þar sem ákærðu fá að tjá afstöðu sína til sakarefnisins fyrir dómi. Málsskjöl ekki gerð opinber EITT tilboð hefur borist í Mjólkur- samlagshúsið í Borgarnesi en bæjar- yfirvöld hafa lýst því yfir að þau ætli að láta rífa húsið nema einhver sýndi því áhuga að vera með starfsemi í húsinu í framtíðinni. Páll S. Brynj- arsson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, segir að bæjarráð hafi hafnað tilboð- inu en að vilji sé fyrir hendi að ræða betur við tilboðsgjafa. „Hann leggur til að við lokum Skúlagötu en við höfum ekki áhuga á að gera það. Auk þess þarf að ræða betur hugmyndir um í hvaða ásig- komulagi við afhendum húsið,“ segir Páll og bætir við að í tilboðinu sé gert ráð fyrir að bæjaryfirvöld sjái um að fjarlægja viðbyggingar sem eru við húsið. Páll segir að nýting hússins myndi samræmast því sem liggur fyrir á deiliskipulagi og það yrði því nýtt undir íbúðarhúsnæði og þjónustu. Á að varðveita húsið Páll Björgvinsson, arkitekt og byggingarmeistari, stendur á bak við tilboðið en hann vonast til að samningar náist um húsið. „Það er engin spurning að það á að varðveita þetta hús og hefði átt að skipuleggja svæðið með það í huga,“ segir Páll en bætir við að í tilboði sínu geri hann ráð fyrir að nýting hússins verði í samræmi við skipulag á svæð- inu. „Þetta er ekki alveg fullformað en hugmyndin er að byggja húsið upp fyrir menningartengda starf- semi og íbúðir sem væru tengdar þeirri menningu.“ Páll segir að hann hafi lagt fram hugmynd um að loka Skúlagötu en það sé aðeins tillaga og fylgi ekki til- boðinu sjálfu. Hins vegar sé deilt um hvernig bæjaryfirvöld skili húsinu af sér og auðvitað þurfi alltaf að rök- ræða peningalegu hliðina. „Fyrir mér er aðalatriðið að húsið verði ekki rifið. Það þarf að halda í þessi menningarverðmæti sem eru á staðnum,“ segir Páll Björgvinsson. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Tilboð í Mjólkursam- lagshúsið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.