Tíminn - 22.05.1970, Side 2
TIMINN
FÖSTUDAGUR 22. maí 1970.
Kosningaskrifstofur
B-listans í Reykjavík
eru á eftirgreindum
stöðum
Fyrir Mela- og Miðbæj-
arsvæði:
Hringbraut 30, símar: 25547,
24480. Opin frá kl. 14 til 22 dag-
lega.
Fyrir Austurbæjar-,
Sjómanna- og
Álftamýrarsvæði:
Skúlatúni 6, 3. hæS, símar:
Fyrir Austurbæjarkjörsvæði
26673, fyrir Sjómannaskólakjör-
svæði 26674 og 26676, fyrir Álfta-
mýrakjörsvæði 26672.
Aðrir símar: 26671 og 26675.
Opin aila daga frá kl. 14 til 22.
Fyrir Laugarneskjör-
svæði:
Laugarnesvegur 70, sími 37991.
Opin frá kl. 14 til 22 alla daga.
Fyrir Breiðagerðis-
kjörsvæði:
Grensásvegur 50, símar: 35252
og 35253. Opin kl. 17—22 daglega.
Fyrir Langholtskjör-
svæði:
Langhoitsvegur 132, símar
30493 og 30241.
Fyrir Breiðholts-
kjörsvæði:
Tungubakki 10, sími 83140.
Opin kl. 17—22 daglega.
Fyrir Árbæjarhverfi:
Selásbúðin, sími 83065. Opin kl.
17—22 dagiega.
Stuðningsmenn B-litans! Haf-
ið samband við skrifstofurnar og
skráið ykkur til starfs á kjördag.
FRAM TIL SÓKNAR FYRIR
B-LSTANN!
Neskaupstaður
Framsóknarmenn hafa opnað
kosningaskrifstofu að Hafnarbraut
6 (Brennu) annarri hæð. Skrif-
stofam mun verða opin alla daga
frá kl. 20 til 22 og á öðrum tím
um eftir ástæðum. Stuðningsfólk
er gæti veitt u >lýsingar, er vin-
samlega beðið um að hafa sam-
band við skrifstofuna. Síminn er
194.
SELTJARNARNES
Skrifstofa H-listans í Seltjam-
arnesherppi er að Miðbraut 21
sími 25639. Stuðningsmenn era
hvattir til að koma á skrifstofuna.
KEFLAVÍK
Kosningaskrifstofa B-listans,
lista Framsókn: laganna í Kefla
vík við bæjars'tjórnarkosningarn-
ar 31. maí n. k. er að Hafnar-
götu 54 í Keflavík sími 2785.
Skrifstofan er opin daglega kl.
10—12, 13,30—9 og 20—22.
Stuðningsmenn hafið samband
við skrifstofuna sem allra fyrst.
B-listinn Keflavík.
SJÁLFBOÐALIÐA
VANTAR
Kosningaskrifstofu Framsókn-
arflokksins að Skúlatúni 6 vant-
ar sjáifboðaliða í kvöld og næstu
kvöld milli kl. 17 og 23. Fjöl-
mennið til starfa.
Kosnmgahappdrætti
Framsóknarflokksins
og Fulltrúaráðsins
í Reykjavík
Kosningaliappdrætti er nú hafið
til styrktar Framsóknarflokknum
og Fulltrúaráði Framsóknarfélag
anna í Reykjavík, vegna bæja- og
sveitastjórnakosninganna, sem
framundan eru. Hafa happdrættis-
miðar verið sendir til stuðnings-
fólks og viðskiptamanna happ-
drættisins um allt land og er heit-
ið á alla að brcgðast nú vel við
og vinna ötullega að sölu miðanna.
Til vinninga er mjög vel vand-
að eins og vinningaskráin ber
með sér, sem prentuð er á mið-
ana og verð hvers miða er 100
krónur.
Kosninganefnd FramsóQcnarfé-
laganna í Reykjavík vill sérstak-
lega minna alia þá stuðningsmenn
floklksins, sem fengið hafa miða
sienda frá kosningahappdrættinu,
á, að gera skil hið allra fyrsta. Það
er mjög nauðsynlegt, að velunn-
arar B-listans bregði fljótt við og
hafi samiband við slkrifstofuna,
Hringbraut 30, sem opin verður
í ailan dag og alla daga fram að
kosningum, frá kl. 9 að morgni
til kl. 10 að !-völdi. Einnig verður
tekið á móti greiðslu fyrir miða
á aígreiðslu Tímans, Bankastræti
7, á afgreiðslutíma blaðsins og á
kosningaskrifstofu B-listans, Skúla
túni 6, frá kl. 2 á daginn til kl.
10 á kvöldin.
Þeir, sem ekki hafa tök á að
koma uppgjöri til þessara staða,
geta hringt í sím- 24483 og verður
greiðslan þá sótf til þeirra.
Sumarfagnaður
Framsóknarmanna
á Suðurnesjum
Sumarfagnaður Framsóknar-
manna á Suðurnesjum verður 1
Stapa föstudaginn 22. mad, kL
20.30. Dagskrá: Fiðrildi leika og
syngja. Ávörp: Hilmar Pétursson
og Ólafur í. Hannesson, skemmti-
þáttur Ómar Ragnarssor, kynnir
Ólafur Guðmundsson. Ásar leika
fyrir dansi til ki. 2. Aðgöngumiða-
sala í Stapa frá kl. 19. Sími 2625.
Framsóknarfélögin
Eitt fullkomnasta haf- og fiskirannsóknarskip heimsins —
G. 0. SARS KEMUR TÍL
REYKJAVIKUR A SUNNUDAG
35. aðalfundur Iðnaðarmannafélags Suðurnesja
Lýsir stubn.in.gi við
allsherjar lífeyris-
sjóð allra landsmanna
27. apríl sl. tók Hafrannsókna-
stofnun norska Fiskimálaráðuneyt-
isins í Bergen við nýju rannsókna
skipi sem hlaut nafnið G. O. SARS.
Skipið er smíðað í Bergen hjá
A.S. Mjellem og Karlsen og er
tæpar 2000 lestir dw. og kostaði
um 330 millj. króna, þar af er
tækjabúnaður fyrir 95 millj. þetta
er þriðja rannsóknaskipið, sem
ber nafn hins þekkta norska nátt-
úrufræðings G. O. Sars.
1 sinni fyrstu rannsóknarferð
kannar skipið hafsvæðið milli Is-
lands og Noregs, leiðangursstjóri
er Lars Midttun en skipstjóri And-
ers Lunde. í tilefni af Alþjóða
fiskimálaráðstefnunni á vegum
F.A.O., sem haldin verður hér í
næstu viku, kemur skipið hingað
n.k. sunnudag.
G. O. SARS er talinn eitt full-
komnasta skip sinnar tegundar og
má líkja því við fljótandi rann-
sóknastofnun. Allur tækjabúnaður
er hinn bezti sem nú þekkist og
hægt er að bæta viið þeim tækjum
sem vitað er um að eru í undir-
búningi fyrir slík skip.
í leitartækjastöð, sem kalla
mætti taugamiðstöð skipsins, eru
hin fullkomnustu tæki, sem ödl
eru smíðuð hjá SIMONSEN RAD-
10 A.S. í Oslo í náinni samvinnu
við Hafrannsóknastofnunina í
Bergen, og kostuðu um 32 millj.
króna. Þeim er ætlað að afla vitn-
eskju um flest það sem fyrirfinnst
í sjónum. Þeim er komið fyrir f
11 samliggjandi tækjaskápum. Und
irstöðutækin eru 4 gerðir dýptar-
mæla, sem hver hefur sínu ákveðna
verkefni að gegna, m.a. að greina
einstaka fiska á ailt að 800 m. dýpi
og 2 Sónartæki (Asdic). Við þessi i
leitartæki eru tengd ýms auka-;
tæki, m.a. til fiskatalningar, segul-
bandstæki til hljóðritunar á endur-
vörpum, átu og fiskimagns mæl-.
Framhald á 11. síðu |
35. aðalfundur Iðnaðarmanna
félags Suðurnesjr var haldinn laug
ardaginn 2. maí s.l. Formaður
félagsins, Eyþór Þórðarson, flutti
skýrslu um starfsemina á síðasta
stai'fsári, sem verið hefur mjög
fjölþætt. Félagsmenn eru nú 229,
sveinar og meistarar í öllum iðn-
greinum.
Félagið rekur innheimtudeild
ogjnælingastofu og hefur rekstur
jfKFra gengið vel og aukizt á ár-
inu. innheimtudeildin hefur tekið
í notkun fullk'Omna bókhaldsvél og
tekur nú að sér að færa bókhald
nokkurra iðnfyrirtækja. Er búizt
við mikilli aukningu á þeirri þjón
ustu í fratntíðinni. Innheimtudeild
in hefur ennfremur tefkið að sér
umboð fyrir Iðntrygingu h.f., hið
nýstofnaða tryggingafélag iðnað-
armanna og iðnrekenda og hefur
þegar aflað talsverðra trygginga
fyrir félagið.
Atvinnuástand á félagssvæðinu
hefur batnað verulega frá því sem
var fyrir 2—3 árum, og atvinna
er nú næg í öllum iðngreinum.
Félagið beitti sér fyrir stofnun
byggingafélags iðnaðarmanna fyrir
einu ári og hefur verið unnið að
undirbúningi að byggingu fjölbýl-
ishúsa á vegum þess, en fram-
kvæmdir eru enn ekki hafnar.
í skýrslu formanns kom fram,
að félagið hefur m. a. unnið að
því að afla félagsmönnum réttar
til atvinnuleysisbóta og viðbótar-
lána hjá Húsnæðismálastjórn, en
allar aðgerðir í þá átt hafa hing-
að til reynzt árangurslausar.
Fjárhagur félagsias er mjög góð
ur og nam skuldlaus eign félags-
ins um síðustu áramiót um 2.6
millj. kr.
Á aðalfundinum voru gerðar
svohljóðandi ályktanir:
. Aðalfundur Iðnaðarmannafél-
ags Suðurnesja, haldinn 2. maí
1970 skiorar á ríkisstjórnina að
beita sér fyrir því, að allir lands-
menn njóti sama réttar til allra
tryggingarbóta, sem stofnað hefur
verið til eða kann að verða stofn-
að til vegna aðgerða rikisstiórnar-
innar og Alþingis, þar sem slíkar
bætur eru að miklu og oft öllu
leyti kostaðar af almannafé.
Fundurinn lýsir jafnfranxt yfir
stuðningi við allsherjarlífeyris-
sjóð fyrir alla landsmenn og skor-
ar á ríkisstjórnina að hraða fram-
kvæmd þess máls.
Greinargerð:
Á undanförnum árum hefur Al-
þingi æ ofan í æ samþykfct lög,
sem flutt hafa verið af ríkisstjórn
inni eða fyrir atbeina hennar, þar
sem vissum félagshópum í þjóð-
félaginu hafa verið sköpuð ákveð-
in forréttindi á sviði almannatrygg
inga og ýmiss konar annarrar fyr-
irgreiðslu af hálfu opinberra að-
iLa. Má þar t. d. nefna lög um at-
vinnuleysistryg.gingar, lög um eft-
irlaun til aldraðra félaga í stéttar-
félögum og lög um viðbótarlén frá
Húsnœðismálastjórn til félags-
manna í verkalýðsfélögum. Með
tilliti til þess, að þær trygginga-
bætur og sú fyrirgreiðsla, sem
veitt er með lögum þessum, er að
veralegu leyti kostuð af almanna-
fé, verður að teljast afar hæpið
að binda hana eingöngu við fél-
agsmenn í ákveðnum samtökum.
Framangreindum lögum þarf að
breyta á þann veg, að þau nái til
allra landsmanna án tillits til þess
hvort þeir eru félagsbundnir í ein-
hverjum ákveðnum samtökum,
þar sem mikill fjöldi manna mun
alltaf búa við þær aðstæður að
eiga þess ökiki kost að gerast fél-
agsmenn í þeim félagssamtökum,
sem lögin taka nú til.
n. Aðalfundur Iðnaðarmanna-
félags Suðurnesja 1970 ítrekar
fyrri ályktun félagsins til sveitar-
stjórna á Suðurnesjum. Sambands
ísl. sveitarfélaga og Efnahagsstofn
unarinnar um að gerð verði
byggðaáætlun fyrir Reykjaneskjör
dæmi sunnan Hafnarfjarðar. Tel-
ur fundurinn mjög brýnt, að fram
tíðarþróun atvinnuvega á Suður-
nesjum verði undirbyggð með al-
hliða áætlunargerð, er taki til
allra þátta atvinnulífsins og kann-'
aðir verði framtíðarmöguleikar
þessara og nýrra þátta í atvinnu-
lífi Suðurnesja.
III. Aðalfundur Iðnaðarmanna-
félags Suðurnesja 1970 lýsir yfir
eindregnum stuðningi við þings-
ályfctunartillögu Geirs Gunnars-
sonar alþingismanns, sem lögð hef-
ur verið fram á Alþingi, um end-
urskoðun gjalda fyrir símtöl milli
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
skorar á alla þingmenn Revkjanes
kjördæmi® að veita þessu brýna
hagsmunamáli Suðurnesja brautar-
gengi.
f stjórn félagsins voru endur-
kjörnir: Eyþór Þórðarson, formað
Framhald á 11. síðu
Jónas Tryggvason
LEIDRETTING
í frétt af framboði Framsóknar-
manna og óháðra á Blönduósj 31.
maí næst komandi misrituðust
starfsheiti tveggja manna. Jónas
Tryggvason er iðnaðarmaður og
Ililmar Kristjánsson er trésmiður.
Þá fékk Ragnar Ingi Tómasson 36
atkvæði í prófkjöri því er fram
fór, en ekki 46, eins og segir í
fréttinni. Listi Framsóknarmanna
og óháðra á Blöuduósi hefur bók-
stafinn H.
)