Tíminn - 03.07.1970, Page 12
12
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
BSIHMM
FÖSTUDAGUR 3. júlí im
ÍÞRÓTTA AhATÍÐ 1970
SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ
Hús Slysavarnafélags íslands við Grandagarð:
IQ. 09,30 50. íþróttaþing — setning, ávörp,
þingstörf.
Hópganga íþróttafólks:
Kl. 13,15 Þátttakendur safnast saman við gatna-
mót Miklubrautar og Kringlumýrar-
krautar.
Kl. 14,15 Gangan hefst- Gönguleið: Kringlu-
mýrarbraut — Suðurlandsbraut —
Múlavegur — Engjavegur — Laugar-
dalsvöllur.
Laugardalsvöllur:
Kl. 14,45 Íþróttahátíðin hefst.
Kynning: Sveinn Björnsson, fonnaður
Íþróttahátíðarnefndar ÍSÍ.
Setning hátíðarinnar: Gísli Halldórs-
son, forseti ÍSÍ.
Hátíðarfáni dreginn að húni.
Ávarp menntamálaráðherra, dr. Gylfi
Þ. Gíslason.
Ávarp borgarstjóra Reykjavíkur: Geir
Hallgrímsson.
Lúðrasveitir leika.
Kl. 15,30 Fimleikasýning telpna 10—12 ára. —
Stjórnendur Hlín Torfadóttir og Hlín
Árnadóttir.
Kl- 16,00 Keppni frjálsíþróttamanna um Evrópu
bikar Bruno Zauli. Undanrás: Belgía,
Danmörk, Finnland, írland, ísland. —
Fyrri hluti. —
(Aðgangseyrir: Stúka 150 kr. Stæði
100 kr. — 25 kr.).
Kl. 20,00 Glímusýning. Stjórnandi: Ágúst Krist-
jánsson. — Judo-sýning. Stjórnandi:
Yamamoto frá Japan. Fimleikasýning
karla 15 ára og eldri. Stjórnendur:
Valdimar Örnólfsson og Viðar Símonar
son. Knattspyrnuleikur: Úrval knatt-
spyrnumanna 18 ára og yngri: Reykja
vík — Landið. — (Aðgangur ókeypis)
Sundlaugarnar í Laugardal:
Kl- 18,00 Sundknattleiksmeistaramót íslands
(Aðgangur ókeypis).
Við Laugarnesskóla:
Kl. 18,00 íslandsmeistaramót í handknattleik
ntanhúss. (Aðg. kr. 50,00 og kr. 25,00)
Við íþrottamiðstöðina:
KI. 18,00 íslandsmeistaramót í handknattleik
utanhúss. (Aðg. kr. 50,00 og kr. 25,00)
Við Laugarlækjarskóla:
KI. 18,00 Íslandsmeistaramót 1 handknattlei'k
utanhúss. (Aðgangur ókeypis).
Knattspyrnuvellir í Laugardal og víðar í Reykjavík
Kl. 17,00 Hátíðarmót yngri flokkanna í knatt-
spymu. (Aðgangur ókeypis).
Golfvöllur við Grafarholt:
Kl. 16,30 Hátíðarmót Golfsambands íslands
(Aðgangur ókeypis).
íþróttahöllin í Laugardai:
Kl. 21,00 Dansleikur. — Dansleiknum lýkur
M. 01,00. (Aðgangseyrir kr. 150,00).
Forsala aðgöngumiða að setningarathöfn og dans-
leik er að Café Höll, Austurstræti 3, í dag og
á morgun.
Rabbað við Þór
Ottesen um
iandsmót iðn-
nema, sem haldið
verður um helgina
vekur athygli
Um næstu helgi fer fram lands-
mót Inðnemasambands íslands að
Féíagslundi í Gaulverjarbæjar-
hreppi. í tilefni þessa móts liafði
Tíminn samband við Þór Ottesen
mótsstjóra.
— Hvað verður um að vera á
þessu landsmóti Þór?
— Mótið verður sett á laugar-
dag kl. 2. Síðan hefst keppni í
handbolta, fótbolta, 100 m, 800 m,
1500 m hlaupi, 4x100 m boðhlaupi,
kúluvarpi, langstökki, hástökki og
þrístökki. Um kvöldið verður
haldinn dansleikur í húsinu til kl.
2 eftir niiðnætti við undirleik
hljómsveitar Þorsteins Guðmunds-
sonar. Eftir dansleikinn verður
flugeldasýning.
Á sunnudag verður keppt til
úrsíita í hinum ýmsu greinum
frá laugardeginum, einnig fer þá
fram reiðhjólakeppni en í þeirri
grein var keppt í fyrsta kipti í
fyrra og vakti hún þá verðskuld-
aða athygli og kátínu. Þá munu
stjórnir INSÍ og UMF Samhygð
ar leiða saman hesta sína í poka-
hlaupi, en UMF Samhygð keppir
sem gestur á þessu móti. Vegleg
verðlaun eru í öllum greinum
mótsins m a. bikar ti’ eignar í
handbolta og fótbolta, lítið silfur-
reiðhjól í reiðhjóiakeppninni sem
'er flarandigripur og verður að
vinnast tvisvar til að eignast það.
— Hvernig er aðstaðan fyrir
austan, /ellir og annað?
— Keppnin fer öll fram á grasi
og eru til daimis bæði handbolta
og fótboltavellir góðir. Tjald-
stæði eru góð á stáðnum og við
munum verða með sölu á öli, gosi,
sælgæti, samlokum og pylsum
á staðnum. Á þessu móti verður
eins og í fyrra „diskotek" sem
mun flytja okkur musik báða dag-
ana yfir mótssvæðið.
— Hvernig er með ferðir fram
og til baka á mótið?
— Sætaferðir verða frá BSÍ á
laugardag kl. 10 f. h. og 3 e. h.
og til baka að loknu móti á sunnu-
dag.
— Kemur Iþróttahátíðin ekki
til með að draga úr aösókninni
þai sem hún hefst á sunnudag?
— Nei hún á ekki að gera það.
Við verðum búnir að Ijúka mót-
inu h.já okkur það tímanlega á
sunnudag, að þeir, sem eiga að
keppa á íþróttahábíðinni á sunnu
dagskvöldið í handfenattleik
verða fcomnir í bæinn fyrir þartn
tíma, en handboltinn er það eina
sem eitthvað hefði spillt fyrir
okkur ef hann hefði verið fyrr
um daginn.
— Búizt þið við mikilli þátt-
töku í mótinu?
— Já við reikmum með, að
mjög margir leggi leið sína í Fé-
lagslund um helgina, þar sem
þetta er stutt 'rá bænum, að-
eins rétt fyrir utan Selfoss. Átta
iðnnemafélög hafa þegar tilkynnt
þátttöku í mótinu.
— Og eitthvað að lokum Þór?
| — Ég vona að sem flestir iðn-
hemar sjái sér fært að koma á
þetta. landsmót og einnig vona ég,
að margt fólfc leggi leið sína á
;þetta landsmót okkar og að þáð
fari vel fram í alla staði. Og
einu má ekki gleyma, og það er,
‘að þeir sem hug hafa á að vera
'með í reiðhjólakeppninni hafi
'með sér hjól, ef þeir geta, þvi að
hjól getum við ekki útvegað nema
takmarkað. — klp.—
Feröafólk - Ferðafolk
Heitur matur 1 hádeginu og á kvöldin.
Grill-réttir — kaffi og smurt brauð allan daginn.
Staðarskáli, Hrútafiröi.
Hafnfirðingar
Á morgun 4. júlí hefur nýtt fyrirtæki starfsemi
sína í Hafnarfirði: Teiknistofa Hafnarfjarðar s.f.
Fyrirtækið býður alhliða verkfræðiþjónustu, til
dæmis hönnun verka, gerð kostnaðaráætlana og
útboðsgagna, og annast eftirlit með framkvæmd-
um, ennfremur verður hjá fyrirtækinu tæki til
ljósprentunar á teikningum og skjölum fyrir
fyrirtæki og einstaklinga.
Teiknistofa Hafnarf jarðar s.f; er að Strandgötu 11,
m. hæð- Skfifstofutími er frá kl. 9—18 virka daga,
laugardaga frá kl. 9—12. Sími 51466.
útboðH
Tilboð óskast í gatnagerð, holræsalagnir, hita-
veitulagnir o fl. í hluta af nýju íbúðarhverfi við
Vesturberg, hér í borg.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri gegn
5000,00 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
15. júlí 1970, kl. 11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
■ ■■ -. i*
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Jörð óskast
tiS kaups
eða leigu, helzt í nágrenni
Reykjavíkur eða austan-
fjalls. Tilboð sendist afgr.
blaðsins fyrir 17. júlí,
merkt: „Jörð 1069“.
SKIPADEILD
M.s. „Helgafefr
lestar 1 Valkom 1 Finnlandi
um 16. julí; í Ventspiis í
Rússlandi um 21. júK, og
Svendborg í Danmörku um
25. júlí. Flutningur óskast
skráður sem fyrst.
SKIPADEILD
TIL SOLU
Á góðum stað í nágrenni
Reykjavíkur er til sölu 100
ferm. einlyft steinhús,
ásamt hænsnahúsi. 1 hekt
ari eignarlands fylgir. —
Laust 1. ágúst n.k. Uppl.
í síma 16766 kl. 10—12 og
1—5.