Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 25

Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 25 UMRÆÐAN E N N E M M / S ÍA / N M 13 16 8 VIÐ TÓBAKSREYK SEM HLÍFA ÖÐRUM ÞAKKIR TIL ÞEIRRA HÖLDUM HEILSUNNI Á LOFTI UNDANFARIN ár hefur svo- nefnt Baugsmál er varðar meinta glæpi stjórnenda Baugs í meðferð fjármuna og viðskiptum innanlands og utan verið ofarlega í umræðunni og skollið á forsíðum dagblaðanna undanfarið. Umræðan og aðdrag- andinn er allur með svo miklum ólík- indum að jafnvel þótt fólk kunni að vera með einhverja andúð á Baugi og stjórnendum þess er hæpið að réttsýnt og skynsamt fólk styðji framgöngu stjórnvalda af því tagi sem yfirvöld hafa við- haft. Enginn vill lenda í svona aðgerðum og eftir því sem næst verður komist, til dæmis ummæli breskra aðila, eru meint brot Baugs og stjórnenda engan veg- inn talin nægileg til að réttlæta þessa aðferð sem notuð hefur verið. Undirritaður er þó á því að stjórnendur Baugs hefðu átt að vita eða átt að vara sig á hvers konar aðgerð- ir gætu hafist gegn þeim ef þeir gættu ekki betur að gerðum sínum í meðferð fjár- muna sem Íslendingar, þó undirrit- aður telji að þessir aðilar hafi reynt eftir bestu getu að vinna að við- skiptum sínum á heiðarlegan hátt. Mikið reynsluleysi blasir við hvar- vetna og menn hafa hreinlega stung- ið sér til sunds í stóru alþjóðlegu fjármálalaugina og ætlað að reyna að læra að synda smátt og smátt. Ísland er hugsanlega á vissan hátt frumstætt í þeim efnum sem snýr að rannsókn mála af þessu tagi enda hafa mjög fáir, nánast engir Íslend- ingar stundað alþjóðaviðskipti á þeim skala sem Baugur og þeirra stjórnendur hafa viðhaft. Í því ljósi virðist nær augljóst að á sama hátt og stjórnendur Baugs stungu sér í stóru alþjóðlegu fjármálalaugina með kjarkinn einan að vopni hafa ís- lensk lögreglu- og rannsóknaryf- irvöld einnig stungið sér í stóru al- þjóðlegu fjármálarannsóknarlaugina án að því er virðist með nægilega þekkingu eða reynslu á málinu. Ekki bætir það úr að gífurlegur þrýst- ingur hefur verið á íslenska rann- sóknarfólkinu af hálfu æðstu emb- ættismanna íslenska ríkisins sem gerir málið allt nær óvinnandi. Hvernig getur rannsóknarlög- reglumaður unnið á hlutlausan og hlutlægan hátt með hnefa æðstu stjórnenda ríkisins yfir höfði sér? Íslensk stjórnvöld hafa hingað til viljað ráða nær einu og öllu í ís- lensku atvinnulífi. Umsvif Baugs er- lendis teljast nú líklega einnig hluti af íslensku atvinnulífi sem hinir valdasjúku embættismenn okkar hafa ekki náð neinum tökum á. Sú staðreynd og að æðstu stjórn- málamenn okkar eru einnig flæktir í málið eða allavega flæktir í ákveðna umræðuþætti, grafa fullkomlega undan trúverðugleika stjórnvalda í málinu og gera allt málið meira líkt einhverjum hefndaraðgerðum. Þetta er mjög bagalegt þar sem það er jú nauðsynlegt fyrir íslensk lögreglu- yfirvöld að vera hafin yfir hvers kon- ar pólítíska skítalykt eða stjórnast af reiði eða tilfinningasemi einstakra háttsettra stjórnmálamanna til að geta unnið að málum án nokkurrar grunsemdar um óeðlilegar aðgerðir. Ef lögregluaðgerðir eru ekki hlut- lausar og algerlega fríar við grun um einhvers konar hefndar- eða árásaraðgerðir í nafni yfirvalda þá er Ísland orðið lögregluríki. Því mið- ur lyktar þetta Baugsmál af slíkri fýlu. Það hefur verið mikið ánægjuefni að íslensk fyrirtæki hafa getað rutt brautina í útrás atvinnulífsins á Ís- landi sem um langt skeið hefur lítið getað vaxið vegna einhæfni. Ekki þarf að kynna þessi útrásarfyrirtæki en nokkur þeirra eru mjög þekkt. Vegna tilkomu þessa Baugsmáls eru allar líkur á að fjöl- margir sérfræðingar og hugsanlega fjár- málastofnanir sem unn- ið hafa fyrir íslensk út- rásarfyrirtæki muni nú þurfa að skoða sín mál miklu betur í framtíð- inni. Ef íslensk lög, lög- reglusamþykktir, lög- regluaðgerðir, skattaeftirlit og annað opinbert eftirlit er ekki með sama hætti eða mjög líkum hætti og gerist í nágrannalönd- um okkar þá verða fyr- irtækin og sérfræðing- arnir sem vinna fyrir þau ásamt fjár- málastofnunum að flytja alfarið úr landi og vinna undir lögum sem eru með sama sniði og almennt gerist á al- þjóðlegum mörkuðum. Ísland getur ekki eitt og sér sett neina staðla sem eiga við um Íslend- inga erlendis sem stangast á við þær reglur sem gilda í öðrum Evr- ópulöndum. Íslensk skattalög og hvers konar lög um rannsóknir eða lögregluaðgerðir verða að vera ná- kvæmlega með sama sniði og í öðr- um Evrópulöndum þar sem Íslend- ingar eru nú í mjög nánu samstarfi með útlendingum. Innan sama fyr- irtækis sem rekið er sameiginlega af Íslendingum og útlendingum er al- gerlega óframkvæmanlegt að Ís- lendingarnir sitji við annað borð en erlendir samstarfsmenn þeirra í sama fyrirtækinu. Þessi staða kom til dæmis upp þegar Jón Ásgeir var að vinna með Philip Green um yf- irtöku á Arcadia að lögreglurann- sókn í höfuðstöðvum Baugs var í augum Green feiknarlega alvarlegur atburður en Jón Ásgeir, svipað og flestir Íslendingar, taldi nánast að um formsatriði væri að ræða og kynnti þetta ekki neitt sérstaklega fyrir Green sem taldi þá að Jón hefði verið óheiðarlegur. Það sjá allir að svona mismunur í réttarfari og meðferð opinberra mála gengur ekki. Sum Evrópulönd hafa undanfarið lagað ýmislegt í þessum málum og á árinu 2003 gerði Spánn til dæmis umtalsverðar breytingar til að auðvelda öðrum Evrópubúum að starfa á Spáni. Íslenskt rétt- arfar og Baugsmálið Sigurður Sigurðsson fjallar um málefni Baugs Sigurður Sigurðsson ’Íslensk stjórn-völd hafa hingað til viljað ráða nær einu og öllu í íslensku at- vinnulífi.‘ Höfundur er verkfræðingur. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.