Tíminn - 03.07.1970, Síða 13
FÖSTUDAGUR 3. júlí 1970.
ÞRÓTTIR
TIMINN
*t ■■
13
Hvað verður um
á Íþróttaháííð
Alf.-Reykjavík. — Á fþróttasíð
nnni i gær birtum við dagskrá
Íþróttahátíðar ÍSÍ þrjá fyrstu dag
ana, þ.e. laugardag, suimudag og
mánudag. Mun síöari hluti dag-
skrárinnar birtast í bla'ðinu eftir
helgina. En hér á eftir verða
veittar almennar upplýsingar um
þa'ð helzta, sem fþróttahátíðin hef
nr upp á að bjóða:
Hópganga íþróttafólks
í upphafi íþróttahátiðarinnar
vexður efnt tii hópgöngu að
fþróttaleikvanginum í Laugardal.
í heimi muau taka þátt forustra-
menn íþróttahreyfingarinoar af
tfllu landinu, fþróttafóik úr GReykja
vík og frá héraðssamiböndum svo
og tneðlrmir ungmenna og fþrótta
félaga. Flestir munu ganga í
fþróttabúningum. Gangan mun
hefjast á gatnamótum Miklubraut
ar og KringlumjTarbrautar og
,verð*or gönguleiðin um 2600 m.
að LaugardaL Fánaborg og lúðra-
sveitir verða í fararbroddi, en
íþróttafélög og héraðssambönd
munu ganga undir sínum fánum
í stafrófsröð.
AHt íþróttafólk á öllum aldri,
konur og karlar, er hvatt til að
taka þátt í göngunnl
Gisting utanbæjarfólks
Útvegað verður gistirými í skól
um í nágrenni Laugardáís fyrir
fþróttafólk utan af landi. Hér er
þó aðeins um svefnpokapláss að
raeða og verða viðkomandi að hafa
með sér nauðsynlegan viðlegu-
útbúnað. Húsvarzla verður í skól-
unum.
Tjaldbúðir
f Laugardal er sérstakt tjald-
stæði fyrir ferðafólk, en auk þess
mun verða komið upp sérstökum
tjaldbúðum fyrir þátttakendur í
fþróttahátíðinni. Munu héraðssam
böndin geta fengið afmarkað
svæði fyrir sig.
Veifingar
Ýmsar tegundir veitinga munu
verða á boðstólum á hátíðarsvæð
inu, og í Laugardalshöllinni er
gert ráð fyrir matsölu, þannig að
íþróttafó!Ik og gestir geti notið
sem flestra þæginda, meðan á
dröl þeirra í Laugardal stendur.
Skrifstofa hátíðanefndar
Skrifstofa hátíðarnefndar er í
fþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Hún veitir allar nauðsynlegar upp
lýsingar um undirbúning og fram
kvæmd hátíðarinaar.
Sala á aðgöngumiðum, minja-
gripum og fl. mun þó jafnframt
fara fram í miðborginni hátíðar-
dagana og verður nánar auglýst
um það. Vinsamlega hafið sam-
band við skrifstofuna, ef yður
vanhagar um eitthvað varðandi
framkvætnd hátíðarinnar. Síminn
er 30955.
Unglingabúðir
Íþróttahátíðamefnd hefur ákveð
ið að starfrækja sumarbúðir fyrir
unglinga á aldrinum 12—16 ára,
á sama túma og hátíðin stendur
yfir. Sfcóli verður fenginn sem
aðsetur og verður þar bæði gist-
ing og matur. Héraðssamböndum
og fþróttabandalögum hefur ver-
ið gefinn kostur á að senda þátt-
takendur í sumarbúðirnar og ber
einstaklingum að snúa sér til
þeirra um frekari upplýsingar.
Sögusýning
í anddyri Laugardalsballarinn-
ar verður komið fyrir nokkrum
sögulegum atriðum um uppbygg-
ingu og sögu íþróttasambands ís-
lands og sérsambanda þess. Rakin
vcrður þróun hinna ýmsu fþrótta-
greina og sýnt í tölum og myndum
hið mikla starf íþróttaféláganna.
Þátttökubók
fþróttahátíðarnefnd hefur látið
útbúa sérstaka lausblaðaibók
vegna hátíðarinnar, og ætlazt er
til að allir forastumenn íþrótta-
hreyfingarinnar, þátttakendur í
íþróttahátíðinni, dómarar, nefnd-
ir, starfsmenn og gestir, skrifi
nöfn sín í hana. Mun bókin síðan
verða bundin inn og geymd sem
söguleg heimild. Mun verða aug-
lýst, hvar bókin verður staðsett
meðan á hátíðinni stendur.
IÞRÓTTA HÁTÍÐ1970
Heiðursskjöl
Þeir aðilar, sem rita nöfn sín
í þátttökubókina munu síðan fá
afhent sérstök skjöl, sem stað-
festa þátt þeirra í hátíðinni.
Pósthús
Opnað verður pósthús í Laugar
dal vegna íþróttahátíðarinnar.
Mun þar verða notaður sérstakur
stimpill hvern dag fyrir sig og
seld verða umslög hátíðarinnar.
Knattspyrna
Á íþróttahátíðinni er gert ráð
fyrir að fram fari úrslitaleikir í
kjördæmamóti í yngri flokkum
knattspyrnunnar svo og eftirtald
ir þrír leikir:
Landsleikur: ísland — Danmörk
Kappleikur: Úrval Reykjavík
— Landið.
Kappleikur: Reykjavík — Landið
(leikmenn 18 ára og
yngri).
Frjálsar íþróttir
Gert er ráð fyrir keppni í öll-
um greinum frjálsra fþrótta, bæði
í aldursflokkum kvenna og karla.
Þá fer fram undankeppni um
Evrópubikarinn og taka þátt í
henni fimm þjóðir: Belgíumenn,
Danir, Finnar, írar og íslend-
ingar.
Sund
Sundknattleiksmót fslands mun
fara fram. Stigakeppni ungiinga
16 ára og yngri milli Reykjavíkur
og landsins. Sundmót 14 ára og
yngri. Náttfataboðsund og Lands-
keppni: ísland — írland.
Handknattleikur
Á hátíðinni mun fara fram ís-
landsmeistaramót í útihandknatt-
leik í meistaraflokki karla og
kvenna og 2. fl. kvenna. Ennfrem
ur landsleikur: fsland — Færeyj-
ar.
Körfubolti
Úrslit í Bikarkeppni KKÍ munu
fara fram, svo og leífcur milli
unglingalandslið og unglinga
úrvals. — Kynntur verður Mini-
bolti fyrir börn 7—13 ára og að
lokum er gert ráð fyrir landsleik:
fsland — Skotland.
Glíma
Úrvalsflokkar glímumanna munu
sýna, svo og hópsýning. Þá mun
Íslandsglíman fara fram í Laug-
ardalshöllinni.
Fimleikar
Hópsýningar drengja og stúlkna
á aldrinum 16—12 ára munu
setja svip á fþróttahátíðina. Þá
munu ýmsir flokkar karla og
kvenna sýna fimleika og úrvals-
flokkar áhaldaleikfimi.
Judo
f judo munu fara fram bæði
sýningar og keppni í ýmsum
flofckum. Ef veður leyfir munu
þær bæði fara fram á Laugardals
vellinum og í Laugardalshöllinni.
Lyftingar
Keppt verður í 5—7 þyngdar-
flokkum í lyftingum og mun
keppnin fara fram í Laugardals-
höllinni. Hejmsmeistarinn í milli
þungavigt, Finninn K. Kangasni-
emi, mun taka þátt í keppninni.
Badminton
Keppt mun verða í öllum flokk
um karla og kvenna i bádminton.
Lögð verður áherzla á kynningu
íþróttarinnar og haldin sýni-
kennsla.
Skotfimi
Keppni í skotfimi með rifflum
mun fara fram í kjallara Laugar
dalshallarinnar, en því miður er
ekkert áhorfendasvæði þar. Hins
vegar um keppni með haglaibyss
um fara fram í Leirdal í landi
Grafarholts.
Golf
Keppni í golfi mun fara fram
við Golfskálann við Grafarholt,
alla daga íþróttahátíðarinnar. —
Keppt verður í öUum aldursflokk
um karla og kvenna, Ojr nokkrir
útlendingar munu taka þátt i mót
inu. Sérstök kynning verður á
golfíþróttinni.
Framhald á bls. 14.
Ove Flint Bjerg, frá AaE, einn hhma þriggja nýiiSa, sem leika meS
danska iandsiiðinu gegn íslandi, n. k. þriðjudag.
DANIR KOMA MEÐ NÆR
SITT STERKASTA LIÐ
Þrír nýliðar í landsliði þeirra - íslenzki hópunnn vaftnn í dag
Klp-Reykjavík.
Það verður ekkert b-landslið,
sem Danirnir stilla upp í leiknum
við ísland hér á Laugardalsvellin-
um n.k. þriðjudag, eins og sumir
voru farnir að óttast. — Danska
landsliðið var tilkynnt á miðviku
daginn, og kemur í Ijós, að 8 leik
menn, sem léku með Danmörku
Ármenningar!
Ármenningar, ungir sem ir,
mætið við félagsheimilið á sunnu
daginn kl. 12,45 og takið þátt í
hópgöngu íþróttamanna, við setn
ingu fþróttahátíðarinnar.
AMar nánari upplýsingar gefa
stjórnir deildanna.
Ármann.
á móti Svíþjóð í síðustu viku,
eru í liðinu.
Liðið er þannig skipað, miðað
við 4-3-3 leikaðferðina:
Kaj Poulsen, AaB — Jan Larsen,
AB — Erik Nilsen, B-1901 (fyrir
liði) — Jens Jörgen Hansen, EfB
— Jörgen Christiansen, AaB —
Birger Petersen, Hvidovre —
Jörn Rasmussen, Horseas — Per
Röntved, Bronshöj — Jörgen
Marcussen, Vejle — Jonny Peter
sen, AB — og Ove Flint Bjerg,
AaB.
Af þessum mönnum eru þrír
nýliðar, Jörgen Christiansen og
Ove Flint Bjerg, báðir frá AaB,
og svo Birger Petersen frá Hvid
ovre.
Ib Skotnborg, formaður lands-
liðsnefndarinnar dönsku, segir í
viðtali við Ekstrabladet, að þess
ir þrír hafi fcomið sterklega til
-greina í liðið á móti Svíþjóð, og
séu þeir sízt lafcari en þeir sem
ekki fcomast með, þ.e.a.s. Torben
Nilsen, og Keld Petersen, sem
báðir eru á ferðalagi með B-1903,
og Henning Munk Jensen og Finn
Wiberg, sem báðir era að gerast
atvinnumenn þessa dagana. „Við
litum heldur ekki á þetta sem
b-lið“, segir Skotnhorg.
Varamenn liðsins eru: Bent
Hansen, B-1009 — Nil-s Möller,
KB — Kresten Nygaard, Fugle-
hakken — Per Miadsetn, Vefle —
og Henrik Bernburg, AaB.
fslenzka landsliðið verður efcki
tilkynnt endanlega fyrr en um helg
ina, en í dag verður 17 manna
hópurinn tilkynntur, og mun hann
mæta til æfinga á morgun.