Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 16
16 F MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL SALA - VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ
LOGAFOLD - GRAFARVOGUR Mjög
falleg 185,1 fm efri sérhæð ásamt innbyggðum
bílskúr. Bílskúrinn er samkvæmt FMR skráður
24,3 fm en er í raun 27 fm ásamt 3 fm geymslu.
Hæðin er staðsett á góðum stað í Grafarvoginum
þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og íþróttir.
Húsið er í góðu ástandi að utan með fallegu
plani, afgirt verönd þar sem er heitur pottur og
gróinn garður. Hæðin nýtist sérlega vel enda öll
rými rúmgóð og vel skipulögð. Íbúðin skiptist í
rúmgóðar stofur, sjónvarpshol, fjögur góð
herbergi, gestasnyrtingu, stórt baðherbergi sem
flísalagt er í hólf og gólf með baðkari og sturtu,
fallegt eldhús og þvottahús. Að innan er húsið í
góðu ástandi með fallegum innréttingum og
ágætum gólfefnum. Hér er um að ræða fallega
hæð á góðum stað. Kominn er vísir að sólstofu á
hluta svala og eru komnir útveggir og fylgja
útihurð og opnanleg fög. Verð 39,9 milljónir.
KLEIFARVEGUR - EINSTAKT
TÆKIFÆRI Á þessum einstaka og eftirsótta
stað er til sölu mjög sérstakt og fallegt
einbýlishús á tveimur hæðum ásamt sérstæðum
26 fm bílskúr. Lóðin er 740 fm og stendur húsið
mjög frítt í umhverfi sínu og nýtur þar með
gríðarlega fallegs útsýnis yfir Laugardalinn og út
á flóann. Húsið er byggt í s.k. “funkisstíl” með
mjög hreinum línu og formi. Húsið býður upp á
mjög fjölbreytta og skemmtilega stækkunar- og
breytingarmöguleika og liggja fyrir hugmyndir að
nokkrum slíkum. Húseignin sjálf virðist við
einfalda skoðun vera í mjög góðu ástandi, þ.e.
gler og gluggar, lagnir, þak og steypa. Að innan
þarfnast húsið hins vegar töluverðrar
endurnýjunar á innréttingum og gólfefnum.
Brynjar Harðarson sýnir húsið og gefur
upplýsingar í síma 840-4040.
SKAFTAHLÍÐ - SÉRHÆÐ Í HLÍÐUNUM
Mjög björt og falleg 122 fm efri sérhæð ásamt 28
fm bílskúr á vinsælum stað í Hlíðarhverfinu.
Eignin er ein af þessum eftirsóttu hæðum þar
sem öll rými nýtast einkar vel með stórum
stofum, rúmgóðum herbergjum og tvennum
svölum. Húsinu hefur verið vel viðhaldið og er
allur frágangur á lóð og í sameign til fyrirmyndar.
Fyrir framan húsið er upphitað hellulagt bílaplan.
Nýlega hefur verið skipt um skolp- og drenlagnir.
Húsið var málað að utan árið 2002. Íbúðin er
staðsett á góðum og barnvænum stað í Hlíðunum
þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og íþróttir.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Verð 29,8 milljónir.
ÁSGARÐUR Góð 4ra herbergja 88,9 fm með
sérinngangi frá svölum í góð fjórbýli. Gott útsýni
yfir Fossvogsdalinn. Íbúðinni fylgir góð geymsla
og ágæt sameign. Rólegt og barnvænt hverfi.
Stutt í skóla, leikskóla, íþróttir og alla þjónustu.
Verð 18,9 milljónir.
4 - 6 HERBERGJA
SÉRBÝLI
ENGJASEL
FRÓÐENGI
LINDARGATA - ÞAKÍBÚÐ
ÁLFASKEIÐ HFJ
BARÐASTAÐIR - ÚTSÝNISSTAÐUR
BÁSENDI
SÓLHEIMAR - STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI
Mjög góð 3ja herbergja 89 fm íbúð á 11. hæð (efstu) í þessu vinsæla lyftuhúsi sem er með einu
stórkostlegasta útsýni í Reykjavík. Íbúðin er öll nýlega uppgerð. Staðsetning hússins er mjög góð,
stutt í Laugardalinn, skóla og aðra þjónustu. Verð 24,9 millj. sjá nánari lýsingu og myndir á netinu.
BLÖNDUBAKKI MEÐ HERBERGI Í KJALLARA
Rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýli ásamt herbergi í kjallara.
Húsið er tiltölulega nýmálað og sameign er snyrtileg. Íbúðinni fylgir stór geymsla á jarðhæð
ásamt herbergi sem hægt er að leigja út. Húseignin er einstaklega vel staðsett með tilliti til skóla,
samgangna og allrar þjónustu, s.s. verslana sem eru á næstu grösum og stutt er í Mjóddina. Verð
18,4 milljónir.
HAMRAVÍK - GLÆSILEG ÍBÚÐ
Stórglæsileg 3ja-4ra herbergja 106 fm íbúð á 2. hæð (upp 1. stiga) í mjög nýlegu og glæsilegu
viðhaldslitlu fjölbýlishúsi á frábærum stað í Grafarvoginum. Sérinngangur er í íbúðina af svölum.
Mjög rúmgott sérþvottahús með glugga og mjög fallegt flísalagt baðherbergi með glugga.
Rúmgóðar suðvestursvalir og leikskóli, skóli og leikvellir í göngufæri. Einnig eru Spöngin og
Korpúlfsstaðargolfvöllurinn í göngufæri. Lóðin er stór og ræktuð og næg bílastæði fylgja húsinu.
Gólfefni eru parket og flísar. Verð 23,5 milljónir.
LYNGMÓAR - GARÐABÆ
Mjög góð, björt og vel skipulögð 3ja herberja 93,7 fm íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt bílskúr í góðu
fjölbýli. Fallegt útsýni til vesturs og norðurs. Íbúðinni fylgir snyrtileg sameign með þvottahúsi,
geymslu og hjólageymslu. Mjög snyrtileg lóð með grasflöt og trjám. Um er að ræða fallega íbúð
í rólegu og barnvænum hverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, verslanir og aðra
þjónustu. Verð 21,9 milljónir.
LUNDARBREKKA - HORNÍBÚÐ
Mjög góð 4ra herbergja 93 fm endaíbúð á efstu hæð (upp 3 stiga) í mjög fallegu, nýlega
standsettu fjölbýlishúsi á rólegum og barnvænum stað í Kópavogi. Óskráð er ca 13 fm sér
geymsla með glugga í kjallara. Íbúðin er með sérinngangi af svölum og gríðarlega mikið útsýni er
úr íbúðinni. Húsið var standsett á síðasta ári og málað í sumar. Allt gler í íbúðinni var endurnýjað
fyrir 2 árum. Gólfefni eru parket og flísar. Verð 18,9 milljónir.
GRÆNLANDSLEIÐ - NÝB. Á EINSTÖKUM ÚTSÝNISST.
Glæsilegar og óviðjafnanlega vel staðsettar sérhæðir í nýjum parhúsum á einstökum útsýnisstað.
Húseignirnar skiptast annars vegar í glæsilegar efri sérhæðir með óvenju stórum innbyggðum
bílskúr þar sem allt er sér, s.s. inngangur, þvottahús og hiti. Úr þessum hæðum er útgengt á um
40 fm timburverönd vestan megin við húsin og austan við húsin er um 30 fm hellulögð verönd þar
sem gert er ráð fyrir glerskála og liggja fyrir samþykktar teikningar af honum. Hins vegar er um
að ræða glæsileg 2ja herbergja neðri sérhæðir. Húseignirnar eru fullbúnar að utan en tilbúnar til
innréttinga að innan, fyrir utan eina neðri sérhæð sem selst fullfrágengin. Staðsetningin er mjög
skemmtileg á stórkostlegum útsýnisstað en þessar húseignir eru innst í lokuðum botnlanga það-
an sem þær njóta óskerts útsýnis yfir nánast alla Reykjavík, Esjuna og út á Flóann.
SUÐURMÝRI - SELTJARNARNES
Gríðarlega fallegt 181 fm parhús á tveimur hæðum. Húsið er einstaklega vandað að allri gerð.
Allur frágangur að utan er til fyrirmyndar og er húsið nánast viðhaldsfrítt með litaðri álklæðningu
og steinuðum veggjum. Falleg verönd með steinflísum og vönduðum skjólveggjum. Að innan er
húsið einkar glæsilegt og vel skipulagt enda allt hannað af innanhúsarkitekt. Samstætt tréverk er
í öllu húsinu og allt sérsmíðað. Mjög vandaðar flísalagnir á böðum. Einstaklega falleg innbyggð
lýsing og mikið lagt í allt rafmagn. Verð 52,9 milljónir.
KELDULAND - FOSSVOGUR
Sérlega falleg, björt og vel skipulögð 3ja-4ra herbergja 86 fm íbúð á 2. hæð í vel viðhöldnu fjölbýli.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð, m.a. hefur verið skipt um eldhúsinnréttingu, hurðir og
gólfefni. Fallegt útsýni yfir Fossvogsdalinn. Gott þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara.
Snyrtileg lóð með stórri grasflöt. Rólegt og barnvænt hverfi. Stutt í skóla, leikskóla, íþróttir og
alla þjónustu. Í heild er hér um að ræða mjög góða eign í vinsælu hverfi. Verð 20,9 milljónir.
BREIÐAVÍK - GRAFARVOGI
BOÐAGRANDI - VESTURBÆ
GRÆNLANDSLEIÐ
SUMARHÚS - BORGARLEYNI
GRÍMSNESI
HÚS TIL FLUTNINGS
Sími 530 1500
www.husakaup.is
MIKIL SALA
VANTAR
ALLAR
STÆRÐIR
EIGNA
Á
SKRÁ