Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 F 63
Vissir þú.......
Úr lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa
15 gr. Fasteignasali skal gæta hagsmuna kaupanda og seljanda.
Fasteignasali skal í hvívetna leysa af hendi störf sín svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Hann skal liðsinna báðum aðilum, seljanda og kaupanda, og gæta réttmætra
hagsmuna þeirra. Hann skal einnig gæta þess að aðila séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir kostir í samningum.
16. gr. Samnings- og skjalagerð.
Fasteignasala er skylt að annast alla skjalagerð við sölu fasteigna og skal geta þess í skjölunum, þar á meðal söluyfirliti, kauptilboði, kaupsamningi, afsali, veðbréfi og
skuldabréfi, hver samið hafi. Skal nafn fasteignasala koma fram svo eigi verði um villst.
Öll skjalagerð og samningsgerð skal vönduð og svo úr garði gerð að hagsmunir beggja aðila séu tryggðir og réttarstaða hvors um sig sé glögg.
...að sú krafa er gerð að fasteignasali
skuli sitja alla þá fundi þar sem skjöl
eru undirrituð í fasteignaviðskiptum
þínum.
Hafðu þinn rétt á hreinu og njóttu
leiðsagnar og vinnu fasteignasala á
þeim fundum þar sem þú þarft að
undirrita hvers konar skjöl - enda er
þar margs að gæta.
Sé þessi háttur ekki hafður á er verið
að brjóta gegn rétti þínum!